Morgunblaðið - 19.07.1985, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚLl 1985
B 13
hefur sagt um sjálfan sig sem
leikritaskáld aö hann sé sígildur
höfundur einmitt vegna þess aö
hann skrifar fyrir sína samtíö, um
sína samtíö. Þaö er sama hvaöa
sígildan höfund þú tekur, þeir eiga
þaö sameiginlegt aö varpa Ijósi á
sína samtíö, fyrir sitt samtíöarfólk.
Ég myndi álíta þaö svik viö slíka
höfunda aö reyna aö setja verk
þeirra upp í „anda“ þess tíma sem
þeir liföu á. Sá andi er ekki lengur
til, nema hann sé aö finna í okkar
samtíö. Leiksýning hlýtur aö
mótast af þeim heimi sem viö lifum
í — í dag. Þá á óg viö tilfinninga-
heim okkar og hugsanaheim.
Ööruvísi getum viö ekki talaö til
samtíöarfólks okkar. Hvaöa stíll er
síðan valinn í ytra formi er önnur
spurning.
Eitt af þvi sem mér finnst svo
athyglisvert hjá Strindberg er aö
dýptin í persónum hans kemur
sterkast fram i kvenpersónunum.
En hann lýsir fyrst og fremst viö-
brögöum persónanna og þú verö-
ur sjálfur aö kafa eftir orsökinni.
Ég upplifi aö hjá honum séu þaö
konurnar sem brenna sterkast af
lífslöngun, meöan hann gerir grín
aö sjálfum sér og sínu kyni. Hann
hefur gjarna veriö kallaður kven-
hatari, — ég veit ekki hvort þaö er
rétt. Kannski var hann hræddur
viö þær? Kannski öfundaði hann
þær?“
Hvernig lifum
viö okkar lífi
„Þegar maöur er að vinna aö
leiksýningu þarf maöur aö gera
upp viö sig: Hvaö vil ég segja meö
(>essu verki? Fyrir mér er mikil-
vægt aö draga fram atriöi, sem eru
höfö á huldu í daglegu lífi, bæld og
falin. Þetta geröi Strindberg. Hann
spyr: Hvernig lifum viö okkar lífi? í
formála aö Draumleik segir: ...
Allt getur gerst, allt er mögulegt og
sennilegt. Tími og rúm eru ekki til.
Llr smávægilegu efni veruleikans
spinnur ímyndunarafliö og vefur
nýjar myndir: samruna af minning-
um, raunverulegum atvikum, upp-
spuna, fjarstæöum og augnabliks
hugkvæmni. — Meö þessum orö-
um gefur höfundur óendanlega
möguleika og gerir samtímis mikl-
ar kröfur.“
— Finnuröu jákvæða lífsspeki í
Draumleik?
„Já þaö finn ég. Ég upplifi þetta
verk sem yfirgripsmikla lýsingu á
mannlifinu. i öllu því sem ég geri
finnst mér markmiöið vera aö efla
lifslöngun áhorfenda, þannig aö
þeir finni fyrir henni meöan á sýn-
ingu stendur og finni hjá sér löng-
un til aö fara út og takast á viö lífiö
og tilveruna, lifa lífinu í návist ann-
arra. Þetta hljómar kannski róm-
antískt — en þaö er þaö ekki. Viö
þurfum á slíkri örvun aö halda í
dag, því einstaklingurinn veröur
svo auöveldlega undir sem slíkur. í
Draumleik lætur Strindberg Agn-
esi segja um mennina: Þessi eru
mín börn. Hvert um sig eru þau
góö, en þegar þau koma saman
deila þau og veröa aö djöflum."
Þegar líf manns
og verkiö verða eitt
— Veröur þér aldrei á aö upp-
götva aö þú hafir verið aö flýja
sjálfan þig i starfi þinu?
„Á meöan ég er aö vinna finnst
mér í rauninni óhugsandi aö ég sé
aö flýja sjálfan mig. Ég get blekkt
mig, en þaö kemst upp fyrr eða
síöar, þvi ef svo er þá ganga hlut-
irnir ekki upp. Þaö er spurning um
hvenær maður kemst á þaö stig í
vinnunni aö ná utanum grunn þess
sem veriö er aö skapa og aö allir
sem eru aö vinna saman finni hver
fyrir persónuleika annars. Sem
leikstjóri upplifi ég vinnu mina fyrst
og fremst gegnum aöra og þetta er
þaö stig þegar líf manns og verkiö
veröa eitt. Leikarar og leikstjóri
geta gefiö sig út i þrotlausa leit.
