Morgunblaðið - 13.04.1985, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRlL 1985
Fnunvarp til þingskaparlaga:
Nýjar reglur um fyrirspurn-
ir og utandagskrárumræðu
Fram hefur verið lagt á Alþingi
frumvarp til breyttra þingskapar-
laga, sem kveða m.a. á um skýrari
og markvissari reglur um fyrirspurn-
ir um umræður utan dagskrár.
Flutningsmenn eru Þorvaidur Garð-
ar Kristjánsson (S), Salome Þorkels-
dóttir (S), Helgi Seljan (Abl), Eiður
Guðnason (A) og Stefán Benedikts-
son (BJ).
Helztu nýmæli frumvarpsins
eru, samkvæmt athugasemdum
sem því fylgja:
1. Stjórn þingsins er efld með
skipulegum og markvissum
vinnubrögðum. Að þessu lúta
ákvæði um hlutverk forseta
þingsins, 2. mgr. 11. gr., og
ákvæði um verkefni fasta-
nefnda þingsins, 6. mgr. 15. gr.,
svo og ákvæði 2. mgr. 18. gr. og
6. mgr. 28. gr. sem stuðla að því
að þingmálum sé útbýtt tíman-
lega svo að meðferð mála verði
dreift sem jafnast á þingtíman-
um.
2. Fjölgað er fastanefndum í sam-
einuðu þingi með því að gera
þar ráð fyrir félagsmálanefnd,
1. og 2. mgr. 15. gr.
3. Settar eru reglur um hnitmið-
aðri meðferð þingsályktunar-
tillagna en verið hefur. Stuðlað
er að því að tillögur til þings-
ályktunar verði aðeins bornar
fram í sameinuðu þingi. Tvær
umræður þarf um allar þings-
ályktunartillögur til þess að
þær nái samþykki til fullnaðar.
Tímalengd fyrri umræðu er
takmörkuð nema um sé að ræða
tillögur um tiltekin mikilvæg
mál. Reglur þessar miða að því
að meira ráðrúm gefist til eig-
inlegra löggjafarstarfa í þing-
deildum, 28. gr.
4. Breytt er reglum um fyrir-
spurnir þannig að umræðan er
bundin einungis við fyrirspyrj-
anda og viðkomandi ráðherra
og ræðutími styttur. Með þessu
er komið í veg fyrir að almenn
umræða drepi á dreif sjálfri
fyrirspurninni og tilgangi
fyrirspyrjanda með henni.
Jafnframt gefur þetta meira
svigrúm til löggjafarstarfa
þingsins með því að umfang
Sluttar þingl'réttir
Bílamál banka-
stjóra rædd á þingi
Matthías Á. Mathiesen, við-
skiptaráðherra, hefur gert
bankaráðum ríkisbankanna að
skýra samþykktir sínar um bíla-
styrki bankastjóra, sem mjög
hafa verið í fréttum síðustu
daga.
Jóhanna Sigurðardóttir (A)
hefur óskað eftir því að fá að
beina spurningum um þetta efni
til viðskiptaráðherra á Alþingi.
Búizt var við utandagskrárum-
ræðu um þetta efni í gær, en
henn ver frestað þar til í dag.
Lög um vélstjóranám
Alþingi samþykkti í gær lög
um vélstjóranám, sem kveða á
um námsskyldur og réttindi vél-
stjóra.
Móttaka sjónvarpsefnis
frá fjarskiptahnöttum
Þrír þingmenn Sjálfstæðis-
flokks, Gunnar G. Schram, Frið-
jón Þórðarson og Birgir ísl.
Gunnarsson hafa lagt fram til-
lögu á Alþingi, sem felur ríkis-
stjórninni, verði hún samþykkt,
að „gera sem fyrst ráðstafanir
til þess að unnt verði að hefja
móttöku sjónvarpsefnis frá fjar-
skiptahnöttum Evrópuþjóða hér
á landi og undirbúa útsendingu
slíks efnis með dreifikerfi ís-
lenzka sjónvarpsins“.
Samgöngur um
Hvalfjörð
Davíð Aðalsteinsson (F) hefur
ásamt þingmönnum úr fjórum
þingflokkum flutt tillögu um
„athugun á því, hvaða sam-
gönguíeið er hagkvæmust um
Hvalfjörð. Að þeirri athugun
lokinni verði sett fram áætlun
um framkvæmdir".
