Morgunblaðið - 28.07.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.07.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1985 30.000 fermetra Hagkaupshús í byggingu: 50 verslanir opna í einu í júlí 1987 „FRAMKVÆMDIR hjá okkur ganga mjög vel. Verktakinn ByggAa- verk sér um að gera húsiA folhelt og klæAa aA utan. Samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að opna í júlí 1987 og bendir allt til að svo geti orðið,“ sagði Ragnar Atli Guðmundsson, framkvæmdastjóri nýbyggingar Hagkaups, sem nú er um, Kringlunni 6—8. Byggingin verður 30.000 fer- metrar á tveimur hæðum með 850 bílastæðum. Gert er ráð fyrir að flytja rekstur þann sem nú er í Skeifunni í nýja Hag- kaupshúsið og einnig munum við hýsa ýmsa starfsemi, sem tengist versluninni s.s. kjöt- vinnslu. Hagkaup mun sjálft nota um 7.000 fermetra og ætlunin er að selja um 10.000 fermetra til annarrar verslunarstarfsemi. Ragnar sagði að vel hjefði geng- ið að selja verslunarpláss og mikil eftirspurn væri eftir því. „Fyrirtækin, sem koma til með að hafa þarna starfsemi sína eru tískuverslanir, skóverslanir, sportvöruverslanir, veitinga- staðir og kaffihús, svo dæmi séu nefnd. Stærsti hópurinn, sem kemur inn í húsnæðið, eru verslunareigendur, sem eiga verslanir við Laugaveginn, en ætla að opna annað útibú. Sum- ir ætla að flytja sig frá gamla verið að vinna við í nýja miðbæn- miðbænum í þann nýja og þriðji en minnsti hópurinn eru nýir aðilar í þessum rekstri." Ragnar sagði að ætlunin væri að opna 50 verslanir í einu í júlí 1987 og síðan þremur árum síð- ar yrði 25 öðrum verslunum bætt við. Hann sagði ennfremur að fermetrinn í nýja Hagkaups- húsinu myndi kosta að meðal- tali um 40.000 krónur og væri nokkuð misjafnt hversu stórt menn keyptu — allt frá 50 og upp í 1000 fermetra. Meðalstór verslun er hins vegar á bilinu 150 til 200 fermetrar. „Húsið er byggt að amerískri fyrirmynd. Þar eru algeng svo- kölluð „Mall“ þar sem fleiri verslanir eru undir sama þaki með göngugötu á milli, sem einnig eru innan dyra. Gatan, sem verður u.þ.b. 10 metrar á breidd, verður prýdd góðri, trjám og gosbrunnum," sagði Ragnar að lokum. SéA yfir byggingarsvæAi nýja Hagkaupshússins, Kringlunni 6—8. MorKunblaöiö/Bjarni Jakob Jakobsson um aflahrotuna á VestfjarðamiÖum: Þorskurinn safnast saman í ætisleit og því auðveiðanlegur „Ég held það sé of mikið sagt að þetta hafi verið samfelld aflahrota. Hins vegar byrjaði hún óvenju snemma, en það er ekki óeðlilegt miðað við það ástand sem hefur verið í sjónum, hlýtt og mikil áta. Þetta hefur verið árviss viðburður undanfarin ár. ViA teljum að þorskurinn safnist saman á þessum tíma meðal annars í ætisleit og verði því auðveiðanleg- ur með þeirri miklu veiðitækni sem Ég vil minna á það að sam- kvæmt útreikningum okkar fiskifræðinga er þorskstofninn 900 þúsund til ein millj. tonna, svo það þarf ekki að koma nein- um á óvart, þó einhvers staðar veiðist á takmörkuðum svæðum þar sem skilyrði eru góð,“ sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, er Morgun- blaðið leitaði álits hann á afla- brögðunum á Vestfjarðamiðum á undanförnum vikum. Fregnir af miðunum fyrir vest- an herma að um mjög góðan og jafnan afla sé að ræða og lítið um smáfisk að sögn Ásgeirs Guð- bjartssonar, skipstjóra á Guð- björgu. Hann segir í Morgun- blaðinu á miðvikudag að aldrei hafi verið jafn mikill fiskur á Halanum og spyr hvers vegna ekki megi veiða í ár 370—80 þús- und lestir af þorski, eins og gert hafi verið allan fyrrihluta aldar- innar. Þorskkvóti landsmanna í ár hefur verið ákveðinn 270—80 þúsund tonn, en líklegt má telja að hann verði um 290 þúsund tonn vegna sóknarmarks margra togara. Jakob sagði að nýtt mat á stærð þorskstofnsins yrði gert í september, en það væri fyrir næsta ár, árið 1986. Kvótinn fyrir árið í ár hefði verið endur- skoðaður í apríl og þá aukinn um við búum yfir. 5%. Jakob sagði að Hafrann- sóknastofnun legði fram sínar upplýsingar um stærð þorsk- stofnsins, en það væri stjórn- valda að ákveða stærð kvótans. Varðandi þá spurningu hvort ekki mætti veiða jafn mikið sein- nihluta aldarinnar og fyrri hlut- ann, benti Jakob á að skilyrðin í sjónum hefðu breyst mjög mikið. 1920—65 hefði verið mikið hlý- veðursskeið og mjög hagstæð skilyrði í sjónum við ísland, en síðan hefði kólnað, og skilvrði versnað til mikilla muna. Arin 1965—71 hefðu verið mjög köld og eftir það hefðu skilyrði verið breytileg, til dæmis hefðu tvö síðastliðin ár verið ágæt, þannig að aðstæður fyrri og síðarihluta aldarinnar væru mjög ólíkar. Benti Jakob á að síðarihluti 19. aldarinnar hefði verið mjög frábrugðinn fyrrihlutanum og íslendingar þá hrakist úr landi þúsundum saman vegna harð- inda. Jakob sagði að eins og allir vissu væri Ásgeir Guðbjartsson einn mesti aflaskipstjóri lands- ins og eðlilegt að hans sjónarmið mótaðist af þeim aðstæðum sem ríktu á því svæði sem hann gjör- þekkti, en þær aðstæður þyrftu ekki að gilda á öllum íslandsmið- um. JlíifpMtMíxfoifo Áskriftcirsíminn er 83033
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.