Morgunblaðið - 18.05.1985, Page 4
4
MÖfiGÍTNÍJLAÐlÐ, LAUGARDAGUR 18. MAÍ1985
Auðu seðlarnir í atkvæðagreiðslu Kennarasambandsins:
Urslitin ráðin á fundi
fulltrúaráösins í dag
— lögfræðinga greinir á um hvort telja beri auðu seðlana með
AUÐIR atkvsðaseðlar, 151 að tölu, úr allsherjaratkvæðagreiðslu Kennarasam-
bands íslands um hvort sambandið eigi að segja sig úr Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja (BSRB), ráða úrslitum um aðildina, eins og fram hefur komið í
Mbl. Tveir fjögurra lögfræðinga, sem skilað hafa álitsgerðum um efnið, telja aö
ekki beri að telja auða seðla með, sem þýðir að kennarar ganga úr BSRB, hinir
tveir álykta að telja beri seðlana með, sem þýðir að kennarar yrðu áfram í
BSRB. Fulltrúaráð Kennarasambands íslands, sem í eiga sæti um 40 manns,
þar á meðal stjórnarmenn, mun í dag taka endanlega afstöðu til þess hvort telja
beri auðu seðlana með — og hvort KÍ segir sig úr BSRB á þingi sambandsins í
byrjun næsta mánaðar. Fram hefur komið það álit Kristjáns Thorlaciusar,
formanns BSRB, að tvímælalaust beri að telja auðu seðlana með og að KÍ skuli
því vera áfram í bandalaginu.
Hlaut 10 í einkunn
fyrir bókfœrslu
VERZLUNARSKÓLA íslands var slitið í gær og brautskráðir 4.
bekkingar. Þessi unga stúlka, Kristjana Sigurðardóttir, sem var
nemandi í 4. bekk A vann til verðlauna í bókfærslu og hlaut
bókhaldsbikarinn, sem er farandbikar. Hún hlaut einkunnina 10 í
bókfærslu.
72% af kröfum í þrotabú
Magasíns fengust greidd
Hlutlausa skal
ekki telja með
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.,
sem skilaði áliti til Kennarasam-
bandsins, segir i sinni greinargerð
m.a. að verði auðu seðlarnir taldir
með muni það hafa þau áhrif, að
auðu seðlarnir verði taldir með
þeim, sem atkvæði greiddu á móti
úrsögninni. Ef viðkomandi hefðu
engan seðil sent inn, þá hefði hann
ekki haft nein áhrif. „Hvorki er
ástæða til að ætla, að sá sem sendi
inn auðan seðil hafi viljað að seðili
hans hefði þessi áhrif, né er líklegt
að hann hafi áttað sig á muninum á
því annars vegar að senda engan
seðil og hins vegar að senda auðan
seðil,“ segir í svari Jóns Steinars.
Hann segir ennfremur: „Ef at-
kvæði hefðu verið greidd á fundi með
handauppréttingum er áreiöanlega
ekki rétt að telja með þá, sem alls
ekki rétta upp hönd, þegar fundið er
út hver hinn aukni meirihluti skuli
vera. Mun það heldur aldrei vera
gert. Það er þá tæpast heldur rétt að
telja þá hlutlausu með þó svo standi
á, að atkvæðagreiðsla á fundi fari
fram skriflega (t.d. vegna þess að
einn fundarmanna krefst þess). Og
heldur ekki þó greidd séu atkvæði
með nafnakalli. Þetta er nauðsynlegt
að hafa hér í huga, því að ákvörðun
um úrsögn mátti taka á fundi."
