Morgunblaðið - 13.04.1985, Side 21

Morgunblaðið - 13.04.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985 21 HOLLUSTUBYLTINGIN/Jón Óttar Ragnarsson Reykingar og mataræði Þótt ótrúlegt megi virðast er það enn útbreidd skoðun á ís- landi að allur mesti munaður mannlífsins sé annaðhvort heilsuspillandi eða ósiðlegur. Að vísu er þessi bábilja heldur á undanhaldi eftir því sem fleiri skilja að því aðeins er gaman að njóta lífsins ef maður tapar ekki heilsunni um leið. Æ fleiri eru orðnir meðvitaðir um að mestu lystisemdir lífsins eru fólgnar í þeirri skemmtun sem hvorki skaðar heilsuna né gerir mann að fíknilyfjaþræl. Og er nokkur munaður meiri til en góður matur og drykkur, skemmtilegur dans, ánægjulegt kynlíf eða fjallgöngur og skíða- ferðir í þolanlegu veðri. Hollustubyltingin byggist m.a. á því að sífellt fleiri eiga kost á lystisemdum sem eru í senn ynd- isauki og heilsubót. Að reykja Eitthvert besta dæmið um óheilbrigða og tilgangslausa nautn er að reykja. Lætur nærri að þriðji hver reykingamaður láti lifið fyrir nautn sína. En ekki nóg með það. Svo rækilega vanabindandi er nikó- tínið í tóbakinu að það heyrir til algjörra undantekninga ef reyk- ingar verða ekki stjórnlaus nautn. Reykingamaðurinn er þar með tilneyddur að troða upp í andlit- ið á sér 20—25 sígarettum á dag með tilheyrandi fjárútlátum, heilsutjóni og mengun. Að hætta að reykja En það er meira en að segja það að hætta að reykja. Því mið- ur bíða þeirra sem leggja þennan vana á hilluna ýmsar óskemmti- legar hremmingar. Eitt af þvi versta er hættan á að fitna. Staðfesta rannsóknir að þessi ’nætta er fyrir hendi, og er því meiri sem meira var reykt. Yfirleitt eru þessi aukakíló að- eins tímabundið vandamál því flestir eru búnir að ná sér aftur í eðlilega þyngd eftir um það bil ár. Hitt er þó ennþá ánægjulegra að þeim sem hafa fengið tilsögn um mataræði og líkamsrækt tekst yfirleitt að bægja vand- anum frá með öllu. Ráðgjöf f grófum dráttum ætti hver sá sem ætlar að hætta að reykja að hafa eftirfarandi atriði i huga: 1. Hættan á offitu hjá þeim sem leggja niður reykingar er ekki eins mikil og af er látið. Engu að síður er þetta vandamál afar hvimleitt fyrir þá sem það bitn- ar á. 2. Hver sem vill á að geta sneitt hjá þessu vandamáli ef hann Það er hreinn óþarfi að fitna þótt maður hætti að reykja. gerir lítils háttar lagfæringar á eigin fæðuvenjum og hreyfingar- venjum. 3. Hvað mataræði viðvíkur er meginatriðið að draga úr neyslu á feitum mat og fitu og svo á sætum mat og sykri. Á móti þarf að auka neysluna á grænmeti, grófu korni og kartöflum. 4. Um hreyfingarvenjur gildir að þar skiptir mestu að hreyfa sig meira en venjulega, t.d. fara í stuttar gönguferðir, fara regiu- lega í sund eða álíka. 5. öfugt við það sem flestir kunna að halda er hér ekki verið að tala um róttækar breytingar á lífsvenjum, heldur minni hátt- ar lagfæringu þann tima sem áhrif nikótínsins eru að fjara út (um það bil eitt ár). Sumir hafa látið vel af því að fara á „fjörefnakúr“ eftir að þeir hætta að reykja, þ.e. taka bæti- efnapillur (oft rangnefndar „vítamínpillur") í ákveðinn tíma. Um helstu fjörefnablöndur verður fjallað síðar í þessum þætti. Hins vegar ætti að vera augljóst að slíkir kúrar koma aldrei í staðinn fyrir þau atriði sem nefnd voru hér á undan, þvert á móti. Lokaorð Eitt af þeim vandamálum, sem oft koma