Morgunblaðið - 13.04.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
Drög að stjórnmálaályktun landsfundar:
Höfuðáhersla lögð á að koma í
veg fyrir átök á vinnumarkaði
LANDSFUNDI Sjálfstieðisnokks-
ins var fram haldið í Laugardals-
höll í gær, og hófst hann með
skýrslu framkvæmdastjóra flokks-
ins, Kjartans Gunnarssonar, um
starfsemi flokksins, og í kjölfar
hennar voru skipulagsmál flokks-
ins rædd og um þau almennar um-
ræóur.
Erindi undir yfirskriftinni
„Allir sem einn“ voru svo flutt
að loknu hádegisverðarhléi og að
þeim loknum fylgdi Geir H.
Haarde drögum að stjórnmála-
ályktun landsfundarins úr
hlaði. Meðal þess sem lögð er
höfuðáhersla á í drögunum er að
á næstunni verði reynt til þraut-
ar í samstarfi við samtök launa-
fólks og vinnuveitenda að koma í
veg fyrir átök á vinnumarkaði
næsta haust og tryggja þann
stöðugleika í efnahagslífi, sem
segir í drögunum að sé nauðsyn-
leg forsenda heilbrigðrar at-
vinnustarfsemi og bættra lífs-
kjara.
Friðrik Sóphusson, varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, tók
fyrstur til máls, þegar umræður
um stjórnmálaályktun lands-
Friðrik Sophusson, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins: „Brýnasta
verkefni flokksins að vinna að
málum unga fólksins.
fundar hófust. Friðrik lagði í
máli sínu höfuðáherslu á að
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Helena Albertsdóttir: „Hef ákveð-
ið að gefa ekki kost á mér.
brýnustu verkefni sem biðu
flokksins nú á ári æskunnar
væru þau að tryggja framgang
þeirra mála sem unga fólkið hef-
ur sérstakan áhuga á. Nefndi
Friðrik í því sambandi húsnæð-
ismál og útvarpslagafrumvarpið
sérstaklega.
Margir tóku til máls um drög-
in að stjórnmálaályktun. Meðal
þeirra var Helena Albertsdóttir.
Gagnrýndi hún nokkra þætti
sem henni þykir miður fara í
starfi Sjálfstæðisflokksins, en
sagði að flokkurinn væri engu að
síður brjóstvörn lýðræðisins á
íslandi. Lýsti Helena því síðan
yfir, að hún gæfi ekki kost á sér
við varaformannskjör, þó að hún
hefði fengið áskoranir í þá veru.
Mælendaskrá var tæmd um kl.
17.30 og hófu starfshópar þá
störf. Landsfundurinn heldur
áfram I dag með starfi starfs-
hópa árdegis, en síðdegis verða
ályktanir afgreiddar. A morgun
verður svo umræðu um ályktanir
og afgreiðslu þeirra haldið
áfram frá kl. 10. Stjórnmála-
ályktun flokksins verður af-
greidd eftir hádegi á morgun og
kosningar fara fram frá kl. 15 til
18.
Bervíkurslysið:
Útför eins í
dag og tveggja
á sunnudag
LEITIN að skipverjunum tveimur af
Bervík SH, sem enn hafa ekki fund-
izt, hafði engan árangur borið í
gærkvöldi.
Útför Sveins Hlyns Þórssonar
verður í dag gerð frá Sauðárkróki,
en minningarathöfn um hann var
í Ólafsvík fyrr í vikunni. Útför
feðganna Úlfars Kristjánssonar
og Jóhanns Óttars Úlfarssonar
verður í ólafsvík á sunnudag.
Hvöss norðanátt er nú við
Breiðafjörð og þungur sjór í fjör-
unni þar sem Bervíkin liggur.
Flakið er því að liðast sundur i
hafrótinu og var fjaran vöktuð í
allan gærdag.
Morgunbladið/Júlíus
Hjálpartækjasýningin opnuð
JNNLENT
Sýning hjálpartækja fyrir fatlaða var opnuð á Hótel Loftleiðum síðastliðinn föstudag. Þar eru sýnd tæki fyrir
hreyfihamlaða, en einnig olinda, heyrnarskerta og þroskahefta. Sýningin stendur til þriðjudagsins 16. aprfl. Verndari
sýningarinnar er forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og hér skoðar hún sérstakan akstursbúnað fyrir fatlaða.
140 ungir sjálfstæðismenn leggja fram verkefnaskrá á landsfundi:
„Sumir ráðherrar flokksins hafa
reynt að veikja stöðu formanns“
— sagði Vilhjálmur Egilsson sem hafði fram-
sögu um verkefnaskrána á landsfundi í gær
„STARF í samstarfsnefnd, um
skattalækkanir fór út um þúfur
vegna áhugaleysis ráðherra Sjálf-
stæðLsflokksins. Svo virtist sem
stór hluti þingflokksins væri í raun
á móti skattalækkunarleiðinni.
