Morgunblaðið - 07.09.1984, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 07.09.1984, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 Útgefandi nÞIaMb hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakiö. Þorvaldur Skúla- son kvaddur Einu sinni ætlaði ég að verða sjómaður, en þá fotbrotnaði ég og varð málari," sagði Þorvaldur Skúlason í samtali við Matthías Johann- essen. Þorvaldur fæddist á Borðeyri við Hrútafjörð og ólst upp á Blönduósi, hann sýndi fyrst í Reykjavík með öðrum 1927 og þá sagði Valtýr Stef- ánsson, ritstjóri Morgunblaðs- ins: „Sólskinsblettur sýningar- innar er Þorvaldur Skúlason. Hann er málari. Á því er eng- inn vafi.“ Þegar Þorvaldur Skúlason er kvaddur 78 ára að aldri hefur hann unnið marga listsigra, flutt til íslands hluta heimsmenningarinnar og skip- að sér í fremstu röð íslenskra iistmálara. Orð Valtýs Stef- ánssonar standa enn. Við andlát sitt er Þorvaldur Skúlason kunnastur fyrir af- straktmyndirnar. Fyrr á árum var hann að eigin sögn „hér um bil natúralisti, síðan ex- pressionisti" en 1952 varð formbylting í listsköpun hans — Þorvaldur sagðist eftir það standa næst „geometrísku af- straksjóninni", sem væri óneit- anlega runnin af kúbismanum, sem tveir af gáfuðustu málur- um aldarinnar, Picasso og Braque, sköpuðu í kringum 1910, svo að enn sé vitnað til Þorvaldar. Lýsing á listþróun Þorvaldar Skúlasonar er öllum aðgengileg í glæsilegri bók um hann sem Björn Th. Björnsson ritar en gefin var út af Haf- steini Guðmundssyni á síðasta ári. Og einmitt um þessar mundir eru verk Þorvaldar á sýningu Septem-hópsins að Kjarvalsstöðum. Steinn Steinarr sagði um list Þorvaldar, að það sem fyrst og fremst einkenndi hana væri hið einfalda og sterka. Þannig var maðurinn sjálfur. Þorvald- ur Skúlason var ekki í hópi þeirra manna sem tranaði sér fram, hann vann að list sinni listarinnar vegna, sveitadreng- ur sem kynntist listsköpun í stórborgum evrópskrar menn- ingar og braut nýjum stefnum leið í menningarlífi þjóðar sinnar. Öllum sem listum unna er ljóst að hann var gæddur óvenjulegri list- og formgáfu, svo að enn sé vitnað til Steins Steinars. „Sumir vilja vera stórir í líf- inu,“ sagði Þorvaldur í samtali við Matthías Johannessen, „en hugsa aldrei um það, hvort þeir verða litlir 1 dauðanum. Ég hef velt þessu mikið fyrir mér, og stundum líður mér illa þegar ég hugsa um það að ég hafi selt málverk fyrir tals- verða fúlgu. Nei, mér líður ekki vel út af því, það get ég sagt þér. Hvernig ætti það að vera? Að vísu finnst mér ég hafa unnið fyrir þessu því ég hef aldrei beygt af, aldrei reynt að sleppa billega, það get ég óhik- að sagt framan í hvern sem er. En af hverju að vera að þessu? Til þess að sýna að maður sé séní eða hvað? Nei, þetta er eitthvað annað og meira. Þetta er andstaða við vélmenning- una. Nýja listin er bæn um meiri anda. Við lifum á tímum visindanna. Þau eru að vinna bug á þjáningunni í líkama okkar. En hvað um andann? Vísindin geta aldrei komið í staðinn fyrir listina... “ Því miður er það sjaldgæft nú á dögum að listamenn um- gangist sköpunastarf sitt