Morgunblaðið - 07.09.1984, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984
59
Flugfélög auki þjónustu
vid ellilífeyrisþega
H.S. skrifar:
Eins og flestum er kunnugt fá
ellilífeyrisþegar flugfar innan-
lands fyrir hálft gjald. Þetta kem-
ur sér afar vel enda mikill munur
að komast fram og til baka fyrir
sama og önnur leiðin hefði kostað.
Eiga Flugleiðir þakkir skildar
fyrir þessa velvild og hugulsemi í
garð gamla fólksins. En þó er einn
galli á þessum afsláttarfargjöld-
um. Nefnilega sá að þau gilda ekki
nema þrjá daga vikunnar, þriðju-
daga, miðvikudaga og laugardaga.
Vafalaust geta flestir og oftast
hagað ferðum sínum þannig að
þeir noti þessa daga. En samt get-
ur stundum staðið þannig á að það
sé ekki hægt vegna aðkallandi er-
inda samferðarfólks eða annarra
ástæðna. Ef ráðamenn Flugleiða
telja sig ekki geta látið þennan
gamalmennaafslátt gilda alla
daga vikunnar, eins og auðvitað
væri best, ætti að vera hægt að
gefa undanþágu, ef einhver gamall
þarf nauðsynja vegna að fá flug-
far á öðrum degi en þeim til-
skyldu. Áður fyrr var sú regla hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur að
afsláttarkort gamla fólksins giltu
aðeins á vissum tímum dagsins.
Þetta hefur aftur á móti fyrir
Hrákasmíði
skaparans
Kæri Velvakandi.
í Morgunblaðinu miðvikudaginn
29. ágúst síðastliðinn birtist mynd
á bls. 27, af tveimur stúlkum og er
önnur þeirra að snyrta hár hinnar.
Auðvitað er ekkert athugavert við
það, en græni liturinn á hári og
vörum stúlkunnar sem verið var að
snyrta stakk svo hroðalega í augun
að mér blöskraði. Þá kom mér í hug
vísa sem Páll Vatnsdal, sá ágæti
hagyrðingur sem látinn er fyrir
mörgum árum gerði, er hann sá
stúlku að kaupa sér, að mig minnir
púðurdós, sem þykir víst ekki
merkileg snyrtivara nú á dögum.
Vísan er svona:
Mærin keypti meðalið
sem magnar fegurð líkamans,
hún er að reyna hressa við
hrákarsmíði skaparans.
Þessi vísa varð landsfleyg á aug-
abragði og mætti svo sannarlega
heyrast í dag, þegar margt ungt
fólk keppist við að afskræma sig
sem mest. Með kveðju og þökk fyrir
gott lestrarefni.
Hadda
löngu verið afnumið. Kannski
gætu Flugleiðir látið afsláttar-
gjöldin gilda t.d. fimm daga vik-
unnar. Ég varpa þessari spurn-
ingu fram, þessum ágætu
mönnum til athugunar.
VISA kynnir vöru
Og pjónustustaði
MYNDBANDALEIGUR:
Bandið, Reykjavíkurvegi 1,
Hafnarfiröi 91-54179
Beta-myndbandaleigan, Barónsstíg 3 Bókaverslun Snæbjarnar, 91-12333
Hafnarstræti 4 Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, 91-14281
Austurstræti 18 91-18880
Ís-Videó, Smiöjuvegi 32, Köpavogi Kvikmyndamarkaðurinn, 91-79377
Skólavöröustíg 19 Myndbanda-lagiö, Bjarkarholti, 91-15480
Mosfellssveit Myndbandaleiga kvikmyndahúsanna: 91-667187
Hverfisgötu 56 91-23670
Nóatúni 17 91-23700
Dalshrauni 13, Hafnarfirði Myndbandaleigan, Reykjavíkurvegi 62, 91-54885
Hafnarfirði 91-54885
Myndberg, Suðurlandsbraut 2 91-686360
Nesval, Melagötu 11, Neskaupstaö 97-7707
Nesvideó, Miögaröi 7, Neskaupstað SnakkhorniöA/ideóhorniö, 97-7780
Engihjalla 8, Kópavogi 91-41120
Söluturninn, Leirubakka 36 91-73517
Videó Klúbburinn, Stórholti 1 91-35450
Videóleigan, Smiösbúö 10, Garöabæ 91-41930
Videó Queen, Hafnargötu 34, Keflavík 92-3730
Videó-Spólan, Holtsgötu 1 91-16969
Vc'rsltó ineö V/SA
VISA ÍSLAND
Atít að
fytíast
af vörum
Nú eru haustvörurnar farnar að
streyma í hús. Við getum sagt með sanni
að nýja vörur komi á hverjum klukku-
tíma frá morgni til kvölds.
PAX
Þú þekkir PAX-svefnsófann sem er svo þœgílegur aö sítja
í og fallegur á að líta og sem þú getur sofið í þversum og
langsum.
MUSIK
Nú eigum viö hirslur í Ijósum og dökkum viöartegundum
fvrir allar aræiurnar þlnar.
ELTON
Viö frumsýnum fyrstu Elton sófana í dag og á morgun,
laugardag.
Vel á minnst það er opiö á laugardaginn
til kl. 4.
(útborgun á afborgunarsamninga.
HÚSGACNAEÖLLIN
BlLDSHÖFOA 20-110 REYKJAVlK * 91-81199 og 81410