Morgunblaðið - 25.11.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.11.1984, Blaðsíða 20
84 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984 Plútó í Kóni, hvað er nú það? Tregur blaðamaöur gefur sig stjörnuspeki á vald — eftir Ingva Hrafn Jónsson „Ég á stjörnuspekinámskeið?" Ég leit á vin minn Guðlaug Berg- mann með meðaumkun og áhyggj- um yfir því að nú væri honum far- ið að förlast. „Já, einmitt þú, mað- ur, sem hefur helgað sig fjölmiðl- un og byggir alla sína afkomu á því að miðla fréttum og upplýsing- um. Þú gætir haft ofsalegt gagn og ánægju af því að kynnast þess- um fræðum, þótt ekki væri nema til að kynnast sjálfum þér betur." Manninum var greinilega alvara. Hann brosti þó og sagði: „Ég veit alveg hvað þú ert að hugsa. Þú ert að hugsa um eitthvert kellingar- kjaftæði, spákonur og svika- hrappa. Hefurðu gert þér grein fyrir að þessi fræði eru mörg þús- und ára gömul og óteljandi fjöldi manna i öllum heimsálfum og á ólíkum menningarsvæðum leggja stund á stjörnuspeki." „Gulli minn, finndu þér annað fórnar- lamb í blaðamannastéttinni, ef ég færi á svona námskeið yrði það miklu fremur til að fletta ofan af þessum skrípaleik, að taka gott og saklaust fólk, rýna í eitthvað kort og segja svo hókus pókus, svona ertu.“ „Það er nákvæmlega það sem ég er að biðja þig að gera, farðu á námskeiðið, kynnstu þessu og skrifaðu svo grein í Moggann um þetta og flettu ofan af því sem þú vilt. Það myndi passa fyrir Plútóinn þinn I Ljóni, að skyggn- ast hvasst á bakvið yfirborð hluta." „Plútóinn minn í Ljóni, amma þín hvað? Hvað ertu eiginlega að röfla? Plútóinn þinn í Ljóni, af hverju ekki Mikki mús í krókó- díl?“ Mér fannst ég hlyti að hafa drepið þetta Plútókjaftæði í hon- um. Plútóinn þinn i Ljóni, ha, ha.“ „Ingvi minn þú ert Ljón, eins og alþjóð hefur þurft að horfa upp á í sjónvarpinu í mörg, ég er búinn að láta gera nákvæmt stjörnukort um þig og ég sé þig algerlega í nýju ljósi. Þú ert með tungl í Steingeit, Merkúr, Venus og Júpí- ter í Krabba, Mars og Plútó í Ljóni og Satúrnus og Úranus í Tvíbura og ert eitthvert póttþéttasta dæm- ið um áberandi fjölmiðlamann skv. stjörnuspekinni, ásamt vini okkar Baldvin Jónssyni auglýs- ingastjóra Moggans. Ég er líka bú- inn að láta gera kort Styrmis og Matthíasar. Nú ætla ég bara að biðja þig að fara heim með þetta kort þitt og lesa það í ró og næði og hitta svo mig og Gunnlaug Guðmundsson vin minn, sem stjórnar Stjörnuspekimiðstöðinni og fara yfir það, þegar þú ert til- búinn.“ Mér var hætt að standa á sama og hugsaði með mér að nú væri Gulli Bergmann endanlega búinn að spila rassinn úr buxunum. Ég horfði á hann hlýjum augum, klappaði góðlátlega á öxlina á honum og sagði „Gulli minn, mér er sönn ánægja að gera þetta fyrir þig.