Morgunblaðið - 07.09.1984, Page 14

Morgunblaðið - 07.09.1984, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 ÞORVALDUR SKÚLASON Fæddur 30. aprfl 1906 Dáinn 31. ágúst 1984 Það var hlutskipti Þorvalds Skúlasonar, sem kvaddur er í dag, að gerast einn af brautryðjendum íslenzkrar samtímalistar. Berjast fyrir sannfæringu sinni með pentskúfinn að vopni þrátt fyrir skilningsleysi og margvíslegt mót- læti. Hann naut þó þeirrar gæfu á sinn hátt að vera ávallt umdeildur og í sviðsljósinu og njóta loks mik- illar virðingar og viðurkenningar. Einkum síðasta árið, sem hann lifði, er út kom forkunnarfögur bók um list hans, er fylgt var eftir af minnisstæðri sýningu í húsa- kynnum Búnaðarbankans svo og annarri í Listmunahúsinu. Þorvaldur sóttist ekki eftir lýðhylli með list sinni, en sigurinn liggur ótvírætt í baráttunni, því að án baráttu vinnst enginn sigur. Helst á það að vera barátta upp á líf og dauða til að brjóta sér leið að hinu innsta í lífinu, — stig- magnandi barátta færir mönnum stærri sigra. Sá, sem er í eldlínu einhvers málefnis, má ekki hika og það er hlutskipti brautryðjandans að sækja á, en engu að síður að búast til varnar. Hirða hvergi um for- dóma og biðla aldrei til fjöldans, beita sig aga og sjálfrýni umfram aðra menn. Skapandi athafnir krefjast mikilla sviptinga, mikils sársauka og óheftrar sjálfsafneit- unar, ef þær eiga að fá rými til vaxtar. Hér er ekki fiskað í lá- deyðu heldur barist við höfuð- skepnurnar, jörð, vatn, loft og eld, svo sem frá árdögum, er maðurinn uppgötvaði, að hann gat hugsað og fundið til. Síðan hefur framþróun- in stjórnast af hugviti og kjarki þeirra, er þorðu að leggja út í óvissuna, sögðu stöðnuðum hug- myndum stríð á hendur og tókust á við ný vandamál. Það er þetta, er gefur lífinu gildi og er með sanni hamingja hvers lifandi manns, glíman við að leysa óleysanlega gátu, er aldrei mun að fullu ganga upp, en er alltaf jafn heillandi hinum sjáandi. Málverkið er stöðug endurnýjun og á sér engan aldur, er því speg- ilmynd lífsins. Málverkið verður aldrei fullgert frekar en heims- myndin, og þannig orðaði það einn af höfuðmeisturum aldarinnar: „Hefur þú nokkurn tíma séð full- gerða mynd? Mynd eða eitthvað þvíumlíkt? Vei þér, ef þú segist vera búinn með eitthvað skapandi ... Að ljúka við mynd! — l’achever — eins og maður segir hér. Hve heimskulega það hljómar! Að ljúka við hlut heitir að ræna hann sál sinni." Að ljúka við hlut er þannig ástand stöðnunar, en dauði er hluti lífsins, er getur borið að hvenær sem er, — hann er endur- nýjun og varanlegur og fylgir því sérhverri annarri framþróun. Allt, sem hér hefur verið sagt, má heimfæra á lífsferil Þorvalds Skúlasonar, hann var aflvaki og fulltrúi nýsköpunar í myndlistum, þeirrar endurnýjunar, sem er lífskvikan sjálf. Bragi Asgeirsson Þorvaldur Skúlason er látinn. Með honum er genginn sá sem er talinn hafa verið málari málar- anna hér á landi allt frá stríðslok- um. Víst er að áhrif hans á kyn- slóð yngri listmálara eru ómæld. Þorvaldur Skúlason skilur eftir sig merkilegt ævistarf, starf listmálara. Hann skilur eftir mik- inn fjársjóð til framtíðarinnar þar sem eru myndir hans, málverk sem geyma hug og liönd eins mik- ilvirtasta málara okkar. Félag íslenskra myndlistar- manna kveður látinn samherja, er var í fylkingarbrjósti félagsmála myndlistarmanna um árabil. Stjórn Félags íslenskra myndlistarmanna Kveðja frá Listasafni Háskólans Á útfarardegi Þorvalds Skúla- sonar listmálara