Morgunblaðið - 07.09.1984, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.09.1984, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 Tölyumennt; Tímaritaflokkur fyrir aðra en þá sem eru sérfróðir um tölvur TÖLVUMENNT nefnsist nýtt tíma- rit um tölvur sem nýkomið er á markaðinn. FyrirUekið Tölvumennt sf. er útgefandi tímaritsins, en fyrir- Uekið keypti þýðingarrétt að ritun- um af breska fyrirUekinu Orbis Publishing. Eigendur Tölvumenntar sf. eru Þorsteinn Thorlacius og Guð- mundur Sigmundsson og í samtali við blaðamann Mbl. sagði Þor- steinn að ritið væri alls ekki sér- fræðirit og væri efni þess miðað við að aðrir en sérfróðir menn um tölvur læsu það. Fyrsta tölublaðið er nýkomið út, en alls koma út 24 blöð með viku millibili. Blaðið er 28 bls. að stærð og eru allar blaðsíður þess lit- prentaðar. Fyrsta tölublaðið er í raun 1. og 2. tölublað og því tvöfalt að stærð. í ritinu er meðal annars að finna greinar um tölvur, forritun, hugbúnað og helstu nýjungar varðandi tölvur, og ennfremur -^ýmiskonar grunnatriði sem tengj- ast tölvum og notkun á þeim. Brian Watkins ráðgjafi Orbis Publishing í Bretlandi, er staddur hér á landi um þessar mundir, en Orbis Publishing gefur út nærri 30 blöð og tímarit, sem mörg hver eru seld hér á landi. Sagði hann að þetta rit hefði þegar verið gefið út í flestum enskumælandi löndum við góðar undirtektir. Hann sagði að Island væri fyrsta landið sem keypti þýðingarétt á ritinu, en nú hefðu fleiri lönd keypt sams konar rétt. Þorsteinn Thorlacius sagðist halda að þetta væri í fyrsta sinn sem hér á landi væri keyptur þýð- ingaréttur á efni, eins og Tölvu- mennt, en til þess að þýða ritin hefðu tveir ritstjórar verið ráðnir, Ingvar ólafsson og Jakob Hálf- dánarson, sem báðir væru sérfróð- ir í málefnum sem varða tölvur. Þorsteinn Thorlacius sagði að Tölvumennt væri nokkurs konar tímaritaflokkur, hvert blað væri i framhaldi af öðru og því væri mik- ilvægt að lesendur fylgdust með frá upphafi. Hann gat þess einnig að breska fyrirtækið Orbis Publ- ishing hefði gefið út tímaritaflokk í framhaldi af þessum, fyrir þá sem lengra væru komnir og ef þau rit, sem nú verða gefin út, fengju jákvæðar undirtektir, væri ekkert því til fyrirstöðu að gefa fram- haldsflokkinn út í íslenskri þýð- ingu. Verð Tímaritsins er 95 krónur í lausasölu en áskrift að 24 blöðum kostar 1.490 krónur. Ritið er fá- anlegt í bókaverslunum. Morgunbladid/ Júlíus. Brian Watkins riðgjafi Orbis Publishing í Bretlandi og Þorsteinn Thorlacius annar eiganda Tölvumenntar sf., sem keypt hefur þýðingaréttinn á „Tölvu- mennt“. Morgunblaðift/Olafur. Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson í hlutverkum sínum við glæsilega Volgu-bifreið. í baksýn er Sandgræðslu- vélin Páll Sveinsson en hún er mikið notuð í myndinni í gervi Flugfélagsvélarinnar Gljifaxa. Egilsstaðir: Hvítir mávar eiga að létta lundina í skammdeginu Fylgst með kvikmyndatöku á Egilsstaðaflugvelli Kgilsttöðum, 4. september. ÞAÐ VAR ekki laust við að sumum Héraðsbúum brygði nokkuð í brún i sunnudag þegar flugvél af gerðinni Douglas DC3, merkt Flugfélagi ís- lands í bak og fyrir, lenti i Egils- staðaflugvelli. Við ninari eftir- grennslan reyndist þó vera hér i ferð iburðarfíugvél Landgræðslunn- ar Páll Sveinsson, til að gegna löngu liðnu hlutverki — þ.e.a.s hlutverki farþegaflugvélar — en að þessu sinni í kvikmynd þeirra Stuðmanna — „Hvítir mávar“ — sem nú er kvikmynduð hér ura slóðir. Taka myndarinnar hófst á Eg- ilsstaðaflugvelli í gær og lýkur kvikmyndatöku þar væntanlega i dag. Síðan verður myndað í Hall- ormasstaðaskógi — en alla næstu viku mun unnið að gerð myndar- innar á Seyðisfirði — og verður útimyndun þá lokið. Að sögn aðstoðarleikstjóra, Stuðmannsins Valgeirs Guðjóns- sonar, fer innimyndun fram í Reykjavík og er þegar hafin. Taldi hann að myndin yrði tilbúin til frumsýningar upp úr áramótum. Valgeir vildi sem minnst tala um söguþráð myndarinnar — en sagði að hún ætti að létta lund landans í skammdeginu. Áætlaðan fram- leiðslukostnað myndarinnar taldi hann liggja nærri andvirði tveggja vænna einbýlishúsa á góð- um stað í Reykjavík. Sagan sem myndin fjallar um gerist á árunum kringum 1960 og var dágóður floti bifreiða frá þess- um tíma á Egilsstaðaflugvelli í dag. M.a. gaf þar að líta gljáfægða Volgu-bifreið — og mun hún vera sótt í Borgarnes. Að sögn er þetta bifreið sýslufulltrúa nokkurs í myndinni. Við upptöku í dag ók Egill ólafsson bifreið þessari og má því ætla að hann leiki téðan sýslufulltrúa. Sýslufulltrúinn ók i kapp við tímann í veg fyrir flug- vélina, Gláfaxa, með farþega í aft- ursæti (Ragnhildi Gísladóttur) og eiginkonuna sér við hlið (Tinnu Gunnlaugsdóttur). Höfundar handrits eru þeir Val- geir Guðjónsson, Egill ólafsson og Jakob Magnússon. Leikstjóri er Jakob Magnússon og Egill Eð- varðsson er upptökustjóri. — ólafur. Náttúruverndarráð: í Elliheimilið Enterprise Kvikmyndir Árni Þórarinsson Hiskólabíó: Geimstríð II — Reiði Khans — Star Trek II — The Wrath of Khan. ★'A. Bandarísk. Árgerð 1982. Handrit: Jack B. Sowards. Leikstjóri: Nicholas Meyer. Aðalhlutverk: William Shatner, Ricardo Montalban, Leonard Nimoy, DeForest, Kelley, James Doohan. „Geimurinn, síðasta landnám- ið. Hér er sagt frá ferðum stjörnufarsins Enterprise. Fimm ára leiðangri þess er ætlað að kanna ókunna heima, leita að nýju lífi og nýjum menningar- svæðum, — að dirfast lengra en nokkur maður hefur áður farið." Með þessu kjaftæði hóf í sept- ember 1966 fyrrnefnt geimskip sig til flugs í amerísku sjónvarpi og hefur verið að væflast um geiminn síðan, hinn seinni ár í kvikmyndahúsum. Mynd Há- skólabiós nú endar á þessu sömu orðum. Sjónvarpssyrpan Star Trek náði feikilegum vinsældum víða um heim og þótti á margan hátt til fyrirmyndar í fremur greindarlegum vísindaskáld- skap. Ég sá nokkra af þessum þáttum og verð að játa að ég kom ekki auga á púðrið í þeim; áhöfnin á Enterprise var ekki fólk með slíka vaxtarbrodda að William Shatner sem Kirk aðmír- áll ætti að fara að leggja sig. það héldi athyglinni til lengdar og hugmyndaflug höfundarins, Gene Roddenberry, ekki mikið víðfeðmara en sem nam blikk- andi mælaborðum og útsölu- speki á við þá sem vitnað var til hér í upphafi. Star Trek fékk á endanum hægt andlát í sjón- varpinu. En þegar Stjörnustríð hratt af stað endalausum geim- ferðaskáldskap í vestrænni kvikmyndagerð kom gamla Star Trek-gengið saman að nýju og dustaði rykið af Enterprise. Út- koman varð Star Trek — The Movie, alveg steingeld leikfanga- mynd sem samt rakaði inn fé. Star Trek II er að vísu skömm- inni skárri en sú fyrsta. Þar veldur mestu að Nicholas Meyer leikstjóri spennir myndmálið betur en Robert gamli í Wise í