Morgunblaðið - 07.09.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.09.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 19 Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands, var framkvæmdasijóri Arnarflugs þegar Flugleiðir gerðust hluthafar í Arnarflugi og átti hann ríkan þátt íþvíað fá Flugleiðir „inn ímyndinau. Ekki var hlutur Vilhjálms Jónssonar, forstjóra Olíufélagsins, minni, því Olíufélagiö átti stórar kröfur á hendur Arnarflugi vegna olíuskulda, þegar Flugleiðir komu inn. Steingrímsþátt- ur Hermannssonar hefur verið ríkulegur í sögu Arnarflugs. Hann veitti Arnarflugi leyfi til áætlunarflugs 1983 til Amsterdam, Dússeldorf og Zurich ... að því aö talið er eftir aö Arnarflug samþykkti að kaupa meira og minna ónýtar eigur Iscargo, sem flokksbróðir Steingríms, Kristinn Finnbogason, átti. Haukur Björnsson, stjórnarformaður Arnarflugs, er sagður af Flugleiðamönnum tilkynna stefnumótandi ákvarðanir félagsins á stjórnarfundum. Þær segja þeir að séu teknar á öðrum vettvangi. Framkvæmdastjórar Arnarflugs hafa verið þrír í sögu þess frá 1976. Fyrstur var Magnús Gunnarsson. Hér fara fram framkvæmdastjóraskipti öðru sinni, í janúar 1983, þegar Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri, lætur af því starfi og við tekur Agnar Friðriksson, núverandi fram- kvæmdastjóri félagsins. Sigurður Helgason, stjórnarformaður og forstjóri Flugleiða, er sagður hafa hvað minnstar mætur á þessu hálfgerða dótturfyrirtæki Flugleiða, Arnarflugi, af ráðamönnum Flugleiða. Hann mun þó ekki vilja sleppa höndinni alveg affélaginu, því hann, eins og aðrir Flugleiðamenn telja að fyrirtæki andsnúin Flugleiðum, einkum SÍS, geti farið að dæla ómældum fjármunum í rekstur Arnarflugs og gera Arnarflug þar með að skæðum keppinaut Flugleiða. Helstu ráðamenn SÍS, þeir Valur Arnþórsson, stjórnarformaður, og Erlendur Einarsson, forstjóri, eru þó ekki taldir hafa mikinn áhuga á að hætta fjármagni SÍS í ríkum mæli í flugrekstur Arnarflugs og því munu þeir vera sallarólegir yfir því að Flugleiðir hafi nú aukið eignarhlutdeild sína í Arnarflugi í 43,7%. Magnús GunnarsKon Vilhjálmur Jónanon Steingrfmur Hermannsnon Kristinn Finnbogason Haukur Björnsson Siguróur Helgason Vahir Arnþórsson Krlenriur Einarsson skyndiverkfall flugmannanna 1980. Þar segja þeir að stjórn Flugleiða hafi óbeint fallist á að Arnarflug yrði sett út í kuldann. I þessum samningi gangast Flug- leiðir inn á það að flugliðar Flug- leiða gangi fyrir öllum störfum, og er þessi samningur enn í fullu gildi. Til þess að fá ríkisábyrgðina gengust Flugleiðir inn á að selja starfsmönnum Arnarflugs sinn hlut í Arnarflugi og í því tilefni var skipuð matsnefnd sem mat bréf þeirra á 5,3 földu nafnverði. Starfsmannafélag Arnarflugs mun ekki hafa ráðið við kaupin á svo stórum hlut í Arnarflugi, og því var farið fram á að Flugleiðir seldu Starfsmannafélagi Arnar- flugs 17,5% hlutabréfa í Arnar- flugi, þannig að Flugleiðir ættu eftir söluna 40% hlut í Arnarflugi og urðu Flugleiðir við því. Leyfisveiting til Iscargo hleypir illu blóði í bæði félögin Það virðist hafa komið báðum flugfélögunum, Arnarflugi og Flugleiðum jafnmikið í opna skjöldu, að