Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 22

Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 22
22 MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 Níu menn teknir af lífí í Kína Peking, 6. september. AP. NÍU MENN hafa verið teknir af IiTi í Kína í þessum mánuði. Mennirnir voru ákærðir fyrir fjölda ofbeldis- verka og var aftaka þeirra þáttur í áætlun stjórnarinnar um minnkun glæpa í landinu. í tilkynningu frá dómsmálaráðu- neytinu segir að af lífi hafi verið teknir níu „morðingjar, nauðgarar, ræningjar, þjófar og ómenni sam- kvæmt lögum". Einn hinna líflátnu hafði farið hamförum með hnífi á heimili konu sem hafði afneitað honum. Hann myrti þá föður hennar og systur, rak hnífinn í móður hennar og fleygði barni hennar á gólfið, þann- ig að höfuðkúpa barnsins brotnaði. Lögreglunni tókst loks að stöðva manninn áður en hann kveikti f húsinu. Kínverska stjórnin hóf mikla herferð gegn afbrotum árið 1983 og fékk lögreglan aukin réttindi til að refsa glæpamönnum harðlega ef til þeirra náðist. Ekki eru til opinberar tölur um hvað margir hafa verið teknir af lífi eftir að áætlunin komst í gagnið, en giskað hefur ver- ið á um 5—10,000 manns. Stjórnin heldur því fram að glæpum hafi fækkað um helming síðan herferðin hófst. Noregur: Lík fjallgöngumannanna grófust undir grjóthruni Ósló, 6. sept Fr» Per A. Borglund, rrétlariUra Mbl. NÚ ER Ijóst, að enginn leiðangur verð- ur gerður út á fjallið Trango Tower í Pakistan til að ná í lík norsku fjall- göngumannanna tveggja, sem fórust þar fyrir fjórum vikum, þegar grjót- skriða lenti á þeim. Lík mannanna fundust í fyrstu leit, og var ætlunin að pakistönsk herþyrla sækti þau einhvern næstu daga. Nú hefur hins vegar orðið geysimikið grjóthrun á þessu svæði og lík mannanna beggja grafist þar undir fyrir fullt og allt. « v • -r • m ouiittinjuu nt. Smiðurinn Jimmy Larter Hér er Jimmy Carter, fyrrum forseti Bandaríkjanna, kominn í hlutverk húsasmiðs, en hann tók þátt í átaki sjálfboðaliða við að gera nokkur hús í neðri-austur-hluta New York-borgar boðleg fólki til íbúðar. Um 50 sjálfboðaliðar sköpuðu þannig ný heimili fyrir 19 fjölskyldur, allt á einum degi. Þú svalar lestrarþörf dagsins á Sovézkur ráðherra _- deyr í A-Þýzkalandi ÖKULEIKNI ÍSLANDSMÓTíGÓÐAKSTRI. ÚRSLITA KEPPNIFER FRA M 0*T LAUGARDAGINN8. SEPTEMBER AÐ HÖFÐABAKKA 9, ÁRTÚNSHÖFÐA, KL. 13.00. Keppt verður á tveimur OPEL CORSA - bílum sem hlotið hafa viðurkenningu um heim allan fyrir aksturseiginleika, A-Berlín, 5. aeptember. AP. LEONID Kostandov, aðstoðarfor- sætisráðherra Sovétríkjanna, lézt í morgun úr hjartaslagi I heimsókn sinni til Austur-Þýzkalands, að sögn austur-þýzku fréttastofunnar ADN. Kostandov var 68 ára. Kostandov átti sæti í miðstjórn sovézka kommúnistaflokksins. Hann var í forystu opinberrar sendinefndar Sovétmanna á hinni árlegu kaupstefnu, sem haldin er í Leipzig um þessar mundir. Hins vegar var ekki skýrt hvar Kostandov var staddur né hverjar kringumstæður voru er hann lézt „skyndilega" úr „öðru hjarta- slagi", eins og fréttastofan komst að orði. Kostandov var á ferðalagi um Austur-Þýzkaland et hann lézt. Kostandov komst í hóp hinna 10 aðstoðarforsætisráðherra Sovét- ríkjanna 4. nóvember 1980, en þar á undan var hann ráðherra með málefni efnaiðnaðar á sinni könnu í 15 ár. Helmut Kohl, kanzlari Vestur-Þýzkalands, sagði nýverið að von væri á Kostandov til Bonn innan tíðar. Eldingu laust í Medici-höllina Flórens, 6. neptember. AP. HÖLL MEDICI-ættarinnar í Flór- ens varð fyrir eldingu á miðviku- dag, en yfirvöld segja að höllin hafi sloppið undarlega vel frá skemmdum. Höllin er frá 13. öld og stend- ur við torg í miðri Flórens. Eld- ingu laust niður í þak hallarinn- ar á miðvikudagsnótt, en aðeins þakplötur eyðilögðust. Vildi yf- irmaður listaráðuneytisins þakka eldingavörnum sem kom- ið hafði verið fyrir í höllinni, fyrir að ekki fór verr. Höllin er þekkt fyrir klukku- turn sinn og þar eru mörg helstu verk Michelangelos og Donatell- os varðveitt. Á endurreisnar- tímanum gegndi höllin einnig hlutverki ráðhúss. frak: Mannfall í átökum kúrda og stjórnarhers Vínarborg, 6. september. AP. Á ANNAÐ hundrað manns féllu og um 50 særðust í sex daga hörðum bardögum íraskra hermanna og að- skilnaðarsinna kúrda, að sögn talsmanns hins útlæga lýðræðis- flokks kúrda, KDP. Hann sagði að stjórnarherinn hefði ráðist á sveitir kúrda í hér- uðunum Dihok og Zakho sunnu- daginn 26. ágúst sl. Árásinni hefði verið hrundið en stjórnar- herinn hefði látið til skarar skríða að nýju 28. ágúst. Hefði loks tekist að hrinda árás stjórn- arhersins eftir fimm daga linnu- lausa bardaga. Talsmaður kúrda sagði að stjórnarherinn hefði notað skrið- dreka, orrustuþotur og stórskota- vopn í aðgerðinni gegn kúrdum. Hefðu 97 stjórnarhermenn fallið og 48 særst. Kúrdar hefðu misst fimm menn, einnig hefðu þrír óbreyttir borgarar týnt lífi. í hópi stjórnarhermanna, sem fall- ið hefðu, væri bróðir Arshad Zeb- ari, sem væri ráðherra án ráðu- neytis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.