Morgunblaðið - 19.07.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1986
B 15
Skálholtshátíðin
á sunnudag
HIN árlega Skálholtshátíö verður haldin á sunnudaginn 21.
júlí. Hátíóin hefst með klukknahringingu kl. 13.30, en kl. 14.00
hefst messa í Skálholtskirkju. Sr. Sveinbjörn Sveinbjörnsson
prófastur predikar en sr. Ólafur Skúlason vígslubiskup og sr.
Guðmundur Óli Ólafsson þjóna með honum fyrir altari. Að
messu lokinni veröur samkoma í kirkjunni þar sem meðal
annars veröur flutt erindi um Ebenezer Henderson og dag-
skrá úr skáldskap Odds Gottskálkssonar. Einnig veröur
orgelleikur, einsöngur og almennur söngur. Ferð verður á
hátíðina frá Umferðarmiöstöðinni kl. 12.00 og til baka aö
hátíö lokinni.
LEIKLIST
Stúdentaleikhúsiö:
Draumleikur
Strindbergs
Stúdentaleikhúsið sýnir sunnu-
daginn 21. júlf leikritiö Draumleik eft-
ir Strindberg ( þýðingu Sigurðar
Grfmssonar. Er þetta f fyrsta sinn
sem draumleikur er sviðsettur hér á
landi. Leikstjóri er Kári Halldór.
Söngur og hljóðfærasláttur gegna
veigamiklu hlutverki I þessari sýn-
ingu og var öll tónlistin samin sér-
staklega af þessu tilefni af Arna
Harðarsyni, tónskáldi og stjórnanda
Háskólakórsins. Lýsingu annast
Agúst Pétursson en hópur ungs
myndlistarfólks sér um leikmynd og
búninga. Sextán ungir áhugaleikarar
koma fram I sýningunni.
Sýningarnar eru f Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut og hefjast
nokkuð seinna en vanalegt er, eða
kl. 22.
SAMKOMVR
Hótel Borg:
Orator með
dansleiki
Hótel Borg hefur tekið stakka-
skiptum og þar fara nú aftur fram
dansleikir á vegum Orators. Það
veröur bryddað upp á ýmsum nýj-
ungum, en andi síðastliöins vetrar
mun svlfa yfir vötnum.
Pöbb-lnn:
Hljómsveitin
ROCK-ÓLA
Hljómsveitin ROCK-ÓLA leikur
fimm daga vikunnar á Pöbb-lnn
Hverfisgötu 46, það er að segja frá
miðvikudegi til sunnudags. Meðlimir
hljómsveitarinnar eru Agúst Ragn-
arsson, Bobby Harrisson, Pálmi Sig-
urhjartarson og Rafn Sigurbjörns-
son.
Húnaver:
Bongóhátíð
A laugardag og sunnudag veröur
haldin svokölluð Bongóhátlð I Húna-
veri. Það er hljómsveitin Stuðmenn
sem stendur fyrir hátlðinni og mun
hún leika fyrir dansi bæði kvöldin og
einnig leika þeir seinnipart sunnu-
dags. Auk Stuðmanna koma fram á
hátlðinni þeir Bubbi Morthens og
Megas. Þá mun Herbert Guðmunds-
son söngvari taka lagiö og kynna
Búddatrú. Jón Páll verður á staðnum
og mun hann sjá um kraftakeppni
og fleiri uppákomur. Slðast en ekki
sist koma fram fjórir blámenn frá
Senegal, sem kynna tónlist frá
heimalandi sfnu og kenna gestum á
bongótrommur.
Reykjavíkurmót
bamanna:
A sunnudaginn verður Reykjavlk-
urmót barnanna haldið I Hljómskála-
garðinum. Þar verður keppt I fjöl-
mörgum (þróttagreinum og margt
fleira verður til skemmtunar eins og
t.d. róðrartúrar á Tjörninni, hljóm-
leikar og fjölbreytt skemmtiatriði.
Mótið hefst kl. 14.00 og stendur til
kl. 17.00. Skráning i keppni I hinum
ýmsu greinum hefst kl. 13.30. Að-
gangur er ókeypis og ekkert keppn-
isgjald veröur heimtaö af keppend-
um. Þaö er skátafélagið Arbúar sem
sér um leikana.
FERDIR
Feröafélag íslands:
I kvöld verður fariö I helgarferðir
til Þórsmerkur, Landmannalauga
(Fjallabaksleið nyrðri) og Alftavatns
(Fjallabaksleið syðri).