Steingrímur Her- mannsson, þáverandi samgöngu- ráðherra skyldi veita Iscargo leyfi til þess að hefja áætlunarflug til Amsterdam 1981, en Flugleiðir höfðu þegar leyfi til þess að fljúga þangað áætlunarflug. Einn Flug- leiðamanna hefur eftirfarandi um leyfisveitingu Steingríms að segja: „Það var náttúrlega fyrir neðan allar hellur að Steingrímur skyldi veita Kristni Finnbogasyni, flokksbróður sínum og vini, þetta leyfi, þar sem Iscargo var engan veginn í stakk búið til þess að ann- ast slíkt flug, auk þess sem Flug- leiðir höfðu þá þegar leyfi fyrir áætlunarflugi til Amsterdam, enda átti eftir að koma á daginn, að þessi aðstoð Steingríms við Kristinn átti ekki eftir að duga, til þess að forða Iscargo frá gjald- þroti." „Steingrímur veitti Iscargo leyfi til þess að fljúga áætlunarflug til Amsterdam, gjörsamlega upp úr þurru. Þetta var auðvitað yfir- gengileg framkoma, þar sem Is- cargo hafði ekkert bolmagn til þess að standa í slíkum flug- rekstri. Ekki hæft starfsfólk, ekki flugmenn og ekki vélako3t,“ segja Arnarflugsmenn um þessa leyfis- veitingu. Haustið 1981 sótti Arnarflug svo um leyfi til þess að fljúga áætlanaflug til Frankfurt, Ham- borgar, Parísar og Zúrich. Kom þessi umsókn strax í kjölfar þess að nýr meirihluti hafði myndast hjá Arnarflugi, þar sem starfs- menn Arnarflugs áttu 23%, ýmsir hluthafar 21% og SÍS-félögin 16%. Vorið 1982 veitti Steingrím- ur Arnarflugi síðan leyfi til áætl- anaflugs til Dússeldorf, Zúrich og Amsterdam. Áður hafði sam- gönguráðherra leitað umsagnár flugráðs um þessa umsókn Arnar- flugs, og var niðurstaða ráðsins að þrír flugráðsmenn mæltu gegn leyfisveitingu, einn sat hjá og einn var meðmæltur leyfisveitingu, en þó ekki til Hamborgar. Um vetur- inn hafði mikið leynimakk staðið yfir, á milli fulltrúa samgöngu- ráðuneytisins og Arnarflugs, og telja heimildarmenn blaðsins að þar hafi í einhverri mynd verið samið um „verð“ það sem Arnar- flug yrði að greiða fyrir leyfi til áætlanaflugs þar sem samgöngu- ráðherra hafi verið ákveðinn í að Arnarflug fengi ekkert leyfi, nema það tæki að sér að kaupa eignir þrotabús Iscargo, til þess að bjarga Kristni Finnbogasyni. Varð það úr að Arnarflug keypti skúradrasl á Reykjavíkurflugvelli í eigu Iscargo og Electru-flugvél félagsins jafnframt, en hún mun vera einn meginorsakavaldurinn fyrir miklum taprekstri Arnar- flugs á sl. ári. Var Iscargopakkinn keyptur fyrir 29 milljónir króna, og telja kunnugir að þar hafi Arn- arflug greitt 10 til 12 milljónum króna of mikið. Arnarflug hóf áætlanaflug til Amsterdam, Dússeldorf og Zúrich sumarið 1982 og Flugleiðir héldu áfram flugi sínu á Amsterdam, Frankfurt og Dússeldorf. Stein- grímur Hermannsson, samgöngu- ráðherra tilkynnti Flugleiðum bréflega á miðju sumri 1982, nán- ar tiltekið þann 14. júlí að ráðu- neytið ákveði einhliða hvernig millilandafluginu skuli háttað frá 1. október 1982, og sviptir Flug- leiðir þar með flugleyfi til Dússel- dorf og Amsterdam frá sama tíma. Þessi ákvörðun samgöngu- ráðherra olli gífurlegri reiði innan Flugleiða og halda Flugleiðamenn því fram að hún hafi stórskaðað hagsmuni félagsins í Evrópu, einkum í Þýskalandi og Hollandi. Segja þeir