Morgunblaðið - 18.05.1985, Síða 50
50
MOROimBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAl 1986
nwM nn
• 1ÖM UnlvtrMl Prtu Syndlottt 3-II
* Hvernig gelur 15 Kr. súKkula^i-
stgKki or&i& e& f)'órum kílóum?"
Hvf gerftiat ég hnefaleikamaéur —
utavaraA, þaA er hollt og mjög
skemmtilegtl
Af þvf að þú itt afmeli borðum vi*
beint af fatinu og þú sieppur viú
uppvaakkk, vinurt
HÖGNI HREKKVlSI
Púkar, ættaðir frá Freud, en ættleiddir
af íslensku geðheilbrigðisþjónustunni
Steinar Guðmundsson, Lindar-
götu 14, Rvik skrifar:
1 tveimur tölublöðum Lesbókar
Morgunblaösins birtist nýlega
grein um málefni sem snertir
okkur Islendinga meir en margan
kann aö gruna. Þar var m.a. gerð
tilraun til aö svipta hulunni af
kenningum Freuds um áhrif hugs-
anlegra áfalla í bernsku á hegðun
er fram komi á æsku- og fullorð-
insárum.
Um árabil hef ég látið mig
varða sem flest er snertir sjúklega
ofdrykkju (alkóhólisma) og þurft
að glima viö margan drauginn á
þeim vettvangi, en einna erfiðastir
hafa mér reynst þeir púkar sem
ættaðir eru frá Freud en ættleidd-
ir af islensku geðheilbrigðisþjón-
ustunni.
Þeir sem bera ábyrgð á of-
drykkjuvörnum okkar íslendinga
hafa veifað Freud-dulunni i tima
og ótima með þeim afieiðingum
sem ekki verður séð fyrir endann á
ef fer sem horfir, að hin merku
þjóðarsamtök SÁA ánetjist villu-
kenningum geðlæknastefnunnar i
vaxandi mæli, þvi sjúkdómshug-
takið sem hamraö er á þegar um
vandræðadrykkj uskap er að ræöa
er að verulegu leyti samkynja og
samofið kenningum Freuds og
fyrirlitning á staðreyndum sú
sama og þar veður uppi.
Að rétta fólki, sem ekki má
drekka, átyllu til að sniöganga
eigin ábyrgð á drykkjuskap sinum
i stað þess að vinna gegn honum
sem persónulegu vandamáli er
ábyrgðarieysi sem ekki samrýmist
þeirri stefnu sem frumkvöðlar
SÁÁ mótuðu.
Sú var tiðin að menn gerðu sér
ljóst að þegar ekki var hægt að
rekja alkóhólisma til mistaka
áfengisneytandans eða kæruleysis
hans i samspili manns og áfengis
voru liklegustu orsakavaldarnir
félagsleg smit, andspyrna, flótti
eða eitthvert annað hegðunar-
vandamál, en að um sjúkdóm sé að
ræða var afskrifað með öllu og alls
ekki á dagskrá og þvi siður álitið
að ættlægur drykkjuskapur kæmi
lausn vandamálsins nokkurn
skapaðan hlut við þótt vitað sé að
drykkjuskapur þeirra sem hátt
eru settir innan fjölskyldu eða
þjóðfélags geti bseði valdið smiti
og uppreisn og örvað til drykkju-
skapar.
Sennilega verðum við íslend-
ingar að búa við Messiasarhvöt
geðlækna i ofdrykkjuvörnum á
meðan miðaldra kynslóðin gengur
sér til húðar þvi ekki vottar fyrir
þvi að þeir láti sig rökstudda
gagnrýni varða þegar um of-
drykkjuvarnir er að ræða.
Reynslunni ríkari ber okkur Is-
lendingum að forðast allan vis-
indalegan leikaraskap til lausnar
hinu stórbrotna ofdrykkjuvand-
amáli, en leggjast heldur af full-
Sigmund Freud
um þunga á sveif með SÁÁ og
hvetja ráðamenn samtakanna til
að kippa að sér þeirri löppinni sem
af vangá hefur verið stigið inn í
sandkassa sjúkdómsdýrkendanna.
Án AA-undirstöðunnar hefði
SÁÁ orðið hjóm eitt. Útþynnt
AA-stefna er engin AA-stefna.
Látum freudarana um sitt, okkur
nægir hitt.
Ár æskunnar
og bjórinn
Theódóra hringdi:
Ég hef alitaf haldið að þjóðar-
atkvæðagreiðsla ætti að fara
fram um bjórfrumvarpiö, en nú
eiga bara blessaðir þingmenn-
irnir að ráða. Þeir hafa e.tv.
ekki hugsað út í það að kjósend-
ur munu nú fara að athuga betur
hverjum megi treysta fyrir mál-
efnum þjóðarinnar.
Er ekki nóg af eiturlyfjum i
landinu þó að bjórinn bætist
ekki við? Nú er ár æskunnar og
ætla þingmennirnir kannski að
gefa unglingunum þetta i af-
mælisgjöf?
Hjólastuldur í
Breiðholtinu
Sigurrós hringdi:
Ég bý i Kambaseli i Breiðholt-
inu. Sonur minn eignaðist hjól
18. apríl og vann fyrir þvi alveg
sjálfur. Hjólið var af gerðinni
BMX, en þau eru mjög vinsæl
þessa dagana. Hinn 4. maí var
hjólinu svo stolið rétt við dyrnar
hjá mér. Mjög mikið er um
hjólastuldi hér f hverfinu og vil
ég benda foreldrum á aö kíkja
inn í bilskúra og hjólageymslur
sínar til að vita hvort ókunnn
hjól hafi bæst við. Ég skil ekki
hvernig það getur farið fram hjá
fullorðnu fólki ef börn þeirra
koma heim með ókunn hjól.
Sonur minn á BMX-hjól, silf-
urlitað með bláu i, og höfum við
verið mikið á ferðinni til að leita
að þvi en án árangurs. Ég heiti
fundarlaunum og er siminn hjá
mér 72452 ef einhver kynni að
rekast á hjólið.
Þakklæti
Sigurbjörg Pétursdóttir, dval-
arheimilinu Droplaugarstöðum
hringdi:
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til allra þeirra er sendu mér
peninga og bættu með þvi full-
komlega það tjón, er ég varð
fyrir á dögunum. Ég óska öllu
þessu fólki blessunar i nútið og
framtíð.
Bindindi er
besta hnoss
Ottó ÞorvaldssoB hringdi:
Ég var á ferð suður Barónsstíg
og bar þá fyrir augu mér orð á
húsgafli sem var „bindindi“.
Vegna þessa varð til hjá mér lítil
vísa.
Bindindi er besta hnoss,
bræðralags og vina.
Byggir upp og bætir oss,
breitt um landsbyggðina.
Hjólbarðaskipting allt of dýr
Kona hringdi: Bifreiðaeigendur eru nú óðum að skipta yfir á sumardekkin og þvf nóg að gera hjá
dekkjaverkstæðum. En ég furða mig á verðinu. Ég greiddi 840 krónur fyrir verk sem tók minna en 15
mínútur. Þetta er víst taxtinn.