“ Um leið hugsaði ég með sjálfum mér, að nú þyrfti ég held- ur betur að ná sambandi við ein- hverja sem stæðu Gulla næst til að vita hvort þessi stjörnuspeki- della hans væri komin á hættulegt stig. Plútóinn þinn í Ljóni. Hafiði heyrt’ann betri? Greinarhöfundur Ingvi Hrafn Jóns- Gulli brosti er hann kvaddi mig og sagði: „Áður en þú ferð langar mig að segja þér í örfáum setning- um hvað mér finnst um stjörnu- spekina. Ég tel að hún varpi ljósi á eiginleika okkar, kosti og galla, geri okkur kleift að nýta orku okkar á betri hátt, jafnframt því að auka sjálfsþekkingu og þekk- ingu á öðru fólki. Stjörnuspekin er hluti af þeirri vakningu, sem verið hefur á Vesturlöndum undanfarið, vakningu einstaklingsins til með- vitundar um það, að hann getur unnið með sjálfan þig og þroska sinn, ekki einungis með bættu mataræði, aukinni útiveru og lík- amsrækt, heldur einnig með sjálfskoðun og sálrænni uppbygg- ingu. Ég hef sjálfur með höndum umfangsmikinn atvinnurekstur, innflutning iðnaðarframleiðslu og smásölu og hef fjölda manns í vinnu og þarf að eiga viðskipti við fjölda manns. Ég segi þér hræsn- islaust, að frá því að ég kynnist stjörnuspekinni hef ég lært ótrú- lega mikið að þekkja sjálfan mig og þá sem standa mér næstir í lífi starfi og leik og mér finnst með líða betur en nokkru sinni fyrr. Ég veit líka að þessi þekking hefur komið mér stórlega að gagni við rekstur fyrirtækisins. Og farðu nú heim og haltu áfram að velta því fyrir þér hvort ég sé orðinn spinnegal." Þessi ræða hans gerði það að verkum að ég fór upp á skifstofu til mín, setti fætur upp á borð og opnaði brúna umslagið, sem hann hafði afhent mér. Plútó í Ljóni amma þín hvað? Ingvi Hrafn Jónsson, fæddur 27. júlí 1942, klukkan 08.00 í Reykja- vík, stóð á titilblaðinu, hvernig í ósköpunum gat maðurinn hafa fundið út fæðingartímann? Hann hefur náttúrulega séð það í stjörn- unum ha, ha, ha, ha. En áfram las ég. Pláneturnar eru orkustöðvar og má líkja þeim við líffæri líkam- ans og kalla þær líffæri orkulík- amans (þetta hlýtur þá að falla undir iðnaðarráðuneytið ha, ha). Þær dreifast síðan á stjörnu- merkin tólf og mótast starfsemi þeirra af eðli merkjanna. Stjörnu- merkin eru síðan samsett úr ólík- um þáttum. Við tölum um líforku-, efnisorku-, hugmynda- og félags- orku-, og tilfinningaorkumerki. Um úthverf, innhverf, frumkvæð, stöðug og breytileg stjörnumerki. Allt virtist þetta nú hálfgerð al- gerbra en best að sjá hvað spek- ingurinn hafði um Ljónið í Plútó að segja. „Þú ert með sól, Mars og Plútó í Ljóni.“ Ekki gat Plútó ræfillinn fengið að vera í friði í ljóninu, það þurfti að troða sólinni og Mars með. „Þessi staða táknar að I grundvallaratriðum ert þú skap- andi hugsjónamaður, með út- hverfa og gerandi athafnaorku. Þú ert stoltur og sjálfstæður og vilt ekki láta umhverfið segja þér fyrir verkum ...“ Það sem á eftir fylgdi fannst mér verða ansi persónulegt að ýmsu leyti, og sumt gerði það hreinlega að verkum, að ég varð steinhissa. Þessi hraðlestur sem átti að verða í gegnum einhver fá- nýt plögg, dróst nú æ meira á langinn. Eg hugsaði upphátt, bölv. kjaftæði ég er ekkert svona, eða hvernig gat hann vitað þetta og allt þar í milli. f hvert skipti sem ég ætlaði að ýta þessu frá mér og fara að vinna, varð eitthvað til þess að ég þreif blöðin aftur og hélt áfram að lesa og velta þessu fyrir mér. Það var komið undir kvöldmat áður en ég vissi af, niðursokkin í stjörnuspekilegar athuganir, sem einhvern tíma hefðu þótt fréttir til næstu bæja og þykja sjálfsagt enn. Ljón og Hrútur Ég var hálfviðutan er ég kom heim í matinn, en gat ekki varist því, er