Morgunblaðið - 18.05.1985, Page 1
110. tbl. 72. árg.
Norður-írland:
Sinn Fein
tekur sæti
Belfast, 17. maí. AP.
SINN FEIN, stjórnmálaarmur írska
lýdveldishersins (IRA), hlaut 59 sæti
af 566 í bsjarstjórnarkosningum,
sem fram fóru á Norður-írlandi í
gær. Hefur Sinn Fein þar með hlotið
nýtt hlutverk í stjórnmálum á N-ír-
landi og stjórnmálaskýrendur ætla
að samtökin muni leika spellvirkja
þegar því verður við komið. Hlaut
Sinn Fein sæti í 17 af 26 borgar-
stjórnum N-frlands.
Þegar 93% atkvæða höfðu verið
talin hafði Sambandsflokkurinn
hlotið 179 sæti eða 34% atkvæða
og Lýðræðislegi sambandsflokkur-
inn, flokkur Ians Paisley prests,
135 sæti eða 25,7% atkvæða.
Flokkur sósíaldemókrata (SDLP)
hlaut 101 sæti, Bandalagsflokkur-
inn 30 sæti, og aðrir smáflokkar 40
sæti.
Leiðtogar Sinn Fein hrósuðu
sigri í dag og sögðu sigurinn
stærri en þeir bjuggust við. And-
stæðingarnir lögðu lítinn trúnað á
það og sögðu Sinn Fein af ásettu
ráði hafa spáð sér færri sætum en
þeir hlutu til þess að kjósendur
þeirra létu sig ekki vanta í kjör-
klefana. Fulltrúar Sinn Fein
munu fylla sætin, sem flokkurinn
vann.
Yfirvöld í Dublin höfðu vonast
til að fylgi færi frá Sinn Fein til
SDLP vegna tilrauna til að koma á
stöðugleika á N-írlandi. Leiðtogar
Sinn Fein segjast ætla að gera
draumsýnir sinna manna að veru-
leika, en leiðtogar tveggja stórra
flokka mótmælenda hafa bundist
samtökum um að útiloka Sinn
Fein þar sem því verður við komið.
Mikil leynd
yfir hvarfi
flugvélar
Aeroflot
Tókýó, 17. maí. AP.
MIKIL leynd hvflir yfir ætluðu
hvarfl sovézkrar flugvélar undan
Síberíuströnd, milli sovézka megin-
landsins og Sakalíneyju, eftir flug-
tak í Vladivostock. Fylgst var með
flugi vélarinnar á ratsjám í herstöðv-
um í Japan er hún hvarf skyndilega
af skjánum á fímmtudagsmorgun.
Japanskir embættismenn voru
þögulir sem gröfin og sovézkir full-
trúar í Tókýó sömuleiðis. Skýringin
á leyndinni er m.a. sú að Japanir
vilja ekki gefa of miklar upplýs-
ingar þar eð Rússar kæmust þá að
hvernig Japanir eru í stakk búnir
að fylgjast með umferð í nágrenni
við sig. Vegna upplýsinga frá hlust-
unar- og ratsjárstöðvum Japana
neyddust Rússar ti) að viðurkenna
á sínum tíma aö þeir hefðu skotið
kóreska farþegaþotu niður með 269
manns ínnanborðs Sovézka flug-
vélin fórsi á svipuðuni slóðum.
Aðeins hefur veriö staðfest af
opinberri hálfu i Tókýó aö f lugvélin
hafi íarist. Var flugvélin frá sov-
ézka flugfélaginu Aeroflot.
