Morgunblaðið - 07.09.1984, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 07.09.1984, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 Níu gos á níu árum Yfirlit yfir eldgos á Kröflusvæðinu frá 1975 NÚ STENDUR yfír níunda gosiö á Kröfíusvæöinu á níu ára tímabili. Fyrsta gosið hófst þann 20. desember 1975 í Leirhnjúki og stóö aðeins í nokkrar klukkustundir. Um klukkan 10 að morgni fannst snörp jarö- skjálftahrina og hófst gosið sjálft um klukkan 11.30 á um 500—600 metra sprungu. Meginhluti hraunsins rann fyrstu 10 mínúturnar og varð hraunmagnið í gosinu um 400 þúsund rúmmetrar. Þessir pollar voru svo hugfangnir af tölvuspilunum sem m.a. eru seld á stórútsölumarkaðinum, að þeir litu ekki einu sinni upp þegar Ijósmyndarinn smellti af þeim mynd. Mbl./Emilfa. Stórútsala að Fosshálsi Næsta gos hófst aðfaranótt 28. apríl 1977. Þá byrjaði hraungos í 2,2 kílómetra fjarlægð norður af Leirhnjúki. Aðalhraunstraumur- inn rann til norðurs i áttina að Gjástykki og var hann 300 metra langur. Fyrst varð vart jarðhrær- inga klukkan rúmlega 13.00 mið- vikudaginn 27 apríl og hófst jarð- sig á Kröflu- og Leirhnjúkssvæð- inu um svipað leyti. Þegar leið á daginn fjölgaði jarðskjálftakipp- um. Daginn eftir var gufugos á þremur stöðum á 300 metra breiðri sprungu. Þetta gos er talið minnsta gos á Islandi og runnu aðeins um 10 þúsund rúmmetrar af hrauni. Klukkan 6 fimmtudaginn 8. september sama ár hófst gos í eldstöðvum um þrjá kilómetra norður af Leirhnjúki. Stöðugur órói hafði komið fram á jarð- skjálftamælum á svæðinu frá því kl. 15.50 þennan sama dag. Eldur- inn kom upp úr jörðu á um eins kílómetra langri sprungu og fljót- lega tók þunnfljótandi hraun- straumur að renna til norðurs og norðvesturs. Þegar leið á kvöldið minnkaði virkni á svæðinu og skjálftarnir færðust suður eftir sprungunni í átt að Bjarnarflagi, þar sem skyndilega gaus upp 70—80 metra gossúla úr borholu í nánd við gufuaflsstöðina i Bjarn- arflagi. í fyrstu var talið að orðið hefði annað gos, en við nánari skoðun kom þó (ljós, að sprenging hafði orðið i gasi er hafði safnast fyrir i holunni og stóð eldurinn aöeins i stutta stund. Gosið var mest um kl. 21.30 en fór að réna strax um kl. 22.00. Um klukkan 2 um nóttina var tilkynnt að gosinu væri að mestu leyti lokið. Nú varð nokkurt hlé á eldgosum á þessu svæði, en næsta gos hófst norður af Kröflu kl. 3 sunnudag- inn 16. mars 1980. Gossprungan náði allt frá Leirhnjúki og norður í syðsta hluta Gjástykkis. Gosið stóð stutt yfír, eða i um það bil þrjár klukkustundir, en gosvirkni var i 6—8 klukkustundir. Um 3—4 milljónir rúmmetra af hrauni komu upp á yfirborð jarðar í þessu gosi. Hraungos varð á tveimur stöðum á liðlega eins kílómetra langri gigsprungu á hvorum stað, en um tveir kílómetrar voru á milli hinna virku eldstöðva. Sjá- anleg lengd gossprungunnar var um 30 km. 10. júlí hófst gos enn á ný. Gaus þá á sprungu sem náði frá Sandhnjúki i suðri til norðurs i mitt Gjástykki, eða á 5—6 kíló- metra löngum kafla. Gosið hófst þannig að gigasprungur