sendir Listasafn Háskóla íslands þessum mikla listamanni virðingar- og þakk- arkveðjur sínar. Safnið hefur að geyma heilstætt yfirlit um list hans, allt frá fyrstu æskumyndum og til hinna síðustu. Mun safnið hlúa að þeim fjársjóði og auka eft- ir föngum, svo hins mikla braut- ryðjandaverks Þorvalds í íslenskri listasögu þessarar aldar verði jafnan með sóma og virðingu gætt. Safnið þakkar listamannin- um alla velvild hans og ljúf- mennsku í samskiptum, um leið og það sendir vinum hans og ættingj- um samúðarkveðjur. Stjórn Listasafns Háskóla íslands Þorvaldur kenndi mér að meta liti og form og þroskaði mig í að skilja framþróun myndlistar. Hans strangi skóli hefur verið mér ómetanlegur í 35 ár. Lítið dæmi: „Línan er undur- samlega lifandi og breytileg, getur verið stöðugleikinn sjálfur, flogið eins og fugl, stundum verið duttl- ungafull, óróleg og hikandi. Því næst spennt eins og bogi, einnig þung, máttug eins og hreyfingar hafsins, straumur fljótsins og stundum í vígahug og fer æðandi um flötinn til að leggja hann und- ir sig. Alla þessa eiginleika má nota í einu og sama málverki. Takist það er sköpuð simfónisk heild". Sverrir Sigurðsson. Það eru nú liðin nær fjörutíu ár, síðan fundum okkar Þorvalds Skúlasonar bar fyrst saman. Mér er sú stund í fersku minni og álít, að þá hafi upphafist eitt af frjóustu tímabilum í tilveru minni sem málari. Það var lífsfylling í því að njóta samvista við slíkan snilling. Hann var manna ágæt- astur í umgengni og átti hvorki til hroka né stórmennskulæti. Hann var siðferðilegur postuli þeirra sem í návist hans voru, og margur málarinn hérlendis hefur af hon- um lært lítillæti og umburðar- lyndi, en báðir þessir eiginleikar voru Þorvaldi áskapaðir. Hann gat verið kátur og glaður, og ekki vissi ég til, að hann erfði við samtíð sína ýmislegt, sem á dundi um hans daga. Þorvaldur var þó skapstór listamaður, en hann var ekki rætinn í garð andstæðinga sinna í listinni. Hann var það stór í sniðum, að það hafði enga þýð- ingu fyrir hann, hvernig fólk tók list hans eða hélt um hana. Engan mann hef ég þekkt, sem gerði jafn litlar kröfur til tilver- unnar, hvað lífsins ytri unaðs- semdir og þægindi snerti. En ég hef ef til vill heldur engan þekkt, sem gerði jafn miklar kröfur til lífsins og hann. Hann var mis- kunnarlaus í kröfum sínum til eig- in verka, og þegar rennt er í hug- anum yfir afköst og vinnubrögð Þorvalds, en óhjákvæmilegt að undrast yfir því, hverju hann náði að skila um dagana. Verk hans eru yfirleitt svo vönduð og tilkomu- mikil, að undrum sætir. Hann var málari af guðs náð fram í fingur- góma, og síðustu verk hans vitna um enn eitt blómaskeið, sem stóð þó aðeins milli spítalalega eitt sumar. Ég átti stund með þessum verkum í einrúmi, rétt áður en þessar línur eru skrifaðar. Það var mikil upplifun, áhrifamikil stund. Það, sem ætíð hefur einkennt verk Þorvalds er það, hve vel honum hefur tekizt að sameina hefð mál- verksins nýjum aðferðum, hvernig honum hefur tekizt að notfæra sér klassíska undirstöðu í hverri nýrri tjáningu. Ef ég ætti að svara því, hvert tímabil í list Þorvaldar Skúlasonar væri mér kærast, yrði ég þögull. Alls staðar í verkum hans blasir við ferskleiki og djörf- ung, sem bundin er í gamla hefð málverksins frá örófi alda. Það sannast hér, sem vitringurinn sagði, að enginn gæti skapað nýj- ung í list án staðfastrar þekkingar á hefðinni. Sú þekking gæfi ein valdið til að umturna hlutunum. Það er annars ósvinna