Morgunblaðið - 18.05.1985, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. MAÍ1986
Tvö lið eiga möguleika á titlinum:
Verður lið Jóhanns
Þýskalandsmeistari?
Frá Þórami flrgnmayni biatemanni Morgunbiaóaina, Kiai 17. mai.
ÞAD verður mikill viðbúnaður
hér á morgun laugardag, þegar
handknattleikslið Kiel leikur
sinn síðasta leik í 1. deildar
keppninni. Lðngu er uppselt á
leikinn en íþróttahöllin tekur
rúmlega sjð þúsund áhorfend-
ur. Hasgt hefði verið að selja
mun fteíri miöa á leikinn sem
hugsanlega raaður úrslitum um
hvort lið Kiel verði Þýska-
landsmeistari í handknattleik.
Liöið leikur gegn Massenhem
og verður að sigra í leiknum
með tveggja marka mun til aö
eiga möguleika á meistaratitli.
En þó svo Kiel sigri er óvist
hvort liðið nái að hreppa hinn
eftirsótta meistaratitil. Á sama
tíma, kl. 20.00, leikur liö Gumm-
ersbach gegn DUsseldorf á úti-
velli. Hið mjög svo sterka lið
Gummersbach veröur að sigra
til að hreppa titilinn. Geri liðið
jafntefli eða tapi veröur lið Kiel
meistari.
Maöurinn á bak viö frábæran
árangur Kiel er ungur íslenskur
handknattleiksþjálfari sem þó er
án efa flestum íþróttaunnendum
á Islandi kunnur. Jóhann Ingi
Gunnarsson fyrrum landsliös-
þjálfari Islands hefur gert liö Kiel
• Jóhann Ingi Gunnarsson
aö stórveldi í þýskum hand-
knattleik.
Liöiö hefur á undanförnum ár-
um veriö í mótun hjá Jóhanni og
í vetur náöi betri árangri en
nokkru sinni fyrr. Þaö yröi svo
sannarlega rós í hnappagat
þessa unga þjálfara ef liö hans
yröi meistari. Og þó svo aö liöið
hreppi ekki titilinn þá er árangur
liösins undir stjórn Jóhanns mjög
góöur. Liöiö hefur þegar tryggt
sér þátttökurétt í Evrópukeppn-
inni á næsta ári.
Það þykir nokkrum tíöindum
sæta hér aö íslenskur þjálfari hafi
náö svona langt og Jóhann er
oröin vel þekktur hér um slóðir
enda nota fjölmiölar hvert tæki-
færi til aö fá viö hann spjall og
segja frá hinum góöa árangri
sem hann hefur náö.
Staöan fyrir síöustu umferöina
er sú aö Gummersbach hefur
eins stigs forskot hefur hlotiö 39
stig en Kiel 38. Markatalan er
svipuö, Gummersbach hefur 549
mörk skoruð en fengiö á sig 474.
Kel hefur 547 skoruöu en fengiö
á sig 470. Liö Essen er í þriöja
sæti hefur 35 stig.
En hvaö skyldi nú Jóhann Ingi
segja um stööuna:
— Þaö er ekkert launungar-
mál aö viö gerum okkur vonir.
Liö Dusseldorf hefur leikiö vel á
heimavelli í vetur og geur komiö
á óvart. En í liði Gummersbach
eru gifurlega reynslumiklir leik-
menn og liöiö hefur besta mark-
vörö heims í dag, Thiel. Þeir eru
því sigurstranglegir. Ég geri mér
vonir um aö viö sigrum Massen-
heim. Og þó svo aö við veröum
ekki meistarar þá getum viö
mjög vel viö unaö eftir frábær-
lega gott en erfitt keppnistímabil.
Vissulega yröi þaö meira en
lítiö ánægjulegt ef svo færi aö viö
yrðum meistarar. Ég þori ekki aö
hugsa þaö til enda. Þaö veröur
fullt hús hér á morgun. Og mikiö
tilstand. Til dæmis fá allir áhorf-
endur frían bjór í klukkustund
áður en leikurinn hefst. Og ýmis-
legt veröur gert til skemmtunar.
Þetta er mikill handboltabær og
áhorfendur hér eru engu líkir.
Hinn góöi árangur okkar í vet-
ur hefur gert þaö aö verkum aö
þaö er uppselt á alla heimaleiki
okkar, 13 aö tölu, næsta keppn-
istímabil. Jú, löngu áöur en þaö
hefst. Og þaö er meira en lítiö
gaman aö leika alltaf fyrir fullu
húsi áhorfenda. Þaö hjáipar mik-
iö í hinni erfiöu baráttu. Deildin
hér er mjög sterk og allir leikir
eru í raun úrslitaleikir. Keppnin í
ár hefur veriö jafnari en oftast
áöur. Og þaö er langt síöan aö
úrslitin hafa raöist í síöustu um-
ferö í leikjum sem fara fram á
sama tíma, sagöi Jóhann.