Inn í þessa athugun komi fjór-
ir aðalmöguleikar:
• Ferja yfir fjörðinn
• Brú yfir fjörðinn
• Göng undir fjörðinn
• Vegur fyrir fjörðinn
„Yfirvofandi
byggðahrun“
Hjörleifur Guttormsson o.fl.
þingmenn Alþýðubandalags
flytja tillögu til þingsályktunar
um úttekt á fjárhagsstöðu
bænda og einstakra búgreina.
Að lokinni úttekt skal undirbúa
tillögur til „að koma í veg fyrir
yfirvofandi byggðahrun". Kostn-
aður úttektar og tillögugerðar
verði greiddur úr ríkissjóði.
Fyrirspumir:
fyrirspurna í þingstörfum
minnkar, 5. mgr. 31. gr.
5. Sett eru ákvæði um umræður
utan dagskrár, en um það efni
hefur ekkert verið að finna í
þingsköpum. Ákvæði þessi eru
tvenns konar eftir þvi hve mik-
ilsverð mál er um að ræða.
Annars vegar er opnuð leið
fyrir því að fleiri mál megi
verða tekin fyrir utan dagskrár
en tíðkast hefur jafnframt því
að umræður séu mjög takmark-
aðar. Hins vegar er ætlunin að
þrengja möguleika til umræðna
utan dagskrár án tímatak-
markana þannig að slíkar um-
ræður verði nánast i undan-
tekningartilvikum um hin mik-
ilvægustu mál, 32. gr.
Þær breytingar í frumvarpinu,
sem eru fólgnar í iögfestingu á
venjum sem fylgt hefur verið í
framkvæmd, eru af ýmsum toga
spunnar, t.d.: Varamaður, sem
gerist aðalmaður, tekur sæti í
þeirri þingdeild sem sá sat í sem
hvarf af þingi, 9. gr. Fjárveitinga-
nefnd er heimilað að skipa undir-
nefnd til að starfa að sérstökum
verkefnum milli þinga, 3. mgr. 15.
gr. Munnleg skýrsla ráðherra til
Alþingis er heimiluð ef ekki verð-
ur komið við að prenta skýrslu eða
ekki þykir ástæða til, 3. mgr. 29.
gr. Kveðið er á um málsmeðferð ef
þingmaður forfallast svo að nauð-
syn krefji að varamaður taki sæti
hans á meðan, 2. mgr. 34. gr. Fram
er tekið að hvort heldur sameinað
þing eða þingdeild megi vísa máli
til ríkisstjórnar eða einstakra
ráðherra, 42. gr. Ef fram kemur
ósk um nafnakall er ákveðið að við
henni skuli orðið, 2. mgr. 47. gr.
Myndin sýnir áhugafólk um eitt eða annað málefni fyrir framan þing-
húsið á síðdegi liðinn vetur, en sá siður fer nú í vöxt að þrýstihópar
heiðri þingið með návist sinni á Austurvelli.
107. löggjafarþingið:
400 þingmál
107. löggjafarþingi íslendinga
lýkur senniiega upp úr miðjum
næsta mánuði. Tíminn, sem þing-
inu gefst til starfa, styttist óðum.
Meðal mála, sem líkur eru
taldar á að fái afgreiðslu, má
nefna:
+ Lánsfjárlög 1985.
+ Útvarpslagafrumvarp, með
eða án auglýsingaheimildar
nýrra stöðva.
+ Fækkun sjóða og einföldun
sjóðakerfis. Frumvarp enn
ekki fram komið.
+ Heimild til bruggunar og sölu
meðalsterks bjórs.
Líkur standa til að óvenju
mörg þingmál, tillögur til þings-
ályktunar og frumvarp til laga,
dagi uppi og fái ekki fullnaðar-
afgreiðslu. Rúmlega 400 þingmál
hafa verið lögð fram, nálægt 160
fyrirspurnir. Tæplega 70 stjórn-
arfrumvörp og um það bil 65
þingmannafrumvörp.