að tala m „BRAUTRYÐJANDI ÍSLENZKRAR SAMTÍMALISTAR“ BÓKAÚTGÁFAN Þjóðsaga gaf út í fyrra bók um Þorvald Skúlason listmálara eftir Björn Th. Björnsson. Morgunblaðið hefur fengið leyfi út- gefenda til að birta kafla úr bókinni og hafa orðið fyrir valinu fyrstu þrír kaflar bókarinnar. Myndirnar sem birtast með greininni eru þannig teknar úr bókinni. Uppruni og æskumótun Þorvaldur Skúlason fæddist á Borðeyri við Hrútafjörð þann 30. apríl 1906, sonur hjónanna Elínar Theódórsdóttur og Skúla Jóns- sonar. Skúli var upprunninn úr Víðidal, fæddur þann 23. nóvem- ber 1870 í Auðunarstaðakoti, son- ur Guðrúnar Kristmundsdóttur og Jóns Þórðarsonar bónda þar, en ólst síðar upp á Auðólfsstöðum í Langadal, þangað sem foreldrar hans fluttust meðan hann var enn á barnsaldri. Tvítugur fór Skúli í Möðruvallaskóla og var þar tvo skólavetur, 1890—1892, en gerðist árið eftir afgreiðslu- og skrifstofu- maður hjá Jóhanni Georg Möller á Blönduósi. Möllersverzlun hafði útibú á Hvammstanga, og veitti Skúli því forstöðu um skeið. Árið 1904 urðu þau umskipti, að Skúli réðst umboðsstjóri eða faktor til Riis-verzlunar á Borðeyri, þar sem hann kynntist Elínu Theódórs- dóttur og kvæntist henni rúmu ári síðar. Elín var fædd þann 24. ág- úst árið 1886 og var hún því nær sextán árum yngri en maður hennar. Faðir Elínar var Theódór Friðrik verzlunarstjóri á Borðeyri, Ólafsson Pálssonar prófasts í Stafholti í Borgarfirði og síðar dómkirkjuprests í Reykjavík á ár- unum 1854 til 1871. Það ár fékk hann lausn frá því embætti og veitingu fyrir Melstað í Miðfirði, þar sem hann sat til dauðadags, 1876. Ólafur dómkirkjuprestur var hinn mesti velgjörðamaður ís- lenzkra ungmenna, er hann leysti þau af klafa gamla kverlærdóms- ins árið 1866, en þá þýddi hann og gaf út „Tossakverið" eða „Ólafs- kverið" eftir C.F. Balslev, þótt jafnvel það væri mörgum kolli nógu erfið raun. Móðir Elínar var Arndís Guðmundsdóttir, Vigfús- sonar prófasts á Melstað, þannig að báðir þessir langafar Þorvalds Skúlasonar þjónuðu hinu virðu- lega brauði við kirkju Arngríms lærða. Því má kalla að ætt Þor- valds standi traustum rótum í Húnavatnssýslu og við Hrúta- fjörð, og sjálfur leiddist hann til þroska innan þess héraðs. Fyrstu þrjú ár ævi sinnar óx Þorvaldur upp í gamla og stóra kaupmannshúsinu á Borðeyri, sem byggt hafði verið eftir að Borðeyri varð að nýju verzlunarstaður um miðja 19. öld. Húsin stóðu þétt og háreist á lágri eyrinni, en innan við hana er aðdjúpt og gott lægi skipum. Þótt landþröngt væri og sjálfur staðurinn fámennur, breyttist hann á lestum og í slát- urtíð í fjölskrúðugan og mann- margan bæ, þar sem gamlikarls- berg og danskt kornbrennivin var kneyfað milli forarverka, innlagna og úttektar. Bændur sóttu verzl- unina langleiðis að, jafnvel vestan úr Dölum og úr uppsveitum Borg- arfjarðar. í ársbyrjun 1908 fæddist þeim faktorshjónunum annar sonur, sem skírður var eftir öfum sínum báðum, Jón Theódór, en hann varð síðar vinsæll og mikilhæfur lækn- ir. Á þessum árum var hin unga kaupfélagahreyfing óðum að draga verzlun landsmanna úr höndum danskra gróssera, sem lengst af sátu að gæðum sínum i Kaupmannahöfn en höfðu faktora yfir verzlunum sínum hér, og færa hana í hendur landsmanna sjálfra. Og það var sú bylgjan sem bar nú Skúla Jónsson til nýrra og meiri verka, því árið 1909 bauðst honum staða kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Húnvetninga á Blöndu- ósi, ásamt forstöðu hins nýstofn- aða Sláturfélags