Morgunblaðið - 13.04.1985, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRlL 1985
19
Morgunblaðid/Bjarni
Styrkyeiting úr Vísindasjóði Dýralæknafélagsins:
Frá afhendingu styrkja úr Vísinda-
sjóði Dýralæknafélagsins í gær.
Frá vinstri: Sigurður Örn Hansson,
ritari, Birnir Bjarnason, styrkþegi,
Páll Agnar Pálsson, formaður
sjóðsstjórnar, Halldór Vigfússon,
styrkþegi og Brynjólfur Sandholt,
gjaldkeri.
við Morgunblaðið, að dýralækn-
ar hefðu fullan hug á að styrkja
sjóðinn og það hefðu þeir gert í
hvívetna, en upphafið hafi þó
komið frá sonum Sigurðar, þeim
Guðbrandi, Jóhanni og Skildi.
Sigurður Einarsson Hlíðar var
fæddur 4. apríl 1885 í Hafnar-
firði. Foreldrar hans voru Einar
organisti og trésmiður þar Ein-
arssonar bónda i Laxárdal i
Eystrahreppi Einarssonar og
kona hans, Sigríður Jónsdóttir
bónda í Hörgsholti í Ytrahreppi
Jónssonar. Hann lauk fjóröa
bekkjar prófi í Lærða skólanum
í Reykjavík 1904 og embættis-
prófi í dýralækningum við Dýra-
lækna- og landbúnaðarháskól-
ann í Kaupmannahöfn 1910. Síð-
ar var hann á þriggja mánaða
Tveir hlutu styrk á 100
ára afmæli Sigurðar Hiíðar
ÚTHLUTUN úr Vísindasjóði Dýralæknafélags íslands fór fram í gær,
föstudaginn 12. aprfl, og hlutu tveir styrk samtals að upphæð 100 þúsund
krónur, þeir Birnir Bjarnason, dýralæknir, sem nú stundar framhalds-
nám í Danmörku og fæst við nautgripasjúkdóma, og Halldór Vigfússon,
sem um langan aldur hefur unnið hjá Sauðfjárveikivörnum og stundað
þar sjúkdómsgreiningar og sýklarannsóknir.
Vísindasjóður Dýralæknafé-
lags íslands var stofnaður og
skipulagsskrá hans staðfest hinn
22. júlí 1968. Sjóðurinn er stofn-
aður af sonum Sigurðar Einars-
sonar Hlíðar, yfirdýralæknis, til
minningar um föður þeirra og
móður, Guðrúnu Louisu Hlíðar.
Áður hafa 6 aðilar hlotið styrk
úr sjóðnum, dýralæknarnir:
Þorsteinn ólafsson, Eggert
Gunnarsson, Grétar Harðarson,
Ólafur Oddgeirsson, Halldór
Runólfsson og Helgi Sigurðsson.
{ skipulagsskrá sjóðsins segir
að úthlutun skuli fara fram ár
hvert hinn 4. apríl, á afmælis-
degi Sigurðar E. Hlíðar. Fyrsta
úthlutun fór fram árið 1975 á
níræðisafmæli Sigurðar, en út-
hlutunin í ár, er tveir hljóta
styrk, er í tilefni 100 ára afmælis
hans, en þar sem það bar upp á
skírdag var úthlutun frestað um
nokkra daga.
Formaður sjóðsstjórnar er
Páli Agnar Pálsson, yfirdýra-
læknir, og sagði hann i viðtali
Sigurður E. Hlíðar dýralæknir.
námskeiði við sama skóla, á ár-
inu 1922, og veturinn 1929—30
stundaði hann nám í efnagrein-
ingu mjólkur og kjarnfóðurs og í
jarðvegsrannsóknum við rann-
sóknarstofnun í Kiel. Árið 1910
var hann skipaður dýralæknir á
Norður- og Austurlandi með
búsetu á Akureyri. Gegndi hann
því embætti fram til ársins 1943,
er hann var skipaður dýralæknir
í Reykjavík og yfirdýralæknir
landsins. Af dýralæknisembætti
í Reykjavík lét hann 1950, en yf-
irdýralæknisembætti gegndi
hann til sjötugsaldurs.
