Morgunblaðið - 07.09.1984, Síða 58

Morgunblaðið - 07.09.1984, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 Ást er... ... að ajóta sumarhlíð- unnar saman. TM Reg U.S. Pat. Off,—«11 rtghts reserved • 1979 Lo« Angetes Tlmes Syndtcate Og hvaða hreyfingu aðra er um að ræða en að opna bflskúrshurðina og stanga úr tönnunum, má ég spyrja? HÖGNI HREKKVÍSI Mannvirki i Keflavíkurflugvelli. Bréfritari er þeirrar skoðunar að tilæthinarsemi íslenskra stjórnvalda f garð bandarfskra sé með ólfkindum. Gjaldtaka fyrir fórnarlund Svo virðist sem umræða um öryggis- og varnarmál íslands sé að færast verulega i aukana um þessar mundir. Ber þar margt til. Svo sem áform um uppsetn- ingu ratsjárstöðva á Vestfjörð- um og N-Austurlandi, ágreining- ur íslenskra og bandarískra stjórnvalda um vöruflutninga til herliðsins á Keflavíkurflugvelli og síðast en ekki sist nýlega skoðanakönnun á viðhorfum Is- lendinga til öryggis- og utanrík- ismála. Það er einkum í sambandi við skoðanakönnunina sem mig langar að leggja fáein orð í belg, en mun þó einnig drepa á nokkur önnur atriði í leiðinni. Af meiginniðurstöðum könn- unarinnar er ljóst að 80% ís- lendinga eru hlynntir aðild að NATO, 64% vilja hafa banda- ríska varnarliðið hér á landi og u.þ.b. % hlutar þjóðarinnar eru hlynntir gjaldtöku af varnarlið- inu. Samkvæmt þessu má halda því fram að allur þorri íslend- inga skilji nauðsyn þess að þeir skipi sér á bekk með með bræðra- og vinaþjóðum sínum í öryggismálum. En varðandi sjálfar varnir landsins skortir mikið á að þjóðarheildin skilji mikilvægi að hafa hér her sem er reiðubúinn að verja hana fyr- ir hættulegum óvinum og fjand- þjóðum hennar. Það er mikil alvara á ferðum þegar 36% þjóðarinnar virðast ekki gera sér grein fyrir því að hún á ægilega óvini, sem sitja um það hverja stund að ráðast á Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til lostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. hana og sölsa hana undir sig. (Athugið að þarna vantar aðeins lítil 14% til þess að um helming þjóðarinnar sé að ræða.) Það er því morgunljóst að hér er mikið verk óunnið. Leiðtogar þjóðar- innar þurfa að taka sér tak og upplýsa landsmenn um hve gíf- urleg hætta vofir sífellt yfir. öllu alvarlegri er þó sú niður- staða skoðanakönnunarinnar sem leiðir í ljós að u.þ.b. 65% íslendinga eru þeirrar skoðunar að bandaríski herinn eigi að greiða gjald fyrir þá „aðstöðu" sem honum er veittur hér í land- inu. Mikið hefur verið fjallað um þennan þátt könnunarinnar og hafa stjórnmálamenn keppst við að lýsa furðu sinni á þessum viðhorfum. Furðan er þó af mis- munandi rótum runnin. Það veldur mér aftur á móti mikilli undrun að hvorki í skoð- anakönnuninni né í umræðum í kjölfar hennar hefur nokkur ein- asti maður hreyft þeirri hug- mynd sem óneitanlega hlýtur að vera eina rökrétta afstaðan sem íslendingar gætu tekið. En hún er sú að íslendingar eiga að sjálf- sögðu að borga fyrir það dýrmæta öryggi sem þeim er tryggt með dvöl bandaríska hersins hér á landi. Vissulega geri ég mér grein fyrir því að aldrei yrði hægt að meta þessa vernd til raunvirðis, hvað þá að greiða hana að fullu, en þó mætti vera unnt að gera það að einhverju marki. Hag- fræðingar nútímans eru sífellt að auka verksvið sitt og hafa á síðustu árum sýnt fram á það með reikniaðferðum sínum að hægt er að verðleggja alla þætti tilveru okkar. Þeim yrði þess vegna engin skotaskuld úr því að verðleggja þá vernd og það ör- yggi sem bandaríski herinn læt- ur okkur í té. í framhaldi af þessu sakar ekki að minna á að bandarísk stjórnvöld verða að takamarka fjárveitingar til félagslegrar þjónustu vegna hinna gífurlegu fjármuna sem þau þurfa að verja til her- og varnarmála (sbr. umræðuþátti í sjónvarpinu um daginn með hinum heims- kunna vísindamanni og nóbels- verðlaunahafa Milton Fried- man). Ég vil því benda þeim Is- lendingum á sem hvað hæst gala um félagslegt óréttlæti í Banda- ríkjunum, að einhverja sök gæt- um við átt á því. Já, tilætlunarsemi íslendinga í garð bandarísku þjóðarinnar er bæði ósiðleg og hryggileg. Við ætlumst ekki aðeins til að Bandaríkjamönnum að þeir séu tilbúnir að fórna lífi sínu landi okkar og þjóð til varnar, heldur viljum við líka að þeir borgi okkur fyrir það. Þegar bandarísk hernaðaryf- irvöld hyggjast efla varnir landsins og treysta hervarnar- kerfi vestrænna þjóða með upp- setningu ratsjárstöðva víðsvegar um landið, þá heimta íslend- ingar að stöðvarnar þjóni um leið íslenskri flug- og skipaum- ferð og taki þátt í landhelgis- gæslu. Utanríkisráðherrann okkar hefur meðal annars látið hafa eftir sér á prenti að sé út- búnaður stöðvanna ekki þannig að þér gæti fullnægt þessu þá verði bara að auka við og efla tækjabúnað þeirra. En það var ekki unnt að sjá á ummælum þessa góða manns að hann teldi þá eðlilegt að íslendingar tækju á sig þann aukakostnað. Og hvað gerist þegar banda- rískt skipafélag tekur að sér (NB samkvæmt bandarískum lögum) vöruflutninga til bandaríska hersins? Jú — Islendingar rísa upp á afturfæturna með hávær mótmæli og heimta að fá að sitja áfram að þeim ágóða sem flutn- ingarnir gefa af sér. Það sem út yfir tekur þó er að þegar sú ýtni sem þarna kemur fram ber ekki tilætlaðan árang- ur, fer að örla á allskyns hótun- um í garð Bandaríkjamanna. Þær raddir gerast nú æ há- værari sem krefjast þess að bandarísku hermennirnir greiði hér skatta og skyldur, tolla o.þ.b. til jafns við íslendinga. Meðal annars landbúnaðarforystan, sem auðvitað er í stökustu vand- ræðum með offramleiðslu sína, krefst þess að nú allt í einu verði farið að framfylgja löngu úrelt- um lögum sem kveða á um að varnarliðið skuli éta íslenskt. Og þetta fær hljómgrunn. Eins og það séu ekki þegar nægilegar kvaðir sem herliðið á Miðnes- heiði hefur tekið á sig, að berjast við óvinaher íslensku þjóðarinn- ar þegar þar að kemur, þó því sé ekki gert skylt að berjast dag- lega á diskum sínum við beina- stóra ólseiga, fitulöðrandi ket- bita af íslenskum sauðum. Á hvaða siðferðisstigi er þjóð sem svona hugsar? Er heimtu- frekju okkar engin takmörk sett? Það getur ekki verið að fólk með þankagang af þessu tagi trúi því í raun og veru að banda- ríski herinn sé hér íslendingum til varnar. I.H.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.