Morgunblaðið - 25.11.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.11.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984 93 a» Þórbergur lést, og þar gerðist undarlegt atvik. Allt í einu heyrði ég kunnuglega rödd segja: „Nei, er ekki kona mín blessuð hérna." Þetta var rödd Þórbergs. Það var ekki um að villast. Hún var nú svo auðþekkt. Síðan heilsar hann mér og fer að tala við mig. „Hvað er í töskunni þinni, Margrét?" „í töskunni minni,“ hvái ég. „Nú það er bara þetta venjulega: vesk- ið mitt, lyklarnir minir, púðurdós, vasaklútur og eitthvað fleira." Hann segir ekki fleira í þetta sinn. En síðar á fundinum kemur hann aftur fram og spyr mig sömu spurningar: „Hvað er í töskunni þinni, Margrét?" Mér þótti þetta afar einkenni- legt og gat ekki hætt að hugsa um það. Hvers vegna spurði hann mig tvívegis um hið sama? Málfríður Einarsdóttir var líka á miðilsfundinum og fór með mér heim, þegar honum lauk. Um leið og við erum komnar inn í íbúðina rýk ég fram í eldhús, án þess að fara úr kápunni og taka af mér hattinn, og hvolfi úr töskunni til að sjá hvað þar sé að finna. Jú, þar var allt sem ég hafði sagt honum: veskið, lyklarnir, púðurdós, vasaklútur, og sitthvað fleira. En einu hafði ég steingleymt. Sjálfblekungur Þórbergs, for- láta lindarpenni, sem hann skrif- aði með síðustu árin og hafði mik- ið dálæti á, var einnig í töskunni minni. Ég hafði sett hann þar um morguninn. Málfríður varð vitni að þessu atviki, og ég get ekki lýst undrun okkar beggja. Síðar sagði ég Steinþóri á Hala, bróður Þórbergs, frá þessu, og honum þótti það mjög merkilegt. Hann taldi engan vafa leika á því, að þarna hefði Þórbergur ver- ið að sýna mér og sanna, að hann lifði þrátt fyrir líkamsdauðann. Já, það hefur margt einkenni- legt borið við í lífi mínu. Ef til vill væri hægt að segja frá því í lítilli bók. En hér verður engin ævisaga sögð, hvorki mín né Þórbergs. Drottinn minn dýri, nei! En ég vona, að þú komir hingað sem oftast. Ég hef ekki nema ánægju af þvi. Og það er aldrei að vita nema ég geti logið einhverju í þig. Ævintýrið um Skottu Happatalan mín er 9. Ég er fædd árið 1899, ég kynnt- ist Þórbergi á Stýrimannastíg 9, við hófum búskap okkar á Hall- veigarstíg 9, og þaðan fluttum við síðan á Freyjugötu 39. Þar gerðist Skottu-ævintýrið. Það var sumarið 1939, eitt blíð- asta og fegursta sumar, sem ég hef lifab. Þá var sólskin og heið- ríkja upp á hvern einasta dag, hvort sem menn trúa því eða ekki. Ég var orðin svo brún, að það vakti athygli. Við Þórbergur skruppum vestur í Stykkishólm og vorum þá boðin heim til prestsins þar, en hjá hon- um voru staddir tignir gestir. Og allir sem einn höfðu þeir orð á hinu sama við mig „En hvað þér eruð fallega brún- ar, frú Margrét!" Já, það var einhver munur eða bölvuð rigningin núna; þessi niðurdrepandi vætutíð og dimm- viðri viku eftir viku. Það er ekki að undra þótt maður fái leiðindaköst. En árla morguns seint í ágúst- mánuði sólskinssumarið mikla ár- ið 1939 er dyrabjöllunni hringt á Freyjugötu 39. Ég fer fram, opna hurðina og úti stendur telpukorn, sem ég hafði aldrei séð áður. Hún horfir á mig og spyr: SJÁ NÆSTU SÍÐU 27.980,- stgr. Útborgun kr. 6.500,- Eftirstöðvar á 6 mán. Gullna línan 1985 SKIPHOLT119, SÍMI 29800 MERKI UNGA FÓLKSINS Ennþá fallegri, ennþá betri Nú er gullna línan árgerö 1985 komin, hlaöin gæöum og ennþá fallegri. GULL-SYSTEM-1 2X40 WÖTT Þetta er samstæöa meö öllu: útvarpi, magnara, segul- bandstæki, plötuspilara, tveimur hátölurum og skáp. Um gæöin þarf ekki aö fjölyrða, Marantz-gæðin eru löngu landsþekkt. Ekki spillir veröiö eöa kjörin því viö bjóöum þessa frábæru Marantz-samstæöu á ómótstæöilegu tilboöi:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.