Morgunblaðið - 13.04.1985, Page 6
6
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
Frumraunin
Það hlýtur að sumu leyti að
vera meira spennandi að búa
úti á landsbyggðinni en hér í
Reykjavík, því í dreifbýlinu er svo
mikið land ónumið í menningar-
legu tilliti. Eða getiði hugsað ykk-
ur hvílík eftirvænting lá í loftinu
á Akureyri er RÚVAKIÐ flutti nú
á fimmtudagskveldið i fyrsta sinn
útvarpsleikrit. Fyrsta ástin gleym-
ist seint og það er ég viss um að
þessi uppfærsla þeirra RÚVAKS-
manna líður þeim seint úr minni.
Vil ég nota hér tækifærið og óska
þeim Jónasi og félögum innilega
til hamingju með þessa frumraun.
Því miður er ekki mögulegt að
senda ilm með lesmáli og því verð
ég að færa rósavöndinn í skraut-
legan búning orða. Hvað um það,
þá er útvarpið kjörinn vettvangur
fyrir hverskyns leiklistarflutning,
hvort sem upptakan á sér stað við
Skúlagötuna eða í einhverju fé-
lagsheimilinu, vil ég hér með
koma þeirri hugmynd á framfæri
við leiklistarstjóra útvarpsins, að
þeir beiti sér fyrir því að hinir
ýmsu áhugaleikhópar er vinna
hetjulegt starf, oft við hin erfið-
ustu skilyrði, fái greiðan aðgang að
þessu leikhúsi þjóðarinnar. Við
skulum gera okkur grein fyrir því
að stór hluti Reykvíkinga er að-
fluttur, og hví skyldi mönnum hér
meinað að hlýða i landsútvarpinu
á leiklistarflutning sveitunganna?
Og hvers á blessað fólkið úti á
landi að gjalda? Hefur ekki einu
sinni efni á að koma með leiksýn-
ingar hingað suður þótt það fegið
vildi. Er ekki upplagt að nýta hið
dýra og mikla dreifikerfi útvarps-
ins til þess að rjúfa hina menning-
arlegu einangrun landsbyggðar-
innar með fyrrgreindum hætti og í
leiðinni að lífga svolítið uppá út-
varpsdagsskrána ?
Frumraunin
En víkjum nú nánar að frum-
raun þeirra RÚVAKS-manna á
leiksviði Ijósvakans, leikritinu
John hatar Mary. Hér er á ferðinni
létt og leikandi verk úr penna
breska leikritahöfundarins Owen
Holder. Má með réttu segja að
verkið sé fagmannlega unnið og að
þar sé fléttað á áreynslulausan
hátt saman glæpasögu og gaman-
málum. Söguþráðurinn er raunar
of margslunginn til að rekja hann
hér í dálki og þar sem þeir
RÚVAKS-menn sendu mér ekki
handrit verksins, til aflestrar eins
og venja er hér syðra, þá varð ég
að sperra eyrun til að ná sögu-
þræðinum, enda gleymdist fljótt
staður og stund. En betri með-
mæli get ég raunar ekki gefið út-
varpsleikriti. Leikstjóri að þessu
sinni var sjálfur útvarpsstjóri
RÚVAKSINS, Jónas Jónasson.
Hinn ljúfi húmor Jónasar fylgdi
leikurunum og varð þess valdandi
að verkið varð býsna áheyrilegt.
Ekki spillti hljómfagurt norð-
lenskt tungutak þeirra Þráins
Karlssonar og Sigurðar Hall-
marssonar er hér voru í stórum
hlutverkum. Þessir leikarar hafa
báðir mikið vald yfir rödd sinni og
eru svo skýrmæltir að ýmsir at-
vinnumenn hér syðra gætu margt
af þeim lært.