Fækkun og samein-
ing viðskiptabanka
— nefnd undir formennsku Gylfa Þ. Gíslasonar
Kostnaöur skattborg-
ara af búnaðarþingi
Eins og fram hefur komiö í fréttum á þingsíöu Morgun-
blaðsins lagði Matthías Á. Mathiesen, bankamálaráöherra,
fram stjórnarfrumvarp um viðskiptabanka nýverið, sem felur
í sér margs konar nýmæli. í athugasemdum með frumvarpinu
segir svo um fækkun og sameiningu viðskiptabanka:
armið verið sett fram í nefndinni
um fækkun og sameiningu ríkis-
viðskiptabanka. Annars vegar er
um innbyrðis sameiningu tveggja
ríkisviðskiptabanka að ræða en
hins vegar sameiningu ríkisvið-
skiptabanka og hlutafélagsbanka.
Nefndin gerir ekki tillögur með
hvaða hætti þetta skuli gert en
meirihluti nefndarinnar, þeir
Þorsteinn Pálsson, Björn Líndal
og Jón G. Solnes, telur, að það
mundi flýta fyrir framgangi máls-
ins að ráðherra hefði forgöngu um
tæknilega útfærslu sameiningar
sem leggja mætti fyrir Alþingi í
frumvarpsformi þegar þing kemur
saman í haust."
og Sigurgeir Jónsson, aðstoðar-
bankastjóri í Seðlabankanum."
„í frumvarpinu eru ekki taldir
upp starfandi viðskiptabankar.
Það er hins vegar gert í bráða-
birgðaákvæði sem fylgir frum-
varpinu. Bankamálanefnd fjallaði
um sameiningu og fækkun við-
skiptabanka en varð ekki ásátt um
leið er farin skyldi í því efni. í
bókun, sem nefndin gerði og sendi
viðskiptaráðherra, segir m.a.:
„Jafnframt hafa tvö meginsjón-
Búnaðarþing
Guðmundur Einarsson (BJ)
spyr landbúnaðarráðherra: Hver
var heildarkostnaðar við búnaðar-
þing 1984 og 1985? Hve stóran hlut
greiddi ríkissjóður? I svari óskast
kostnaður á hvort þing um sig og
hvernig hann skiptist á eftirfar-
andi þætti:
• laun þingfulltrúa
• ferðir þingfulltrúa
• húsnæðiskostnaður þing-
fulltrúa
• dagpeningar þingfulltrúa
• annar kostnaður
Sjómannadagur
Eiður Guðnason (A) spyr sjáv-
arútvegsráðherra: Hyggst ráð-
herra beita sér fyrir því að Al-
þingi ákveði nú á þessu þingi að
sjómannadagurinn verði lög-
skipaður frídagur?
Fiskeldi
Guðmundur Einarsson (BJ)
spyr landbúnaðarráðherra: Hver
eru markmið væntanlegs frum-
varps um fiskeldi? Hvert verður
hlutverk landbúnaðarráðuneytis
samkvæmt frumvarpinu?
íkveikja í atvinnuhúsnæði
Sami þingmaður spyr dóms-
málaráðherra: í hvaða tilvikum
hafa rannsóknir tæknimanna leitt
til gruns um að íkveikja hafi vald-
ið bruna í atvinnuhúsnæði á und-
anförnum fimm árum? I hvaða til-
vikum hefur með lögreglurann-
sókn verið úrskurðað að um
íkveikju hafi verið að ræða? í
hvaða tilvikum hafa ákærur verið
gefnar út?
Óskað er skriflegra svara.
I samræmi við þá afstöðu, sem
kom fram hjá meirihluta banka-
málanefndar í framangreindri
bókun, hefur viðskiptaráðherra
falið þremur mönnum að gera til-
lögur um bætt skipulag og rekstur
viðskiptabanka samhliða færslu
viðskipta og útibúa milli banka.
Tillögurnar eiga að fela í sér drög
að skipulagsbreytingum, sem leiði
til eðlilegs hlutfalls milli skuld-
bindinga og ráðstöfunarfjár
banka, góðs jafnvægis í útlánum
banka til einstakra atvinnugreina,
bættrar þjónustu banka við at-
vinnulífið og lægri kostnaðar við
bankarekstur.
Forysta fyrir verkinu hefur ver-
ið falin dr. Gylfa Þ. Gíslasyni,
fyrrv. ráðherra, en með honum
starfa Björn Líndal, deildarstjóri,
'esió af
meginþorra
þjóóarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er2