synir mínir tveir, eins og fimm ára komu þjótandi í fangið á mér, að velta fyrir mér hvar þeirra staður í stjörnunum væri og hvenrig þeirra kort litu út. Eig- inkona mín, sem er hrútur og því í eldmerki eins og ég, brosti strlðn- islega, er ég sagði henni frá kort- inu og bauð henni skrifin til af- lestrar. Hún sagði að fátt myndi koma sér á óvart um ljónið eftir að hafa umborið það í 10 ára sam- búð. Ég svaraði um hæl, að ég hefði örugglega aldrei gifst henni ef mér hefði verið sagt frá því að hún væri hrútur og þarna hefði ég skýringu á hversvegna mér hefði stundum fundist hún hrútleiðin- leg, sérstaklega að morgni dags. Hún svaraði því til að ljón ættu ekki að kasta seinum úr glerhúsi, er fjallað væri um skaplyndi að morgni dags. Og sjá! Þarna vorum við allt í einu komin í hár saman út af einhverri stjörnusjjeki, sem hvorugt þekkti höfuð né sporð á. Fundurinn með þeim Gunnlaugi stjörnuspekingi og Guðlaugi Bergmann endaði með því að þeir gjörsigruðu mig. Það var sama hvað ég maldaði í móinn eða kall- aði kjaftæði, þeir höfðu einhver rök á móti og allt í einu sagt ég frammi fyrir tveimur mönnum, sem þóttust og jafnvel virtust þekkja mig í botn. Ég játa hins vegar að mér var alls ekkert óljúft að fallast á að sækja námskeiðið hjá Gunnlaugi því sannast sagna hafði ég rekið mig á ansi margt sem gat eða gat ekki flokkast und- ir furðulegar tilviljanir. Þriðjudagurinn 9. október rann upp fyrr en varði og það eina sem ég sagði við konuna er ég laumað- ist út rétt fyrir sjónvarpsfréttir, sem ekki urðu vegna verkfalls, að ég þyrfti á fund. Hún er orðin svo vön þessu fundastússi mínu, að hún er löngu hætt að spyrja sé henni ekki sagt. Gunnlaugur tók brosmildur á móti okkur í stjórnarherbergi Flugleiða á Hótel Loftleiðum og sagði okkur að hann hefði verið búinn að búa þannig um hnútana, að við yrðum 12 á námskeiðinu, eða tólf lærisveinar, eins og segir frá í annarri sögu, en þá hefði eitt Ljón ruðst inn í hópinn og því væru lærisveinarnir þrettán og hann sá fjórtándi. Það yrði síðan að koma í ljós hvort þetta hefði einhverjar afdrifaríkar afleið- ingar fyrir mannkynssöguna. Þrettándi lærisveinninn reyndist vera Eggert Kristinsson, fram- kvæmdastjóri, sem kannski er frægastur fyrir að hafa verið einn af fjórmenningunum, sem upp- haflega stofnuðu Hljóma. Hann yfirgaf hins vegar bandið áður en það varð verulega heimsfrægt. Það átti síðar eftir að koma í ljós, að hann hafði verð f Hljómum, er þeir léku á balli i Iþöku, haustið 1964, sem undirritaður stóð fyrir, sem formaður sjöttabekkjarráðs Menntaskólans í Reykjavík. Sann- aðist þá enn einu sinni hið forn- kveðna. „Er ekki heimurinn lítill, eða þannig sko?“ Við fengum það aldrei upplýst hjá Gunnlaugi, hvort hann hefði reynt að velja okkur þannig að við værum úr öllum merkjum. Alla vega kom í ljos, að aðeins sporð- drekann vantaði, en auðvitað voru Ljónin þrjú. Auk okkar Eggerts, Jóhanna Eyþórsdóttir, húsmóiðir og fóstrunemi, Fríða Björnsdóttir, Svanur Sigurgíslason og Jóhanna Eyþórsdóttir. kennaraháskólanemi var fulltrúi Hrútsins, Gulli stjörnuspekingur sjálfur fulltrúi Nautsins, Gústaf Agnarsson, fyrrum lyftingameist- ari og nú vaxtaræktarfrömuður