Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 14

Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 14
14 B MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1985 HVAD ERAD GERAST UM Draumur á Jóns- messunótt Leikritið verður sýnt á laugar- dagskvöldiö og hefst klukkan 20.30. Verkið fjallar um elskendur sem meinað er að eignast, en ýmislegt getur jú gerst þegar álfar og aðrar kynjaverur skerast I leikinn og þaö á sjálfri Jónsmessunótt. Sýningin er gerð í samvinnu Leik- félagsins og Nemendaleikhúss Leik- listarskóla íslands. Leikstjóri er Stef- án Baldursson, en Grétar Reynisson gerði leikmynd. Þjóöleikhúsiö: Kardemommu- bærínn A laugardag og á sunnudaginn verður Kardemommubærinn eftir Thorbjörn Egner sýndur, og hefjast sýningar klukkan 14.00 báða dag- ana. Gæjar og píur Sýningum fer nú fækkandi á þessum söngleik eftir Frank Loesser, Jo Swerling og Abe Burrows I leik- stjórn Kenns Oldfield og Benedikts Arnasonar. Næsta sýning verður annað kvöld. Valborg og bekkurínn Nýjasta sýning Þjóðleikhússins á litla sviöinu er danska leikritiö „Val- borg og bekkurinn" eftir Finn Methl ing. I hlutverkunum eru Guðrún Þ. Stephensen og Karl Agúst Úlfsson. Sýning á þvl verður á sunnudags- kvðldið klukkan 20.30. íslandsklukkan islandsklukkan eftir Halldór Lax- ness veröur sýnd I kvðld. Leikstjóri er Sveinn Einarsson, Jón Nordal samdi tónlistina, leik- mynd og búningar eru eftir Sigurjón Jóhannsson og Arni J. Baldvinsson sér um lýsingu. Með helstu hlutverk fara Helgi Skúlason, Þorsteinn Gunnarsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Sigurður Sigur- jónsson, Arnar Jónsson, Harald G. Haralds og Róbert Arnfinnsson auk fjölda annarra. Dafnis og Klói Ballett Nönnu Ólafsdóttur verður sýndur á sunnudagskvöldiö og eru þá aðeins eftir tvær sýningar á þessu verki. í aðalhlutverkunum eru Einar Sveinn Þórðarson, Helena Jó- hannsdóttir og Katrfn HalL Leikfélag Akureyrar: EdithPiaf Söngleikurinn Edith Piaf veröur sýndur I kvöld, annað kvöld og á sunnudagskvöldiö klukkan 20.30 I samkomuhúsi Akureyrar. Söngleikurinn fjallar um llf og listir söngkonunnar Edith Piaf. Með aðal- hlutverk fer Edda Þórarinsdóttir en leikstjóri er Sigurður Pálsson. „Kötturinn sem fer sínar eigin leidir“ Leikfélag Akureyrar frumsýndi um sfðustu helgi nýtt leikrit eftir Ölaf Hauk Slmonarson. Leikurinn byggir á þekktri smásögu eftir Kipling og heitir „Kötturinn sem fer sfnar eigin leiðir". i% J BROADWAY Græna lyftan Revíuleikhúsið sýnir gamanleikinn Grænu lyftuna í veit- ingahúsinu Broadway ó sunnudagskvöldið klukkan 20.30. Leikstjóri er Þórir Steingrímsson en leikarar eru Magnús Ólafsson, Steinunn Jóhannesdóttir, Lilja Þórisdóttir, Bjarni Ingvarsson, Evert Ingólfsson, Elfa Gísladóttir og Eyþór Arr son. \rna- Mörg sönglög eru I leiknum sem Ólafur Haukur hefur einnig samið, en útsetningar og hljóöfæraleik ann- aðist Gunnar Þóröarson. Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir. Messfana Tómasdóttir hannaði bæði búninga og leikmynd, lýsingu annaðist Alfreð Alfreðsson og hljóö Pálmi Guð- mundsson. Leikurinn gerist í frumskógi og helli. Þar eru allir villtir I byrjun: Kött- urinn (Theodór Júlfusson), hundur inn (Marinó Þorsteinsson), hesturi i (Pétur Eggertz), kýrin (Sunna Boray og maðurinn (Þráinn Karlsson). Þá kemur konan til sögunnar (Þórey Aðalsteinsdóttir) og af kynn- um hennar og mannsins verður aö sjálfsögðu barnið til (Rósberg Snæ- dal). Konan er lævls eins og köttur- inn og tekst með lagni að temja hina: Siðvæðingin hefst, en kötturinn fer jafnan sínar eigin leiðir. Gervi dýranna eru mannleg á ýktan hátt og þau eiga öll sínar fyrirmyndir I mannheimum. Leikritiö verður sýnt á sunnudag- inn klukkan 15.00. MYNDLIST Listasafn íslands: Mátverkasýning Fyrir nokkru opnaði I Listasafni Islands yfirlitssýning á verkum Jó- hannesar Jóhannessonar listmálara. Jóhannes lauk sveinsprófi f guK- og silfursmíði frá Iðnskólanum I Reykjavík 1945 og hélt þá utan til Bandaríkjanna til náms f