Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 16

Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 frá Reykjavík, vel kunnugur öllu því sem var að gerast í íslenzkri myndlist, en hann var auk þess eldri og mun reyndari en ég. — Næstu vikurnar eftir komu hans tók Blönduós á sig nýjan svip i mínum augum, mér varð ljóst af myndum Snorra að staðurinn átti sér liti, sem ég í fávisku minni hafði ekki komið auga á. — Blönduós og málaralistin birtust mér nú í nýrri sýn.“ Snorri var enn á Blönduósi framan af næsta sumri, 1924, og máluðu þeir félagar enn saman, enda mátti oft heita að afgreiðsl- an í apótekinu væri ekki beint stíl- uð upp á neinar bráðapestir í mannfólkinu, hvað svo sem af- greiðslunni í Kaupfélaginu leið. Til eruvatnslitablokkir Þorvalds frá báðum þessum sumrum, oftast i pappírsstærðinni 18x26 sm. Þar fer raunar ekki mikið fyrir pláss- inu sjálfu, húsum eða götum, held- ur eru myndirnar af landslaginu í kring og oft frammi við sjó. Þótt ekki yrðu ráöin af þeim nein list- ræn fyrirheit, sýna þær þó glögg- lega tvennt: mikinn og vakandi áhuga og þann næmleika, að of- gera ekki efninu með neinu óhófi lita, svo sem oft vill brenna við hjá lítt skóluðum ungmennum. Ekki hélzt Þorvaldi á vini sínum nema fram á mitt sumar, því fyrst í júlí bregður kúnstnerinn SAN undir sig betri fætinum og snarar sér hvorki lengra né skemmra en til sjálfrar Kóngsins Kaupmanna- hafnar. Erindið mun raunar hafa verið til skoðunar og lækninga á augnsjúkdómi, en samt teiknar hann nokkuð eftir gifsstyttum í Statens Museum for Kunst, en einnig niðri við höfn og um skeið í trjágörðum Hróarskeldu. Af því sem hann hefur skrifað í teikni- og minnisblokkir sínar er þó að sjá sem hann hafi litið á sig sem flottan og upprennandi heims- borgara fremur en auðmjúkan þjón Appellesar: Hann gengur um í fínum, skraddarasaumuöum föt- um og hallar sér út af með enska avísa. Um haustið fer Þorvaldur enn suður til Reykjavíkur. Theódór bróðir hans var í Menntaskólan- um, og deildu þeir herbergi saman um veturinn. í manntali Reykja- víkur 1. des. 1924 eru þeir bræður skráðir í húsi Margrétar Jónsdótt- ur við Bergstaðastræti 52 og eru báðir skrifaðir námsmenn, en þó enn með lögheimili á Blönduósi. Eitthvað mun Þorvaldur hafa byrjað að undirbúa sig undir inn- tökupróf í Menntaskólann, en í stað sveigðist allt í þá átt sem verða vildi. Því það er þennan vet- ur á Bergstaðastrætinu sem Þor- valdur tekur að leita sér tilsagnar Ásgríms Jónssonar. Þótt Ásgrímur liti til með ýms- um ungum mönnum, tók hann þá ekki í læri, heldur setti þeim fyrir verkefni, einkum samstillingar, og leyfði þeim siðan að koma til sín með árangurinn, eða að hann liti til þeirra. Slík tilsögn Ásgríms og ljúfmannleg gagnrýni hans hefur að sjálfsögðu verið mikilsverð, en hitt er þó ekki síður, að vera í snertingu við slikan mann, sem hafði heils hugar helgað sig myndlistinni og sýnt með verki sínu að slíkt var bæði lífvænt manni og stórfenglegt tillag í list- snauðu landi. Á þessum árum var háttur Ás- gríms sá, að ferðast um landið að sumrinu en vinna úr eftirtekjunni að vetrinum. Þetta hitti vel í lið hvað Þorvald snerti, því næstu sumur var hann enn nyrðra, bæði hjá Kaupfélaginu og í vegavinnu, þar sem þeir voru saman, hann og Jónas S. Jakobsson, sem síðar varð skóla- og herbergisfélagi hans í Osló. Haustið 1925 flyzt Elfn móðir hans til Reykjavíkur, og heldur hún um veturinn heimili fyrir börn sín þrjú sem þá voru