Morgunblaðið - 28.07.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1985
u 7
Sætanýting í leigu-
flugi er betri nú
en fyrr í sumar
„Of margir að selja sömu kökuna,“ segir Örn Steinsen
framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Útsýn
MorgunblaðiA/Árni Helgason
ÍSLENSKUM ferdaskrifstofum gekk erifðlega að selja ís-
lenskum ferðalöngum ferðir til útlanda í maí og júní sam-
kvæmt upplýsingum fyrirtækjanna og þurfti að fella niður eða
sameina leiguflug víða til að sætanýting yrði betri. í júlímán-
uði hefur salan gengið betur og er nú upppantað í flest
leiguflug fram á haust.
Alltaf fjölgar
grænu blettunum
Fallegur trjálundur í Stykkishólmi.
Stykkishólmur:
Stykkishólmi, 22. júlí:
ALLTAF fjölgar grænu og fal-
legu blettunum í Stykkishólmi.
Útivistarsvæðin verða fleiri og
fleiri og bærinn fríkkar um leið.
íbúðarhúsabyggingar færast
lengra og lengra frá aðalbyggð
kauptúnsins eins og hann var
fyrir 40 árum og því er stærra
svæði sem þarf að þekja og gróð-
ursetja í.
Nú er unnið að þessu og hefir
garðyrkjumaður þetta með hönd-
um. Stórt svæði í nýja miðbænum
hefir nú verið þakið og hríslum
raðað víðsvegar um svæðið. Eftir
nokkur ár verður þetta bæjar-
prýði. Þá hafa önnur svæði bæjar-
ins verið færð til betri vegar og
mikið hefir áunnist við það.
Starfslið bæjarins undir stjórn
hins ötula verkstjóra Högna Bær-
ingssonar vinnur af dugnaði þarft
verk.
Þá má ekki gleyma Hólmgarði,
skrúðgarði Stykkishólmsbúa, sem
kvenfélagið hefir séð um og hóf
þar starf fyrir mörgum árum við
misjafnar spár. Þar þenst gróður-
inn út og trén stækka og verða
með hverju árinu meiri bæjar-
prýði. Árni
Margir biðu eftir skattseðlinum
Örn Steinsen framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar Útsýn
sagði að upphaf ársins hefði lofað
góðu, sala sólarlandaferða síðan
dottið niður í vor en hún hefði nú
tekið aftur við sér. „Ég tel að
offramboð á pakkaferðum, bæði
hjá ferðaskrifstofum og flugfé-
lögum, hafi ráðið mestu um lé-
lega nýtingu. Það eru of margir
að selja sömu kökuna sem veldur
því að sætadreifingin verður of
mikil.
„Veðrið hefur einnig sín áhrif,
langvarandi veðurblíða líkt og
var fyrrihluta sumars á Suður-
og Austurlandi er ekki uppáhald
ferðaskrifstofanna vegna mun
færri pantana þá en ella. Pen-
ingaleysi landans dregur og úr
sölu og margir biðu eflaust eftir
skattseðlinum til að kanna fjár-
haginn. Nú hefur aftur ræst úr
sölunni og við vonum það besta
og berum höfuðið hátt," sagði
Örn að lokum.
Fólk vill ekki eyða 5—6
vikna fríi í suddanum hér
„Við urðum ekki vör við sam-
drátt og í vorferðunum var nýt-
ing mjög góð,“ sagði Helgi Jó-
hansson forstjóri Samvinnu-
ferða-Landsýnar þegar Morgun-
blaðið innti hann eftir sætanýt-
ingu hjá fyrirtækinu. „Reyndar
tók salan kipp í júlí en þar sem
allt var þegar upppantað hjá
okkur seldist mikið í áætlunar-
flugi. Það er auðfundið að fólk
vill ekki eyða 5 til 6 vikna sumar-
leyfi i suddanum hér heima og
reynir að komast til útlanda með
öllum leiðum."
Helgi rakti aukningu júlímán-
aðar til meira jafnvægis í launa-
málum og þess að samningar
væru í höfn hjá flestum. „Fólk
sér fram á öryggi á vinnumark-
aðnum og treystir fjárhagnum
betur en fyrr í vor. Hvað varðar
samdráttinn í vor veit ég enga
viðhlítandi skýringu. Án efa hef-
ur það þó sín áhrif að í fyrra var
metár hjá ferðaskrifstofum hér
og menn hafa aukið framboðið
um 10—15% í þeirri von að aukn-
ingin yrði enn meiri í ár.“
Þegar páskar eru snemma
árs seljast vorferðir dræmt
Karl Sigurhjartarson forstjóri
ferðaskrifstofunnar Úrvals sagði
að þau ár sem páskar væru fyrr á
ferðinni kæmu verr út hvað varð-
aði sætanýtingu. „Þær skrifstof-
ur sem miða við að hefja sólar-
landaferðir um páska eiga það á
hættu að fljúga með tóm sæti
suður. Fólk kemst ekki í ferðahug
fyrr en skóla er lokið hjá börnum
og sól tekin að hækka. Þannig
reyndust apríl og maí heldur
daufir en það hefur verið upp-
pantað í ferðirnar okkar um
annatímann í júni, júlí og ágúst
og lausum sætum fækkar óðum i
haustferðirnar. íslendingar eru
því í engu minni ferðahug í ár en
áður þó að vorið hafi verið
dræmt," sagði Karl að lokum.
VILTU OKEYPIS
TIL HOLLANDS 30. AGUST ?
Viljirðu fara ókeypis í stórglæsi-
lega golfferð til Hollands þá er
tækifærið nákvæmlega núna! Og
viljirðu sameina ósvikna golfferö
og upplagða fjölskylduferð í
einum og sama pakkanum þá er
tækifærið ekki síðra. Taktu
fjölskylduna með til sæluhúsanna
í Hollandi 31. ágúst nk. og í eina
eða tvær vikur þræðir hinn góð-
kunni kylfingur, Kjartan L. Páls-
son, fararstjóri okkar í Kemper-
vennen, með þér hvern glæsi-
golfvöllinn á fætur öðrum.
Fjölskyldan er að sjálfsögðu
velkomin á völlinn á hverjum degi
en það væsirheldurekki um hanaí
sæluhúsunum með sundlaugina,
íþróttavellina, reiðhjólabrautirnar,
sólbaðsaðstöðuna og öll hin
þægindin í seilingarfjarlægð.
ÓKEYPIS FYRIR EINN!
Nú söfnum við saman áhuga-
sömum kylfingum af öllum gæða-
flokkum, förum í golf á hverjum
degi og efnum að sjálfsögðu til
SL-golfmóts með forgjöf og öllu
tilheyrandi. Verðlaunin eru ekki
af lakara taginu: Ókeypis flug og
gisting fyrir þann sem ber sigur
úr býtum og sá hinn sami fær
ferðakostnaðinn endurgreiddan
strax við heimkomu!
Verð frá kr. 12.950
miöað við 6-8 manns saman í sumarhúsi
(t.d. tvasr fjölskyldur sem slá sér saman).
Innifaliö er flug Keflavik - Amsterdam -
Keflavik, akstur til og frá flugvelli erlendis og
gisting í sumarhúsunum i Kempervennen í
eina viku. Möguleiki er á aö framlengja
dvölina um eina viku. Barnaafsláttur
kr. 3.600 fyrir börn 2ja - 11 ára.
ftlSSON
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SlMAR 21400 & 23727