myndlist við Barnes Foundation I Pennsylvanlu og var þar 1945—6. Hann stundaöi einnig listnám á Italfu við Accademia di Belle Arti ( Flórens árið 1949 og dvaldist slöan f París til 1951. Jóhannes hélt sfna fyrstu sérsýn- ingu I Listamannaskálanum 1946 og hefur slðan haldið margar sérsýn- ingar og tekið þátt I fjölda samsýn- inga bæði á íslandi og erlendis. Hann hefur undanfarið helgað sig málaralistinni jafnframt þvl sem hann hefur starfað við Listasafn Islands. A sýningunni eru 134 verk. Af þeim eru 118 verk unnin I olíu, gvass, collage og vatnsliti auk 16 gull- og silfurgripa. Elsta verkið á sýningunni er frá 1938, er Jóhannes var 17 ára en það yngsta er frá þessu ári. Þessari sýningu er einkum ætlaö að sýna þróun Jóhannesar sem listmálara. Sýningin stendur til 19. mal og verður hún fyrst um sinn opin daglega frá klukkan 13.30 til 22.00 en eftir það frá klukkan 13.30 til 16.00 á virkum dögum en klukkan 13.30 til 22.00 um helgar. Ásmundarsafn: Lokað fram í maí Asmundarsafn verður lokaö fram I mal vegna framkvæmda við safna- húsin. Ný sýning verður opnuð I lok maí og mun hún bera yfirskriftina „Konan f list Asmundar Sveinsson- ar“. Safnahús og högg- myndagarður Safnahús Listasafns Einars Jónssonar er opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13.30—16 og höggmyndagarðurinn, sem f eru 24 eirafsteypur af verkum listamanns- ins, er opinn sömu daga frá kl. 11 — 17. Myndlistarskólinn í Reykjavík: Kynning á verkum nemenda Kynningarsýning á verkum nem- enda úr deildum skólans stendur nú yfir fram f maí. Kynningarnar eru opnar fyrir gesti á laugardögum frá klukkan 14—18. Norræna húsiö: Vatnslitamyndir Ekki alls fyrir löngu opnaði Torfi Jónsson sýningu á vatnslitamyndum í anddyri Norræna hússins. Torfi hef- ur haldið eina einkasýningu áöur og einnig tekið þátt I samsýningum I Hamborg, Osló og London. Sýningin er oþin daglega á sama tfma og Norræna húsið. Húsakynni MÍR: Sýning á svart- listarmyndum A morgun verður opnuö sýning f húsakynnum MÍR á svartlistarmynd- um og handunnum lakkmunum frá Rússlandi. A sýningunni eru 63 svartlistar- myndir eftir 20 rússneska listamenn öll unnin á slðustu árum. Flestar myndanna eru eftir Nikolaj L. Voron- kov, en hann kemur til íslands I til- efni sýningarinnar og opnar hana á morgun. A sýningunni eru 27 gripir, unnir með aðferðum hinnar hefð- bundnu lakkmunalistar. I LISTASAFN ASÍ I Málverka-I I sýning Á morgun opnar Tryggvi Ólafsson mól- I verkasýningu í Listasafni | ASÍ við Grensósveg. Á sýningunni eru um 50 I málverk og klippimyndir, | I sem unnar eru á síöast- liðnum tveimur árum. Tryggvi hefur veriö bú- settur undanfarín ár í Kaupmannahöfn. Síðasta einkasýning I Tryggva var hár á landi I voriö 1983, en á Listahá- I tíð sl. ár tók hann þátt í I samsýningunni „10 gest- | '*r ir á Listahátíð". Sýning Tryggva Ólafs- I sonar veröur opin til 27. I maí. Opnunartími virka .1 daga er frá kl. 14—20 og kl. 14—22 um helgar. Gallerí Langbrók: Vatnslitamyndir Fyrir nokkru opnaði Kristln Þor- kelsdóttir sýningu á vatnslitamynd- um f Gallerf Langbrók. Sýningin ber nafnið „Stillur" og á henni eru 29 myndir, flestar málaðar á sl. sumri. Kristín hefur mikiö unniö á sviði hagnýtrar myndlistar, en heldur nú slna fyrstu einkasýningu á sviði frjálsrar myndlistar. Sýningunni lýkur 5. mal. Háholt, Hafnarfirði: Málverkasýning Gunnár Asgeir Hjaltason opnaði málverksýningu I Háholti, Hafnar- firði, fyrir skömmu og stendur hún til 5. mal næstkomandi. A sýningunni eru 152 myndir og verður sýningin opin alla daga frá klukkan 14.00 til 22.00. ísafjörður Gallerí Sjunkaríki: Olíumálverk Nú stendur yfir sýning I Gallerl AUSTURBÆJARBÍÖ Tónmenntaskólinn með tónleika Á morgun klukkan 14.00 heldur Tónmenntaskóli Reykja- víkur tónleika í Austurbæjarbíói. Á tónleikunum koma einkum fram yngri nemendur akól- ans með einleiks- og samspilsatriöi á ýmis hljóöfæri. Þá verður einnig hópatriði úr forskóladeild.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.