Morgunblaðið - 01.02.1985, Qupperneq 2
!v.)0e»SSl
Vótdfe
,.v.)
r\Ö-
• ogvmdum
nú bara
SiíSSCr^—1
eiiva
S1
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
GULL-
grafararnir
— kvikmynd eftir konur
Aðalhlutverk í myndinni leika Julie Christie og Colette Laf-
font, sem eru hér í hlutverkum sínum.
„Ég sé þessa mynd sem
nokkurs konar tónlistar-
mynd sem lýsir leit konunn-
ar. Viö gerð myndarinnar
hefur þurft að sþyrja sömu
spurninga og myndin sjálf
leitast viö aö spyrja: um
sambandiö milli gulls, pen-
inga og kvenna, um þá tál-
sýn aö konan sé þróttlaus,
um hina raunverulegu leit
að guili og hinni innri leitað
gulli, um myndræna þætti
undirmeövitundarinnar og
samband hennar vö áhrif
kvikmyndarinnar; þ.e. aö
líta á bernsku og endur-
minningar, reyna aö sjá
sögu kvikmyndarinnar
sjálfrar sem samansafn
minninga á því hvernig viö
sjáum okkur sjálf og hvernig
viö konur erum séöar.“
Eitthvaö á þessa leiö
kemst leikstjórinn Sally
Potter aö oröi um kvikmynd
sína Gullgrafararnir, en sú
mynd verður sýnd á kvik-
myndahátíð í vor dagana
18.—26. maí. Eins og marg-
ir muna sjálfsagt eftir fóru
kvikmyndatökur á myndinni
m.a. fram hérlendis á árinu
1982. Aö kvikmyndinni
standa eingöngu konur og
tónlistina geröi Lindsay
Cooper. Ástæöan fyrir því
aö eingöngu konur unnu aö
gerö myndarinnar var bæöi
til aö endurspegla hlut kon-
unnar í myndinni og einnig
til aö undirstrika aö konur
hafa veriö í miklum minni-
hluta viö gerö kvikmynda í
tímans rás, sem orsakast
ekki af því aö þær séu ófær-
ari til þessara starfa heldur
því aö þær hafa fengiö mun
minni tækifæri til aö vinna
aö gerð kvikmynda.
Kvikmyndin Gullgrafar-
arnir fjallar um tvær konur;
Celeste, dökka franska
konu, sem vinnur viö banka
viö þaö aö mata tölvur. Hún
byrjar aö velta fyrir sér hvaö
liggi aö baki þess sem hún
slær inn á tölvuna og kemst
Sally Potter, leikatjóri mynd-
arinnar Gullgrafararnir, sem
sýnd verður á kvikmyndahá-
tíð í vor.
aö raun um aö gull er lykill-
inn, lykillinn aö þeim lög-
málum sem stjórna hringrás
peninganna. Hin konan er
Ruby, sem Julie Christie
leikur. Hún sést fyrst á tjald-
inu á dansgóifinu þar sem
hún er miðpunktur allrar at-
hygli, þar líöur hún frá ein-
um manni til annars í löng-
um valsi. Skyndilega birtist
Celeste á hestbaki og svipt-
ir Ruby burt meö sér. Cel-
este byrjar á því aö spyrja
Ruby um fortíö hennar, og
þá byrjar Ruby aö skilja
sögu sina sem konu og
hvernig konan hefur birst á
hvíta tjaldinu.
Þessar tvær konur eru
eiginlega tvær hliðar á einni
konu. Celeste leitar út á viö,
hún reynir að skilja hvernig
kerfiö og þjóöfélagiö er upp