við Hrútafjöll i Gjástykki rifnuðu um kl. 1 um daginn og gusu kröftugu hraungosi á þriggja km langri sprungu. Hraunsúlurnar náðu allt að 60—70 metra hæð. Um tíma streymdi hraunið ofan i stóra sprungu og hvarf aftur niður í jörðina og myndaðist fallegur foss. Var gosið af þessum sökum talið með fallegustu gosum, ef hægt er að komast svo að orði. Þetta var mesta hraungos sem komið hafði á Kröflusvæðinu sið- an í desember 1975. Um kvöldið hafði gosið rénað mjög en hraun- áin fossaði að mestu leyti ofan í nokkurra metra breiða og 200 metra langa gjá við Hrútafjöll. Þessu gosi lauk 18. júlí. Þriðja og síðasta gosið á Kröflu- svæðinu á árinu 1980 hófst 18. október. Þá varð vart við ört jarð- sig um klukkan átta um kvöldið. Gosið sjálft hófst um klukkan 10 á um 7 km langri sprungu sem náði frá Leirhnjúki og rétt norður fyrir Sandmúla, sem er austur af Jóns- tindi, hæsta tindi Gæsafjalla. Gosið náði hámarki rétt eftir mið- nætti og stóð þá gosmökkur i um 15 þúsund feta hæð. Um morgun- inn, milli kl. 3 og 5, sljákkaði veru- lega í gosinu og lagðist það alveg niður nema á tæplega kílómetra langri sprungu. Þann 22. október gaus enn úr þremur gigum og hraunrennsli var nokkurt. Töldu jarðvísindamenn að nýja hraunið hafi náð yfir 9—10 ferkílómetra svæði. Gosinu lauk laust fyrir miðnætti fimmtudaginn 23. októ- ber og á föstudagskvöldið var landris byrjað á nýjan leik á Kröflusvæðinu. Ekki leið langur tími þar til gos hófst að nýju á Kröflusvæðinu. Það var um hádegisbilið þann 30. janúar 1981 að eldgos hófst i Ét- hólaborgum i Gjástykki. Landsig hófst á Mývatnssvæðinu upp úr klukkan 7 um morguninn og um klukkan 7.30 jókst órói á skjálfta- mælum og skömmu síðar var augljóst að kvikuhlaup var hafíð til norðurs. Mestur var óróinn um klukkan 9 og upp úr hádegi urðu jarðskjálftar sem bentu til að yfir- borð jarðar væri farið að rifna. Gosið hófst upp úr klukkan 14 og hættu þá jarðskjálftarnir. Hraun- ið rann hratt yfir eins og i fyrri gosum og mikill mökkur steig i allt að 13 þúsund feta hæð. Mikill kraftur var í gosinu fyrstu klukkustundirnar. Þá gaus á um tveggja kilómetra sprungu og gló- andi hraunleðjan þeyttist í um 100 metra hæð. Fljótlega dró úr gos- inu en mikið magn af hrauni kom upp á yfirborð jarðar i nokkra daga. Þegar gosið hófst, sem nú stend- ur yfir, hafði ekki gosið á á Kröflusvæðinu síðan 18. nóvember 1981. Þá gaus í um eins kílómetra fjarlægð norðan Leirhnjúks, en siðan opnaðist sprunga bæði til norðurs og suðurs í átt að Leir- hnjúki. Fyrst i stað var gosið mjög kraftmikið og gaus á um átta kiló- metra langri sprungu. Hraunið rann aðallega til vesturs og náði hluti þess tilGæsafjalla. Fljótlega sama dag dró mjög úr gosinu og minnkaði hraunstraumur mikið. Alls komu upp um 18 ferkilómetr- ar af hrauni í gosinu, en þvi var að mestu lokið 24. nóvember. UM SÍÐUSTU mánaðarmót var opnaóur stórútsölumarkaður aö Foss- hálsi 27 og er það verslunin Karna- bær sem hefur veg og vanda af mark- aðinum. Er hér um sama stótútsölu- markað að ræða og