Sunnudaginn 21. júlf verður ferð
til Þórsmerkur kl: 8.00. Klukkan
10.00 verður gengið á Stóra Kóngs-
fell — Þrfhnjúka — Sporið og
Grindaskörö (Reykjanesfólkvangur)
og kl. 13.00 sama dag verður geng-
ið af nýja Bláfjallaveginum á Stóra
Bolla. Brottför I þessar feröir er frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Útivist:
Um helgina eru þrjár helgarferðir
hjá Utivist. Klukkan 20.00 I kvöld eru
ferðir f Þórsmörk og Eldgjá — Land-
mannalaugar. í Þórsmörk er gist I
Útivistarskálanum f Básum. I Eld-
gjárferðinni er gist I góðum skála
sunnan Eldgjár. Gengið verður á
Gjátind að Ófærufossi og vlðar. A
laugardagsmorguninn kl. 8.30 verð-
ur gengiö yfir Fimmvöröuháls. Gist
verður I skála á hálsinum. A sunnu-
dag verður farin dagsferð í Þórs-
mörk kl. 8.00. Kl 8.00 veröur einnig
farin ferö f Brúarárskörð og á Hlöðu-
velli. Klukkan 13.00 á sunnudaginn
er svo á dagskrá gönguferð I Mar-
ardal vestan Hengils. Brottför er frá
BSÍ, benslnsölu.
Safnaðarferð á
SkálholtshátíÖ:
Sunnudaginn 21. júll verður hin
árlega Skálholtshátlð. Af þvl tilefni
verður sameiginleg ferð austur I
Skálholt á vegum As- og Laugar-
nessöfnuða. Farið veröur frá Laug-
arneskirkju kl. 10.30 og frá Askirkju
kl. 10.45. Þátttakendur geta haft
með sér nesti ef þeir vilja, annars er
veitingasala f Skálholti fyrir þá sem
þess óska. i Skálholti verður messa
kl. 14.00 og samkoma I kirkjunni slð-
ar um daginn. Komið verður aftur til
Reykjavlkur um kl. 19.30. Fargjaldið
er kr. 250.
Þingvellir:
Þjónusta viö
ferðafólk
I sumar verður farið I skipulagðar
gönguferðir á vegum Þjóðgarðsins
og verður leiðsögumaður hafður
með f för. Gönguferðirnar verða
með þeim hætti að á föstudögum
og laugardögum kl. 13.00 verður far-
ið I svokallaða Skógarkotsgöngu.
Föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga kl. 16.30 verður farin svonefnd
Lögbergsganga; lagt af stað frá
Flosagjá og gengið um þinghelgina.
Náttúruverndarfélag
Suövesturlands:
Ferð um Bessa-
staðahrepp
Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands gengst fyrir náttúruskoðunar-
og söguferö um Bessastaðahrepp
laugardaginn 20. júlf. Farið verður
frá Norræna húsinu kl. 13.30, frá
Náttúrugripasafninu Hverfisgötu 116
(gegnt lögreglustöðinni) kl. 13.45,
frá Náttúrufræðistofu Kópavogs kl.
14.00 og frá Alftanesskóla kl.
14.45. Fargjald verður kr. 200, en
kr. 100 fyrir þá sem fara frá Alfta-
nesskóla. Frltt er fyrir börn I fylgd
meö fullorðnum. Allir eru velkomnir I
ferðina þó þeir séu ekki félagsmenn.
Leiðsögumenn veröa Jens Tómas-
son jarðfræðingur, Guðrún Jóns-
dóttir llffræðingur, Anna Ólafsdóttir
Björnsson sagnfræðingur og ólafur
E. Stefánsson ráðunautur.
Feröamálasamtök
SuÖurnesja:
Tvær feröir
um Suðurnesin
Ferðamálasamtök Suðurnesja
standa fyrir dagsferð með leiðsögu-
manni næstkomandi laugardag 20.
júlf. Lagt verður af stað frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 12.00 og
ekiö um Hafnir út á Reykjanes. Þar
verður litast um og vitinn meðal ann-
ars skoðaður. Að þvf loknu verður
farið um Staðarhverfi og I Grindavfk.
Eftir að kaupstaöurinn hefur verið
skoðaður verður farið I Hitaveitu
Suðurnesja þar sem tekiö verður á
móti hópnum.
Þátttakendum gefst kostur á að
fá sér sundsprett í Bláa lóninu eftir
aö komið er úr hitaveitunni og að
gæöa sér á veitingum ( nýja gisti-
heimilinu við Lónið. Aætlaður heim-
komutfmi er kl. 18.00.
A vegum Ferðamálasamtakanna
verður ennfremur farið I gönguferð
um Preststiga á útilegumannaslóðir.
Gengin verður gamla varðaða leiðin
milli Hafna og Staðahverfis og kom-
ið við f Eldvörpum og Sundvörðu-
hrauni. Þetta er fáfarin leið en fjöl-
breytt og er þar að finna ýmsar rúst-
ir sem vitna um veru útilegumanna.
Lagt verður af stað frá Umferðar-
miðstööinni kl. 12.00 en komiö heim
um kl. 18.00. Þátttökugjald I báðar
ferðirnar er 400 krónur fyrir full-
orðna.
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Ef að til eru
Það er kunnara en frá þurfi aö
segja, aö ef til eru egg, og ann-
aöhvort ostbiti eða grænmeti
einhverskonar, er auövelt aö
drífa upp smárétt fyrirvaralaust.