komin suður, Theódór, Þorvald og Guð- rúnu. Þau búa við Þingholtsstræti 28, í svokallaðri Hússtjórn. Vetur þennan gekk Ásgrímur til Þor- valds með jöfnu bili að líta á myndir hans, og sé að líkindum til getiö, hlaut hann hjá meistaran- um milda, örvandi, en þó all kröfu- þunga dóma. Þegar á leið, og eink- um vorið og haustið næsta, skrapp Þorvaldur með Ásgrími í málara- túra út fyrir bæinn, suður fyrir Hafnarfjörð og upp að Kolviðar- hóli, og má þá kalla að innsigli ætlunarverksins væri endanlega á hann þrýst. Listvinafélagið sýning í Bárubúð Þótt Reykjavík þessara ára væri ekki listauðugur bær, glaðnaði samt öðru hverju til í þeim efnum. Páskasýningar Ásgríms voru stór- viðburður hverju sinni, en þessi árin voru það austfjarðamyndirn- ar 1925, Snæfell, Lagarfljót og Hjaltastaðablá, Borgarfjarðar- málverk 1926, en síðan Víðiker, Tröllaháls og Botnssúlur, allt túlkað af tignarlegri sýn og hvað eina sem ný opinberun lands- mönnum. Listvinafélagið hélt og árlegar sýningar, en það hafði ver- ið stofnað 1916, og hafði nú komið sér upp sýningarhúsi á Skóla- vörðuholti, er nefnt var Listvina- hús. Sýningar þess þóttu að vfsu ekki valmetið einbert, en þær voru í sjávarþorpi 1942. Á sýningu Nfnn Tryggvadóttur f Bogasalnum 1967: Þorvaldur Skúlason, Nína Tryggvadéttir, Kristján Davíösson, Svanhildur Björnsdóttir, Margrét Jónsdóttir og Þórbergur Þórðarson. bréfa f Listvinahúsinu og sú ákvörðun tekin að selja húsið, og í janúar 1929 er það auglýst til sölu, — eina listsýningarhúsið í höfuð- staö landsins. Það var síðan selt fyrir jafnvirði fasteignamats, sem var þó að flestra dómi langt undir raunvirði. Húsið var selt á kr. 12.000.-, en málverk Skovgárds kostaði 16! Sýningarsumarið 1927 dveljast þeir enn saman á Blöndósi, Þor- valdur og Snorri, og áttu þar frjó- samt sálufélag. Sýn Snorra á hina sérkennilegu myndauðgi þorpsins — sem hefur þó ekki af dauðlegum verið talið til fegurstu staða — og all þroskuð viðhorf Þorvalds til Ásgrfmur mun hafa leiðbeint hon- um eitthvað. Bera myndirnar þess nokkurn vott — og fleiri áhrifa veður vart. — Sumstaðar hefur honum tekizt að sveipa landslagið í þennan lofthjúp og lýsandi, döggkennda blæ, er einkennir myndir Ásgríms og islenzka nátt- úru. Þorvaldur sér ótrúlega vel liti og er glöggur á efnisval. Og hon- um tekst aö mála af meiri djfírf- ung en títt er um gætna og vel hugsandi listamenn á hans reki“. (Leturbr. hér) Þótt svo skrýtilega sé til orða tekið, leynir sér ekki það álit Sigurðar, að hér sé stefnt til all djarfrar nýlundu. þar sem hann talar um önnur áhrif en Ás- mikilsverður vettvangur upprenn- andi listamanna sem ekki höfðu enn bolmagn til eigin sýningar- halds. Auk nýliða — og oft ígripa- málara — mátti þar nær árlega sjá verk Brynjólfs Þórðarsonar, Eggerts M. Laxdals, Júlfönu Sveinsdóttur, Kristínar Jónsdótt- ur, Nínu Sæmundsson, Guðmund- ar Einarssonar, auk hinna eldri, Þórarins, Jóns, Ásgríms, Kjarvals og Muggs. Sum árin voru sýningar félagsins æði vel sóttar, svo sem árið 1921, en þá komu 1848 greiðslugestir á sýninguna, og var Reykjavík þó ekki nema rúmlega 17 þúsund manna bær. Einnig gekkst félagið fyrir erindaflutn- ingi og bókaútgáfu um listir, og eitt árið, 1925, efndi það til mikill- ar sýningar danskrar listar, 158 verka, og áttu þar hlut að ýmsir jöfrar danskrar samtímalistar, svo sem Niels Skovgárd (sem átti dýrasta verkið á sýningunni, Trata, sem kostaði 16 þúsund krónur) og J.F. Willumsen, sem Þorvaldi