Morgunblaðið - 18.05.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAl 1985
25
Fundir Shultz og Gromyko:
Árangur virðist hafa
orðið fremur lítill
Washington, 17. maí. AP.
GEORGE P. Shultz, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna,
kom til Bandaríkjanna á
miðvikudaginn eftir að hafa
átt langa fundi með starfs-
bróður sínum sovéska And-
rei Gromyko í Vínarborg.
Ekkert varð úr því að þeir
GENGI
GJALDMIÐLA,
Dalurinn
dalar enn
London, 17. maí. AP.
BANDARÍSKI dollarinn féll nokkuð
í verði í dag en framan af voru mikl-
ir sviptivindar á markaðnum.
Dagurinn hófst með því, að doll-
arinn hækkaði nokkuð í verði en
síðan snerist það við og áður en
dagur var að kvöldi kominn var
hann kominn niður fyrir siðustu
skráningu. Er fall hans nú sagt
stafa af því, að menn eru að bíða
eftir skýrslu um helstu hagvísana
í bandarísku efnahagslífi en henn-
ar er von í næstu viku.
Þegar kauphallarviðskiptum
lauk í dag var staða helstu gjald-
miðla gagnvart dollar þessi:
3,0765 v-þýsk mörk (3,0945)
2,5895 svissneskir frankar (2,5975)
9,3975 franskir frankar (9,4450)
3,4785 hollensk gyllini (3,5010)
1.969,00 ítalskar lírur (1.977,50)
1,3710 kanadískir dollarar
(1,3725).
Fyrir breska pundið fengust þá
1,2630 dollarar en 1,2595 deginum
áður. Gullið hækkaði heldur.
kæmu sér saman um stað og
stund fyrir þá Reagan og
Gorbachev til að hittast og
ræða málin.
Shultz sagði að afvopnunarmál
hefðu verið aðalumræðuefnið á
fundunum og Gromyko hefði mjög
gagnrýnt Bandaríkjastjórn fyrir
að halda til streitu tilraunum með
geimavarnarkerfið umdeilda.
„Bandaríkin munu ekki láta und-
an þrýstingi Rússa um að láta af
geimvarnarkerfisrannsóknum,
það væri alröng stefna og ég hvet
bandamenn okkar innan NATO til
að sýna samhug," sagði Shultz.
Þá sagði ráðherran að málefni
Mið-Austurlanda hefðu einnig
borið á góma og þokast hefði í átt
að friðarfundi með þátttöku Is-
raela og blandaðrar nefndar Pal-
estínu- og Jórdaníumanna. „Það
er hugsanlegt að Palestínumenn
séu að mýkjast aðeins í garð ísra-
el,“ sagði Shultz.
o‘
Fegurstar með Bretum
Þessi myndarlega þrenning bar sigur úr býtum í fegurðarsamkeppni Bretlands, sem fram fór á fimmtudagskvöld, og
er myndin tekin skömmu eftir krýningarathöfnina. Frá vinstri: Barbara Christian, ungfrú Wales, Helen Westlake,
ungfrú England, og Jackie Hendrie, ungfrú Skotland.
Höfum nú
opnað v/Miklatorg
sumarblóma og garðplöntu
Bretland:
Verðbólga
hækkaði í
6,9 % í aprfl-
mánuði
London, 17. maí. AP.
Smásöluverð í Bretlandi
hækkaði um 2,1 % í aprflmán-
uði. Verðbólgan er þar með
komin upp í 6,9% miðað við
heilt ár og er það hæsta verð-
bólgustig frá því í september
1982, að sögn stjórnvalda.
Það var atvinnumálaráðuneytið
sem birti þessar tölur og sagði í
tilkynningu þess, að verðhækkan-
irnar í apríl hefðu valdið 0,8%
aukningu verðbólgunnar, sem var
6,1% í marsmánuði.
Smásöluverðshækkunin i apríl
er mesta hækkun sem orðið hefur
á einum mánuði í fjögur ár, og er
mesta bakslag, sem Thatcher-
stjórnin hefur fengið.
Minnkun verðbólgu hefur verið
hyrningarsteinn stjórnarstefnu
Margaretar Thatcher forsætisráð-
herra, sem hefur lagt áherslu á að
halda niðri opinberum útgjöldum.
Verkamannaflokkurinn, sem er
í stjórnarandstöðu, kveður niður-
skurð ríkisútgjalda meginorsök
atvinnuleysisins í landinu. At-
vinnuleysingjar eru 13,1% af
heildarmannafla og hafa aldrei
verið fleiri en nú.
undir einu þaki
300fermetrar af
gullfallegum
garðplöntum og runnum
Auk þess öll helstu
garðáhöld, fræ og áburö
Opid í dag kl. 8—21.
Komið, skoðið og þiggið ilmandi
kaffisopa.
VIÐ MIKLATORG