Morgunblaðið - 19.07.1985, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚLl 1985
B 11
FYRIR FERÐALANGA
farangurinn í bakpoka án erfiðleika.____________________________
Hér skal fariö yfir nokkur þau atriði sem hafa ber í huga þegar
halda skal í feröalög. Til hægðarauka er hægf að skipta þessari
umfjöllun í tvo hluta. Annars vegar fyrir þá sem ferðast á einkabílum
og hins vegar þá sem feröast á tveimur jafnfljótum, gangandi. í
báöum tilfellum eru þó nokkur atriöi sameiginleg.
Hvað
áað taka með
í ferðalagið?
Undirbúningur feróalaga vefst oft fyrir fólki. Hvaö á aö taka meö,
hverju á aö sleppa, hvernig á maturinn aö vera, útbúnaöurinn,
aukafatnaöur, svefnpokinn o.s.frv. Stundum viröist farangurinn í
ökuferö eöa rútuferö veróa svo yfirgengilega mikill aö engu tali
tekur. Göngufólk á oft I jafnmiklum erfiöleikum en munurinn er þó
sá aö ekki má taka svo mikiö meö sér aö ekki sé hægt aö bera
I N N I S L I S T
Ökuferðin
i ökuferö má notast viö þennan lista sem viðmiöun.
UTBUNAÐUR
1. Tjald.
2. Bakpoki til aö nota í dagsferöir.
3. Eldunartæki, gasprímus.
4. Pottar og panna.
5. Hnífapör fyrir alla.
6. Hitabrúsi.
7. Drykkjarílát fyrir alla.
8. Diskar fyrir alla.
9. Salernispappír.
10. Eldhúsrúllur.
11. Eldhúshnífur.
12. Útvarp.
13. Vatnsbrúsi, ca. 10 lítra.
14. Kassi undir matvæli svo þau
kremjist ekki.
15. Ferðagrill, kol, uppkveikja.
16. Eldspýtur.
17. Einangrunarmottur á tjald-
botninn.
18. Landakort.
19. Teppi.
20. Sjúkrakassi.
FATNAÐUR
1. Gönguskór, lóttir strigaskór
eða hálfstífir gönguskór.
2. Sokkar og hosur.
3. Buxur.
4. Nærföt.
5. Peysur.
6. Húfa.
7. Vettlingar.
8. Vindgalli.
9. Regngalli.
10. Úlpa.
11. Varafatnaöur.
MATUR
1. Grillmatur, s.s. lærissneiöar,
kótilettur, pylsur.
2. Mjólk.
3. Egg.
4. Álegg.
5. Te og kaffi.
6. Ávaxtaþykkni.
7. Kakóduft.
8. Morgunmatur, s.s. hafragraut
ur eöa kornflex.
9. Súpur.
10. Nasl.
Undirbúningur
Mjög brýnt er aö allur undirbún-
ingur feröalagsins sé góöur. Þaö á
viö alla skipulagningu feröarinnar,
hversu lengi hún skal standa, hvert
skal fara, hvenær koma skal til
baka, hvaö ætlunin sé aö hafa fyrir
stafni o.s.frv. Hyggilegast er aö
gera lista yfir allt þaö sem ætlunin
er aö hafa meöferöis og merkja
síöan viö eftir því sem pakkaö er
niöur. Þennan lista skal geyma á
góöum staö. Þegar heim er komiö
er ráö aö taka listann fram á ný og
velta fyrir sér hvernig sá útbúnaö-
ur, fatnaöur og matur gagnaöist
sem haföur var meö í feröinni. Meö
þessu móti má smám saman full-
komna minnislista. Smám saman
detta út atriöi sem enga nauösyn
bar til aö hafa meö og önnur nauö-
synlegri bætast viö.
Ökuferðir
Feröalög á einkabíl er eflaust
vinsælasti feröamáti islendinga
hér innanlands. Stefnulaus akstur,
t.d. hringvegurinn um hina eöa
þessa landshluta, er lítiö skemmti-
legur. Best er aö undirbúa feröa-
lagiö vel og vandlega. Ákveöa
hvert fara skuli í fyrsta áfanga og
reyna aö dvelja þar í einhvern
tíma, reyna aö njóta útiverunnar
jafnvel þó að rigni. Víöast er heim-
ilt aö tjalda og mjög víöa eru
tjaldsvæöi. Þaö er lítiö gaman aö
aka í gegnum Húsafell, Þingvelli
eöa framhjá Skaftafelli. Viturlegra
er aö stoppa og skoöa sig um,
gista jafnvel í tvær nætur.
A feröalagi er nauösynlegt aö
bíllinn sé i góöu standi ekki síst
hjólbaröarnir. Malarvegirnir eru
ákaflega slæmir og geta dekkin
auöveldlega sprungiö vegna álags
af hvössum steinum og klöppum
sem uppúr standa. Almenn örygg-
istæki veröa aö vera í mjög góöu
lagi. Nefna má ökuljós, flautu,
bremsur, stýri og vél. Þá má nefna
hluti eins og rafgeyminn, vatns-
magn á vatnskassa og þrýsting á
hjólböröum.
islendingar eru miklir trassar
meö bíla sína, sagöi útlendingur
nokkur og bætti því viö aö landinn
ætti aldrei varahluti eöa verkfæri í
btl sínum. Af helstu varahlutum má
nefna kerti, platínur, kveikjulok,
kveikjuhamar, viftureim og vara-
dekk. Auk þeirra verkfæra sem
fylgja bílnum getur komiö sér vel
aö hafa skiptilykil, skrúfjárn og
töng meðferöis. Aö auki er sjálf-
sagt aö hafa sjúkrakassa og
slökkvitæki í bílnum, ekki aöeins á
ferðalögum.
Þegar farangurinn er valinn
skiptir miklu hvert ætlunin er aö
halda. Sé fariö um óbyggöir er
brýnt aö vera vel útbúinn, ef
eitthvaö skyldi koma fyrir. Nauö-
synlegt er aö hafa meöferöis vega-
kort.
Þaö skiptir einnig miklu máli
hvernig farangrinum er komiö fyrir
i bílnum svo auövelt sé aö komast
aö einstökum hlutum. Því veröur
aö hluta farangurinn niöur, geyma
hann í töskum eöa kössum vel
merktum. Þunga hluti ætti aö setja
neöarlega i bílinn svo þyngdarhlut-
föll öll raskist ekki. Varast ber aö
setja farangurinn á toppinn því
þaö veldur loftmótstööu og um
leiö meiri eldsneytiseyöslu. Sé far-
angurinn svo mikill aö hann komist