Morgunblaðið - 18.05.1985, Síða 19
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1985
19
Útvarpslögin og
afgreiðsla Alþingis
— eftirEið
Guðnason
í Morgunblaðinu miðvikudaginn
15. maí eru þau ummæli höfð eftir
Halldóri Blöndal, alþingismanni
og formanni menntamálanefndar
neöri deildar Alþingis, að hann
hafi boðið upp á það, að mennta-
málanefndir beggja deilda ynnu
saman að útvarpslagafrumvarp-
inu. Hann segir síðan: „En Eiður
Guðnason hafnaði því algjörlega
fyrir hönd Alþýðuflokksins." Þessi
fullyrðing Halldórs Blöndals er al-
röng og á sér enga stoð í veruleik-
anum.
Þegar samkynja nefndir beggja
deilda starfa saman að málum
heitir það i þingsköpum sam-
vinnunefnd. Það er ákvörðun
nefndanna sameiginlega að starfa
saman. Einstakir nefndarmenn
hafa ekkert neitunarvald í þeim
efnum. Ég hefði síður en svo haft
neitt á móti því, að nefndirnar
störfuðu saman. Það var hinsveg-
ar ekki á mínu valdi, og um það
var ég aldrei spurður. Til hefði
þurft að koma samþykki mennta-
málanefndar efri deildar, þar sem
ég er aðeins einn af sjö nefndar-
mönnum. Samvinnu nefndanna
bar aldrei á góma í menntamála-
nefnd efri deildar, af þeirri ein-
földu ástæðu, að boð um það barst
aldrei frá Halldóri Blöndal, for-
Fermingar
Ferming í Innra-Hólmskirkju
sunnudaginn 19. maf kl. 14.00.
Prestur: Séra ión Einarsson.
Þessi börn verða fermd:
Sæunn Ingibjörg Sigurðardóttir,
Ásfelli III.
Gunnar Freyr Hafsteinsson,
Krókatúni 13, Akranesi.
Fermingarbörn í Hólskirkju í Bol-
ungarvík sunnudaginn 19. maí.
Elísabet Árný Árnadóttir,
Holtabrún 16.
Eysteinn Magnús Guðmundsson,
Skólastíg 15.
Gestur Þór Arnarsson,
Höfðastíg 8.
Guðmundur Jón Markússon,
Holtabrún 6.
Guörún Skúladóttir,
Heiðarbrún 3.
Halldór Svavar Ólafsson,
Skólastíg 13.
Hannes Már Sigurðsson,
Hlíðarstræti 13.
Hannibal Þorsteinn ólafsson,
Holtabrún 7.
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir,
Hjallastræti 22.
Hildur Elísabet Pétursdóttir,
Holtastig 13.
Ingibjörg Sólveig Guðmundsd.,
Vitastíg 25.
Ingibjörg Halldórsdóttir,
Miðstræti 1.
Jóhann Þórarinn Bjarnason,
Traðarlandi 12.
Jónas Harðarson,
Hlíðarstræti 5.
Klara Eiríka Finnbogadóttir,
Holtabrún 5.
Kristín Þóra Halldórsdóttir,
Hjallastræti 37.
María Friðgerður Lárusdóttir,
Holtabrún 17.
Ragnar Heimir Sigurðsson,
Hjaltastræti 35.
Sigurður Árni Reynisson,
Traðarlandi 2.
Steinunn Þorbergsdóttir,
Völusteinsstræti 9.
Svanlaug Arnardóttir,
Traðarstíg 1.
Valdimar Sæberg Valdimarsson,
Hlíðarstræti 10.
.WlsöhtHa) <i hmrjum degi.'
manni neðrideildarnefndarinnar.
Fullyrðing hans um að ég hafi
komið í veg fyrir samvinnu nefnd-
anna stenst þvi hvergi, þar sem
það var alls ekki á mínu valdi að
taka slíka ákvörðun.
Halldór Blöndal segir ennfrem-
ur í viðtalinu við Morgunblaðið, að
Alþýðuflokkurinn hafi viljað tefja
þetta mál og bregða fæti fyrir það.
Þetta er líka alrangt. Við vildum,
og viljum, breyta frumvarpinu og
fluttum tillögur um það efni. Við
atkvæðagreiðslu eftir aðra um-
ræðu málsins drógum við breyt-
ingartillögur okkar til baka, til að
greiða fyrir afgreiðslu málsins og
gera atkvæðagreiðsluna auöveld-
ari í framkvæmd. Það liggur fyrir
í þingtiðindum. órökstuddum
dylgjum Halldórs Blöndal um
þetta efni er þvi vfsað á bug. Ef
það að flytja breytingartillögur
við mál, sem menn hafa aðra skoð-
un á en flutningsmenn málsins, er
að „tefja málið og bregða fæti
Kiöur Guðnason
fyrir það“ eins og hann segir, — til
hvers er þá Alþingi háð?
Menntamálanefnd neðri deildar
undir forystu Halldórs Blöndal
hefur haft útvarpslagafrumvarpið
til meðferðar frá þvf snemma á
síðastliðnu hausti, þar til 13. maf,
að málið var sent til efri deildar.
Efri deild eru nú ætlaðar 2—3 vik-
ur til að fjalla um þetta þýð-
ingarmikla mál. Það er naumur
tími. En vonandi berum við í efri
deild Alþingis gæfu til þess að ná
meiri samstöðu um málið en tókst
í neðri deild, þar sem aðeins 16 af
40 þingdeildarmönnum treystust
til að gjalda þvf jáyrði. Ég mun
beita mér fyrir því að slík sam-
vinna geti tekist, sé þess nokkur
kostur. Það væri slæmt, ef veiga-
miklar breytingar yrðu gerðar á
útvarpslögum, sem ekki nytu
stuðnings meirihluta Alþingis, af
þeirri ástæðu einni hve klaufalega
hefur verið á málinu haldið f allan
vetur.
Höfuadur er þingmaður Alþýóu-
flokksins fyrir Vestur-
landskjördæmi.
TERŒL
Toyota Tercel 4WD er framúrskarandi
stationvagn sem sannar að fjórhjóladrifnir
bílar geta verið þægilegir.
Hvort heldur á hann er litið eða í honum
eins og aðrir stationbílar - hann fer þar sem aðrir
sitja fastir. Tercel 4WD er sparneytinn og ör-
uggur svo sem við er að búastfráToyota.
Þægindi fólksbifreiðarinnar,
seigla og styrkur bíls með drifi á öllum hjólum
sameinast í Tercel station. Harðger
1,5 lítra bensínvél sinnir af sama öryggi 2 og4 hjóladrifunum.
TOYOTA
'SS&múeáó&n cf'
Nybýlavegi 8 200 Kópavogi S. 91-44144
essemm