upp þegar fólk hættir að reykja, er að það fer að fitna og getur jafnvel átt á hættu að hlaupa í spik. Að vísu er offita margfalt hættuminna heilbrigðisvanda- mál en reykingar. En það er ekki sá boðskapur sem mestu skiptir í þessu sambandi. Kjarni málsins er sá að þessi aukakfló eni vandamál sem auð- velt er að komast hjá ef viðkom- andi gerir minni háttar lagfær- ingar á eigin lífsvenjum. Þessar breytingar felast í stuttu máli í því að borða mat sem er ívið minna fitandi en ella og að auka lítillega við daglega hreyfingu. Og málið er leystl Selfoss: Hækkunar- beiðni hita- veitu vísað frá öðru sinni Selfossi, 10. aprfl. HÆKKUNARBEIÐNI á gjaldskrá hitaveitu frá stjórn veitustofnana á Selfossi kom öðru sinni fyrir bæjar- stjórn í dag en var ekki afgreidd heldur vísað aftur til stjórnarinnar og nánari skýringa krafist. Stjórn veitustofnana fór fram á 10% hækkun gjaldskrár hitaveitu frá 1. apríl að telja. Á bæjar- stjórnarfundinum í dag kom fram að ekki var meirihluti fyrir sam- þykkt þessarar hækkunar frekar en á síðasta fundi. Á fundinum var samþykkt til- laga þess efnis að vísa beiðninni aftur til stjórnar veitustofnana með ósk um að skrifleg greinar- gerð um stöðu veitunnar lægi fyrir á næsta bæjarstjórnarfundi sem verður í maí. Hækkunarbeiðnin er til komin vegna borunar nýrrar holu á veitusvæði hitaveitunnar eftir áföll þar í byrjun árs. Á bæjarstjórnarfundinum kom til umræðu samningur hitaveit- unnar við Hitaveitu Eyra og að mögulegt væri að Hitaveitu Eyra bæri að greiöa kostnaö vegna holu sem boruð var til vatnsöflunar fyrir hana en hefur nú verið dæmd ónýt. Um þetta eru ákvæði í samn- ingi veitnanna. Sig. Jóns ,Apglýsinga- síminn er 2 24 80 ■■ Hildur Rögnvaldsdóttir tekur við 1. verðlaunum í hugmyndasamkeppni ui skjaldarmerki fyrir Bessastaðahrepp af Sigurði Val Asbjarnarsyni, sveitai stjóra. Handhafar öryrkjaleyfa athugiö: Þegar þið kaupið POLONEZ fáiö þiö stóran og sterkan bíl viö ykkar hæfí en á smábílaveröi: 155.800,- kr. kominn á götuna. Bessastaðahreppur: Skjaldarmerki verðlaunað Hreppsnefnd Bessastaðahrepps ákvað á síðasta ári að efna til hug- myndasamkeppni um skjaldarmerki fyrir hreppinn. Tillögur bárust frá fjörutíu og fjórum aðiljum, sem hver um sig lagði fram eina eða fleiri hugmynd. Að mati hreppsnefndarmanna og sveitarstjóra fengu 18 tillögur eitt eða fleiri atkvæði. Á fundi hreppsnefndar 28. marz sl. var tekin endanleg ákvörðun um hvaða tillaga fengi fyrstu verð- laun og var það tillaga Hildar Rögnvaldsdóttur, Sjávargötu 29, Bessastaðahreppi. Um merki sitt segir Hildur: „Blár grunnur, þar sem hvítar lín- ur tákna láréttar línur landsins, hafið undir og himininn yfir. Fugl, seni höfða á tii mikils fuglalífs í bænum.“ Önnur Verðlaun hlaut Sigur- sveinn H. Jóhannesson, Lamba staðabraur. 8, Selt.iarnarnesi, en Skjaldarmerki Bessastaðahrepps. hreppsnefndin ákvað aö veita ekki þriðju verölaun þar sen*. ekk' náð isr, samstaör, innan nefndarinnar um hver ætti aö hijóta þau. Þess , staö var ákveðið aö láta verðlaun- in renna tií æskulýðsmáia. ★ Þjónustan hjá okkur er rómuð. ★ Við bjóAum ykkur góAan reynsluakstur og aAstoA viA lausn einstakra vanda- mála. * KomiA og kaupiA stóran og sterkan bfl sem er þægilegur í akstri, hagnýtur, end- ingargóAur og fallegur. Polonez-umboöid Ármúla 23, s. 685870 - 81733.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.