Morgunblaðið - 19.07.1985, Page 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚLl 1985
LIST
Gallerí Borg:
Sumarsýning
í Gallerl Borg hefur verið opnuö
sumarsýning. Þar eru til sýnis um
100 myndverk, graflkmyndir, pastel-
myndir, vatnslitamyndir og teikn-
ingar eftir alla helstu listamenn þjóð-
arinnar. Einnig eru til sýnis listmunir
úr keramik og gleri.
Sýningin verður opin til ágústloka
og mun taka einhverjum breytingum
frá degi til dags.
Gallerf Borg verður lokaö um
helgar I júll og ágúst, nema sérstakt
samkomuiag komi til við einstaklinga
eða hópa.
NýlistasafniÖ:
Douwe Jan Bakker
Hollenski listamaöurinn Douwe
Jan Bakker opnaði þ. 5. júll sl. sýn-
ingu I Nýlistasafninu viö Vatnsstlg I
Reykjavlk.
Bakker hefur haft mikið samneyti
við islenska listamenn bæöi hér og I
Hollandí en hann er nú staddur hér I
tfunda sinn, kom hingaö fyrst 1971.
Hann hefur haldið sýningar I Gallerf
Súm og Gallerl Suðurgötu 7.
Sýningin I Nýlistasafninu ber heit-
ið “Notes and references" og er
tvfskipt; annarsvegar eru verk sem
Bakker hefur komið meö hingað sér-
staklega og hinsvegar verk eftir
hann I eigu safnsins. Verkin úr eigu
safnsins eru: "A Vocabulary Sculpt-
ure in the lcelandic Landscape" og
“Um sérstakt framlag íslands og Is-
lensks samfélags til sögu bygg-
ingarlistarinnar". Fyrra verkið sam-
anstendur af 72 Ijósmyndum af ýms-
um fyrirbærum I Islensku landslagi
og tilheyrandi nöfnum. Hefur verkið
verið sýnt víða.
Sýningin stendur til sunnudagsins
21. júlf og er safnið opið alla daga
frá kl. 16.00 til 20.00.
Kjarvalsstaðir:
Verk Jóhannesar S.
Kjarvals
í Kjarvalssal stendur nú yfir sýn-
ing á verkum Jóhannesar S. Kjarv-
als. A sýningunni eru 30 málverk og
teikningar allar I eigu Kjarvalsstaða.
Þar á meðal eru nokkur verk sem
keypt hafa verið á slöustu árum og
hafa ekki sést opinberlega fyrr. Sýn-
ingin er opin daglega kl. 14.—22.
fram til júlfloka.
HVAD
ERAÐ
GERAST
UM
Rússneskar Ijós-
myndir af íslenskum
listamönnum
Sýning á 164 Ijósmyndum af ís-
lenskum listamönnum eftir rússn-
esk-franska Ijósmyndarann Vladimir
Sichov stendur nú yfir I vestursal
Kjarvalsstaða. Sýningin er opin kl.
14 —22. til 28. júlf.
Asmundarsafn:
.Konan í list
Ásmundar
Nú stendur yfir I Asmundarsafni
við Sigtún sýning sem nefnist Konan
I list Asmundar Sveinssonar. Er hér
um að ræða myndefni sem tekur yfir
mest allan listferil Asmundar og birt-
ist I fjölbreytilegum útfærslum.
Sýningunni er skipt I fjórar eining-
ar sem sýndar eru I fjórum sölum
safnsins: Kona og barn uppi I Kúl-
unni, Kona og karl niðri I Kúlunni,
Kona við vinnu I Pýramidunum og
Kona sem tákn I Skemmunni.
Safnið er opið alla daga frá kl.
10.00—17.00.
Hans Christiansen
sýnir í Þrastarlundi
HANS Christiansen myndlistarmaður opnaöi um síöustu
helgi sýningu á rúmiega tuttugu vatnslitamyndum i veit-
ingastofunni Þrastarlundi við Sog. Þetta er hans 10. einka-
sýning. Myndirnar é sýningunni eru flestar geröar á þessu
og síöasta ári og eru þær allar til sölu. Sýningunni lýkur
þann 28. júlí nk.
Norræna húsiö:
Gunnlaugur
Scheving
Sumarsýning Norræna hússins er á
verkum Gunnlaugs Scheving. öll
verkin á sýningunni eru sjávarmynd-
ir. Sýningin er opin alla daga kl.
14.00—19.00 en henni lýkur 25 júll.
Norsk grafík
í anddyri Norræna hússins var
opnuð sýning á graflkmyndum
norska listamannsins Guttorm Gutt-
ormsgaard sl. mánudag. Sú sýning
er opin á venjulegum opnunartlma
Norræna hússins og stendur til 22.
júlf.
Feröaleikhúsið sýnir „Light Nights“
FERÐALEIKHÚSIÐ hefur nú byrjað 16. ttarfsár sitt. Eins og áöur bera sýningar þess nafniö
„Light Nights“ og fara fram á ensku enda ætlaöar erlendum feröamönnum. Efniö er allt ísienskt
og er markmiö sýninganna aö gefa útlendingum innsýn í íslenskt menningarlíf í aldanna rás.