Egg tilheyra næstum „lúxus“mat
svo dýr eru þau í innkaupum. En
hvaö um þaö, flestir láta sjálfsagt
eftir sér aö neyta þeirra stöku
sinnum og illmögulegt er aö vera
án þeirra við bakstur. En hér
fylgja nokkrar uppskriftir af
eggjakökum (ommelettum) o.fl.
Eggjakaka bóndana
3 egg
V4 dl mjólk
Eggjakaka
bóndans
1 tsk. brytjað dill, nýtt eða þurrk-
aö
salt, pipar
2 dl olía
1 lítill laukur
1 græn paprika
2 tómatar
dál. af gulkorni (maís)
100 g skinka, brytjuö.
Laukur, paprika og tómatar
skoriö í bita og brugöiö í olíuna á
pönnu, sama er um skinku og
gulkorn. Egg og mjólk er þeytt
saman, kryddi bætt í og hrær-
unni hellt yfir grænmetiö. Látiö
malla viö mjög vægan straum í
10—15 mín. og lok haft yfir allan
tímann. Einnig má setja eggjak-
ökuna í ofninn. Boriö fram meö
góöu, grófu brauöi og grænmet-
issalati. Ætlaö fyrir tvo.
Frönsk eggjakaka
Þeytt er saman: 5 egg, 5 matsk.
vatn, Vi tsk. salt og örlítill pipar.
Hræran sett á pönnu, sem örlítiö
smjörlíki hefur veriö brætt á.
Bakaö á pönnunni viö vægan
straum þar til hræran er næstum
oröin stíf, hrært upp frá botnin-
um svo stífni sem jafnast.
Uppskriftin ætluö fyrir fjóra.
En í þessa eggjaköku er hægt aö
bæta ýmsu því sem fyrirfinnst í
kæliskápnum, hrærunni er þá
hellt yfir t.d.: skinku, skorinni i
teninga, rækjur, beikon og lauk,
aspas, ostabita, soönar kartöflur
í bitum, reyktan fisk, tómata i bit-
um og sjálfsagt fieira.
Eggjakaka meö kjöti
200 g hakkaö kjöt
2 dl smjörlíki eöa smjör
4 afhýddir tómatar (brugðið í
heitt vatn til aö ná hýöi af)
dál. hvítlaukur (annaöhvort duft
eða mariö rif)
salt, pipar og basillauf.
Kjötiö sett á pönnu, kryddaö
og aöeins brúnaö.
Eggjakakan: 6 egg, 5 matsk.
kalt vatn, salt, pipar og smjörlíki.
Allt hrært vel saman og brúnaö á
pönnu á meðan kjötinu er haldiö
heitu. Þegar eggjakakan hefur
stífnaö er kjötinu hellt yfir helm-
ing hennar og hinn helmingurinn
lagöur yfir og þá er rétturinn til-
búinn til neyslu.
Eggjahræra með grænmeti
í eggjahræruna: 2 egg, salt, pip-
ar, 2 dl rjómi eöa vatn
1 laukur
Eggjahraara
meö grænmeti
2 soönar kartöflur
1 bolli af snöggsoönu grænmeti i
bitum
agúrku- og tómatsneiöar.
Laukurinn skorinn í sneiöar og
rétt brugöiö á pönnu án þess aö
brúna, kartöflum og grænmeti
bætt á, ásamt agúrku- og tóm-
atbitum. Eggin þeytt meö kryddi,
rjóma eða vatni og hellt yfir
grænmetiö, hrært í á meðan aö
bakast í gegn viö vægan straum.
Skreytt meö tómatbátum og
agúrkusneiöum. Gróft brauö
borið meö.
Eggjahrsra meö tómötum
2 dl smjörlíki
4 egg
4 dl vatn eöa rjómi
Vi tsk. salt og örlítill pipar.
Smjörlíkið á aöeins aö vera
bráöiö (ekki brúnaö) á pönnunni
þegar eggjahrærunni er hellt á,
hrært í meö gaffli á meöan þetta
er aö stífna, gæta þarf þess aö
ekki veröi of þurrt. Eggjahrær-
una er hægt aö hafa heita eöa
kalda og er góö meö brauöi,
jafnvel í morgunverö á sunnudegi
eöa öörum degi. Tómatar í bitum
eöa sneiöum settir yfir.
Leiórétting viö Heimilishorn
föstudagínn 12. júlí sl.
Þau mistök uröu i uppskriftum
af „muffins" aö magn af lyftidufti
í venjulegum formkökum var
aukiö aö mun. Uppskriftin á aö
vera svona: 2 bollar hveiti, 2 dl
sykur 4 tsk. lyftiduft, 'h tsk. salt,
1 þeytt egg, 1 bolli mjólk, V* bolli
brætt smjörlíki eöa jurtaolía.
Sömuleiöis uröu mistök í
Haframjöls formkökum: I upphafi
á aö standa 1 bolli hveiti (ekki
haframjöi). Þakka þeim sem
hringdu og bentu á mistökin.