af þeirri auðmýkt, trú og festu sem skín út úr þessu 25 ára gamla samtaii — en Þorvaldur Skúlason beygði aldrei af, hann reyndi aldrei að sleppa billega og verður því ekki lítill í dauðanum. Fótbrotið á Blönduósi forðum daga varð skref hans inn í íslenska lista- sögu. Samið um loðnu Utanríkisráðherrar Dan- merkur, Noregs og íslands urðu sammála um skynsam- legustu leiðina til að binda endi á deiluna vegna loðnu- veiða við Jan Mayen þegar þeir ákváðu að hafnar yrðu viðræð- ur um skiptingu heildaraflans. í því efni er staða íslands góð, þar sem Norðmenn hafa viður- kennt úrslitavald okkar við ákvörðun á leyfilegum heildar- afla og samþykkt 85% hlut okkar í þeim afla. Mestu skiptir nú að ná sem bestu sambandi við Grænlend- inga í loðnumálinu. Það verður framvegis undir þeim komið en ekki kerfiskörlum Evrópu- bandalagsins í Brússel hvernig stjórn fiskveiða í grænlenskri lögsögu skuli háttað. Gott tækifæri til að ræða þessi mál við Grænlendinga gefst þegar Jonathan Motzfeldt, formaður landsstjórnar þeirra, kemur til íslands undir lok þessa mánað- ar. Friðarbarátta og friðarhorfur: Markmið Sovétstjórn- arinnar á íslandi — eftir Arnór Hannibalsson Sjónarmið Sovétríkjanna Svo vill til um þessar mundir, að mjög vel er fylgzt með íslandi í sov- ézkum fjölmiðlum. Varla lýkur nokkur maður svo upp munni um utanríkis- og öryggismál íslands, að frá því sé ekki skýrt í sovézkum blöðum, og það ekki af verri sort- inni, heldur í tilkynningablöðum fyrir hugsanir Hinna Æðstu. Hvað kemur til? Svarið er þetta: Sovétstjórnin lít- ur á ísland sem veikan hlekk í Atl- antshafsbandalaginu. Hún telur það raunhæfan möguleika að ná á ís- landi sigri, sem bætti upp ófarirnar í Evrópu í lok árs 1983. Um þetta má fræðast í nýútkominni sovétbók: ísland, vandamál utanríkisstefnu, eftir O.V. Tsérstvova. í bók þessari er engin dul dregin á þau markmið, sem Sovétstjórnin hyggst ná á ís- landi. Þau eru: 1. Losa um tengsl íslands við Atlantshafsbandalagið og fá það að lokum til að segja sig úr bandalaginu 2. Stofna „kjarn- orkuvopnalaust svæði" á Norður- löndum með aðild íslands og ábyrgð Sovétríkjanna á „kjarnorkuvopna- leysinu". 3. Þrýsta Islandi síðan til að semja við Sovétríkin (Varsjár- bandalagið) um svokallað „samvirkt öryggi“ („kollektívnaja bésopasn- ost“). Bókarhöfundur (og þar með opinberir aðilar) telur að með stofn- un „vinstri stjórnar" á íslandi 1971 hafi hlutleysingjar og svokallaðir „hernámsandstæðingar" fengið var- anleg áhrif á stefnumótun íslend- inga (þótt lítillega hafi slegið i baksegl 1974—’78). fslendingar fá hól fyrir að hafa átt „verulegan þátt“ í að undirbúa Helsinki- ráðstefnuna 1975. Á ráðstefnunum i Belgrad og Madrid virðast fulltrúar íslendinga hafa látið sér nægja al- mennt tal um „slökun“, sovétmönn- um til mikillar ánægju, en lítt tekið undir það sjónarmið, að friður án mannréttinda sé ekki friður. Af þessu tilefni eru prentuð ummæli Ólafs Jóhannessonar, tekin upp úr Prövdu. Ákvörðun vinstri stjórnar um uppsögn varnarsamnings og brottflutning herliðs er síðan tengd stuðningi fslands við „slökun", og