Morgunblaðið - 13.04.1985, Side 53

Morgunblaðið - 13.04.1985, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRfL 1985 ■■ Grein: ÁRNIJOHNSEN -- 53 Nordlensk SAFARI SAFARI SAFARI SAFARI SAFARI SAFARI SAFARI ÓKEYPIS ÁNÆGJUSTUND «BB - _ _ , Frítt inn til kl. 01.00 Aldurstakmark 18 ara Húsiö opnað kl. 10—03 Sími11559 SAFARÍ SAFARÍ SAFARÍ SAFARÍ SAFARÍ SAFARÍ SAFARÍ Ólafur, Agúst og Helgi. leið og Óli grípur andann á lofti: „Sjáið alla unglingapoppþætt- ina, allt útlent, undirlægjuhátt- ur gagnvart útlendingum." „Þetta leiðir hvað af öðru,“ heldur Helgi áfram. „Það þarf að koma til hvatning." „Sjáið Messoforte," skýtur óli inn í. „Þeir gáfust aldrei upp en slógu svo í gegn á heimsmarkaði, en þeir eru líklega búnir með kvótann í íslenska sjónvarpinu, því það eina sem hefur lengi sést til þeirra þar er sjónvarpsþáttur sem fékkst gefins erlendis frá. Nei, íslenska skemmtiefnið er best.“ Menn verða að þora að taka áhættu „Það vantar það eðlilega," seg- ir Helgi, „og til þess að það verði frambærilegt í útvarpi og sjón- varpi verða menn að þora að taka einhverja áhættu, þora að láta reyna á margt sem mun ekki standast fullkomlega ströngustu kröfur, a.m.k. ekki fyrst í stað.“ „Það virðast allir vera að miða við Skon-rokk-myndböndin,“ segir Ágúst. „En við eigum alls ekki að vera að keppa við þessar erlendu spólur sem kosta offjár enda framleiddar af milljónafyr- irtækjum og iðulega er bak- grunnurinn gerður að aðaiatriði, sviðsmyndin látin fylla yfir- þyrmandi upp í miðlungs efni og svo eiga menn að gapa af undrun og aðdáun. Við tókum oft upp lifandi tónlist beint með þjóð- lagahópum og það tókst ágæt- lega.“ „Við myndum treysta okkur til að vera með fullan þátt einu sinni í viku, svo mikið efni er til á íslandi, venjulegt gott íslenskt efni, sem kemur úr okkar eigin jarðvegi," segir óli og Helgi tek- ur undir það: „Við í Ríó erum til dæmis dæmigert venjulegt efni. Við fengum tækifæri til þess að æfa saman þrir i skóla. Það kost- aði mikla æfingu og við fengum góð tækifæri, vorum meðal ann- ars heilmikið í sjónvarpi og við finnum sjálfir hve fólk hefur gaman af þessu, en ef enginn hefði opnað dyr fyrir okkur hefð- um við ugglaust fjarað út án þess að hafa nokkurn tíma náð fullum straum. Það er mjög slæmt ef aðrir fá ekki sama tækifæri. Við erum engir stór- brotnir listamenn, erum einfald- lega á sömu bylgjulengd og venjulegt fólk.“ „Við lifðum fyrir þetta. Okkur fannst við vera að skapa eitt- hvað, nutum þess að vera til, syngja og spila og taka þátt í gleðinni sem við höfðum af því ásamt öðrum,“ sagði Óli. „Okkur datt ekki í hug að við fengjum þessa aðsókn í Broad- way eins og raun ber vitni,“ hélt Ágúst áfram. „Reiknuðum ekki með svona skemmtanalegri örvæntingu,“ bætti Helgi við. „Það er svo skemmtilegt hvað Eldridansaklúbburinn ELDING Oansaö í Félagshelmili' Hreyfils í kvöld kl. 9-2 Hljómsveit Jóns Sigurðssonar og söngkonan Krlstbjörg Löve Aögöngumiðar i síma 685520 eftirkl. 18. Vorfagnaður Eldridansaklúbbsina Eld- ingar verður { Hreyfilshúsinu 20. aprfl. Miöasala hetst 13. aprfl kl. 21.00 á ima staö. Stjórnin. MorgunblaðiÖ/Fridþjófur Helgason aldur gestanna í Broadway spannar vítt svið. Þarna er ungt fólk sem var 5 ára þegar við vor- um að byrja í þjóðlagastússinu, og þeir elstu sem mæta á svæðið eru upp í áttrætt. Ein sjötíu og fimm ára hélt upp á afmælið sitt um daginn. Ef þetta er ekki þverskurður af þjóðfélaginu sem mætir þarna, þá er ég illa svik- inn,“ sagði ÓÍi. „Líklega ættum við að taka upp sunnudagssýningar fyrir yngsta fólkið,“ hélt Helgi áfram. „Það ætti að vera óhætt að gera útúrdúra úr því að skrekkurinn er farinn, hann var svakalegur fyrst." »Ég var svo hræddur um að muna ekki textana," sagði óli. „Nú erum við að undirbúa plötu í haust,“ hélt Ágúst áfram, „með nýju efni í léttum dúr og það er haustið sem við stílum upp á.“ Krakkar hættir að bölva á íslensku „Ég kemst ekki frá áhyggjun- um af unga fólkinu og menning- unni,“ hélt Helgi áfram. „Af hverju ekki að hafa það árvisst þegar losnar um tíma eftir skól- ana á vorin að grípa það besta úr skemmtiefni hvers skóla fyrir sig. Það verður að gera eitthvað í þessu, láta ekki bara mata okkur, láta ekki unglinga alast upp án þess að það sé sungið og leikið fyrir þá beint, augliti til auglitis, hávaðalaust, en lag- visst. Þetta er ægileg þróun. Það er svo mikið til og mikið hægt að gera.“ „Krakkar eru hættir að bölva á íslensku," segir óli. „Nú heyrir maður krakka segja hiklaust fuck og shit og svo framvegis, en það er nú farið að fjúka í flest skjól þegar krakkar kunna ekki að bölva á íslensku. Við megum ekki sitja auðum höndum þegar svo er komið, verðum að horfast í augu við raunveruleikann og snúa vörn í sókn.“ — á.j. Stanslaust Ijör Hljómsveitin Metal leikur af sinni alkunnu snilld frá kl. 10—03 í kvöld. Mundu aö koma snemma í kvöld (seinast beiöstu alltof lengi í biörööinni). kópurinn é £•£ ! Kriin: J ^að verður mikil i > J stemmning hj* nJraar' ! kvöld er Rdw °kkur / Jjw I Cís'»» úmn,,h?rim °PÍð íri kl. 18—03. ss

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.