Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 6

Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 6
0 R MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1986 l National Portrait Gallery gefur einnig aö llta Ijósmyndasýninguna „The Sporting Thirties" á 100 íþróttamyndum frá 1930—40, fram til 19. maí. Önnur sýning á safninu nefnist „Charlie Chaplin in Close Up“, um lif og starf leikarans i Ijósmyndum og á myndböndum. Svipmyndir af tökum á Snæfellsnesi Kvikmyndatökur voru í fullum gangi á Snæfellsnesinu er viö brugöum okkur þangaö ekki alls fyrir löngu. Þar var samankominn þrettán manna hópur, sem jöfnum höndum rökræddi málin á þýsku, íslensku og ensku, enda var rætt um þýsk/ís- lensku kvikmyndina sem ber vinnuheitiö „SOS“, svokölluö „roadmovie" eftir handriti Þjóöverjans Lutz Konermann, sem jafnframt ieikstýrir nú í annaö sinn kvikmynd í fullri lengd. Sú fyrri var „Auf der Mauer", sem hann hlaut Bundespreise kvikmyndaverölaunin þýsku fyrir. Konermann leikur enfremur eitt af stærstu hlutverk- unum í „SOS“.Leikararnir á Snæfellsnesinu voru þó alfariö íslenskir, meölimir leikhópsins Svart og syk- urlaust, sem á næstu dögum leggur land undir fót og leggur til italíu, þar sem stærstur hluti myndarinnar veröur tekin. Þaö er einmitt um íslenskan leikhóp sem myndin fjallar m.a„ leikhóp sem hálfpartinn gefst upp á aö fóta sig á fööurlandinu og ákveöur aö freista gæf- unnar meö íslenskt leikrit á erlendri grundu. Leggur upp í ítalíuferð meö Sikiley sem endastaö. Þangaö kemst hann fyrir rest og má segja aö votti fyrir dulrænum blæ í upphafi og enda söguþráöarins, þar sem Snæfellsjökull er annars vegar og eldfjalliö Etna hins vegar. Hvaö þaö síöan er sem gerist á milli þessara tveggja jaröbundnu punkta í tilveru hópsins kemur væntanl- ega í Ijós í lok þessa árs, en ráögert er aö frumsýna myndina um næstu jól. — VE „Vissulega mun sólin aldrei setjast yfir hinu forna heimsveldi“ á vel viö sýninguna „Gordon frá Kartúm 1833—85“. Sýningin er í tilefni þess aö 100 ár eru frá dauða Charles Gordons, hetju breska heimsveldisins. Meöal sýningargripa er mandarín-búningur sem keisaraynja Kínaveldis gaf honum. Sýningin stendur til 9. júnl. NATIONAL PORTRAIT GALLERY National Gallery — fágætt tækifæri til aö sjá myndir eftir Titien, Rem- brandt, Poussin, Delacroix og El Greco á sýningu frá Ríkislistasafninu I Dyflinni, sem stendur til 27. maí. GALERIE SAMIA SAOUMA — þar eru sýndar Ijósmyndir Davids Seidner, eins eftirsóttasta tfsku- Ijósmyndara Bandaríkjanna og sér- staks Ijósmyndara Yves Saint Laur- ent. Hann vinnur einnig mikiö fyrir ítalska, þýska og bandaríska Vogue. Sýningin stendur til 18. mal. Einn af merkustu stórviðburöum I menn- ingarlífi Parisar kostaöi 15 milljónir franka - opnun La Biennale de París. Húsrými er 20.000 fermetrar og salarkynin glæsileg. Opnunarsýning stendur þar yfir fram tH 21. maí, en á henni eru sýndar velflestar listgreinar, m.a.: Popplist (Erró, Golub, Rosenquist), ítalskur trans-avant garde (Chia, Clem- ente), þýskur neo-expressionismi (Basel- itz, Kiefer, Lúperts, Jiri), frjáls listsköpun og skilvitleg list, „l'art povera (Poirier, Buren). Alls eru listamennirnir sem sýna um 150. i einni deildinni gefur aö llta byggingarlist, Ijós- og kvikmyndir af um 20 byggingum frá ýmsum timum, m.a. flugvellinum I Jidda (Skidmore, Owings, Merill), neðanjarðarbrautarstöð I Brússel (Kroll), banka I Hong Kong (Foster) o.fl. Þá er efnt til dans-, rokk- og óperusýn- inga samhliöa opnunarsýningunni og á kvöldum hennar flytur Luciano Berio I umrituöum búningi tónlistina viö „Orfeus 2“. Sem fyrr segir veröur opnunarsýningin opin til 21. maí I La Grande Halle de la Villette. Ein af Ijósmyndum David* Seidner MUSÉE DE L’HOLOGRAPHIE Sýning á heilmyndum, upphleyptum myndum, kvikmyndum og öörum verkum sem gerö eru meö svokall- aðri „heilmyndatækni". Viöfangs- efnið er ýmsir þekktir samtlöar- menn, m.a. Paul Bocuse, David Bowie, Jacques Chirac, Salvador Dali o.fl. Sýningin stendur til 23. júnl. GALERIE DE NESLE Þar eru sýnd ýmis pyntingartæki á sýningu sem Amnesty International stendur fyrir ásamt samtökum krist- inna. Meðal sýningargripa er kvala- bekkur, pyntingarhjól, gaddakista, hauskúpuklemmur og hálsjárn og fleira, en samtökin vilja meö sýning- unni vekja fólk til umhugsunar um þann hrylling sem ennþá viðgengst víöa um heim. Sýningin stendur til 30. júlí, opin alla daga frá kl. 10.00—22.00. Morgunfundur afstaöinn og allt gert klárt í tökur. F.v. leikararnir Edda Heiörún Backman, Kolbrún Halldórsdóttir, Guðjón Ketilsson, Þröatur Guðbjartsson og Hilmar Oddsson, aðstoðarhljóðmaður. SOS:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.