af því er svo dregin sú ályktun, að far- ið sé að losna um fsland innan Atl- antshafsbandalagsins. f munni sov- étmanna er „slökun" helzta vopnið til að efla sundrungu í Atlantshafs- bandalaginu, og því telja þeir að þau ríki sem vilja „slökun" og starfa í „andanum frá Helsinki" séu í raun upp á kant við Atlantshafsbanda- lagið. Höfundur lýsir því yfir, að vinsamleg afstaða Sovétríkjanna til fslands í þorskastriðum hafi verið þáttur í „slökun", til aö toga fsland frá samstarfi við vestrænar þjóðir. Fáist fsland til að rjúfa keðjuna og sundra samstarfi Vesturlanda, yrði eftirleikurinn auðveldari gegn „öðr- um smáríkjum Evrópu", eins og það er orðað, og er þá fyrst og fremst átt við Noreg og Danmörku, en síðan hin smærri ríki á meginlandinu. Því er fsland afar mikilvægt i augum sovétmanna, og því fylgjast þeir vandlega með hverju orði sem fram af munni „hernámsandstæðing- anna“ og „friðarvinanna" gengur, í þeirri trú og trausti að finna þar staðfestingu á ósk sinni og von. Af þessu leiðir og það, að sovét- menn styðja og styrkja þátttöku fs- lands í svokölluðu „norrænu sam- starfi", því að í því ríkir „andinn frá Helsinki". Einkum finnst sovét- mönnum gott til þess að vita, að íslendingar hnýti sig — og helzt römmum rembihnútum — aftan í skottið á Svíum, því að það gæti, ef guð og lukkan er með, ýtt íslandi i átt til hlutleysis og frá samvinnu við önnur vestræn ríki. „Stærsta skrefið og draumamarkið yröi að ís- land yröi hluti af „kjarn- orkuvopnalausum Norö- urlöndum“ sem Sovétrík- in tækju ábyrgð á (og e.t.v. fleiri stjórveldi, en þaö skiptir ekki máli). Með því væri ísland komið a.m.k. hálfa leið- ina út úr Atlantshafs- bandalaginu og loka- markið í sjónmáli.“ Stærsta skrefið og draumamarkið yrði að fsland yrði hluti af „kjarn- orkuvopnalausum Norðurlöndum" sem Sovétríkin tækju ábyrgð á (og e.t.v. fleiri stórveldi, en það skiptir ekki máli). Með því væri fsland komið a.m.k. hálfa leiðina út úr Atlantshafsbandalaginu og lokam- arkið í sjónmáli. fsland gæti þannig orðið til að sundra samstöðu At- lantshafsþjóðanna og mótað „utanríkisstefnu óháða Atlants- hafsbandalaginu". Höfundur leggur mikla áherzlu á það, að hlutverk verzlunarviðskipta Sovétríkjanna við hin smærri ríki Evrópu sé að gera þau „pólitískt óháðari áhrifameiri vestrænum bandamönnum". Þessi tengsl eru mikilvæg vegna þess að þau eru opinber stefna íslenzka ríkisins, en ekki bara brölt smáhópa „framfara- sinna". Höfundur fullyrðir (bls. 146) að fsland hafi tekið þá stefnu „að þróa almenn-evrópska samvinnu og að stofna kerfi samvirks öryggis í Evr- ópu“ utan allra bandalaga. „Samvirkt öryggi“ Hvað er „samvirkt öryggi"? Það er nánast sú staða, sem Varsjárbandalagsríkin eru f. Ef fs- land aðhylltist „samvirkt öryggi", skuldbyndi það sig til að sætta sig við hvaðeina, sem Sovétrfkin aðhaf- ast, tæki með þögninni (eða kannski velþóknun) mannréttindaleysi, styrjöldum, fangelsunum og blóð- böðum og héti sovétstjórninni því, að hafa engin hugmyndaleg eða pólitísk áhrif innan Sovétrfkjanna. En það má reka verzlun við Sovét- ríkin. (Án þess þrffast