Morgunblaðið - 13.04.1985, Qupperneq 58
Wi e§?f 61 ílU0AtW/.0''‘M/JIO'AjaH’JWKH
58 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
BréfriUri furðar sig á því að árekstrarhætU geti skapast í nánd við Keflavíkurflugvöll þar sem hann sé með
fáfornustu millilandaflugvöllum í heimi.
Ast er...
.... að gæta þess
að hún verði ekki
of lenyi í sólbaði.
Ég skil ekki þetU Ul um mismun Gvöð hvað ég varð hrædd. Hélt
milli kynjanna. Eru þær gömlu það væri ’ann Siggi!
ekki álflca margar og þær yngri?
HÖGNI HREKKVlSI
/, PÁPl þiNN VIXÐlGT K4FA HITT<SA/WlAN \JlH'"
Af hinu og þessu
M.G. skrifar:
1. Hvernig stendur á því að
árekstrarhætta skapast í lofti í
nánd við Keflavíkurflugvöll sem
þó er með fáförnustu millilanda-
flugvöllum í heimi? Hvers mætti
þá vænta á fjölförnum flugvöllum
þar sem flugvélar fara á loft með
fárra mínútna millibili?
2. Hvernig stendur á því að þétt-
býlið í Mosfellssveit heitir ekki
neitt? Eru ekki neinir tilburðir í
þá átt að gefa því nafn?
3. Hvernig stendur á því að þétt-
býlinu á Kjalarnesi hefur verið
valið jafnfráleitt nafn og Esju-
grund? Er ekki nóg komið af
Grundarnöfnunum? Væri ekki
betra að velja þéttbýlinu þarna
nafn eins og Bergvík?
4. Hvernig stendur á því að Morg-
unblaðið sést lítt eða ekki á a.m.k.
sumum sjúkrahúsum borgarinn-
ar? Já hvernig stendur á því?
Dálítil ferðasaga
Fimmtudagurinn 7. mars rann
upp, veðrið eins og best verður á
kosið á þessum árstíma.
Bréfritara hlýnaði um hjarta-
rætur, er hann hugsaði til
ánægjulegrar ferðar þennan dag
með Flugfélagi Norðurlands til
Akureyrar og áfram til Reykja-
víkur með Flugleiðum.
Það er í rauninni ekkert spaug
aö skreppa til höfuðborgarinnar
frá Þórshöfn, þú kemst þetta jú,
á einum degi ef þú ert heppinn
og upphæðin sem þú greiðir fyrir
flugferðina, kr. 5.726,00 verður
naumast hrist fram úr erminni.
En hvað um það. Áætlun til
Þórshafnar stóðst reyndar, lend-
ing kl. 16.30. Falleg flugvél hvít
að lit renndi sér upp að því, sem
við á hjaranum köllum flugskýli.
Mér brá í brún ... aðeins einn
flugmaður, guð minn góður ...
og nú rifjast upp fyrir mér alls-
kyns sögur um flugmenn að
störfum upp í háloftunum, sem
fengu slag eða matareitrun þeg-
ar síst skyldi ...
Eg setti í mig kjark og hrakti
burt allar svartsýnishugsanir og
gekk um borð. Til Vopnafjarð-
ar???? og ég sem ætlaði til
Reykjavíkur.
Eftir um tveggja mfn. flug
segir flugmaðurinn okkur að bú-
ið sé að loka flugvellinum á Ak-
ureyri vegna óveðurs, og að við
megum búast við óróleika í lofti
til Vopnafjarðar.
Allt fór þetta samt vel og við
lentum heilu og höldnu á Vopna-
firði. Okkur er sagt að sennilega
yrðum við að bíða af okkur
óveðrið sem var um það bil að
skella á, og í besta falli yrði farið
í loftið seint í kvöld, ef ekki þá
snemma morguninn eftir.
Nú ... Þá var bara um að gera
að komast yfir eitthvert lesefni
til að drepa tímann, meðan beðið
var en að sjálfsögðu bjuggumst
við við því að flugfélagið sæi um
okkur farþegana á meðan beðið
yrði.
Ónei ... á okkur var naumast
yrt eftir lendinguna. Ég var svo
heppin að eiga mömmu sem bú-
sett er á Vopnafirði, og er ég var
orðin úrkula vonar um að starfs-
menn Flugfélags Norðurlands
ætluðu að skipta sér af mér, fékk
ég leyfi til að hringja í móður
mína, sem sendi bíl eftir mér á
flugvöllinn ... sem sagt, hér var
búið að planta mér niður á
Vopnafirði og hér varð ég að
gera svo vel og sjá um mig sjálf.
