Morgunblaðið - 13.04.1985, Qupperneq 64
D1T NORT AUS SHAAR
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Sjómannadeilan
á Vestfjörðum:
Verkfall
boðað á
Bíldudal
og Þingeyri
SÁTTAFTJNDUR hefur verid boðaö-
ur í mánudag í kjaradeilu sjómanna
og útvegsmanna á ísafirði. í fram-
haldi af þvi verður síðan tekin
ákvörðun um hvort boðað verði til
fundar með Alþýðusambandi Vest-
fjarða.
Tvö verkalýðsfélög til viðbótar
hafa nú boðaða verkfall hjá sjó-
mannadeildum sínum. Verkalýðs-
félagið Brynja á Þingeyri hefur
boðað verkfall frá og með 17.
þessa mánaðar og Vörn á Bíldudal
frá og með 20. apríl. Engir sátta-
fundir hafa verið boðaðir hjá
deiluaðiljum á þessum stöðum, en
ákvörðun um fundi verður líklega
ekki tekin fyrr en eftir helgi.
Rauða fjöðrin fest í barm
Sala „rauðu fjaðrarinnar“ er nú í fullum gangi og ef marka má fjölda þeirra sem skarta fjöður í barmi þessa
dagana hefur salan gengið vel. Á myndinni sjáum við einn Lions-félaganna, Pétur Ólafsson, festa fjöður í barm
Ásdísar Sigurðardóttur.
Þorskstofninn 100.000 lestum stærri en áætlað var:
Gefur lítið tilefni til
breytinga á kvóta
— segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
FISKIFRÆÐINGAR hafa nú kom
izt að þeirri niðurstöðu að bæði
heildarstofn þorskins og hrygningar-
stofn séu um 100.000 lestum stærri
en áður var talið. Stafi það fyrst og
fremst af bættum vaxtarskilyrðum í
sjónum, auknum vaxtarhraða og
hraðari kynþroska. Þrátt fyrir það
leggja þeir ekki til aukningu á
þorskkvóta þessa árs. Halldór Ás-
grímsson, sjávarútvegsráðherra, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið, að
þessar upplýsingar gefi lítið tilefni til
breytinga á kvótanum, en staöfesti
að rétt hafi verið að fískveiðistefn-
unni staðið.
„Það, sem var mikillvægast í
þessum upplýsingum,“ sagði Hall-
dór, „var það að þorskstofninn er
heldur stærri en gert var ráð fyrir
í upphafi þessa árs og munar það
um 100.000 lestum og er því nú um
1.070.000 lestir. Þá var gert ráð
fyrir því, að hrygningarstofninn
væri 260.000 lestir, en er áætlaður
nú um 350.000 lestir. Ástæðurnar
fyrir stærri hrygningarstofni eru
fyrst og fremst þær, að nú er
meira af 5 og 6 ára þorski og
meira af kynþroska fiski en áður.
Áður hafði verið gert ráð fyrir því,
að 15% af 5 ára fiski væru orðin
kynþroska en nú 25%. Þetta er
fyrst og fremst að þakka betri
vaxtarskilyrðum í sjónum. Allar
þessar upplýsingar sýna okkur
það, að mikilvægast er, að þeir
árgangar, sem nú eru að vaxa upp,
1983, 1984 og vonandi 1985, gætu
orðið allsterkir og skipt sköpum í
því, hvort við náum þorskstofnin-
um upp í æskilega stærð, um 1,5
milljónir lesta.
Við munum fara betur ofan í
þessar upplýsingar um helgina.
Okkur ber að ákveða það fyrir 15.
apríl hvort um aukningu verður að
ræða. Ég tel þessar upplýsingar
staðfesta að ákvarðanir hafi verið
réttar en gefi ’..tið tilefni til breyt-
inga á kvótanum. Þá er það alvar-
legt hve mikill samdráttur hefur
orðið á veiðum á öðrum botnlæg-
um tegundum á þessu ári. Við út-
hlutuðum 250.000 lestum af þorski
á þessu ári og gerum ráð fyrir því,
að um 15.000 lestum verði skipt úr
öðrum tegundum yfir í þorsk og
einnig gerum við ráð fyrir því að
til viðbótar komi 15.000 lestir
vegna sóknarmarks. Því má ætla
að heildaraflinn verði 280.000 lest-
ir miðað við gefnar heimildir. Sá
afli mun hvorki ganga á hrygn-
ingarstofninn né heildarstofninn
svo nokkru nemi. Á hinn bóginn
má benda á það, að afli vertíðar-
báta hefur verið meiri nú en í
fyrra og það þýðir að nú eru færri
fiskar í 280.000 lestum en í fyrra,
þar sem bátarnir eru venjulega
með stærri fisk en togararnir,"
sagði Halldór Ásgrímsson.
