Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 23

Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 23
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 28. JtJLÍ 1985 23 H Kom mér á óvart hversu áhugínn var mikill „Fyrirlestrarnir í háskólunum fyrir stúdentana voru hins vegar almennt um íslenskar fornbók- menntir og handritin, eins og ég sagði áður og það kom mér mjög á óvart, hversu mikill áhugi er á okkar fornbókmenntum víða á Ítalíu. Ég vissi ekki um þetta áð- ur, ég hef raunar aldrei komið i þessa háskóla fyrr og það var furðulegt og aðdáanlegt að kynn- ast þessum mikla áhuga. í mörgum erlendum háskólum er kennt eitthvað í íslensku, og þá aðallega í tengslum við kennslu í forn-ensku og forn-þýsku. Út frá því er stúdentum einnig kennt dálítið í forn-íslensku og ég held því fram, alls staðar þar sem ég kem i háskóla, að það sé um að gera að kenna forn-islensku með ; hinum germönsku fornmálum vegna þess að það verði til að vekja meiri áhuga hjá stúdentun- um. Þá komast þeir í snertingu stúdentunum að heyra hvernig þetta tungumál hljómaði. Hún sendi segulbandsspólu til Kaup- mannahafnar og bað lærdóms- fólk þar að lesa á þessu tungu- máli inn á spóluna fyrir sig, helst líkt því sem málið hefði verið borið fram í fornöld, enda er því lýst i málfræðiritgerðinni hvern- ig hljóðin eru borin fram. Þau treystu sér ekki til þess i Kaup- mannahöfn og sendu spóluna til fslands og Stefán Karlsson las inn á hana kafla úr Fyrstu og Annarri málfræðiritgerðinni og sendi suður. Síðan spilaði konan þetta fyrir nemendur sina og kenndi með. Svo kom hún með tíu stúdenta frá Sardiníu, til þess að hlusta á fyrirlestra og taka þátt i ráðstefnunni í Macerata. Fleiri dæmi gæti ég nefnt. í Catanía á Sikiley kom ég inn i bókasafn háskólans og þar var býsna mikið af islenskum bókum, aðallega varðandi fornbókmennt- ir og þar var haldið uppi kennslu í islensku." Hvaða saga er þekktust meðal fólks þarna suöur á ftaliu? Jónas ásamt konu sinni, Sigríði Kristjánsdóttur. Á milli þeirra stendur Mariella Ruggerini, háskólakennari í Róm. við lifandi bókmenntir, okkar fornsögur, og lifandi mál, sem er talað enn í dag hér á fslandi. Það voru svona um 20 til 30 stúdentar á hverjum fyrirlestri, þeir sem eitthvað höfðu lært um íslenskar fornbókmenntir. í flest- um tilfellum höfðu hvorki nem- endur né kennarar komið til fs- lands og landið var í þeirra aug- um eins og fjarlægt draumaland. Maður fann mjög til þess, að ís- lendingar þyrftu að koma til móts við þetta fólk og hjálpa því til að koma hingað, bæði til að læra íslensku og kynnast landi og þjóð. Og þetta á ekki aðeins við um ftalíu. Ég hef kynnst þessum mikla áhuga í Þýskalandi, Bret- landi og Ameríku, en eins og ég sagði þá kom mér á óvart að finna sama áhugann á ftalíu. Sem dæmi um þetta get ég nefnt, að á ráðstefnuna í Macer- ata kom kona, háskólakennari, frá Sardiniu. Hún hafði farið að lesa íslensku með stúdentum sín- um og byrjaði á því að lesa með þeim svokallaða „Fyrstu mál- fræðiritgerð", sem er varðveitt í handriti af Snorra-Eddu. Hún er skrifuð, að því er flestir halda, um miðja tólftu öld og er ákaf- lega merkilegt undirstöðurit um íslenskt mál frá fyrstu tíð. Svo langaði þessa konu til að leyfa „Ég held að Njála sé alltaf þekktust. Mér var sagt frá einum kennara í Mílanó, sem hafði í fyrravetur farið að lesa Njálu, hluta