Að vísu örlaði einstaka sinnum
á smá stirðleika í samskiptum
þessara ágætu leikara við þær
stöllur Guðlaugu Bjarnadóttur og
Þóreyju Aðalsteinsdóttur, er einn-
ig skipuðu stórt hlutverk og þá
hefði leikstjórinn mátt passa bet-
ur uppá leikarana í smærri hlut-
verkunum, þá Pétur Eggerz, Mar-
íno Þorsteinsson og Gest Jónas-
son, en allt eru þetta nú smámun-
ir. Torfey Steinsdóttir snaraði
verkinu yfir á kjarnyrt mál slíkt
er hljómar enn víða í sveitum
landsins.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
„Við feðginin"
í síöasta sinn
Feóginin, Sam og Simon.
■I Breski gam-
35 anmyndaflokk-
— urinn „Við
feðginin" hefur átt mikl-
um vinsældum að fagna
meðal íslenskra sjón-
varpsáhorfenda. Það eru
því örugglega margir
ósáttir við að í kvöld verð-
ur sýndur síðasti þáttur-
inn með þeim í þessari
þáttaröð.
Í þessum lokaþætti
kemur ýmislegt óvænt
upp á hjá þeim feðginum,
Simoni og Samönthu, sem
endranær, Sögupersón-
urnar eru að hyggja að
sumarfríinu sínu sem er á
næsta leyti. Ýmislegt er
ráðgert og ýmsar óvæntar
uppákomur eiga sér stað.
Að lokum fer það svo að
fæstir lenda á þeim
sumardvalarstað sem þeir
höfðu ráðgert.
Ekki er okkur kunnugt
um það hvort og hvenær
við fáum að sjá þau feðg-
inin aftur en við skulum
bara vona að það verði
sem fyrst.
Skemmtiþáttur með
„The Flying Pickets"
H Á eftir spurn-
35 ingakeppninni
Kollgátunni i
kvöld verður sýndur í
sjónvarpi 40 mínútna
langur breskur skemmti-
þáttur með söngsveitinni
„The Flying Pickets”.
Söngsveitin saman-
stendur af sex ungum
mönnum sem upphaflega
hófu feril sinn sem leik-
hópur. En áhuginn vakn-
aði fyrir sönglistinni og
þeir lögðu leikarastarfið á
hilluna. Þeir sexmenning-
arnir notast ekki við nein
hljóðfæri heldur syngja
og líkja jafnframt eftir
hinum ólíkustu hljóðfær-
um með rödd sinni. Þessi
tegund af söng nefnist
einu nafni „capella" og er
söngsveitin „The Flying
Pickets" þekktasta og
ástsælasta „capella"-
söngsveitin í Bretlandi.
Lögin sem þeir félagar
flytja fyrir okkur í kvöld
eru einkum dægurlög frá
árunum milli 1960 og
1970. Gestur þáttarins er
söngvarinn Debbie Bish-
op.
Söngsveitin The Flying Pickets
Candice Bergen og Charles Grodin í hlutverkum sínum.
Húsið við
Harrowstræti
— bresk mynd frá 1974
■I Að loknum
20 skemmti-
þættinum með
The Flying Pickets hefst
laugardagsmyndin. Hún
er bresk frá árinu 1974 og
nefnist „Húsið við
Harrowstræti" (Eleven
Harrowhouse).
Kvikmyndahandbókin
okkar gefur henni tvær
stjörnur sem þýðir að hún
sé miðlungs góð.
Söguþráðurinn er eitt-
hvað á þessa leið. Chesser
er ungur bandarískur
gimsteinakaupmaður sem
fer að staðaldri til Lund-
úna til að versla. í einni af
ferðum sínum lendir hann
í heldur óvenjulegu ævin-
týri sem tengist kænlegu
demantaráni.
Leikstjóri myndarinnar
er Aram Avakian og eru
aðalleikararnir ekki af
verri endanum. Þeir eru
John Gielgud, Charles
Grodin, James Mason,
Trevor Howard og Cand-
ice Bergen.
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
13. aprll
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og
kynnir. 7.20 Leikfimi. Tón-
leikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá
Morgunorð: — Benedikt
Benediktsson talar.
8.15 Veöurfregnir.
8J0 Forustugr. dagbl. (útdr.).
Tónleikar. 8.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Valdimars
Gunnarssonar frá kvöldinu
áður.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Oskalðg sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir.)