Niðurstaða Jóns Steinars er sú,
„að það þurfi að taka það sérstak-
lega fram í samþykktum félags, ef
ætlunin er að telja auða seðla og
ógilda með, þegar reiknað er út, hve
aukinn meirihluti atkvæða skuli
vera stór. Svo er ekki hér og er það
því álit mitt, að ekki skuli telja þessi
atkvæði með.“
Greitt atkvæði er
greitt atkvæði
urðssonar hrl. er á hinn veginn:
„Samkvæmt almennri málvenju þýð-
ir greitt atkvæði sama og atkvæði,
sem hefir verið skilað í kjörkassa,"
segir í álitsgerð hans til BSRB. „Það
skiptir ekki máli hvort seðillinn er
auður, ógildur eða gildur i þessu
sambandi. Viðkomandi hefir greitt
atkvæði, hvort sem hann skilar auð-
um seðli, gildum seðli eða ógildum,
og því ber að telja auð atkvæði og
ógild til greiddra atkvæða. Ef við
gefum okkur að 3.000 manns hafi
tekið þátt í atkvæðagreiðslu þá
þurfa 2.000 að vera fylgjandi úrsögn
(% af 3.000). Ef við hins vegar gefum
okkur að af þessum 3.000 atkvæðum
séu 300 auð og ógild, þá eru gild at-
kvæði 2.700. % af 2.700 gera 1.800.
Samkvæmt ljósu oröalagi 7. gr. laga
BSRB hefði tillaga um úrsögn ekki
hlotið samþykki, ef hún hefði fengið
l. 800 atkvæði (100íl.800+3.000=60%).
Ef ætlunin hefði verið að taka mið af
gildum atkvæðum einvörðungu hefði
þetta verið orðað öðruvísi og mun
skýrar, svo sem t.d. að úrsögn þyrfti
samþykki a.m.k. % gildra atkvæða. í
þessu sambandi má benda á 19. gr.
þingskapa BSRB. Þar er beinlínis
tekið fram, að auður seðill teljist
ekki til greiddra atkvæða."
Niðurstaða Guðmundar Ingva er
þessi: „Til að úrsögn úr BSRB verði
talin gild þurfa a.m.k. % þeirra sem
hafa skilað inn atkvæði að vera
fylgjandi úrsögninni. í þessu sam-
bandi teljast til greiddra atkvæða
bæði auðir seðlar og ógildir.“
Óeðlilegt að telja
með auða seðla
{ álitsgerð Páls Lindal hrl. segir
m. a. að í þessu sambandi sé helstu
leiðbeininguna að fá 1 þingsköpum
Alþingis. „Á sínum tíma var ákveðið
að grein þeirri er nú samsvarar 53.
oröaðist þannig, að engin ályktun
væri lögmæt nema meira en helm-
ingur fundarmanna greiddi atkvæði
með henni, en breytingin var í því
fólgin, að þingmaður, sem væri á
fundi, en greiddi ekki atkvæði án
lögmætra ástæðna, teldist taka þátt
í atkvæðagreiðslu.
Þessi breyting sýnir, að svo hefur
verið litið á, að þegar þannig stæði á
teldist hjáseta, sem svarar til auðs
seðils, ekki þátttaka í atkvæða-
greiðslu. Að öðrum kosti hefði þessi
breyting ekki verið talin nauðsyn-
leg,“ segir Páll Líndal.
„í 2. mgr. 7. gr. laga BSRB segir,
að í allsherjaratkvæðagreiðslu um
úrsögn þurfi a.m.k. % greiddra at-
kvæða til að úrsögn teljist gild.
Mér virðist óeðlilegt skv. þessu
orðalagi að líta svo á, að telja beri
með auða seðla, þegar svo stendur á,
sem hér segir. Þeir sýna engan vilja,
en ef þeir eru taldir með geta þeir
haft áhrif á það hvort atkvæði
þeirra %, sem sýna ákveðinn vilja,
eigi að gilda eða ekki,“ segir Páll.
% greiddra atkvæða þarf til
Gestur Jónsson hrl. segir m.a. í
sinni álitsgerð til Kennarasambands
Islands að enginn vafi sé á því, aö
„einstaklingur, sem mætir á kjör-
stað, tekur við atkvæðaseðli og skil-
ar honum í atkvæðakassa, hefur
greitt atkvæði. Gildir þá einu hver
ráðstöfun hans á atkvæðaréttinum
var. Hvort kjósandinn greiddi at-
kvæði með eða móti þeirri tillögu,
sem kosið er um, eða hvort kjósand-
inn skilaði auðum eða á annan hátt
ógildum seðli gildir einu. Kjósand-
inn hefur notað atkvæðisrétt einn,
þ.e. greitt atkvæði.