Flugleiðamenn að svona leyfissviptingar heyri al- gjörum undantekningum til, og ástæður slíks séu yfirleitt stór- kostleg afglöp eða vanræksla í starfi. Eftir að raunveruleg samkeppni félaganna hófst, fór að bera meir á kala á milli félaganna. Arnar- flugsmenn segja að Flugleiðir hafi lagt steina í götu sína, m.a. með rándýrri viðhaldsþjónustu. Flug- leiðamenn segja Árnarflugsmenn hafa valið að fara eigin leiðir, án samráðs við Flugleiðir, sem þó eigi 40% hlut í Arnarflugi. Segja Flugleiðamenn að Arnarflug taki stefnumótandi ákvarðanir hvað varðar reksturinn á bak við tjöld- in, og síðan séu ákvarðanirnar kynntar á stjórnarfundum, sem þeir segja einnig vera afskaplega strjála, að ekki sé meira sagt. Þá benda Flugleiðamenn á að þrátt fyrir samkeppni þá sem nú sé á flugleiðum til Evrópu, hafi spá Arnarflugsmanna um aukningu á ferðamannastraum hingað til lands ekki ræst. Með öðrum orð- um: Þeir halda því fram að flug- kakan hafi ekki stækkað — heldur að sama stærð af köku skiptist nú í tvennt, í stað þess að hafa áður lent hjá einum aðila. Nefna Flug- leiðamenn tölur máli sínu til stuðnings. Þeir segja að fram til 1. ágúst sl. hafi Hollendingar sem sóttu ísland heim verið 64 fleiri, en á sama tíma í fyrra, Þjóðverjar hafi verið 500 fleiri og Svisslend- ingar hafi verið 200 fleiri, miðað við sama tíma í fyrra. Þetta sé svo lítil aukning að hún sé vart mark- tæk. Arnarflug með hagnað 1981 en tap 1982 og 1983 Arnarflug var rekið með tapi 1982 og 1983. Sl. ár var tapið mik- ið, eða samtals 54,4 milljónir króna. Vógu þar hvað þyngst fjár- hagsgjöld Electru-flugvélarinnar, sem seld var fyrir réttu ári, en þau gerðu meira en vega hagnaðinn af erlendum verkefnum félagsins upp. Fjárhagsleg staða fyrirtækis- ins í árslok í fyrra var því neikvæð um 43 milljónir króna, en það var einmitt þá sem Flugleiðir ákváðu að afskrifa sinn hlut í Arnarflugi. Stjórn Arnarflugs samþykkti síðan á fundi sínum í júní í sumar að leggja til við aðalfund að hluta- fé félagsins væri aukið með útboði nýs hlutafjár, að upphæð 40 millj- ónir króna, og var sú tillaga sam- þykkt á aðalfundinum. Það er í kjölfar þeirrar ákvörð- unar sem gamall ágreiningur fé- laganna kemur upp á yfirborðið á nýjan leik. Nú er útlit fyrir að Flugleiðir munu frá deginum í dag, eiga 43,7% hlut í Arnarflugi, starfsmenn Arnarflugs um 27%, SÍS-fyrirtækin um 17% og aðrir um 11%. Nákvæmar tölur liggja væntanlega fyrir eftir daginn í dag. Flugleiðir hafa sem sagt ákveðið að auka við eignarhlut sinn í Arnarflugi, og mun sú ákvörðun hafa mætt misjöfnum undirtektum hjá öðrum hluthöf- um í Arnarflugi, eftir því sem blm. kemst næst. Einn Arnar- flugsmaður sagði um þessa ákvörð- un Flugleiða: „Flugleiðir vissu sem var, að það voru aðrir aðilar tilbúnir til þess í sumar að kaupa þeirra hlut í Arnarflugi, öll 40%. Því þurfti félagið einfaldlega að gera það upp við sig, hvort það ætlaði að sleppa öllum ítökum sín- um hjá okkur, eða hvort það vildi halda sínum hlut. Það hafa ýmsir hjá Arnarflugi skilið að Flugleiðir vildu halda sínum 40%, og sú ákvörðun þeirra hefur ekki mætt megnri andstöðu. Það vakna aftur grunsemdir ýmissa nú, í kjölfar þess að Flugleiðir ákváðu að not- færa sér forkaupsrétt að bréfum sem eftir voru, og auka þar með eignarhlut sinn í 43,7%. Það er augljóst að sú ákvörðun er tilkom- in til þess að auka.