Margir listamenn koma fram f sýningunum eöa leggja þeim liö á annan hátt. Leikhússtjórar
Feröaleikhússins eru Halldór Snorrason og Kristfn G. Magnús, sem jafnframt er sögumaöur í
sýningunum. Sýnt er í Tjarnarbíói öll fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld
til ágústloka. Sýningar hefjast kl. 21.00.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Safnahús og
höggmyndagarður
Safnahús Listasafns Einars
Jónssonar er opið laugardaga og
sunnudaga frá klukkan 13.30 til
16.00 og höggmyndagaröurinn sem
I eru 24 eirafsteypur af verkum lista-
mannsins er opinn sömu daga frá
klukkan 11.00 til 17.00.
Akureyri:
íþróttaskemman
í dag verður opnuð viðamikil
myndlistarsýning I íþróttaskemm-
unni við Tryggvabraut á Akureyri.
Þar sýna rúmlega 20 ungir myndlist-
armenn milli 130 og 140 verk; mál-
verk, teikningar, skúlptúra, textll
graflk og keramik.
Þátttakendur eiga það sameigin-
legt að hafa stundað listnám um
lengri eöa skemmri tlma utan heima-
byggðarinnar, ýmist I Reykjavlk eða
erlendis. Flestir eru þeir Akureyr-
ingar, en einnig eru I hópnum aðrir
Norðlendingar, sem byrjuðu listnám
sitt I Myndlistarskólanum á Akureyri.
Tilgangur sýningarinnar, sem styrkt
er af Menningarsjóði Akureyrarbæj-
ar, er að sýna hvaö ungt myndlistar-
fólk á Akureyri er að fást við og
hvers er að vænta af nýrri kynslóð á
þessu sviði.
Akranes:
Bókasafn Akraness
Sovésk bóka- og listmunasýning
stendur yfir I bókasafninu. A sýning-
unni eru á þriðja hundrað bækur af
ýmsu tagi. Einnig eru sýnd vegg-
spjöld, hljómplötur og frlmerki. List-
munir eru 27 talsins, öskjur og lakk-
myndir.
Sýningin veröur opin á afgreiðslu-
tíma safnsins.
Hafnarfjöröur:
Menningar og lista-
stofnunin Hafnartxxg
Ungverski listamaðurinn Janos
Probstner sýnir pastelteikningar I
Hafnarborg, menningar og lista-
stofnun Hafnarfjaröar. Probstner
hefur dvalist hér á landi um nokk-
urra vikna skeið, og eru myndirnar
afrakstur dvalarinnar.
Janos Probstner er fyrsti erlendi
listamaðurinn sem sýnir I Hafnar-
borg. Sýningin er opin kl.
14.00—19.00.
Hverageröi:
Ámi Garðar sýnir
í Eden
Nú stendur yfir I Eden I Hvera-
gerði málverkasýning Arna Garöars.
A sýningunni eru 63 vatnslita- og
pastelmyndir, aöallega landslags-
myndir hvaðanæva af landinu. Sýn-
ingin er opin daglega frá kl. 9.00 til
23.30. Henni lýkur á sunnudags-
kvöldið 21. júlf.
ísafjörður:
Slúnkaríki
Nú um helgina opnar I Slúnkariki
á ísafirði sýning Svölu Jónsdóttur á
Ijósmyndum. Sýningin stendur til 2.
ágúst nk. Svala hefur áður tekið þátt
I ýmsum samsýningum og þá sýnt
grafikmyndir.
SÖFN
Þjóðminjasafnið:
íslenskar hannyrð-
ir í Bogasal
Nú stendur yfir I Bogasal Þjóð-
minjasafns íslands sýning á verkum
islenskra hannyröakvenna og nefnist
hún „Með silfurbjarta nál“. Þar gefur
aö llta verk eftir rúmlega 40 konur
sem uppi voru frá þvl á 12. öld og
fram undir slðustu aldamót. A sýn-
ingunni er leitast við að draga fram
helstu einkenni hinnar Islensku út-
saumshefðar. Mjög vegleg sýningar-
skrá hefur verið gefin út og er I henni
meðal annars aö finna æviágrip allra
þeirra kvenna ssem verk eiga á sýn-
ingunni. Sýningin er opin daglega
frá kl. 13.30 til 16.00 fram I október.
Arbæjarsafn:
Sumarsýning Arbæjarsafns var
opnuð um slðustu helgi. Hér er um
að ræða farandsýningu frá
þjóðminjasafni Grænlendinga f
Nuuk. Sýndir eru grænlensku bát-
arnir qajaq og umiaq.
Sýningin er opin á opnunartlma
safnsins sem er frá 13.30 til 18.00
alla daga nema mánudaga.
Sædýrasafniö:
Dýrín stór og smá
Sædýrasafnið verður opið um
helgina, eins og alla daga, frá kl.
10.00—19.00
Meðal þess sem er til sýnis eru
háhyrningar, Ijón, (sbjörn, apar,
kindur og fjöldi annarra dýra, stórra
og smárra.