Óskalög sjúklinga. frh.
11M Eitthvað fyrir alla.
Siguröur Helgason stjórnar
þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónteikar. Til-
kynningar.
1230 Fréttir. 12.45 Veðúr-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 Hér og nú.
Fréttaþáttur I vikulokin.
15.15 Listapopp.
— Gunnar Salvarson.
18.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Islenskt mál.
Jón Hilmar Jónsson flytur
þáttinn.
16.30 Bókaþáttur.
Umsjón: Njöröur P. Njarövlk.
17.10 A óperusviöinu.
Umsjón: Leifur Þórarinsson.
18.10 Tónteikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurtregnir. Dagskrá
kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19J5 A hvaö trúir hamingju-
samasta þjóð I heimi?
Umsjón: Valdls Oskarsdóttir
og Kolbrún Halldórsdóttir.
20.00 Utvarpssaga barnanna:
13.45 Enska knattspyrnan.
Liverpool — Manchester
United.
Bein útsending frá undan-
úrstitum ensku bikarkeppn-
innar.
16.30 Iþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
19J5 Þytur I laufi.
Lokaþáttur.
Breskur brúðumyndaflokkur
( sex þáttum.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Við feðginin.
„Grant skipstjóri og bðrn
hans“ ettir Jules Verne.
Ragnheiður Arnardóttir les
þýöingu Inga Sigurðssonar
(18).
20.20 Harmonikuþáttur.
Umsjón: Bjarni Marteinsson.
20.50 Parisarkommúnan. Fyrsti
þáttur.
Umsjón: Þorteifur Friöriks-
son. Lesarar: Steinunn Egils-
dóttir og Grétar Halldórsson.
21.30 Kvöldtónleikar.
LAUGARDAGUR
13. aprll
Lokaþáttur.
Breskur gamanmyndaflokk-
ur I þrettán þáttum.
Þýöandi Þrándur Thor-
oddsen.
214)5 Kollgátan
Sjötti þáttur spurninga-
keppninnar. — undanúrslit:
Stefán Benediktsson og
Vilborg Siguröardóttir.
Umsjónarmaöur lllugi Jök-
ulsson.
Stjórn upptöku: Viöar Vlk-
ingsson.
2135 Söngvaseiður
Breskur skemmtiþáttur með
sðngsveitinni The Flying
Pickets. Þeir félagar tlytja
einkum dægurlög frá árun-
Þættir úr sígildum tónverk-
um.
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
2? 35 Uglan hennar Mlnervu
Lifsskoðun Sigurðar Nordal.
Lesarar: Hjalti Rögnvaldsson
og Erlingur Glslason. Um-
sjón: Arthúr Bjðrgvin Bofla-
son.
23.15 Óperettutónlist.
um milli 1960 og 1970 og
llkja eftlr hvers konar hljóð-
færum með rðddum slnum.
■n 9«i Húsið viö Harrowstræti
(Eleven Harrowhouse).
Bresk blömynd frá 1974.
Leikstjóri: Aram Avakian.
Aðalhlutverk: Charles Gro-
din, James Mason, Trevor-
Howard. John Gielgud og
Candice Bergen.
Myndin er um bandarlskan
gimsteinakaupmann sem oft
verslar I Lundúnum. I einni
ferðinni lendir hann I óvenju-
legu ævintýri sem tengist
kænlegu demantaráni.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
00.00 Dagskrárlok.
24.00 Miönæturtónleikar.
Umsjón: Jón örn Marinós-
son.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
3.00.
LAUGARDAGUR
13. aprll
14.00—16.00 Léttur laugar-
dagur
Stjórnandi: Asgeir Tómas-
son.
16.00—18.00 Milli mála
Stjórnandi: Helgi Már Barða-
son.
24.00—00.45 Listapopp
Endurtekinn þáttur frá rás 1.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
00.45—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Kristln Björg
Þorsteinsdóttir.
(Ftásirnar samtengdar að
lokinni dagskrárásar 1.)
SJÓNVARP