Þaö er mikilvægt fyrir listamenn aö
finna sameiginlegan kjark til aö ef-
ast og úthald í þeirri leit sem list-
greinin útheimtir."
VIDTAL/KRISTÍN BJARNADÖTTIR
MYNDIR/EMILÍA B. BJÖRNSDÓTTIR
10. Sjúkrakassi meö plástrum,
blööruplástrum, skærum,
sárabindum, magnýl, spritti,
joöi o.fl.
11. Varafatnaöur, t.d. aukapeysa,
íþróttabuxur, vettlingar, húfa,
sokkar, stuttbuxur.
MATUR
1. Frostþurrkaöur matur, en
hann er léttur og fyrirferöarlít-
ill.
2. Kjötmeti, daglegur skammtur
um 150 g.
3. Flatkökur, þær geymast mjög
vel.
4. Smjör.
5. Álegg, s.s. kæfa, ostur, mys-
ingur, hangikjöt o.fl.
6. Nasl. Súkkulaöi, rúsínur,
þurrkaöir ávextir, hnetur o.fl.
orkuríkar fæðutegundir.
7. Ávaxtaþykkni.
8. Te eöa kaffi
9. Kakóduft.
10. G-mjólk.
11. Varamatur. Hann skal geyma i
lokuöu íláti, sem ekki má
snerta fyrr en allt annaö er
uppuriö. T.d. nokkrir flatköku-
pakkar, frostþurrkaöur matur,
þrúgusykur, brjóstsykur og
súkkulaöi.
Samantekt/Siguröur Sigurðsson, höf.
bókarinnar „Fjallaferöir. Handbók ís-
lenskra ferðalanga um útbúnaö og
tækni".
M I N N I S L I S T I
Gönguferö,
þrír dagar eöa lengur
Göngufólk getur haft þennan minnislista sér til halds og
trausts í ferðum sínum. Ekki má þó fylgja honum í
blindni, frekar nota hann sem viömiöun.
11. Landakort, í mælikvaröanum
1:100.000 og einnig 1:250.000.
12. Flauta, neyöartæki í villu.
13. Neyöarblys.
14. Ljósfæri, vasaljós eöa kerti
ásamt eldspýtum.
15. Tjald.
16. Álpoki. Öryggistæki í neyð.
17. Úr.
18. Útvarp.
FATNAÐUR
1. Gönguskór, hálfstífir og upp-
háir. Varareimar.
2. Hosur, helst tvennar og til
vara.
3. Legghlífar, til varnar bleytu.
4. Hnébuxur.
5. Nærföt, léttar síöar nærbuxur
til vara.
6. Peysa.
7. Vettlingar.
8. Vindgalli.
9. Regngalli. Best er aö nota
galla úr „core-tex“ en hann
„andar" og er þá vindgallinn
óþarfur.
ÚTBÚNAÐUR
1. Bakpoki, 50 lítra eöa stærri.
2. Svefnpoki, sem hægt er aö
opna aö endilöngu.
3. Eldunartæki. Bensín- eöa
steinolíuprímus.
4. Pottur og panna. Veröa aö
vera léttir og fyrirferöarlitlir.
5. Hnífapör.
6. Hitabrúsi.
7. Drykkjarílát.
8. Salernispappír.
9. Vasahnífur meö innfelldu blaöi
ásamt öörum hjálpartækjum,
s.s. skrúfjárni, skærum, sting,
sög o.fl.
10. Áttaviti.
Samkomur í
Háteigskirkju
TRÚ OG LÍF heldur samkomur í
Háteigskirkju dagana 19.—22. júlí.
Ræðumaður öll kvöldin er Tony
Fitzgerald frá Englandi.
Mikið verður um söng á sam-
komunum, Tony Fitzgerald pred-
ikar guðs orð og biður fyrir fólki.
Samkomurnar byrja kl. 20.30 öll
kvöldin og eru allir velkomnir.
(FrélUtilkynninf.)
Snillingarnir Ketil Haugsand og
Laurence Dreyfus.
Leiðrétting
f GAGNRÝNI um síðustu helgar-
tónleika í Skálholti var þess getið,
að um næstu helgi yrðu merkir
tónleikar haldnir þar. Rétt þykir
að leiðrétta í því sambandi smá
skekkju, en um næstu helgi falla
sumartónleikar niður vegna hinnar
árlegu Skálholtshátíðar. Tónleik-
ar Ketil Haugsand og Laurence
Dreyfus verða um aðra helgi héðan
í frá eða dagana 27. og 28. júlí.
Jón Ásgeirsson
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!