Morgunblaðið - 13.04.1985, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
17
mál einstaklingsins, þó með þeirri
þversögn, að hið illa í heiminum
verður á stundum enn meira en
þversumman af illsku einstakl-
inganna.
Í dauða og upprisu Jesú fór að
dómi Nýja testamentisins fram
úrslitabarátta, þar sem góður Guð
bar sigurorð af hvers konar illum
öflum, mannkyni til eilífs hjálp-
ræðis. Sú barátta snerist um þann
vanda, er sprettur af eðli manns-
ins, eins og hann kemur fyrir af
skepnunni. Sá vandi er vitanlega
sístæður og óháður hverjum þeim
tíma er stendur yfir þá og þá. En
hann fékk á sig sína ákveðnu
mynd á árunum þegar Pilatus var
landstjóri í Júdeu og Kaífas æðsti
prestur í Jerúsalem. Synd manns-
ins hafði spillt veraldarvaldinu
rétt eina ferðina, hún hafði meng-
að trúarbrögðin eins og stundum
fyrr og síðar og læst klónum í
ættjarðarástina og gert úr henni
þjóðernisrembing. í frásögninni af
dauða og upprisu Jesú leggja höf-
undar guðspjallanna áherslu á, að
málstaður Guðs hafi gengið með
sigur af hólmi í viðureigninni við
spillt kerfi.
Jesús vopnabróðir
í samtali sínu við Megas gerir
blaðamaðurinn því skóna, að Jesús
sé „vopnabróðir” mannanna.
Vissulega fjallar kristnin um rétt-
læti. „Komi ríki þitt“, biðjum við í
Faðirvorinu. Og þó er erfiðleikinn
í þessu sambandi sá, að Jesús setti
ekki fram neina stefnuskrá til
þess að umbreyta þjóðfélaginu eða
koma á einhverri sérstakri þjóð-
félagsskipan, ef marka má guð-
spjöllin. Hann fjallaði þannig
hvorki um til að mynda þrælahald
eða jafnrétti kynjanna. Mikilvæga
þætti í mannlegu félagi á borð við
réttarfar og stjórnmál, viðskipti
og fræðslumál lét hann liggja
milli hluta. Kirkju sína virðist
hann ekki heldur hafa stofnað sem
„hið fullkomna þjóðfélag" og
henni til handa krafðist hann
einskis í veraldlegum efnum. Er
ekki fjallræðan fyrst og fremst
ætluð einstaklingum eða í hæsta
lagi fámennum hópi?
Má ég gera hér þá játningu, að
mér er mjög til efs, að Halldór
Laxness eigi á landi hér öllu ein-
lægari aðdáendur en þann, sem
hér heldur á penna. Fengi ég fimm
sekúndur til þess að velja mér um-
ræðuefni eða prófefni til þess að
fjalla um á staðnum, mundi ég lík-
lega annað hvort velja mér selló-
svíturnar eftir J.S. Bach ellegar
höfundarverk Halldórs Laxness.
Ég held að engu sé logið þótt sagt
sé, að ég kunni skáldsögur hans
næstum utanbókar, orðagrannt.
En ég hefi þar á móti oft þakkað
Guði hátt og í hljóði, að blessaður
grillufangarinn í Gljúfrasteini
skyldi ekki verða prestur. Það var
lúterskri kirkju stórmikið happ.
Afstaða Laxness til kirkjuföðurins
Lúters hefur einlægt farið alveg
óímunnberanlega mikið í taugarn-
ar á mér. Stórséníið Lúter, sem
uppgötvaði fagnaðarerindið að
nýju, verður auðvitað mjög í
heiðri hafður löngu eftir að allir
eru hættir að hlæja að Laxness.
Eftir hinn síðarnefnda hefur varð-
veist að minnsta kosti ein prédik-
un (í Sjálfstæðu fólki: „Áðan var
klukkan eitt, nú er hún orðin tvö,
bráðum verður hún þrjú“). Sú
reisn, sem einkennir þessa stól-
ræðu Halldórs er höfuðeinkenni
hans í skrifum um kristni mót-
mælenda.
Nei, það hefur aldrei verið
meiningin að rugla saman kristni
og marxisma, þótt það hafi raunar
lengi verið ósiður að þurfa einlægt
að bæta einhverju öðru við kristna
trú. Það er eins og það sé ekki nóg
að vera bara kristinn. Árangurinn
hefur ekki látið á sér standa:
kristindómur og nýja sálfræðin,
kristindómur og þjóðfélagsskipan-
in, kristindómur og huglækningar,
kristindómur og sálarrannsóknir,
kristindómur og jurtaát, kristin-
dómur og íþróttir, kristindómur
og orgelsmíði.
Sr. Gunnar Björnsson
Af lestri Passíusálmanna kem
ég ekki auga á, að skáldið sé undir
áhrifum annarra hugsjóna, er
hann yrkir um pínu og dauða
frelsara síns.
„Godsögnin“ um Jesúm
Snemma í viðtalinu við Megas
víkur spyrillinn orði að „goðsögn-
inni“ um Jesúm. Ég verð að viður-
kenna, að þetta orðalag fór mjög
fyrir brjóstið á mér. Þessi glósa
blaðamannsins uppúr Laxness
gerir því skóna, að frásögnin af
Jesú sé uppspuni, hugarsmið rit-
höfunda. Sannleikurinn er hins
vegar sá, að kristnin, með Gamla
testamentið mikinn part að bak-
hjarli, er söguleg trú, byggð á at-
burðum, sem áttu sér stað. Hún
rís ekki á skröksögu, heldur á
raunverulegum atburðum, sem
gerðust suður á Gyðingalandi á
valdatíma keisaranna Agústusar
og Tíberíusar. Sagan af upphafi
kristindómsins í tveim bindum
(Lúkasarguðspjall og Postulasag-
an) er kynnt fyrir lesendum sem
sögulegt rit. Þessar bækur tvær
sáu dagsins Ijós á árabilinu 75 til
svona 95 eftir Krists burð. Þá voru
ekki nema um 40 ár síðan Jesús
dó. (Páll postuli fjallar um sama
veruleika í bréfum sínum 15—20
árum eftir dauða Jesú og upprisu.)
