Morgunblaðið - 01.02.1985, Page 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið:
Fjögur verk
um helgina
Skugga-Sveinn, leikrit Matthi-
asar Jochumssonar veröur sýnt á
sunnudagskvöld og er það jafn-
framt síöasta sýningin á þessu
verki. Leikstjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir, en Jón Ásgeirsson
samdi tónlistina.
Kardimommubær Thorbjörns
Egner veröur sýnt tvisvar sinnum
um helgina, á laugardag og sunnu-
dag og hefjast sýningar kl. 14
báöa dagana. Sýningin á sunnu-
dag er 20. sýningin á leiknum.
Söngleikurinn Gæjar og píur
veröur sýndur í kvöld og annaö
kvöld, en uppselt er á báöar sýn-
ingarnar. Nýr hljómsveitarstjóri
hefur nú tekiö viö hljómsveitinni
og er þaö Sæbjörn Jónsson.
Nýjasta sýning Þjóöleikhússins
er leikrit Marty Martins, Gertrude
Stein, Gertrude Stein, Gertrude
Stein. Helga Bachman leikur titil-
hlutverkiö og er það jafnframt
eina hlutverk leiksins. Andrés Sig-
urvinsson er leikstjóri, Guörún Erla
Geirsdóttir geröi leikmynd og
Guöni Franzson samdi tónlistina,
en þetta er fyrsta verkefni þre-
menninganna fyrir Þjóöleikhúsið.
Leikfélag Reykjavíkur:
Aukasýning á
Félegu fési
Aukasýning veröur á leikriti
Dario Fo, Félegu fési, í Austurbæj-
arbíói annaö kvöld, en verkiö hefur
veriö sýnt þar síöan í haust. Ellefu
leikarar koma fram í sýningunni,
leikstjóri er Gísli Rúnar Jónsson
og þýöandi er Þórarinn Eldjárn.
Nýjasta viöfangsefni Leikfélags-
ins, Agnes, barn Guös, veröur sýnt
í lönó í kvöld. Leikstjóri verksins er
Þórhildur Þorleifsdóttir, en hlut-
verk eru í höndum Guðrúnar S.
Gisladóttur, Guörúnar Ásmunds-
dóttur og Sigríðar Hagalín.
Leikritið Dagbók Önnu Frank
veröur sýnt annaö kvöld. Meö að-
alhlutverkiö fer Guörún Krist-
mannsdóttir, en leikstjóri er Hall-
mar Sigurösson.
Á sunnudagskvöldiö er svo sýn-
ing á Gísl. í aöalhlutverkum eru
Gísli Halldórsson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Jóhann Siguröar-
son, Guöbjörg Thoroddsen,
Hanna María Karlsdóttir o.fl. Leik-
stjóri er Stefán Baldursson.
Leikfélag Akureyrar:
„Ég er gull
og gersemi“
Leikfélag Akureyrar sýnir teikrit
Sveins Einarssonar, „Ég er gull og
gersemi", sem byggir á sögunni
Sólon Islandus eftir Davíö Stef-
ánsson, kvæöum skáldsins og
annarra. Lykilpersónuna, lista-
manninn og flakkarann Sölva
Helgason, leikur Theodór Júlíus-
son. Tónlistin er eftir Atla Heimi
Sveinsson, leikmynd hannaöi Örn
Ingi, búninga Freygeröur Magn-
úsdóttir og lýsingu og myndvörp-
un annast David Walter. Leikstjóri
er Sveinn Einarsson, en meö hlut-
verk Júlíönu fer Guölaug María
Bjarnadóttir. Ein sýning er um
helgina, annaö kvöld, laugar-
dagskvöld kl. 20.30.
TÓNLIST
Myrkir músikdagar:
Tvennir tónleikar
Tvennir tónleikar veröa um
HVAD
ERAD
GERAST
UM
helgina í tilefni Myrkra músikdaga,
sem nú standa yfir. Fyrri tónleik-
arnir veröa í Bústaöakirkju á
morgun kl. 17 og veröa þá fluttir
strengjakvartettar eftir Gunnar
Reyni Sveinsson, Þorkel Sigur-
björnsson, Karólínu Eiríksdóttur
og Dimitri Sjostakóvitsj. Flytjend-
ur eru Guöný Guömundóttir, fiöla,
Szymon Kuran, fiðla, Robert Gibb-
ons, víóla, og Cazmel Russill,
selló.
Síöari tónleikarnir eru í
Bústaöakirkju á sunnudag kl. 17
og eru þaö kammertónleikar. Flutt
veröa verk eftir Skúla Halldórsson,
Atla Ingólfsson, Áskel Másson,
Fjölni Stefánsson, Pál P. Pálsson,
Werner Schulze og Herbert H.
Ágústsson. Flytjendur eru alls 17
talsins.
Harmonikkuunnendur.
Skemmtifundur
Félag harmonikkuunnenda
heldur skemmtifund í Templara-
höllinni viö Skólavöröuholt á
sunnudag. Skemmtifundurinn
hefst kl. 15 og munu tvær stórar
harmonikkuhljómsveitir koma
fram auk nokkurra einleikara og
kvennatríós. Dansað veröur milli
17 og 18 og veitingar veröa á
boðstólum.
Gerðuberg:
Gítarleikur
Tónskóli Sigursveins D. Krist-
inssonar heldur tónleika í Menn-
ingarmiðstöðinni viö Geröuberg á
morgun kl. 17. Þar koma fram gít-
arnemendur á framhaldsstigum
og flytja m.a. verk eftir Bach,
Schubert, Sanz, Lobos, Barrios og
Leo Brower.
