Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 23

Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 23 För Discovery eyðir ótrú á geimferjum (^imvÍHÍndaMtöðinni, Houston, 6. september. AP. Jómfrúrferð geimferjunnar Dis- covery hefur ordið til þess að eyða þeirri óvissu sem ríkti um hvort geimferjurnar v*ru heppilegar til að koma gervihnöttum á braut, að sögn forstöðumanna geimvísindaáætlun- ar Bandaríkjamanna. Mistök í fyrri ferðum hafa orðið til að draga úr tiltrú manna á ágæti geimferjunnar, en forvígis- menn NASA halda því fram nú að í ferð Discovery hafi í ljós komið að engin ráð séu betri. I jómfrúrferð Discovery var þremur gervihnöttum komið á braut um jörðu og gekk sú fram- Norska ríkið sýkn- að af bótakröf- um útvegsmanna Kröfðust hárra bóta vegna sfldveiðibanna Osló, 6. september. Frá fréttaríUra Morgun- bbteins, Jan Erik Uuré. NORSKA ríkið var sýknað af skaðabótakröfum að fjárhæð nær 3 millj. n.kr., sem fjórir sfldarút- vegsmenn í Norður-Þrændalögum höfðu borið fram. Var engin af kröfum sóknaraðilanna tekin til greina en þeim gert að greiða n.kr. 73.000 í málskostnað. Mál þetta var fyrir dómi í sumar eftir margra ára undir- búning. Tilefni þess voru reglu- gerðir og veiðibönn, sem sett höfðu verið á síðasta áratug. Kröfðust sóknaraðilarnir skaða- bóta vegna mikils tekjumissis af þessum sökum og vegna þess, að ekki hefði verið gætt réttra að- ferða við meðferð málsins af hálfu stjórnvalda. í dóminum er það hins vegar tekið fram, að yfirstjórn sjávar- útvegsins hafi tekið ákvarðanir sínar á löglegan hátt, en hún byggði þær á þeim upplýsingum, sem fyrir hendi voru um síldar- stofninn. Reynslan hefði líka orðið sú, að síldarstofninn hefði Uppþot á Indlandi Delhí, 5. seplember. AP. UPPÞOT blossuðu að nýju í borg- inni Hyderabad í suðurhluta Ind- lands í dag, og fylgdu þeim spell- virki og gripdeildir, að sögn lögregl- unnar í ríkinu Andhra Pradesh, hinu fjölmennasta á Indlandi, þar sem 54 milljónir manna búa. Lögreglan handtók 62 manns fyrir aðild að uppþotunum í morg- un og hermenn skárust í leikinn til að stilla til friðar. Hafa fjórir borgarar a.m.k. týnt lífi í uppþot- um frá því á mánudag, en þá blossuðu upp illdeilur eftir árás múhameðstrúarmanna á bænahús hindúa í eldri borgarhlutanum i Hyderabad. Alls hafa 250 manns verið settir á bak við lás og slá. Yfirvöld framlengdu útgöngu- bann þar til á fimmtudag í öllum hverfum borgarinnar þar sem til átaka múhameðstrúarmanna og hindúa hefur komið. í morgun var kveikt í fjórum verzlunum, lög- reglubifreið og pósthúsi. Jafnframt þessu tilkynntu ind- versk yfirvöld að ekki yrði látið undan kröfum síkha um að her- menn yfirgefi gullna musterið i Amritsar. Binnig yrði komið f veg fyrir að síkhar næðu musterinu úr höndum hersins, eins og sikhar hafa hótað. Indira Gandhi sagði i dag að hryðjuverkamenn úr röðum sikha, sem náðst hefðu í Punjab að und- anförnu, hefðu játað að hafa þegið aðstoð Pakistana, m.a. fengið þar þjálfun i hryðjuverkum og skæru- hernaði. Kvaðst Gandhi myndu taka málið upp við stjórnvöld i Pakistan. hrunið saman þrátt fyrir veiði- bönn. Nú er stofninn hins vegar í ör- um vexti og gera menn sér vonir um góða sildveiði síðar á þessum áratug. kvæmd snurðulaust með öllu. Jafnframt voru gerðar umfangs- miklar tilraunir með afarstóra sólarrafhlöðu. Jafnframt var með í förinni iðntæknir sem framleiddi nýtt lyf og mun framleiðsla þess hafi tek- ist vel, þótt enn hvíli leynd yfir hvers eðlis lyfið sé. Hermt er að forráðamenn tryggingafélaga andi nú léttar þar sem svo vel tókst að koma gervi- hnöttunum á braut, þar sem tryggingarupphæð hnattanna, sem mistókst að koma á braut fyrr á árinu var um tvöhundruð millj- ónir dollara. Þykir áhættan við að koma hnöttum á braut úr geim- ferju nú minni eftir för Discovery. Jesse W. Moore aðstoðarfram- kvæmdastjóri NASA sagði í dag að ferð Discovery væri „söguleg", þar sem geimferðaáætlunin væri nú aftur komin i réttan farveg. Moore sagði að næsta ferð geim- ferjunnar yrði farin í október og síðan færu þær mánaðarlega í loftið út næsta ár. Afganistan: Harðir bardagar í mörgum héruðum Delbí, 5. aeptember. AP. STJÓRNIN í Kabúl skýrði fri því í kvöld að haróir bardagar ættu sér stað við afgönsku frelsissveitirnar í nokkrum héruðum landsins. Sagði f frásögn útvarps stjórn- arinnar að ótilgreindur fjöldi skæruliða hefði fallið í átökum við stjórnarhermenn í héruðunum Parwan, Kunar, Paktya, Farah og Jauzjan. Vestrænir diplómatar hafa síð- ustu daga sagt að hundruð manna hefðu týnt lífi í bardögum, sem blossað hafi að undanförnu. Út- varpið minntist ekki á mannfall i röðum stjórnarhermanna í frétt sinni. Útvarpið sagði að lagt hefði ver- ið hald á mikið magn vopna, sum þeirra með útlendum framleiðslu- merkjum, í bardögunum. Frels- issveitirnar eru sagðar hafa á sínu valdi nær öll dreyfbýlissvæði landsins, næstum fimm árum eftir að sovézki herinn réðst inn í Afg- anistan. FLUOfflDE: Alit sérfræóinganna Kggurfyrk Fluoride Plus Signal 2 er framleitt í samræmi við eina blönduna sem sérfræðinga- hópurinn, sem minnst er á hér við hliðina, rannsakaði. j henni er þó 40% meira af flúorupplausn. Sérfræðingar í tannvernd og tannsjúkdómum hafa fengið verk- efni fyrir Alþjóðlegu heilbrigðismála- stofnunina (WHO). Þeir hafa stað- fest að vissar tannkremsblöndur draga úr tannskemmdum. (Sjá: Bulletin of World Health Organis- ation, 60 (4): 633-6381982). XP SIG 55

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.