ítök í félaginu, til þess að auka áhrif og völd, og hugsanlega að stefna að meiri- hlutaeign í Arnarflugi. Við teljum að slíkt væri sama og dauðadómur yfir Arnarflugi." „Tímaskekkja Flugleiða að auka hlut sinn frá því sem verið hefur“ Annar talsmaður Arnarflugs er ómyrkur í máli varðandi aukinn hlut Flugleiða í Arnarflugi og seg- ir: „Það er algjör tímaskekkja Flugleiða að vera að auka hlut sinn í Arnarflugi frá því sem verið hefur. Það er tímaskekkja gagn- vart stjórnvöldum, starfsmönnum og almenningi í landinu. Flug- leiðamenn verða að horfast í augu við þá staðreynd að Arnarflug er til, og verður ekki drepið niður.“ Flugleiðamenn gangast við því óopinberlega, að þessi ákvörðun þeirra sé auðvitað fyrst og fremst tekin með það fyrir augum að Flugleiðir ætli sér að auka áhrif sín og völd innan Arnarflugs: „Það er auðvitað gagnsætt, að við erum ekki að gera neitt annað, en kaupa okkur aukin áhrif og völd innan fyrirtækisins," sagði einn tals- maður Flugleiða, en hann vill ekk- ert um það segja hvort Flugleiðir séu að undirbúa meirihlutaeign sína í Arnarflugi á nýjan leik. Aðrir Flugleiðamenn benda á að það hafi ekki verið fýsilegur kost- ur fyrir Flugleiðir að bakka með öllu út úr Arnarflugi nú, og horfa síðan upp á það, að SÍS dældi ótakmörkuðu fjármagni í Arnar- flug. Segja þeir að slíkt gæti haft afar óheppileg áhrif á Flugleiðir, einkum meðan Framsókn sé í rík- isstjórn. Arnarflugsmenn segja þetta aftur vera hreinan fyrir- slátt, þar sem SÍS hafi í gegnum árin haft næg tækifæri til þess að dæla fjármagni inn í fyrirtækið, hefði vilji fyrir slíku verið fyrir hendi á annað borð, hvað þeir segja augljóslega ekki hafa verið. Framundan samstarf og sam- keppni á skynsamlegum grundvelli, eða enn meiri sundrung og óeining? Segja má að Arnarflug standi nú á tímamótum. Mikið nýtt fjár- magn er komið inn í fyrirtækið, með þeirri endurfjármögnun sem ákveðin var í sumar. Erfiður fjár- hagsbaggi, eins og Iscargopakkinn er að baki, og næg verkefni virðast framundan. Nú mun á það reyna á næstunni, hvort félaginu tekst að rífa upp reksturinn þannig að þeir rekstrarþættir sem hafa verið byrði á félaginu, innanlandsflugið og millilandaflugið fari að standa undir sér, eða jafnvel skila hagn- aði. Forráðamenn Arnarflugs virðast bjartsýnir á að það muni takast, og í sama streng hafa sum- ir viðmælendur blaðsins úr röðum Flugleiðamanna tekið, þannig að segja má að á næstunni fái Arnar- flug tækifæri til þess að sanna til- verurétt sinn sem raunverulegt áætlunarflugfélag. Verður fróð- legt að fylgjast með, hvernig fé- laginu tekst til í því efni, jafn- framt því sem fróðlegt verður að sjá hvort stjórnendur félaganna tveggja eiga eftir að sýna þann þroska að taka upp samkeppni og samvinnu á skynsamlegum grund- velli og leggja af hnútukast og róg hvor í annars garð. Til þess að svo megi verða, þarf að koma til við- horfsbreyting hjá stjórnendum og starfsmönnum beggja fyrirtækj- anna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.