haldinn hefur ver- ið á Bfldshöfða undanfarin ár. Auk Karnahæjar eru nokkur fyrirtæki með sölubása á útsölumarkaðinum og má þar nefna Hljómbæ hf., Hummel, Steinar hf., Skóverslun Axels Ólafs- sonar, Belgjagerðina hf., Blómaval, Nýja kökuhúsið auk ýmissa heild- salna. A markaðinum kennir ýmissa grasa og ber fyrst að nefna fatnað á fólk á öllum aldri frá versluninni Karnabæ. Þá eru seldar á markað- „DIRTY Harry í leiftursókn," nefn- ist kvikmynd sem Austurbæjarbíó sýnir nú. Hún fjallar um Harry Callahan, gamalreyndan lögreglu- mann i San Fransiskó og er hann leikinn af Clint Eastwood. Lög- reglumaður þessi er svo harður í horn að taka, að bófaforingi einn fær hjartaáfall og deyr, þegar Ha- inum álnavörur, pottablóm, ritföng, snyrtivörur, skófatnaður, safelgæti, barnaföt, hljómplötur og alls kyns raftækjavörur. Allur varningurinn er seldur á mun lægra verði en á venjulegum útsölum og að sögn Birnu Eyjólfsdóttur frá Karnabæ eru nýjar vörur teknar upp úr köss- um daglega. Islensk matvæli verða með vöru- kynningar og Eiríkur Fjalar kemur af og til í heimsókn á meðan að á stórútsölumarkaðinum stendur. ís- lensku skrykkdansararnir „City breakers" sýna skrykklistir alla daga og Nýja kökuhúsið býður upp á ný brauð og kökur. Að sögn Birnu er ráðgert að hafa stórútsölumark- aðinn opinn út septembermánuð. rry hefur í hótunum við hann. Aðrir bófar ætla sér að hefna foringjans og er Dirty Harry því sendur burt úr bænum. En ekki er allt búið enn... Aðalhlutverk eru í höndum Clint Eastwood, eins og áður sagði, Söndru Locke, Par Hingle og Brad- ford Dillman. Austurbæjarbíó: * Ovandaði Harry á ferðinni Skákþing íslands, 3ja umferð: Tímahrak og afleikir Skák Bragi Kristjánsson I fyrrakvöld var 3. umferð tefld á Skákþingi íslands, í landsliðsflokki. Teflt er á Hótel Hofí við Rauðarárstíg í Reykja- vík, og standa skákirnar frá kl. 18—23 á virkum dögum, en um helgar kl. 14—19. Aðstaða er góð, jafnt fyrir keppendur sem áhorfendur, enda hafa margir lagt leið sína á Hótel Hof til að fylgjast með spennandi keppni. 3. umferð: Guðmundur — Helgi 'k — 'k Jón L. — Björgvin frestað Dan — Lárus 1—0 Halldór G. — Sævar biðskák Ágúst — Hilmar 0—1 Margeir — Haukur biðskák Karl — Jóhann 0—1 Staðan eftir 3 umferðir: 1. Jó- hann, 2'k v., 2. Halldór G., 2 v., og biðskák, 3.-5. Guðmundur, Helgi og Dan, 2 v., 6. Jón L., 1 'k v. og frestaða skák, 7. Hilmar 1 'k v., 8.—11. Haukur, Margeir, Sævar og Björgvin 1 v., og Hauk- ur, Margeir og Sævar eiga bið- skák, en Björgvin frestaða skák, 12. Karl, ‘k v., 13.—14. Lárus og Ágúst, 0 v. Guðmundur og Helgi tefldu rólega byrjun i fáa leiki áður en jafntefli var samið. Gagnkvæm virðing stórmeistarans og stórmeistaraefnisins réði ferð- inni. Jón L. fékk skák sinni við Björgvin frestað vegna próflest- urs. Dan og Lárus tefldu bar- áttuskák. Staðan var vandasöm og báðir keppendur eyddu mikl- um tíma. Lárus vann skiptamun, og keppendur lentu í timahraki. Eftirfarandi staða kom upp eftir 33. leik Dans, sem hafði hvítt: Lárus lék 33. - a5?? Nauðsynlegt var að leika 33. — Had8, en i tímahrakinu gleymir Lárus gamalli og góðri reglu, að stöðva beri frípeð eins fljótt og hægt er. 34. d6! - Dan grípur tækifærið fegins hendi. 