Star Trek I, og þó fyrst og fremst það að Ricardo Montal- ban er skrambi djöfullegur sem illmennið Khan með útlit grá- hærðs gæruhippa en skrokkinn af Skúla óskarssyni. Söguþráð- urinn, um stríð Khans gegn Kirk aðmírál á Enterprise, er eymdin uppmáluð, og áhöfn stjörnufars- ins að niðurlotum komin af elli eftir átján ára útivist. Leikar- arnir eru tindátar, sem reynt er að lappa upp á með mikilli förð- un og reyrðum geimafarabún- ingum. Hasarinn gengur út á blossa og neistaflug úr litríkum mælaborðum og leikurinn felst í því að svitna og kipra augun og labba inn og út um rennihurðir leikmyndarinnar. Star Trek er þannig furðu náttúrulaust tafl með teikni- myndafígúrur. Og enn skröltir Enterprise-skrjóðurinn um geiminn: Ef einhver óttast við lok Star Trek II að doktor Spock, geimkanínan sem Leonard Nimoy leikur og mun vera hvað vinsælasta persónan, sé horfinn veg allrar veraldar, þá lát eigi hugfallast. Star Trek III — Leit- in að Spock, gengur nú ljósum logum á tjöldum bíóanna vestan- hafs og víðar. Lög verði sett um notkun og endur- notkun umbúða Á undanförnum árum hafa bæði Náttúruverndarráð og Náttúru- verndarþing fjallað um mengunar- hættu frá vöruumbúðum af ýmsu tagi, einkum þó þeim umbúðum, sem aðeins eru notaðar einu sinni. Þannig hafa þessi mál borið á góma á öllum Náttúruverndarþingum frá árinu 1975, en það ár og árið 1981 voru þau allmikið rædd. Árið 1975—1976 aflaði Náttúruverndar- ráð sér ýmissa gagna um lög og regl- ur um endurnotkun umbúða á Norð- urlöndum, en þar hefur verið reynt að draga úr notkun einnota umbúða. í skýrslu um störf Náttúru- verndarráðs 1981—1984, sem lögð var fyrir Náttúrurverndarþing sl. vor, er skýrt frá samþykkt Nátt- úruverndarráðs um mengun nátt- úrunnar af umbúðum og úrgangi en lokaorð hennar eru þessi: „Að lokum telur Náttúruverndarráð löngu orðið timabært að setja lög og/eða reglugerð um innflutning, notkun og endurnotkun umbúða af ýmsu tagi.“ í frétt frá Náttúruverndarráði segir: „Þar sem notkun einnota umbúða hefur enn aukist síðan þessi samþykkt var gerð, og nú nýlega er farið að auglýsa sér- staklega hagræði þess að kaupa ís- lenska gosdrykki í einnota umbúð- um, þá fjallaði Náttúruverndarráð um þessi mál á ný á fundum sín- um 14. og 15. ágúst sl. Þar kom fram að full ástæða væri til að staldra við og athuga nánar hve mikinn kostnað þessi síaukna notkun einnota umbúða hefði í för með sér fyrir þá sem sjá um hirð- ingu sorps og úrgans, bæði í bæj- um, til sveitar og á ferðamanna- stöðum. Þá væri ekki síður ástæða til að menn gerðu sér betur grein fyrir því hér á landi, að auðævi jarðar eru ekki óþrjótandi, og því nauðsynlegt að endurnýta sem mest af þeim margvíslegu efnum, sem notuð eru til hinna ýmsu þarfa í nútíma þjóðfélagi, svo sem í áhöld, verkfæri dagblöð og um- búðir, en þetta er gert í síauknum mæli í nágrannalöndum okkar. Ekki má þó gleyma því að endur- notkun pappírs er nú nýlega hafin hér á landi og er það vel þó enn séum við langt á eftir nágranna- löndum okkar. Fyrrnefndur fund- ur Náttúruverndarráðs taldi að mikilvægt skref til að bæta hér um, væri setning laga og/eða reglugerðar um innflutning, notk- un og endurnotkun umbúða hér á landi. ítrekar ráðið því fyrri sam- þykkt og leyfir sér að beina henni til ríkisstjórnar og Alþingis."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.