Auðvitað hamlaði veður flugi,
en ef Flugfélagið fór með okkur
til Vopnafjarðar í staðinn fyrir
að snúa bara við, þegar ófært
var orðið á Akureyri, og lenda á
Þórshöfn, sem hefði verið hægð-
arleikur, á þá ekki Flugfélagið
að sjá um sína farþega?
Á ég sem kaupi farmiða til
Reykjavíkur en lendi austur á
Vopnafirði, að bera þann kostn-
að sem óhjákvæmilega verður af
því að dvelja á stað sem ekki er
fyrirhugað að fara til, svo sem
kostnað af mat og gistingu?
Nú sækja að mér allskyns ljót-
ar hugsanir, eins og til dæmis
... ef Flugfélag Norðurlands
hefði verið að flytja, ja, hænsni,
refi eða eitthvað álíka, hefðu þá
ekki starfsmenn séð um aö koma
þessum skepnum í hús, séð um
að þær fengju mat og svo fram-
vegis ...
Það sem einkennir okkur
landsbyggðarfólk, auk annarra
góðra eiginleika, er þolinmæði
og aftur þolinmæði, við látum
bjóða okkur upp á svo ótrúlega
hluti að það gengur gráti næst ...
En áfram með ferðasöguna.
Kl. 9 næsta morgun var veður
orðið sæmilegt og haldið til
Akureyrar. Þar var allt á fullu
þar sem allt flug hafði fallið
niður seinnipart fimmtudags,
sakir óveðurs.
Nú bjóst ég við að fá fyrstu vél
suður, þar sem ég átti sæti í flug
kl. 20.00 á fimmtudagskvöld.
Ónei, vinan, það er möguleiki að
þú komist í þriðja flug, en bíðum
við, sennilega hefur afgreiðslu-
maðurinn orðið hissa við að sjá
farþega frá Þórshöfn á þessum
tíma sólarhrings, því nú var eins
og rofaði til í höfði hans, já. búin
að vera 18 tima á leiðinni, jú, ég
reyni að koma þér í annað flug
til Reykjavíkur, sem og varð.
Auðvitað þurfti ég að komast
heim, jú, mánudagurinn valinn í
það. Flug frá Reykjavík kl. 10.30,
lent á Akureyri kl. 11.15, í bæ-
inn, pantað flug til Þórshafnar,
mæta á áætlun kl. 15.30.
Ég gaf að sjálfsögðu upp sím-
ann sem ég yrði í á Akureyri
þennan tíma. Kl. rúmlega 13.00
var hringt frá Flugfélagi Norð-
urlands og sagt að búið væri að
flýta flugi til Þórshafnar og ég
eigi að koma innan hálftíma. Og
ég sem hafði farið frá Reykjavík
svona snemma til að geta notað
tímann á Akureyri til útrétt
inga ...
Veðrið var fremur slæmt, og
ég hafði ekki fylgst með veður-
fréttum þennan dag, svo að
kannski versnaði veður þegar
liði á daginn, og ekkert yrði þá
úr flugi austur. Nema hvað,
landsbyggðarmanneskjan lét
bjóða sér að missa af tveimur
tímum, sem hefðu nýst mér við
ýmis erindi á Akureyri, til að
Flugfélag Norðurlands geti haft
sína hentisemi á þjónustu sinni
við smástaðina á norðaustur-
horninu.
Flogið frá Akureyri í versta
veðri, slydduhríð og nánast
hvassviðri, og nú hófst gamanið
fyrir alvöru, reyndar voru nú
tveir flugmenn um borð, svo mér
leið ofurlítið betur, þó er ekki
hughreystandi hvað þá þægilegt
að koma i flugvél sem er svo
hlaðin farangri, frakt og pósti í
farþegarýminu að farþegarnir
eru, að manni virðist, aukaatriði.
Ég vil minna á að flugfar
Þórshöfn-Akureyri-Þórshöfn
kostar kr. 3.300,00.
Annar flugmaðurinn býður
okkur velkomin um borð og segir
eftirfarandi:
Áætlað flug tíl Kópaskers er
25 mín., þaðan er áætlaður flug-
tími til Raufarhafnar 10 mín. og
þaðan til Þórshafnar 10 mín.
Guð minn góður, og ég sem
keypti mér farseðil sem átti að
koma mér Þórshöfn-Reykjavík-
Þórshöfn.
Það skal tekið fram að veður á
Norður- og Austurlandi fór
batnandi er leið á daginn.
Jóna Þorsteinsdóttir
Langanesvegi 24,
l>órshöfn.