Morgunblaðið - 28.07.1985, Page 2

Morgunblaðið - 28.07.1985, Page 2
2 MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1985 Seyðisfjörður: Falsari tekinn og fluttur suður UNGUR maður var handtckinn á NeyAisflrði á fóstudag og fluttur til Reykjavíkur um kvöldiA vegna rannsóknar Rannsóknarlögreglu ríkisins á innbrotum og skjalafalsi. MaAurinn hefur játaA aA hafa í júní síAastliAnum brotist inn í tvö fyrir- Ueki viA Skemmuveg í Kópavogi, Síldarrétti og ReykiAjuna, og stoliA þaAan ávísanaheftum. Hann hafAi gefiA út ávísanir úr heftunum, en óljóst er um upphæAir. Þá hefur maðurinn verið kærð- ur fyrir misferli í bílaviðskipt- um. Hann keypti tvær bifreiðir og greiddi að mestu með víxlum, en hefur ekki staðið í skilum. Fyrrum eigandi annarrar bif- reiðarinnar tryggði víxlana með veði í bifreiðinni. Hins vegar mun maðurinn hafa selt bifreið- ina og leikur grunur á að hann hafi leynt kaupanda veði. Maður- inn hefur verið eftirlýstur og var sem fyrr segir handtekinn á Seyðisfirði þegar lögreglumenn komu auga á hann. Hann hefur að undanförnu farið um landið á bifreiðinni. Elliðaámar: Ekkert bendir til sjúkdóma VIÐ rannsókn fisksjúkdómafræð- inga á Keldum á löxunum sem á dögunum voru hirtir dauðvona úr Klliöaánum hefur ekkert það kom- ið fram sem bendir til sjúkdóma, að sögn GuAmundar Á. Bang, fisk- ræktarmanns hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur og Rafmagnsveitu Reykjavfkur. Guðmundur sagði að þessi niðurstaða kæmi sér ekki á óvart. Hann væri búinn að starfa við Elliðaárnar í 20 ár og hefðu svona hlutir komið fyrir á hverju ári. Laxarnir særðust á hrauninu fyrir ofan Elliðaárstöðin, létu sig síðan sakka niður, og söfnuðust saman við ristarnar því þeir kæmust ekki neðar. Sagði hann eðlilegt að borið hefði meira á þessu í sumar vegna þess að vatnið í ánum væri langt fyrir neðan meðallag og mikið af laxi i ánum. Akranes: Útvarps- og sjónvarpsfyrir- tæki stofnað STOFNUÐ hafa verið á Akranesi tvö fyrirtæki, sem sérhæfa sig í út- varps- og sjónvarpsrekstri svo og annarri fjölmiðlastarfsemi. í síðasta tölublaði Lögbirt- ingablaðsins kemur fram að bæði fyrirtækin, Útvarp Akranes og Sjónvarp Akranes, eru rekin með ótakmarkaðri ábyrgð af eigend- unum, þeim Andrési ólafssyni og Jóni Sveinssyni. ÍDAG Meðal efnis í blaðinu í dag er: Útvarp/sjónvarp ........ 6 Dagbók ................. 8 Fasteignir ........... 9/20 Leiðari ................ 28 Reykjavíkurbréf .... 28/29 Myndasögur ............. 32 Peningamarkaður ........ 34 Raðauglýsingar ...... 39/49 Iþróttir ............ 54/55 Fólk í fréttum .... 30b/31b Dans/bíó/leikhús ... 32b/35b Velvakandi ........ 36b/37b Starfsmenn KollafjarðarstöAvarinnar og hjálparmenn taka laxinn úr netunum í Kollafirði. MorgunblaðiS/Jóhannes Long DREGIÐ FYRIR í KOLLAFIRÐI TÆPLEGA 2.000 laxar hafa nú skilað sér úr hafbeit hjá LaxeldisstöA ríkisins í Kollafírði. Sigurður Þórðarson stöðvarstjóri sagði aö undan- farna daga hefðu komið 100 til 260 laxar á hverju fíóði. Sigurður sagði að torfurnar kæmu stöðugt að og virtist ekkert lát á þeim. Illa hefur gengið að fá laxinn til að ganga inn f stöðina vegna vatnsleysis og laxinn þvi verið í torfum fyrir utan stöðina. Nú hafa starfsmenn Kollafjarðarstöðvarinnar hins vegar tekið upp á því að draga fyrir í rennunni neðan við stöðina til að koma í veg fyrir að laxarnir fari til baka og fælist hann við þetta upp í stöðina. Geir Gunnar Geirsson alifuglabóndi á Vallá: Lýsir ríkissjóð ábyrgan fyrir yfirvofandi tjóni Heldur lífinu í öndunum á Skeggjastöðum með kjúklingafóðri GEIR Gunnar Geirsson, alifuglabóndi á Vallá á Kjalarnesi, hefur sent landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra skeyti þar sem hann lýsir fullri ábyrgð á hendur ríkissjóði vegna stórfellds tjóns sem hann segir yfírvofandi í búum sínum, því með nýrri kröfu um staðgreiðslu fóður- gjalds hafí sér verið gert ókleift að leysa út nauðsynlegt fóður fyrir alifuglana. Geir Gunnar rekur stórt hænsnabú á Vallá og andabú á Skeggjastöðum í Mosfellssveit. í fyrradag var orðið fóðurlaust á Skeggjastöðum en hann sagðist hafa bjargað sér fyrir horn með því að nota afgangsfóður sem ætlað er kjúklingum og gæti hann haldið lífinu i öndunum í nokkra daga með því. Geir Gunnar sagðist eiga nóg af fóðri á hafnarbakkanum en til þess að fá það þyrfti hann að staðgreiða 50% fóðurgjaldið, sem af þessari sendingu væri hátt i milljón. Það sagði hann útilokað að gera vegna þess að stöðugt þyrfti að borga kröfur vegna gamla kjarnfóðurgjaldsins sem verið hefði með greiðslufresti. Dalvík: Unnið að slökkvistarfi UNNID að slökkvistarfí á Dalvík. Mikið tjón varö þegar eldur kom upp í fískverkunarhúsi Hallgríms Antonssonar á fímmtudagskvöldið. Eldsins varð vart um klukkan 18 og var mikill eldur í þaki. Slökkviliði tókst að varna því að eldur bærist í bifreiðaverkstæði við hliðina og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Hins vegar er ljóst að tjón er tilfinnanlegt. Hallgrím- ur Antonsson hefur starfrækt harðfiskverkun og reykt fisk. Um hálft tonn af harðfiski eyðilagðist. „Maður getur ekki lagt út fyrir þessu öllu í einu,“ sagði Geir Gunnar, „og þó maður ætti fyrir þessu i tékkheftinu hefur maöur engan móralskan rétt til að taka þetta nýja gjald fram yfir kröfur annarra. Kröfuhafarnir verða allir að fá sitt í réttri röð.“ Sagði Geir Gunnar þessi stað- greiðsluákvæði sérstaklega óréttlát gagnvart andauppeldinu, þar sem þar væri verið að fram- leiða fyrir jólamarkaðinn og pen- ingarnir skiluðu sér ekki fyrr en eftir áramót. Hann kvaðst engin svör hafa fengið frá ráðherrun- um við skeyti sínu. „Ég er að vona að þetta leysist farsællega. Albert tók á sig rögg og stoppaði kjötinnflutning til Varnarliðsins en gaf svo eftir til að hermenn- irnir þyrftu ekki að svelta. Ég held að hann sé líka dýravinur og er að vona að hann láti það sama ganga yfir endurnar og her- mennina," sagði Geir Gunnar. Þjálfun áhafna fyrir pflagríma- flug nær lokið FLUGLEIÐIR eru nú að þjálfa þrjár áhafnir Arnarfíugs fyrir pílagríma- flug, sem bæði flugfélögin hafa gert samning um. PflagrímaflugiA hefst 1. ágúst og stendur til 20. september. Jóhannes Óskarsson, flug- rekstrarstjóri Flugleiða, sagði í samtali við Morgunblaðið að þjálfunin hefði gengið mjög vel. „Við byrjuðum þjálfunina í byrj- un júní. Fyrst var þriggja vikna bóklegur skóli þar sem fram fór kennsla á vélina sjálfa og allan þann tækjabúnað sem fylgir, en við munum verða með DC-8-vél í pílagrímafluginu. Eftir skólann fara áhafnirnar til Parísar þar sem þær fara í svokallaðan „sim- ulator" eða eftirlíkingu DC-8- flugvélar. í þessu tæki eyða áhafnirnar um 40 tímum og „fljúga" þar alveg eins og þær oón íi/S flincra í flntrvÆl bá faríi þeir í stutta flugþjálfun í flugvél. Síðast er ferðinni heitið til Saudi-Arabíu þar sem áhafnirn- ar fljúga í a.m.k. 25 tíma undir eftirliti flugstjóra og flugvél- stjóra. Við, Flugleiðamenn, skilum áhöfnunum til Arnarflugs eftir tímann í eftirlíkingavélinni. Tvær áhafnir hafa þegar gengið í gegnum þjálfunina alla, en þriðja áhöfnin er væntanleg til landsins um næstu mánaðarmót og verða þær þá tilbúnar í flugið. Lítið tveggja daga námskeið verður síðan haldið fyrir flug- freyjurnar, sem fara í pílagríma- flugið," sagði Jóhannes.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.