Kringum árið 200 e.Kr. andaðist í
Lyon á Frakklandi gamall biskup
að nafni freneus. Varðveist hefur
sendibréf, sem hann skrifaði skól-
abróður sínum, Flórínusi að nafni.
í bréfinu rifjar íreneus upp gaml-
ar minningar frá skóladögunum,
einkum þegar þeir félagar sóttu
tíma hjá Pólýkarp-
usi, biskupi í Smyrnu í Litlu-Asíu,
en sá lést kringum 155 e.Kr., lík-
lega um það bil hálfníræður að
aldri. freneus minnist þess með
gleði í bréfi sínu, þegar Pólýkarp-
us var að segja þeim bekkjar-
bræðrum frá „Jóhannesi, læri-
sveini Drottins“. I stuttu máli:
Skömmu fyrir árið 200 e.Kr. getur
maður í Frakklandi vitnað í kenn-
ara sinn, sem að sínu leyti hafði
þekkt mann, sem var persónulega
kunnugur Jesú. Svona löguð minn-
ing, sem ein kynslóð af annarri
rifjar upp fyrir sér, er aldrei köll-
uð goðsögn, en alltaf sagnhefd.
Þó er það vitanlega svo, að öll
guðspjöllin fjögur eiga sammerkt í
því að vera frásögn af staðreynd-
um að viðbættri túlkun á þeim
sömu staðreyndum. Á nítjándu
öldinni og öndverðri þeirri tuttug-
ustu höfðu menn ríka tilhneigingu
til þess að skræla túlkunina utan
af „hinu raunverulega innihaldi"
guðspjallanna. Sleppum bullinu úr
þeim í frumkirkjunni, og þá mun-
um við standa eftir með stað-
reyndir málsins í höndunum!!
Menn gleymdu því, að guðspjöllin
eru umfram allt söguleg rit, sagn-
fræði, og það jafnt fyrir því þótt
þau séu fyrst og fremst trúarleg
verk í þeim skilningi, að þau bera
trú safnaðarins vitni.
Áf ofanrituðu má ljóst vera, að
engum heilvita manni dettur í hug
að Jesú-atburðurinn (fæöing Jesú,
líf, starf og dauði, að viðbættri
upprisu hans), sé goðsögn. Um leið
verðum við að muna, að margar
frásagnir guðspjallanna eru
hlaðnar táknmáli, þær eru ríkar
af myndum af heimi ljóðsins. í
jólafrásögnunum til að mynda
vitja englar manna, draumar ræt-
ast, stjarna boðar fæðingu frelsar-
ans og fleira gerist, sem við þekkj-
um úr jólasálmum og helgi-
leikjum. Áð baki þessu táknmáli
búa staðreyndir. Það, sem sög-
umennirnir vilja tjá er þetta:
Festarmær smiðsins ól son og sú
fæðing táknaði þáttaskil í sög-
unni, þegar haft er í huga það,
sem síðar varð.
Hæpið að kalla
píslargönguna goðsögn
Síra Hallgrímur hugleiðir písl-
arsöguna í Passíusálmum sínum
með svipuðum hætti og t.d. Jó-
hann Sebastían Bach hugleiðir
hana í Passíum sínum. Minnumst
þess endilega, að af gjörvöllu efni
guðspjallanna er frásögnin af
handtöku Jesú, réttarhöldunum
yfir honum, dauðadóminum og
líflátinu — lengst frá því að vera
goðsögn. Athugull lesandi tekur
strax eftir því, að síðustu dögun-
um í ævi Frelsarans eru gerðar
afar ítarleg skil á síðum guðspjall-
anna. Kristnir menn lögðu
snemma þá merkingu í dauða og
upprisu Krists, að þar hefði farið
fram úrslitabarátta, þar sem góð-
ur Guð bar sigurorð af hvers kon-
ar fjandsamlegum og annarlegum
öflum. Sú barátta hafði ekki ein-
asta sögulega þýðingu. Þó reið á
að halda fast við það, að hún hefði
í raun og veru gerst. Og þótt guð-
spjöllin séu ekki samsaga um ein-
staka þætti frásagnarinnar af síð-
ustu jarðvistardögum Jesú, þá er
mjög eftirtektarvert, hve ná-
kvæmlega þau fylgja í stórum
dráttum sama söguþræði. ómögu-
legt er með nokkrum rökum að ve-
fengja, að meginþættir þeirrar
frásagnar, sem er efni Passíu-
sálma síra Hallgríms Pétursson-
ar, hafi í raun og veru átt sér stað.
Hér eru á ferð sögulegir atburðir á
sama hátt og orrustan við Wat-
erloo eða stofnun íslenska lýðveld-
isins á Þingvöllum.
OPIÐ í DAG LAUGARDAG, FRÁ 1-4
Ryðvöra er ávalt innifalin í verðinu.
Hagstæðir greiðsluskilmálar
LADA 1200
169.000.
LADA SPORT 4X4
LADA SAFIR
LADALUX
BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236