Sigurður E. Hlíðar var valinn
til ýmissa trúnaðarstarfa og
vann að ýmsum félagsstörfum
jafnframt embætti sfnu. Hann
var stjórnarnefndarmaður
Ræktunarfélags Norðurlands frá
1912—1943 og formaður þess
1921—1943. f bæjarstjórn Akur-
eyrar átti hann sæti 1917—1938
og var forseti hennar frá 1932.
Heilbrigðisfulltrúi á Akureyri
var hann 1918—1943. Hann átti
sæti á búnaðarþingi 1921—31.
Þingmaður Akureyringa var
hann 1937—1949, sat á 17 þing-
um alls. Hann var kosinn í full-
trúaráð Rannsóknastofnunar
háskólans 1936 og formaður
milliþinganefndar í mjólkurmál-
um 1943. Hann átti sæti í stjórn
Stúdentafélagsins á Akureyri,
Taflfélags Akureyrar og Leikfé-
lags Akureyrar, var formaður
Dýralæknafélags fslands
1935—1943 og formaður Dýra-
verndunarfélags íslands um
langt skeið. Hann sinnti ýmsum
ritstörfum, stofnaði blaðið ís-
lending á Akureyri 1915 og var
ritstjóri þess til 1920, var rit-
stjóri Dagblaðsins á Akureyri
1914—1915 og Einars Þveræings
1926 og ritaði fjölda greina í er-
lend og innlend tímarit og blöð.
Hann samdi og gaf út nokkur rit
um búfjársjúkdóma. Hann var
og kunnáttumaður og áhuga-
maður um mannfræði og ætt-
fræði, og eftir að hann lét af
embætti, gaf hann út mikið rit
um Árnesingaættir.
Kona Sigurðar Hlíðar var
Guðrún Louisa Guðbrandsdóttir
kaupmanns og konsúls í Reykja-
vík Teitssonar Finnbogasonar og
konu hans, Jakobine Frederikke
Louise Zimsen. Sigurður lézt 18.
desember 1962, en kona hans
hálfu ári síðar eða 6. júní 1963.
Hinn 19. desember 1962, dag-
inn eftir lát Sigurðar Hlíðar, var
hans minnst á Alþingi og sagði
þá forseti sameinaðs þings m.a.:
„Sigurður E. Hlíðar gegndi um
langt skeið annasömu embætti
af árvekni og áhuga, en sinnti
jafnframt því fjölmörgum störf-
um öðrum af alúð og ósérhlífni,
eins og ráða má af því, sem hér
hefur verið rakið af æviferli
hans. Hann vann á löngum emb-
ættisferli giftudrjúg störf fyrir
bændastétt landsins. Hann var
Ijúfmenni og gott til hans að
leita með ýmis vandamál, af-
burða vinsæll og vel látinn af
öllum, sem við hann þurftu að
skipta, stefnufastur í skoðunum,
en samvinnuþýður í félagsmál-
um.“
Alþýðubankinn á Akureyri:
Kynning á verk-
um Gunnars
Dúa Júlíussonar
KYNNING á verkum Gunnars Dúa
Júlíussonar listmálara stcndur nú yf-
ir í Alþýðubankanum á Akureyri.
Gunnar Dúi hóf nám í myndlist á
Akureyri 1946 hjá Hauki Stefáns-
syni. Síðan stundaði hann nám í
Handíða- og myndlistarskólanum í
Reykjavík. Þá hefur hann einnig
stundað nám erlendis í mörg ár.
Menningarsamtök Norðlendinga
standa að þessari listkynningu,
sem er 8. einkasýning Gunnars.
Sýningunni lýkur 31. maí.
(Úr frétlatilkynninpu.)
FILIDICASAFENDI
MEÐ VOR í REYKJAVÍK
í dag
10-16.
í dag opnar mjög sérstæð garnverslun, sannkallað
Garn-Gallerí, á Skólavörðustíg 20.
í Garn-Gallerí er tískugarn beint frá tískuborginni
Flórens á Ítalíu, siálftlFili-De Casa Fendilgarnið
— í ótrúlegu úrvali og litavali. Að sjálfsögðu höfum við
einnig lopalínuna frá Álafossi og Gefjunni.
FiliDi
CASA
FENDI
Vor og sumarlitirnir frálFili-De Casa Fendi
eru
fallegir, það er sannkallað ítalskt vor á Skólavörðustígnum.
Skólavörðustíg 30 Sími 1 -35-30