á íslensku og síðan söguna alla í ítalskri þýðingu, og fólk streymdi til hans, bæði kennarar og nemendur, til að hlusta og fylgjast með. Ég hitti háskóla- kennara frá Bologna, konu sem var nýbúin að þýða Grettis sögu og hún er nú komin út. Ég held að þessi „professoressa" hafi verið bálskotin í Gretti, enda hafði hann rnikla kvenhylli, sem kunn- ugt er. Ég gæti nefnt fleiri dæmi um að áhugi á íslensku máli og ís- lenskum bókmenntum er alveg ótrúlega mikill og hefur farið vaxandi þarna suður frá að und- anförnu. Eddukvæðin hafa verið þýdd tvívegis í heild sinni og ein- stök kvæði enn oftar. Þetta sýnir bara hvað þessar bókmenntir eru sígildar, þær ná til fólks ef það á annað borð fer að lesa þær, og svo auðvitað gamla tungumálið okk- ar, sem er lifandi enn í dag.“ Söfnin í Páfagarði „Það var ekki fyrr en undir lok- in á dvöl minni þarna syðra sem mér gafst tími til að fara í hin miklu skjala- og handritasöfn í Páfagarði. Ég hafði að vísu unnið í bókasafni Vatikansins við að semja fyrirlestra, en hafði ekki gefið mér tíma til að leita fyrr en í lokin. Þessi söfn Páfagarðs skiptast eins og venjulegt er í tvennt, það er annars vegar bóka- safnið, þar sem jafnframt er handritasafn og svo skjalasafn, þar sem geymd eru hin opinberu skjöl páfastólsins. Þessi söfn eru alveg gífurlega stór, þau eru hrikalega stór ef ég má taka svo til orða. Yfirskjalavörðurinn sagði mér, að lengdin á hillunum í skjalasafninu væri 200 kíló- metrar. Það er á tveimur hæðum, og hillulengdin er 100 kílómetrar á hvorri hæð. Því verður ekki í einni svipan farið í gegnum svona söfn. Söfnin eru geymd i stórum byggingum í Vatikaninu og skipt- ast auðvitað i margar deildir. Eins og nærri má geta eru ekki til fullkomnar skrár yfir hvert ein- asta skjal og mér þykir ólíklegt að slíkar skrár verði nokkurn tíma gerðar. Ég leitaði nú aðeins i skjala- safninu því tíminn var svo naum- ur að það þýddi ekkert að vera að dreifa sér. Það eru meiri likur til að finna þarna einhver skjöl eða bréf og því tók ég þann kostinn fremur en að fara í handritasafn- ið. Það halda margir hér að þetta séu lokuð söfn, en svo er ekki. Þarna gilda sömu reglur og um flest önnur handrita- og skjala- söfn í heiminum. Þau eru opin, með tiltekinni varkárni auðvitað. Menn þurfa meðmæli eins máls- metandi manns, og ég hafði með- mæli kaþólska biskupsins á Is- landi og kom þarna auk þess í fylgd ensks kaþólsks prests, séra Franks Bullivants, sem var þekktur þarna í safninu, svo að ég þurfti naumast að sýna meðmæl- in. Síðan fékk ég sérstakan passa, sem ég þurfti að sýna tvisvar í hvert skipti sem ég kom í safnið. Þarna eru auðvitað hinir sviss- nesku lífverðir páfans, eins og annars staðar í Vatikaninu og þeir hafa gát á öllum mannaferð- um. Að öðru leyti er þetta ekkert frábrugðið öðrum skjala- og handritasöfnum. Nú eru rúmlega hundrað ár síðan skjalasafn Páfagarðs var opnað, og enn í dag er það kallað „leyniskjalasafn Vatikansins". Það var lokað, nema þá fyrir heimamenn, þangað til árið 1881. Þá ákvað páfinn að opna safnið og hleypa fræðimönnum frá öðr- um löndum inn í það.