MYNDLIST
Árleg skólasýning Ásgríms-
safns veröur opnuö á sunnudag
og veröur þetta í 21. sinn sem Ás-
grímssafn stendur fyrir slíkri sýn-
ingu. Aö þessu sinni hafa veriö
valdar myndir úr eigu safnsins
sem lýsa lífi og starfi til svelta.
Safnkennararnir Sólveig Georgs-
dóttir og Bryndís Sverrisdóttir sjá
um kennslu í safninu í vetur og
munu þær taka á móti 3ju bekkj-
um grunnskólans. Tímapantanir
og nánari upplýsingar eru veittar
hjá þeim Sólveigu og Bryndísi á
Fræösluskrifstofu Reykjavíkur-
umdæmis frá kl. 13.30—16 á
mánudögum og frá kl. 9—12 á
fimmtudögum. Sýningin stendur til
aprílloka, en Ásgrímssafn er opiö á
þriöjudögum, fimmtudögum og
sunnudögum frá kl. 13.30—16.
Gamla Bíó:
Chet Baker
CHET Baker, trompetleikari og söngvari leikur og syngur
svalan jazz í Gamla Bíói á morgun. Tónleikana heldur
hann í boói Jazzvakningar og hefjast þeir kl. 15- Undir-
leíkarar verða Kristján Magnússon, píanó, Tómas R. Ein-
arsson, bassa, og Sveinn Óli Jónsson, trommur. Chet
Baker kom til íslands fyrir 30 árum , þá 25 ára gamall.
Hann öölaöist heimsfrægö sem trompetleikari í kvartett
Gerry Mulligans áriö 1952, en haföi áöur leíkiö meö ýms-
um, m.a. Charlie Parker. Hann var kosinn trompetleikari
ársins í Metronome og Down Beat árið 1955. Hann hefur
m.a. hljóöritaö hljómplötur ásamt Niels-Henning örsted
Pedersen og Doug Raney. Chet Baker kemur aöeins fram
í þetta eina skipti aö þessu sinni.
Listmunahúsið:
Eggert
Magnússon
kl. 14—19 alla daga en henni lýkur
á sunnudag.
Listasafn
Einars Jónssonar:
Stykkishólmur:
Páll Eyjólfsson
PÁLL EYJÓLFSSON, gítarleikari, heldur tónleika í kap-
ellu St. Fransiskusystra í Stykkishólmi á morgun, laug-
ardag, kl. 16. Á efnisskrá veröa verk eftir Luis de Narvaez,
D. Scarlatti, J.S. Bach, M.C. Tedesco, I. Albeniz og F.M.
Torroba. Páll hóf nám í Barnamúsíkskóla Reykjavíkur en
síöar í Gítarskólanum, þar sem kennari hans var Eyþór
Þorláksson. Hann lauk einleikaraprófi þaöan árið 1981 og
stundaði síðan framhaldsnám á Spáni undir handleiöslu
spánska gítarleikarans Jose Luis Gonzalez. Hann starfar
nú sem gítarkennari í Reykjavík.
Eggert Magnússon heldur nú
sýningu á 40 nýjum og nýlegum
olíumálverkum í Llstmunahúsinu
viö Lækjargötu. Eggert er sjálf-
menntaöur í list sinni og er þetta
fjóröa einkasýning hans, auk þess
sem hann hefur tekiö þátt t nokkr-
um samsýningum. Sýningin er
opin frá kl. 10—18 virka daga og
frá kl. 14—18 um helgar, en henni
lýkur á sunnudag.
Ásmundarsafn:
„Vinnan“
i Ásmundarsafni viö Sigtún
stendur nú yfir sýning sem nefnist
„Vinnan í list Ásmundar Sveins-
sonar". Er sýningunni skipt í tvo
hluta. Annars vegar er sýnd hin
tæknilega hliö höggmyndalistar-
innar, tæki, efni og aðferöir. Hins
vegar eru sýndar höggmyndir, þar
sem myndefnið er Vinnan. Sýning-
in er opin þriöjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga frá kl.
14—17.
Hafnarborg:
Gestur
Guðmundsson
Gestur Guömundsson heldur
nú sína 3. einkasýningu í Hafnar-
borg viö Strandgötu 34. Á sýning-
unni eru 25 verk, bæöi teikningar
og myndir unnar með olíulitum.
Gestur hélt sína fyrstu einkasýn-
ingu í Kaupmannahöfn og aöra í
Stokkhólmi, en hann hefur einnig
tekiö þátt í 8 samsýningum. Sýn-
ing hans í Hafnarborg er opin frá
Safnahús og
höggmynda-
garður
Safnahús Listasafns Einars
Jónssonar er opiö daglega, nema
á mánudögum, frá kl. 13.30—16
og höggmyndagaröurinn, sem í
eru 24 eirafsteypur af verkum
listamannsins, er opinn frá kl.
10—18.
FERÐIR
Útivist:
Tindfjöll
Feröafélagiö Útivist fer í kvöld
kl. 20 í helgarferö í Tindfjöll. Gist
er i skála og farið í skíöa- og
gönguferöir inn á Tindfjallajökul. Á
sunnudag kl. 10.30 veröur ferö aö
Gullfossi í klakaböndum og veröur
m.a. komið viö hjá Geysi. Á sama
degi og tíma veröur skíöaganga
um Hengladali. Þá verður mögu-
legt að fara í baö í heita læknum.
Á sunnudag kl. 13 veröur ganga
frá Krókatjörn aö Elliðakoti og á
þriöjudagskvöld kl. 20 veröur
tunglskinsganga.
Ferðaféiag íslands:
Lækjarbotnar
Feröafélag íslands fer á sunnu-
dag kl. 13 í gönguferö og verður
gengiö frá Lækjarbotnum, hjá
Selvatni, Krókatjörn um Miödal aö
Hafravatni. Skíöagönguferö er