Morgunblaðið - 18.05.1985, Blaðsíða 5
5
MORGUNBLAPIÐ, LAUGAKDAGUR 18. MAÍ1985
Steingrímur um óánægju SUF með fram-
kvæmdastjóra Framsóknarflokksins:
Góð aðsókn
að sýningu
Kjartans
MJÖG góð aðsókn hefur verið að
myndlistarsýningu Kjartans Guð-
jónssonar í vestursal Kjarvals-
staða, sem opnuð var um síðustu
helgi. Á sýningunni eru 72 mynd-
verk, 54 olíumálverk og 18 vatns-
litamyndir. Hafa 24 verk þegar
selst
Kjartan er einnaf frumherjum
abstrakt-myndlistar á íslandi,
en á síðustu árum hefur hann
málað myndir af þekkjanlegum
fyrirbærum og sótt sér myndefni
í líf og störf sjómanna. Á sýn-
ingunni á Kjarvalsstöðum kenn-
ir nýrra grasa; þar eru ný mynd-
efni frá hans hálfu, sem sýna að
hann er enn að þróast og þreifa
fyrir sér.
Christoph Bertram
Fundur í dag:
Geimvarnir og
afvopnunarmál
HUGMYNDIR Ronalds Reagan,
Bandaríkjaforseta, um varnarkerfi í
geimnum hafa vakið miklar umræð-
ur innan Atlantshafsbandalagsins og
víðar og eru skiptar skoðanir um
áhrif þeirra á afvopnunarmál og
varnarsamstarf Vesturlanda. í há-
deginu í dag gangast Samtök um
vestræna samvinnu og Varðberg
fyrir fundi um þessi mál, þar sem dr.
Christoph Bertram, stjórnmálarit-
stjóri þýska vikublaðsins „Die Zeit“,
verður framsögumaður.
Fundurinn, sem er opinn félags-
mönnum í SVS og Varðbergi og gest-
um þeirra, verður í Átthagasal Hótel
Sögu og verður húsið opnað klukkan
12 á hádegi.
Hrafninn flýgur
— vel tekið í
Kennedy Center
Nýlega var kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar „Hrafninn flýgur"
sýnd í Kennedy Center í Washing-
ton á vegum „American Film Insti-
tute“. Fyrir kvikmyndasýninguna
höfðu sendiherrahjónin Hans G.
Andersen og frú móttöku fyrir gesti
sýningarinnar, um 300 manns. Að
sögn sendiherrans var gerður góður
rómur að myndinni og sýningar-
gestir klöppuðu vel að lokinni sýn-
ingu.
„Málarinn“, olíumálverk frá 1984.
Alrangt að ég hafi
tekið líklega í kröfu
um brottvikningu
STEINGRÍMUR Hermannsson for-
sætisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins segir alrangt að
hann hafi tekið „líklega" í ósk for-
ystumanna Sambands ungra fram-
sóknarmanna (SUF) um að Hauki
Ingibergssyni framkvæmdastjóra
Framsóknarflokksins yrði sagt upp,
eins og sagði í frétt Morgunblaðsins
á miðvikudag, að því er forsætis-
ráðherra sagði í samtali við blaða-
mann Mbl.
f frétt blaðsins sagði að Stein-
grímur hafi tekið líklega í kröfu
ungra framsóknarmanna um að
Haukur yrði látinn víkja en jafn-
framt látið í ljós þá skoðun, að nú
væri ekki rétti tíminn til þess.
„Það er rétt að Finnur Ingólfsson
formaður SUF og annar maður til
komu til mín eftir að Magnús
ólafsson ritstjóri NT hafði sagt
upp störfum og lýstu óánægju
sinni með störf Hauks Ingibergs-
sonar,“ sagði forsætisráðherra.
„Það er hins vegar alrangt, og það
vil ég láta koma skýrt fram, að ég
hafi tekið líklega í málaleitan
þeirra eða lýst óánægju minni
með Hauk á nokkurn hátt. Ég tel
einmitt að hann hafi að mörgu
leyti leyst störf sín mjög vel af
hendi.
Ég sagði þeim að ég teldi mik-
ilvægt að samstaða væri um fram-
kvæmdastjóra flokksins, hvort
heldur það væri í röðum ungra
framsóknarmanna eða eldri, og
sagðist telja rétt að þeirra kvört-
un yrði rædd. Ritari flokksins
myndi sjá um það. En að ég hafi
tekið undir kvörtun þeirra á einn
eða annan hátt er alrangt," sagði
Steingrímur Hermannsson.
Hvern vantar ekki ódýrt, ekki að tala um þegar það er líka gott
Á Vöruloftinu Sigtúni 3, 2. hæö, hafa oröiö miklar breytingar og þar er nú mjög góöur
stórútsölumarkaður
Opið alla laugardaga kl. 10—4
Allt á börnin
í sveitina
Úlpur frá kr. 195
Peysur frá kr. 195
Gallabuxur frá kr. 99
Strigaskór kr. 299
Gúmmístígvél kr. 299
Blússur frá kr. 450
íþróttasokkar frá 59
Jogging-gallar barnast. kr. 380
Bolir í úrvali
A herra
Herrajakkaföt, allar stæröir, frá
Stakir jakkar kr. 1.575
Herrabuxur kr. 540
Herrablússur kr. 995
Skyrtur kr. 190
Herra rúskinnsjakkar kr. 2.500
Stakir jakkar kr. 995
Samfestingar hvítir kr. 650
kr. 2.500—3.500
Vinnusloppar kr. 350
Vinnublússur kr. 350
Vinnubuxur kr. 450
Rafsuöugallar kr. 990
Sokkar kr. 50
Gúmmístígvél kr. 350
Reiöstígvél kr. 389
Gardínu-
efni í
úrvali
A dömur
Dömublússur nýjar kr. 350—450
Rykfrakkar kr. 2.500
Dömusamfestingar kr. 900—1.550
Greiðslusloppar kr. 685
Kvenskór frá kr. 295
Dömubuxur frá kr. 450
Karnabær — Belgjagerðin — Vöruloftið