Á sama hátt eru „greidd atkvæði"
öll þau atkvæði, sem koma frá þeim
kjósendum sem greiddu atkvæði.
Þessi atkvæði eru ýmist gild eða
ógild. Einfalt væri að setja fram
lagasetningu um að til samþykkis
þyrfti % gildra atkvæða. Það hafa
höfundar laga BSRB ekki gert held-
ur skal miðað við greidd atkvæði. Af
því leiðir, að ég tel vafalaust að telja
beri auða og aðra ógilda seðla til
greiddra atkvæða í atkvæðagreiðslu
félaga í KÍ um úrsögn úr BSRB og að
a.m.k. % þeirra, sem greiddu at-
kvæði, hafi þurft að samþykkja úr-
sögnina til þess að hún taki gildi,“
segir Gestur Jónsson.
FYRIR nokkru lauk skiptum á
þrotabúi Vöruhússins Magasín
sf. og tveggja eigenda fyrirtæk-
isins. Búin voru tekin til gjald-
þrotaskipta þann 18. ágúst 1983.
I þrotabú Vöruhússins Magasín
voru viðurkenndar forgangskröf-
ur samtals að fjárhæð kr. 635.872
og voru þær greiddar að fullu.
Viðurkenndar voru almennar
kröfur í búið að fjárhæð samtals
liðlega 5 milljón krónur. Upp í
þær fengust tæplega 87 þúsund
krónur, eða 1,7%.
f þrotabú annars eigandans
voru viðurkenndar kröfur sam-
tals um 5 milljónir 167 þúsund
krónur og eru þá meðtaldar þær
kröfur, sem viðurkenndar voru í
þrotabú Magasíns og ekki fengust
greiddar að fullu af eignum þess
bús og voru þær allar flokkaðar
sem almennar kröfur. Upp í þess-
ar kröfur voru greiddar kr.
52.655, eða 1,02%.
í þrotabú hins eigandans voru
viöurkenndar forgangskröfur
samtals liðlega 241 þúsund krón-
ur og greiddust þær að fullu. Við-
urkenndar almennar kröfur í bú-
ið námu samtals um 7,3 milljón-
um króna og eru þá meðtaldar
þær kröfur, sem viðurkenndar
voru í þrotabú Magasíns og ekki
fengust greiddar að fullu af eign-
um þess bús. Upp í þessar kröfur
voru greiddar liðlega 5 milljónir
króna, eða 69,4%. Auk þessa voru
greiddar veðtryggðar kröfur sam-
tals að fjárhæð liðlega 1,7 millj-
ónir króna.
Upp í vexti og kostnað, sem féll
á kröfur í þessum þrotabúum eft-
ir upphafsdag skipta, greiddist
ekkert. Upp í almennar kröfur á
hendur Vöruhúsinu Magasín
fengust því 72,1%.
^Apglýsinga-
slminn er 2 24 80
=iT" •
Niðurstaða Guðmundar Ingva Sig- gr. skyldi breytt á þann veg, að hún
Húsnæðisstofnun ríkisins:
1894 lán að upphæð
443 milljónir afgreidd
Á fundi húsnæðismálastjórnar í gær voni neðangreindar lánveitingar
samþykktar. Hér er um að ræða 1.894 ián, samtals að fjárhæð 443.4
milljónir króna. Lánveitingarnar eru sem hér segir:
1. Miðlán (2. hluti) þeim til
handa, sem fengu frumlán sín
greidd eftir 20. september 1984.
Lán þessi skulu koma til
greiðslu eftir 22. maí nk. Hér er
um að ræða 56 lán er samtals
nema 12,0 milljónum króna.