var Tvíburinn, Guðmundur Jó- hannsson, vélstjóri í Sanitas var Krabbinn og Edda B. Jónsdóttir, eiginkona hans, læknaritari á Landspítalanum, var Steingeitin, Sigfús Arnþórsson, píanóleikari á pöbbum var Meyjan, Svanur Sig- urgíslason, verkamaður hjá Reykjavíkurborg var Vog, Anna Haraldsdóttir var Bogmaður, Ei- ríkur Einarsson líka, en Vatnsber- inn hét Kolbrún Hilmarsdóttir og Fiskurinn kom syndandi síðastur sem Gunnar I. Pálsson, fæddur Gaflari, allra manna ljúfastur með bros á vör. Kitlandi hlátur Það var ferlega gaman að virða fyrir sér liðið og velta fyrir sér, hvað þessi og hinn væri að gera þarna. Sérstaka athygli vöktu sómahjónin, Guðmundur og Edda, sem áttu eftir að vekja oft með okkur hinum kitlandi hlátur. Það skipti örugglega mjög miklu máli að öll þessi merki hristust ótrú- lega fljótt saman og þessi fimm kvöld, sem við áttum saman liðu svo fljótt, að þegar upp var staðið pantaði hópurinn sem einn maður framhaldsnámskeið eftir áramót. Fyrstu tveir tímarnir fóru í undirstöðuatriði stjörnuspekinnar og tókst Gulla sérlega vel upp að gera öll þessi framandi merki, plánetur, hús og afstöður, að lif- andi dæmum, þannig að fyrr en varði, virtist lausnin á algebrunni blasa við. Andinn sem sveif yfir vötnum var léttur og mönnum var óspart velt upp úr meintum kost- um og göllum. Það kom fljótt í ljós að sumir höfðu grúskað í þessum fræðum áður, en flest okkar voru þó algerir byrjendur. Gulli brýndi fyrir okkur í upphafi, að hafa ætíð hugfast að stjörnuspeki reyndi ekki að gefa okkur endanleg svör við spurningum, heldur viðmiðan- ir, sem við gætum sjálf unnið út frá. Við værum að fjalla um per- sónuleikastjömuspeki, en sú teg- und stjörnuspekinnar fengist við að útskýra og hugleiða helstu þætti persónuleika manna. Síðar færum við út í túlkunarfræðina og hvernig við notuðum stjörnuspeki í daglegu lífi. Sjálfsþekking Ég spurði í fyrsta tíma hver til- gangurinn væri með því að leggja stund á stjörnuspeki. Gulli svar- aði: „Það fyrsta sem kemur upp í hugann er sú ástæða að við viljum kynnast sjálfum okkar betur. Að við teljum að stjörnuspeki geti veitt sjálfsþekkingu. Við teljum yfirleitt að sjálfsþekking geti leitt til betra lífs. Ef við þekkjum veik- leika okkar öðlumst við fljótlega vitneskju um það hvernig við eig- um að yfirvinna þá. Ef við þekkj- um hæfileika okkar og möguleika eru einnig meiri líkur á að við finnum þeim viðunandi farveg. En stjörnuspeki eykur einnig skilning okkar á öðrum. Einn tilgangur stjörnuspekinnar er því sá að nota stjömuspeki til að sjá fólk í nýju ljósi og skilja það betur. Þessi aukni skilningur eykur umburð- arlyndi okkar til mikils muna og bætir samskipti við aðra. Mér finnst sjálfum, að stjörnuspeki hvetji einstaklinginn til að byggja heilsteyptan persónuleika með því að opna með honum umræðuna um hvernig við beitum lifsorku okkar tilfinningum og starfsorku." Sólin og hin hugtökin En hvað eru þá þessi grunn- hugtök, pláneturnar og merkin? Margir sem ekki eru vel kunnir stjörnuspeki halda að maðurinn eigi sér einungis eitt stjörnu- merki, en þegar talað er um að einhver sé Hrútur eða Ljón, er í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.