þau ekki.) Og það er ekki skylda, að viðkomandi land verði sovétíserað. Það má þola þar einkaframtak í einhverjum mæli. Með þessu móti verður „frið- ur“. Tilgangurinn er að þagga niður f hverjum þeim, sem telur sig frjáls- an mann og þar með hafa heimild t.d. til að gagnrýna kúgunarkerfi Sovétríkjanna. Það er því sjálf til- vist frjálsra manna utan Sovétríkj- anna sem ógnar þeim. Þvf er það lokamark „friðarbaráttunnar" að ráða niðurlögum þeirra. Bezt skýrist hugtakið „samvirkt öryggi" með því að vísa í ummæli sovétleiðtoganna sjálfra. V.M. Mólótoff, sem um árabil var dygg málpípa Stalíns, bar þessa stefnu fram á fjórveldaráðstefnunni í Ber- lín 1954. Hann segir þar m.a. í ræðu, að hugmynd þessi sé ekki ný. Hún sé frá því fyrir stríð. Það er rétt. Hún er útfærsla á grundvallar- stefnu Sovétríkjanna í utanríkis- málum. Mólótoff lagði til, að stofnað yrði allsherjar öryggiskerfi Evrópuþjóða frá Úral að Átlantshafi. Aðildarrík- in áttu að vera „friðelskandi og lýð- ræðisleg", þ.e. styðja og styrkja yf- irdrottnan Sovétríkjanna í Austur- Evrópu og láta ekkert þangað ber- ast sem gæti ýtt undir óhlýðni við valdið. Móótoff var meira að segja reiðubúinn til að sameina Þýzka- land, ef það yrði fyrst gert „hlut- laust", síðan lýðræðislegt og frið- elskandi" og loks bundið við þessa utanríkisstefnu. { Þýzkalandi yrðu öll samtök bönnuð sem væru and- stæð „lýðræði og friðarvarðveizlu" (þ.e. óþæg Sovétstjórninni). Það var einmitt eitt fyrsta verk Ulbrichts, eftir að hann fór að taka til hend- inni, að splundra og eyða öllum samtökum sem Flokkurinn hafði ekki undirtökin í, m.a. samtökum andnazista. Þýzkalandi yrði bannað að hafa her, en mátti hafa lögreglu og landamæralið. öll varnarsam- vinna Þýzkalands við Vesturveldin skyldi vera bönnuð og hverskonar pólitík sem beindist gegn Banda- mönnum (en Sovétríkin voru ein þeirra). Þá skyldi „samvirkt öryggi" framkvæmt þannig, að aðildarríki þess skyldu hafa rétt til ihlutunar (einnig hernaðaríhlutunar) ef eitthvað það gerðist í aðildarrikjun- um, sem krefðist „samvirks átaks" til friðargæzlu. Vesturveldin afþökkuðu boð Mólótoffs á Berlínarráðstefnunni 1954. Árið eftir stofnuðu Sovétrikin Varsjárbandalagið. Því var og er ætlað að framkvæma „samvirkt ör- yggi“ á landsvæði aðildaríkjanna. Og ekki var vanþörf á því. Árið áður en Mólótoff þrumaði yfir hausamót- um utanríkisráðherra Vesturveld- anna í Berlin, var uppreisn i austur- hluta þeirrar sömu borgar. Árið 1956 fóru Sovétrikin með styrjöld á hendur Ungverjum fyrir að hafa lýst yfir hlutleysi og úrsögn úr Varsjárbandalaginu. Hið sovézka sjónarmið er að hlutleysi sé fagnað- arefni ef það er skref i áttina að „samvirku öryggi". Þannig talaði og Mólótoff í rauninni um að gera hið sameinaða Þýzkaland hlutlaust (neutralísera það) sem fyrsta áfanga, en það táknaði að rífa það úr tengslum við Engilsaxa og Frakka. Eftir að „samvirku öryggi" er náð, er hlutleysi dauðasynd. Þá voru og hugmyndir tékkneska Samningar undirritaðir um olíuviðskipti milli Islands og Sovétrfkjanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.