“ Brautryðjanda- starf Munchs „Áður en það gerðist hafði einn Norðmaður sloppið inn í safnið. Sá maður var Peter Andreas Munch, prófessor í sögu við há- skólann í Osló, sem þá hét Kristj- ania. Munch var feikilegur garp- ur, stórmerkilegur maður, gáfað- ur og duglegur og skrifaði meðal annars mikið rit í átta bindum sem heitir „Det norske folks hist- orie“. Hann var einmitt að semja þetta rit er hann komst að þeirri niðurstöðu þegar hann var kom- inn fram á miðaldir, að heimildir myndi vera að finna í Rómaborg, í Páfagarði, um kirkjusögu Nor- egs. Hann fór til Rómaborgar með fjölskyldu sína og hreif þá svona þar í Páfagarði, að yfir- skjalavörðurinn, sem var Þjóð- verji, hleypti honum inn í safnið, fyrstum utanaðkomandi manna svo vitað sé. Munch dvaldi í nokkur ár í Róm og skrifaði upp forn bréf sem vörðuðu Noreg og Norður- lönd. Þetta var svo gefið út í norsku fornbréfasafni. Hann fór svo aðra ferð suður, en veiktist rétt eftir að hann kom til Rómar, árið 1863, og dó eftir stutta legu og er grafinn í Róm. Ég kom að gröfinni hans og þar er fallegur minnisvarði sem Norðmenn hafa sett yfir hann í kirkjugarði mót- mælenda í Rómaborg. Eftir að skjalasafnið var opnað, 1881, var fyrsta leiðbeiningarrit um safnið rit sem Munch hafði skrifað. Það var þýtt á þýsku og gefið út til leiðbeiningar handa gestum safnsins." Var safnið á þessum tíma að- gengilegt hvað varðar skrásetn- ingu og skipulag? „Ég hef heyrt þá skýringu á því hvers vegna það var lokað svona lengi, að skjalaverðirnir og aðrir sem réðu þarna hafi hálfvegis skammast sín fyrir hvað það var illa skrásett og óaðgengilegt. Þess vegna hafi þeir ekki viljað hleypa gestum inn í það, frekar en að þeir væru hræddir um að það yrði misnotað. En bæði áður og síðar hafa auðvitað verið gerðar miklar skrár. Eftir að búið var að opna safnið fóru Norðurlandamenn að venja þangað komur sínar. Það var mjög fallegt dæmi um nor- ræna samvinnu. Skiptu þeir með sér verkum Norðmenn, Danir og Svíar. Sumir voru þarna í mörg ár, bjuggu í Róm og gerðu ekkert annað en að leita að skjölum i skjalasafni páfans og skrifuðu upp það sem þeir fundu frá öllum þessum löndum. Á síðasta skeið- inu tóku þeir ljósmyndatæknina í þjónustu sína. Þeir voru þarna fyrir og fram yfir aldamót og síð- an aftur í mikilli lotu eftir 1920 og reyndar alveg fram að seinni heimsstyrjöld. En ég hygg að þeir hafi lítið verið þarna síðan, enda þóttust þeir þá vera búnir að fara yfir meginhluta safnsins." Hafðir þú einhverjar vísbend- ingar frá þeim, sem þú gast stuðst við þegar þú fórst að leita þarna? „Já, að sumu leyti. Norður- landamennirnir fóru í sjálfar bréfabækurnar en hins vegar reyndi ég að líta í skrár sem síðar höfðu bæst við. Nú háttar svo til, að þegar Norðurlönd voru undir páfanum á kaþólskum tima var ekki mikið varðveitt af frumbréf- um, en það sem fræðimennirnir frá Norðurlöndum skoðuðu aðal- lega voru eftirrit, sem gerð voru þegar bréf voru send frá Páfa- garði. Eftir 1200 hafa verið tekin afrit af flestum bréfum, sem send hafa verið frá Páfagarði. Margt hefur týnst, en afar mikið hefur þó varðveist. Hins vegar er miklu minna til af innkomnum bréfum. Þetta eru svo óskaplega miklar bréfagerðir sem hafa farið fram frá Páfagarði út um víða veröld, að það er afar seinlegt að fletta í gegnum allar þessar bækur. Norðurlandamennirnir flettu bókunum og skrifuðu upp ef þeir fundu eitthvað sem varðaði Norð- urlöndin. Bréfin eru í tímaröð og ekki flokkuð eftir heimshlutum, sem gerir þetta enn óaðgengilegra. Þess vegna tók þetta mörg herr- ans ár. Einn Dananna, sem var búinn að vera þarna í mörg ár, segist hafa verið