Austur-Húnvetn- inga. Um haustið það ár taka þau hjón upp heimili sitt og flytjast til Blönduóss. Verið var að byggja myndarlegt verzlunarhús kaupfé- lagsins, sem átti jafnframt að vera íbúðarhús kaupfélagsstjór- ans, enda leið ekki á löngu áður en þau hjón gætu flutzt með syni sína tvo inn í þessi nýju og rúmgóðu húsakynni. Árið 1909 var Blönduós orðinn allstórt pláss, íbúar nær 270, og vegna brúarinnar á Blöndu dróg- ust þangað mikil viðskipti sem áð- ur höfðu leitað til kaupstaðar í Höfða. Auk kaupfélagsins voru verzlanir hvorki fleiri né færri en fimm, hin gamla og gróna verzlun Höepfners frá dögum selstöðu- kaupmanna, Möllersverzlun og þrjár nýlegar kaupmannaverzlan- ir, Magnúsar Stefánssonar frá Flögu, Þorsteins Bjarnasonar frá Illugastöðum og Péturs Péturs- sonar frá Gunnsteinsstöðum í Langadal. í raun var plássið þó löngum mannfleira en íbúatalan sagði til um, því nærsveitamenn hlupu þangað í eyrarvinnu og slát- urstörf til þess að drýgja rýrar tekjur sínar. En aðstaða öll var með ólíkindum erfið. Þrátt fyrir bryggju, var höfn engin að kalla, og síbreytilegur ós Blöndu hið mesta háskahlið, enda hafði þar Þorvaldur Skúlason. árið áður orðið mikill mannskaði við heimróður úr strandferða- skipi. Aðeins eitt lítið sláturhús var á staðnum, og mestallt fé því enn skorið við trog; fláningsmenn lágu á hnjánum á blóðvellinum, og þegar haustvætur gengu, óð allt í djúpri gorarfor, menn og skepnur. Gegn þessum aldagömlu verkhátt- um reis nú kaupfélagið og slátur- félagið nýja, svo það var til mik- illa átaka sem Skúli Jónsson var þangað kvaddur. Þótt lífið í plássinu snerist að sjálfsögðu um þetta daglega erfiði, undir tifandi klukku ársins, póst- ferðum, komum strandferðaskipa, vorlestum, sláturtíð og jólaönn, rifaði þó fyrir birtublettum nýrrar menningar. Á heimili Þorvalds var iðkuð talsverð tónlist, og for- eldrar hans áttu eftirprentanir, listaverk og jafnvel bækur um er- lenda myndlist. Teikniárátta drengsins var því ekki talin til óeðlis eða hyskni, svo sem títt var, enda vissi móðir hans vel til þess að Theódór faðir hennar var tal- inn vel drátthagur í skóla, og þótti þessi hneigð því nokkur kynfylgja. Uppgangur plássins olli því að embættismenn, sem áður höfðu setið sem bændahöfðingjar á stórbúum í Vatnsdal og Þingi, drógust nú að þessari nýju seg- ulmiðju héraðsins. Með þeim myndaðist örlítill broddur af borgaralegu sniði: Ari Arnalds sýslumaður settist þar að 1914, en eftir hann Bogi Brynjólfsson 1918, báðir skólaðir Hafnarmenn og áttu málverk, innlend eftir Þórar- in og Ásgrím, og ýmsar erlendar myndir. I bernsku- og æskumótun Þorvalds Skúlasonar er því ýmis- legt að finna, þótt í smáu sé, sem stutt gat hneigð hans til lista. Sumarið 1915 veiktist Skúli Jónsson og lést þann 25. septem- ber um haustið. Pétur Theódórs, móðurbróðir Þorvalds, hafði gegnt kaupfélagsstörfunum í veikindum Skúla, og tók hann að fullu við stjórn þess við andlát hans. Hafði hann stjórn kaupfélagsina á Blönduósi síðan með höndum allar götur til ársins 1943. Á Blönduósi höfðu þeim hjónum fæðzt þrjár dætur, Arndís, Guðrún og Bryn- hildur, svo Elín stóð nú uppi ekkja með fimm börn og Þorvald elztan, 9 ára gamlan. En hún átti að góðu skjóli að hverfa hjá Pétri bróður sínum, sem hélt heimilinu saman og reyndist börnum hennar hinn bezti fóstri. Messadrengur gerist málari Á þeim árum var ekki látið gróa um unga drengi hér á landi, og mt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.