STOFNAÐ 1913
64 SÍÐUR B OG LESBÓK
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1985 Prentsmiöja Morgunblaðsins
Fokker-flugvélin sem fórst á Grænlandsjökli:
Áhöfnin í flugvélinni
í tengslum við PLO
Kaupmannahöfn, 17. mii. Fri Nils Jörgen
DÖNSK BLÖÐ segja að allt bendi
til að samband hafí verið á milli
skæruliðahreyfíngar Palestínu-
manna og Fokker Fricndship-
flugvélarinnar, sem fórst á Græn-
landsjökli 20. aprfl sl. Flugvélin var
á leið frá Norður-Yemen til Nicar-
agua. Ferðalangarnir áðu í Reykja-
vík og fórst flugvélin á Grænlandi á
leið frá Reykjavík til Syðri-
Straumsfjarðar. Tveir af fímm, sem
Braun frétUriUra MorgunblaAsins.
um borð voru, létust.
Jyllandsposten segir í dag að
samkvæmt skjölum, sem fundust í
flugvélinni, hafi annar hinna
látnu verið hryðjuverkamaðurinn
Ahmed Khalid, sem átti samskipti
við PLO. Lögreglustjóri Græn-
lands, Niels Schmidt, varðist allra
frétta í samtali við Jyllandsposten
og Berlingske Tidende, en segir
málið i höndum rannsóknalög-
reglu. Talsmenn rannsóknalög-
reglunnar vilja aðeins segja að
málið sé „athyglisvert".
Ahmed Khalid var frá Jórdaníu
og var hann annar tveggja flug-
manna vélarinnar. Auk hans lézt
Filippseyjamaður, en auk þeirra
voru í áhöfninni Indverji, Banda-
ríkjamaður og ísraeli.
Blöðin tvö byggja frásögnina á
bandarískum heimildarmönnum.
Samkvæmt þeim fannst gífurleg
fjárupphæð í gjaldmiðlum ýmissa
ríkja í braki flugvélarinnar. Einn-
ig fannst þar slangur af vegabréf-
um, sem gefin voru út í Líbanon,
Jórdaníu og Norður-Yemen, ásamt
nafnskírteinum gefnum út í Pak-
istan og af PLO.
Fjárlagafrumvarp
demókrata samþykkt
Washington, 17.mai. AP.
FJÁRLAGANEFND fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings samþykkti í
dag fjárlagafrumvarp demókrata
fyrir næsta fjárhagsár með 21 at-
kvæði gegn 12.
Samkvæmt frumvarpmu
verða niðurstöðutölur fjárlaga
367,3 mill.iarðai dala. Hækkun
tryggingabotó, verður ekk< skert,
en geri er ráó fyrir verulegri
lækkun herútgjalda.
F.jarlagai'rumvarpiö kemur nu
til kasta fulltrúadeildarinnar.
Tilraunir til að tryggja sam-
komulag beggja flokka um
herútgjöld voru unnar fyrir gig.
Einn repúblíkani greiddi at-
kvæði meö fiárlagafrumvarpinu
auk 2(» demókrata
Samkvæmt frumvarpinu verð-
ur 230 milljarða dala halli a
fjárlögun' mmnkaðui un‘ 50
milljarða dala.
NiÖurskurður a útgjöldum til
innanlandsmála verður ekki eins
mikill og gert var ráð fyrir í öðru
fjárlagafrumvarpi, sem repú-
blikanar fengu samþykkt í öld-
ungadeildinni í síðusti viku
Talið er að fulltrúadeildir
greiði atkvæðí un; frumvarpið
um miðja næsti viku Repúblik
anai sen; en i minnihluti'. i
deildinni, segja aö þei> vilj'
miklai breytingav á frumvarp
inu.
Aður höfðu demókratar boðisr.
til að samþykkja nokkra hækkun
herútgjalda, ef repúblikanar lof-
uðu að styðja frumvarpið. Demó-
kratar kváðust reiðubúnir að
samþykkja 2 milljarða dala
hækkun, en repúblikanar töldu
það of litla hækkun
í gærkvöld' rædd nefndii
frumvarpið a lokuðum tundi, en
þaö a sér enga hliðstæðu Nefnd-
in samþykktf aö hraða, afgreiðsiu
fjárlaga þegar repúblikanar
höfðu hætt málþófi.