Hélt hann ætlaði
að ganga frá mér
— segir Bárður Ólsen sem varð fyrir árás tveggja vopnaðra pilta
„ÉG ER viss um, að hann hefði veitt mér meiri áverka með hnífnum, hefði
ég ekki náð að taka hann af honum. Mér virtist hann hreinlega ætla að
ganga frá mér. Hann var drukkinn ásamt félaga sínum og þeir til alls vísir.
Það er hastariegt til þess að vita, að maður skuli ekki vera óhultur á leið
sinm heim frá vinnu, jafnvel þó að það sé að nóttu til.“ sagði Bárður Ólsen.
j dyravörður, í samtali við Morgunblaðið. en í fyrrinótt varð hani< fyrir
tólskulegr árás tveggja pilta, sem voru vopnaðir hnffi
Bárðui' sagð' tildrög árásarinr.
' ar hau’, veriii þeu, að hann hefði
ásamt.-tveimm1 stúlkum verið að
! koma tri\ vinm. sinnt á veitinga-
' staðnun: Pubbinn við HverfÍ9götu
í ,f leiö ini' : bfí sinn við staðinn.
Piltana hefði þá borio aö og annar
hefði ætlaö aö troðt: sér inn í bll-
inn. Hann hefði þá fariö úí ýtt
honuir frá, en hanr. þá ráðisÉ á
sig. Þá hefði hinn tekiö upp hníf
og önirur stúlkan. varaö sig við.
„Ég snéri mér þá að þeim með
hnífinn og reyndi hann að stinga
mig og náði að skera mig fyrir
neðan hálsinn og á bringunni.
Mér tókst að ná um hendina á
honum. en rann til þannig að ég
skar mig talsvert í lófann. Loks
náði ég hnífnum a* honum komsv
inn bílinti og keyrði beinf upp ;i
slysavarðstofu,' sagði Bárðuv ól-
seii. - *
Máí þetta var kært ti! rann-
sóknariögregiunnar en til piit-
anna hafði ekkt náðst í gærkvöldi.
Bárður Ólseil Morgunbl»ðiö/Júllu;
Bjórfrumvarpið
komið úr nefnd:
Fimm
með
tveir á
móti
Málið væntanlega á
dagskrá í næstu viku
Allsherjarnefnd neðri deildar
Alþingis afgreiddi bjórfrumvarpið
frá sér á fundi í gærmorgun. Fram
komu tvö álit, — meirihlutaálit
sem fímm nefndarmanna stóðu að,
og voru þeir meðmæltir frumvarp-
inu, en dr. Gunnar G. Schram, for-
maður nefndarinnar, undirritaði
þó álit meirihlutans með fyrirvara.
Tveir nefndarmanna stóðu að
minnihlutaálitinu. Frumvarpið ger-
ir ráð fyrir að heimiluð sé bruggun
og sala áfengs öls, allt að 5% að
styrkleika.
Formaður nefndarinnar, dr.
Gunnar G. Schram, flutti tillögu
í nefndinni, sem ekki hlaut
stuðning, en hún var þess eínis
að nefndin vísaði frumvarpinu
til hinnar stjórnskipuðu nefndar
um mörkun opinberrar stefnu í
áfengismálum og óskaði eftir
álitsgerð hennar um efni frum-
varpsins. Lagði Gunnar til að
slík álitsgerð kæmi fyrir þingið í
haust, en hún hlaut, eins og áður
segir ekki stuðning nefndar-
manna.
Þeir sem standa að áliti meiri-
hlutans eru Pálmi Jónsson,
Sjálfstæðisflokki, sem er fram-
sögumaður meirihlutans, Gunn-
ar G. Schram, Sjálfstæðisflokki
(með fyrirvara vegna málsmeð-
ferðar), Stefán Guðmundsson,
Framsóknarflokki, Guðrún
Helgadóttir, Alþýðubandalagi og
Guðmundur Einarsson, Banda-
lagi jafnaðarmanna. Minnihlut-
ann skipa þeir ólafur Þ. Þórð-
arson, Framsóknarflokki, sem
hefur framsögu fyrir minnihlut-
ann og Friðjón Þórðarson,
Sjálfstæðisflokki.
Nefndaráliti verður skilað inn
strax eftir helgi, og má því búast
við að málið verði tekið á
dagskrá um miðja næstu viku.
Taka Samvinnu-
ferðir við
Hótel Húsavík?
Að undanförnu hafa staðið yfír
viðræður milli Ferðaskrifstofunnar
Samvinnuferða/Landsýnar og
stjórnar Hótels Húsavíkur um
leigu ferðaskrifstofunnar á hótel-
inu í V/2 ár.
Samvinnuferðir/Landsýn hafa
sett, fram tilboð um leigu a hót-
elinu frá 1. júni næstkomandi,
en til þessa hefur enn ekki verið
tekin afstaða. Verðui þao vænt-
anlega gert s næstu víku.
Húsavíkurkaupstaður ti um
70% hlutafjár i hótelinu.