Viö veröum meö ýtarlegar
fréttir af leiknum hjá Kiel og
Gummersbach í blaöinu á þriöju-
dag. Og lokastööuna í 1. deild-
inni. Þess má aö lokum geta aö
Siguröur Sveinsson sem skoraö
hefur 180 mörk í 1. deildinni í
vetur er langmarkahæstur og
veröur án nokkurs efa marka-
kóngur deildarinnar í ár þrátt
fyrir aö hann sé undantekninga-
laust tekinn úr umferö í hverjum
leik.
• Sigurður Pétursaon
Sigurður
með einn
í forgjöf
SIGURÐUR Pétursson, GR, lék é
72 höggum í keppninni um Arne-
son-skjöldinn í fyrradag og nægir
það honum til lækkunar í forgjöf,
úr 2 í 1.
Siguröur er þar meö annar ís-
lendingurinn sem nú er meö 1 í
forgjöf — hinn er Ragnar félagi
hans Ólafsson, einnig úr GR, sem
fékk 1 í fyrrasumar.
Tveir fóru
holu í höggi
Á MIÐVIKUDAG fór Viggó Vigg-
ósson, GR, holu í höggi é 6. braut
golfvallarins í Grafarholti. í fyrra-
dag fór svo Björgvin Björgvins-
son holu í höggi á Korpúlfsstaða-
velli.
Guðbjörn lagði
upp tvö mörk
— er Start vann Brann 4:1 í fyrrakvöld
„íslendingaliöin“ léku saman (
norsku 1. deildarkeppninni (
knattspyrnu á fimmtudagskvöld.
Guðbjörn Tryggvason lagði upp
tvö mörk í sigri, 4—1, Start á
> Bjarna Sigurðssyni og félögum
hjá Brann. Lilleström er nú (efsta
sæti deildarinnar með 7 stig, þeir
unnu stórsigur á Eik, 8—0, á
heimavelli.
Guöbjörn lék sinn fyrsta heila
leik meö Start í fyrrakvöld og stóö
sig vel. Leikurinn var jafn í fyrri
hálfleik og höföu Brann 1:0 yfir í
hálfleik. f síöari hálfleik brotnaöi
liöiö og Start gekk á lagiö og skor-
aöi fjögur mörk og Guöbjörn lagöi
upp tvö þeirra. Þetta var ekki dag-
ur Bjarna í markinu, þó svo aö ekki
sé hægt aö kenna honum um
mörkin. Vörn liösins var mjög slök
í síöari hálfleik og heföu mörkin
getaö oröiö fleiri.
Stsðan er nú þessi í Noregi:
Lilleström 4 3 1 0 14:2 7
Rosenborg 3 3 0 0 10:2 6
Viking 4 2 1 1 8:5 5
Moss 4 1 3 0 4:3 5
Start 4 2 0 2 7:8 4
Bryne 4 1 2 1 5:6 4
Kongsvinger 4 1 2 1 3:5 4
Molde 4 1 1 2 4:5 3
Brann 4 1 1 2 4:8 3
Mjöndalen 4 1 0 3 5:6 2
Eik 4 0 2 2 0:9 2
Vaalerengen 3 0 1 2 1:8 1
I
I Mbl.-lið 1. umferðar
Lið 1. umferðar 1. deildar í knattspyrnu er aókndjarft, enda mikið skorað af mörkum. Við stillum udð I
liði með leikaðferóinni 4 — 2 — 4.
Baldvín Guðmundsson,
Þór.
Siguróli Kristjánsson, Þóröur Marelsson,
Þór. Víkingi.
Óskar Gunnarsson, Jóhannes Bárðarson,
Þór. Víkingi.
Ómar Torfason, Pétur Arnþórsson,
Fram. Þrótti.
Ragnar Margeirsson, Björn Rafnsson,
ÍBK. KR.
Bjarni Sveinbjörnsson, Guðmundur Steinsson,
Þór. Fram.
MALL’
Brottför 27. maí-sérkjör!
\ V Aðrir brottfarardagar:
* 17 júní, 8. júlí, 29. júlí,
19 ágúst, 9. september,
30. september, 21. október
Komið og kynnist Maliorka
á myndböndunum okkar
mdiVTIL
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarsíigl.Simai 28388 og28580