34. — Dxdfi, 35. Dh4 — a4 með 34. d6 opnaði hvítur leið biskupsins á c4 að peðinu á f7, og þess vegna strandar 35. — Hh8 á 36. Hxf7+. 36. DH6+ — Kg8, 37. Hhl og Lár- us gafst upp. Tímahrakið hefur enn einu sinni orðið honum dýrt. Bolvíkingurinn Halldór Grét- ar hafði forystu fyrir þessa um- ferð með tvo vinninga. Ef til vill hefur það haft slæm áhrif á tafl- mennsku hans, þvi hann fékk snemma erfiða stöðu gegn Sæv- ari. Eftir uppskipti kom upp endatafí, sem var mjög hagstætt fyrir Sævar. Skákin fór í bið í eftirfarandi stöðu. Halldór, sem hefur hvítt, lék biðleik: Ágúst fórnaði peði í byrjun- inni gegn Hilmari, en fékk lítið spil fyrir. Hilmar átti þó ekki hægt um vik með að notfæra sér peðið, og svo kom, að tilraunir hans kostuðu peðið, sem hann hafði yfir. Ágúst fékk þá góða stöðu, en hann er algjörlega heillum horfinn í þessu móti, lék af sér manni og mátti gefast upp. Margeir náði fljótt þægilegu tafli gegn Hauki, og haföi öruggt frumkvæði. Haukur skipti upp í endatafl, en hafði mjög óvirka stöðu eftir það. Skákin fór í bið í eftirfarandi stöðu. Varla þarf að taka fram, að hvítur, Margeir, lék biðleik i stöðunni: Aðalskákin í umferðinni var mikil baráttuskák Karls og Jó- hanns. Skákin varð snemma vandasöm og keppendur þurftu mikinn tima til að átta sig á gangi mála. Þegar leiknir höfðu verið um það bil 26—7 leikir átti hvor keppandi eftir 4—5 mínút- ur til að ná 40 leikja markinu. Hófst þá mikil hraðskák og tafl- ið varð mjög flókið. Jóhann fórn- aði skiptamun, og kom við það tveim peðum í hættulega stöðu nálægt kóngi Karls. Vörnin var erfið fyrir Karl og hann tapaði peði. Segja má, að enginn í skáksalnum hafi haft hugmynd um, hvernig staðan var, eða hve margir leikir höfðu verið leiknir enda léku báðir illa af sér. Eftir- farandi staða kom upp. Karl hef- ur hvítt, Jóhann svart og á leik: Jóhann lék De4 — g2+ og Karl svaraði De2xg2, og klukka Jó- hanns féll. Ljóst var, að svarta staðan var léttunnin eftir — e3 = e2+ og sama er hvort hvítur leik- ur Khl, sem svarað er með e2 — elD+, eða Dg2 — f2, sem svarað er á sama hátt. En stóra spurn- ingin var, hvort Jóhann hefði náð að leika 40 leiki, áður en klukkan féll. Þegar i ljós kom, að Dg2+ var 46. leikur Jóhanns rétti Karl fram höndina til merkis um uppgjöf. Sannarlega spennandi skák. Segja má að tímahrak og af- leikir hafi einkennt þessa um- ferð, en þannig fer oft í harðri keppni kappsfullra skákmanna. I kvöld verða tefldar biðskák- ir, en 5. umferð verður tefld á morgun, laugardag, en þá tefía: Halldór G. — Helgi, Dan — Jón L., Guðmundur — Björgvin, Ág- úst — Lárus, Margeir — Sævar, Karl — Hilmar, Jóhann — Haukur. í 6. umferð á sunnudag tefla: Helgi — Ágúst, Jón L. — Halldór G., Guðmundur — Dan, Lárus — Margeir, Sævar — Karl, Hilmar — Jóhann, Björg- vin — Haukur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.