Hvorki þingmenn né ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins komu með
eigin tillögur um leiðir, heldur
voru ýmsir þingmenn með sífelldar
bábiljur og mótbárur.
Þessi vinnubrögð hjálpuðu
ekki til við að ná samstöðu um
skattalækkunarleiðina og eru
kannski eitt besta dæmi um það
hvernig sumir ráðherrar flokks-
ins og þingmenn hafa reynt að
veikja formann Sjálfstæðis-
flokksins, með því að þvælast
fyrir og spilla fyrir mörgu af því
sem hann hefur viljað ná fram.“
Þetta voru m.a. orð Vilhjálms
Egilssonar, er hann mælti fyrir
tillögum 140 ungra sjálfstæð-
ismanna á landsfundi í gær, í þá
veru að þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins vinni eftir verkefna-
skrá í 10 liðum, sem Vilhjálmur
kynnti sérstaklega í framsögu
sinni.
Vilhjálmur sagði að markmið-
ið með þessari verkefnaskrá
væri að setja nokkur helstu
stefnumál fram með skýrum og
einföldum hætti. Þannig sagði
hann að gæti orðið auðveldara
fyrir þingflokkinn að starfa að
framgangi sjálfstæðisstefnunn-
ar á Alþingi.
Helstu áhersluatriði i þessari
verkefnaskrá eru: Lækkun verð-
bólgu, jafnvægi á vinnumarkaði
og stöðvun skuldasöfnunar er-
lendis. Þá er lögð áhersla á frjáls
utanríkisviðskipti, að dregið
verði úr umsvifum hins opin-
bera, ríkisbönkum breytt í
hlutafélög, húsnæðislánum beint
til þeirra sem eru að koma sér
þaki yfir höfuðið í fyrsta sinn, að
afnema útflutningsbætur og
styrki til sauðfjár- og naut-
griparæktar, auka svigrúm fyrir
einkarekstur í heilbrigðiskerf-
inu, frelsi í útvarpsrekstri o.fl.
Tillögu þessara 140 ungu
sjálfstæðismanna var vísað til
stjórnmálanefndar.
Karl Þorsteins
Skákþing íslands:
Karl Þorsteins
Islandsmeistari
KARL Þorsteins hefur þegar tryggt
sér íslandsmeistaratitilinn í skák á
þessu ári, en ein umferð er eftir á
Skákþingi íslands. Karl hefur 9
vinninga en næsti maður 7,5.
Staða efstu manna fyrir síðustu
umferðina, sem verður tefld í dag,
er þessi: Karl Þorsteins 9 v.,
Þröstur Þórhallsson 7,5 v., Davíð
Ólafsson 7 v. og Lárus Jóhannes-
son 6,5 vinninga og biðskák. í 12.
umferð gerði Karl jafntefli við
Dan Hansson og Þröstur Þórhalls-
son gerði jafntefli við Hauk Ang-
antýsson eftir að skákin hafði far-
ið í bið. Þröstur varð að vinna
þessa skák til að eiga möguleika á
að ná Karli.
Landsbankinn:
4,5 milljarða
króna láns-
samningur
undirritaður
ÞANN 9. aprfl sl. var undirritaður í
London lánssamningur milli Lands-
banka íslands og 18 erlendra banka
undir forystu Manufacturers Hanov-
er Limited.
Samkvæmt þessum samningi
gefur Landsbankinn út innláns-
skírteini, víxla og aðrar skuldavið-
urkenningar til skamms tíma og
mega allt að 110 millj. Banda-
ríkjadollara vera í umferð á hverj-
um tíma, eða 4,5 milljarðar króna.
Erlendu bankarnir munu hver
fyrir sig gera tilboð í þessi skulda-
skjöl og Landsbankinn mun taka
tilboðum að því marki, sem hann
telur hagkvæmt. Náist ekki með
þessum hætti sú upphæð sem
Landsbankinn hefur þörf fyrir
hverju sinni, eru erlendu bankarn-
ir skuldbundnir til að lána Lands-
bankanum það sem á vantar, allt
að 77,5 millj. Bandaríkjadollara á
umsömdum hagstæðum kjörum.
Lán þessi verða tekin i ýmsum
tegundum gjaldeyris, Bandaríkja-
dollurum, sterlingspundum og
þýskum mörkum. Samningurinn
er til fimm ára.
Andvirði þessara lána mun að
hluta til verða ráðstafað til að
endurgreiða önnur erlend lán, sem
tekin hafa verið vegna viðbótar-
lána, og einnig til að greiða Seðla-
bankanum endurseld, gengisbund-
in afurðalán. Þessar lántökur
munu ekki auka skuldir þjóðar-
innar.
Uppgreiðsla endurseldra, geng-
isbundinna lána í Seðlabankanum
er liður í framkvæmd þeirrar
ákvörðunar stjórnvalda, að af-
urðalánin flytjist til viðskipta-
bankanna. Samningur sá, sem
Landsbankinn hefur nú gert,
tryggir áframhaldandi fjármögn-
un þeirra.
(FrétUtilkynning.)