Skúlasyni varð hvað starsýnast á. Og enn gerðust óvæntari hlutir, svo sem sýning sú sem Finnur Jónsson efndi til f salnum hjá Rosenberg haustið 1925 á kúbiskum „komposition- um“, þá nýkominn heim úr „Sturm“-hópnum þýzka. í maí 1927 gerist það svo f sögu Þorvalds sjálfs, að hann tekur þátt í sjöundu almennu sýningu Listvinafélagsins og kemur þar í fyrsta sinn fram opinberlega með myndir sínar. Sýningin var dóm- nefndarlaus það sinnið, en Þor- valdur hafði skilið allmargar myndir eftir hjá Ásgrfmi áður en hann fór sjálfur norður f land, og valdi Ásgrímur þær úr sem á sýn- inguna fóru. Ein myndanna var af móður hans (en hún týndist síðar utanlands), önnur var af konu við sauma, en hin þriðja samstilling, af svipuðu tagi og hér er prentuð. Jafnvel þeir sem töldu þessa sýningu Listvinafélagsins „fs- lenzkum listamönnum til hábor- innar háðungar", leyndu ekki að- dáun sinni á myndum Þorvalds, né hinum tveim ungu samherjum hans, þeim Snorra Arinbjarnar og Gunnlaugi óskari Scheving, en þeir eru, segir Alþýðublaðið, und- anteking þeirra sem „mála lands- Stormur 1971. lög endalaust — og sjá ekkert með innri sjónum“. „Sólskinsblettur sýningarinnar er Þorvaldur Skúlason," segir Valtýr Stefáns- son í Morgunblaðinu 15. maí; „Hann er málari. Á því er enginn vafi.“ f verkum þeirra þremenn- inganna var enda nýtt aö sjá: menn við flatningsborð, kona við sauma, þorpsgata og bátar í naust. Og ekki aðeins að myndefni til, hedur var úrvinnsla þess orðin mun huglægari en menn áttu al- mennt að venjast. Ef til vill hefur þessi vaxtarbroddur leitt til nokk- urrar hræðslu hinna eldri og ihaldsamari valdsmanna félags- ins, þvf hinn 29. maí birtist til- kynning í Morgunblaðinu, þar sem sagði að stjórn Listvinafélagsins sæi sér ekki fært að halda árssýn- ingum sínurn áfram fyrst um sinn. í nóvember árið eftir er svo hald- inn fundur með eigendum hluta- ýmissa myndrænna vandamála við þeim til gagnkvæmrar upp- byggingar. Þorvaldur bar enda þá uppskeru með sér suður og jók svo við um haustið, að þann 16. febrú- ar 1928 gat hann opnað fyrstu einkasýningu sfna, uppi á loftinu i Bárubúð við Vonarstræti. Þann dag auglýsir hann sýninguna á forsíðu Morgunblaðsins. Valtýr Stefansson hafði ekkert dignað f hrifningu sinni af honum frá árinu áður og hvetur nú „bæj- arbúa, sem ánægju hafa af mál- aralist, að gefa þessum unga og óvanalega efnilega málara gaurn". Daginn eftir fylgir síðan í blaðinu umdómur um sýninguna eftir Sig- urð Guðmundsson arkitekt, þar sem hann segir það „fljótséð, að óvenjulega efnilegur listamaður er á ferðinni. Maðurinn kvað vera um tvítugsaldur og hafa notið mjög lítillar tilsagnar í listinni. gríms, er ekki um að villast, þegar á myndir þessa árs er litið, að hin einfalda og formsterka mótun Jóns Stefánssonar segir þar orðið verulega til sín. Atfylgismenn Þorvalds gerðu ekki endasleppt við hann, þvf þetta ár veitir Alþingi tveimur ís- lenzkum málurum opinberan styrk, Jóhannesi Kjarval 1.000 krónur — og Þorvaldi Skúlasyni 500! Naut hann þar ekki sízt al- þingismanns heimabyggðar sinn- ar, Jóns Jónssonar frá Stóradal, sem vildi ekki að skagfirðingar sætu öllu lengur yfir hlut hún- vetninga um frægðarmenn í fögr- um listum! Þegar þessi tilstyrkur bættist við all tekjudrjúgt síldar- sumar á Svalbarðseyri, var engra boða lengur að bíða, og um haustið 1928 sigla þeir Þorvaldur og Snorri utan, með Listaháskólann í Osló að marki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.