2. Miðlán (2. hluti) þeim byggj-
endum einingahúsa til handa,
sem fengu frumlán sfn greidd
eftir 10. desember 1984. Lán
þessi skulu koma til greiðslu
eftir 24. maí nk. Samtals er hér
um að ræða 30 lán, er nema 6,9
milljónum króna.
3. Lokalán (seinni hluti) þeim
byggjendum einingahúsa til
handa, sem fengu frumlán sfn
greidd eftir 20. september 1984.
Lán þessi skulu koma til
greiðslu eftir 24. maí nk. Hér er
um að ræöa 6 lán, sem samtals
nema 1,8 milljónum króna.
4. G-lán þeim kaupendum eldri
íbúða til handa, er sóttu um
þau á tímabilinu júlí-septem-
ber 1984. Munu þau koma til
greiðslu eftir 3. júní nk. Hér er
um 440 lán að ræða, er samtals
nema 95,7 milljónum króna.
5. Lán til viðbygginga og endur-
bóta þeim til handa er sendu
fullgildar umsóknir fyrir síð-
ustu áramót og höfðu einnig
lokið framkvæmdum fyrir
þann tíma. Lán þessi skulu
koma til greiðslu eftir 6. júní
nk. Hér er um að ræða 35 lán,
samtals að fjárhæð 10,0 milljónir
luóna.
6. Frumlán (fyrri hluti) þeim til
handa, sem eru að eignast sína
fyrstu fbúð og gerðu fokhelt í
janúar og febrúar 1985. Lán
þessi skulu koma til greiðslu
eftir 10. júní nk. Hér er um aö
ræða 84 lán, samtals að fjárhæð
30,6 milljónir krnna
7. Frumlán (1. hluti) þeim til
handa, sem áður hafa átt íbúð
en gerðu nýbyggingar sínar
fokheldar í október, nóvember
og desember 1984. Lán þessi
skulu koma til greiðslu eftir 18.
júní nk. Hér er um að ræöa 294
lán er samtals nema 67,2 milljón-
um króna.
8. Lokalán (seinni helmingur)
þeim til handa, sem fengu fyrri
helminginn greiddan 7. nóv-
ember og 15. nóvember 1984.
Lán þessi skulu koma til
greiðsiu eftir 24. júní nk. Hér er
um að ræöa 131 lán, er samtals
nemur 43,6 milljónum króna.
9. Lokalán (3. hluti) þeim til
handa, sem fengu frumlán sin
greidd eftir 25. marz 1984. Lán
þessi skulu koma til greiðslu
eftir 1. júlí nk. Hér er um að
ræða 165 lán, samtals að fjárhæð
35,0 milljónir króna.
10. Miðlán (2. hluti) þeim til
handa, sem fengu frumlán sfn
greidd eftir 10. nóvember 1984.
Lán þessi skulu koma til
greiöslu eftir 5. júlí nk. Hér er
um að ræða 56 lán, samtals að
fjárhæð 12,0 milljónir króna.
11. Lokalán (3. hluti) þeim byggj-
endum einingahúsa til handa,
sem fengu frumlán sín greidd f
júlf 1984. Lán þessi skulu koma
til greiðslu eftir 10. júlf nk. Hér
er um að ræða 24 lán, samtals
að fjárhæð 5,3 milljónir króna.
12. Miðlán (2. hluti) þeim byggj-
endum einingahúsa til handa,
sem fengu frumlán sfn greidd
10. marz 1985. Lán þessi skulu
koma til greiðslu eftir 10. júlí
nk. Hér er um að ræða 76 lán,
samtals að fjárhæð 15,0 milljónir
króna.
13. G-lán þeim kaupendum eldri
íbúða til handa, sem sóttu um
lán á tfmabilinu október-des-
ember 1984. Munu þau koma til
greiðslu eftir 15. júlf nk. Hér er
um að ræða 497 lán, samtals að
fjárhæð 107,4 milljónir króna.