farinn að fara i gegnum 800 stórar síður á dag, þegar hann var að leita og það má því kannski búast við að honum hafi sést yfir eitthvað í þessari leit. Norðurlandamennirnir tóku auðvitað með það sem varðaði ís- land, vegna þess að ísland var undir erkibiskupsstólnum í Nor- egi og talið eins konar útkjálki af Noregi. Allt sem fundist hefur um ísland er því í Norska forn- bréfasafninu og í íslenska forn- bréfasafninu líka. Það er því lík- lega búið að finna flestallt, sem þarna er af bréfum sem varða ts- land.“ Bréf frá Ögmundi biskupi „íslendingar sjálfir tóku ekki þátt í þessari leit og hafa lítið sem ekkert leitað í þessum söfn- um. En enski lærdómsmaðurinn og Islandsvinurinn séra Frank Bullivant, sem búsettur er í Róm, hefur fundið eitt og annað varð- andi tsland í skjalasafninu. Hann kom hér síðastliðinn vetur í boði guðfræðideildarinnar og Stofn- unar Árna Magnússonar og hélt fyrirlestra við háskólann um skjalasöfn Páfagarðs og um rannsóknir Norðurlandamanna og sínar eigin rannsóknir. Hann fann bréf frá Ögmundi biskupi Pálssyni til páfa, frá fyrri árum Ögmundar, þar sem hann ákærir Jón Arason, sem kjörinn hafði verið Hólabiskup, og krefst lög- sögu yfir honum. í bréfinu talar Ögmundur um að Hólabiskups- dæmi hafi verið stofnað út úr Skálholtsbiskupsdæmi, sem rétt var, og þess vegna eigi Hólar að vera undirgefnir Skálholti. Þetta fann Bullivant meðal annars." Telur þú ástæðu til að gera mann út af örkinni til að leita þarna? „Já, ég tel fulla ástæðu til þess. Sá maður þyrfti þá helst að vera góður bæði í latínu og ítölsku, og svo þarf hann auðvitað lika að geta lesið handrit. Bókaverðirnir tala yfirleitt ekkert nema ítölsku. Einn bókavarðanna talaði ensku og ég reyndi að leita sem mest til hans. Ég náði líka í yfirmann handritadeildarinnar þarna og hann talaði svolítið í frönsku. I skjalasafninu naut ég aðstoðar aldraðs Þjóðverja sem áður hafði verið yfirskjalavörður. Jú, það er afar mikilvægt að mínum dómi, að við gerum út menn til að leita þarna. Það kem- ur hins vegar ekki til mála að fara að feta í fótspor Norðurlandamanna og fletta öll- um þessum bréfabókum, sem þeir fóru yfir. Það er of mikið verk. En það er margt annað, sem við gætum athugað. í fyrsta lagi hef- ur bæst við söfnin ýmislegt, sem ekki var komið þegar Norður- landamenn voru þarna. Annað er, að handritasafnið hefur ekki ver- ið rannsakað sem skyldi. Þar eru til miklar skrár, stórt herbergi sem skrárnar fylla, bæði prentað- ar og skrifaðar. Þar þyrfti maður að vinna í nokkra mánuði, þó ekki væri nema til að leita af sér grun, hvort þarna séu einhver íslensk handrit, því það hefur aldrei ver- ið gert. Einnig hafa bæst við skrár yfir skjalasafnið, sem ekki voru til þegar Norðurlandamenn- irnir voru þarna.“ Eru einhverjar líkur á að þarna finnist eitthvað? „í hreinskilni sagt hef ég ekki mikla von um, að í Vatikansafn- inu leynist íslensk handrit, til dæmis handrit tslenskra forn- sagna. Þá skoðun byggi ég fyrst og fremst á því, að slíkt hefði vakið athygli. Menn hefðu áreið- anlega hrokkið við hefðu þeir rekist á handrit frá íslandi, það hefði verið svo óvenjulegt. Það er vitað um eitt íslenskt handrit þarna, sem er fremur ómerkilegt, uppskrift af Grallaranum. En auðvitað þarf að leita af sér allan grun. Hins vegar er ég hér um bil viss um, að maður sem væri þarna í nokkra mánuði myndi finna áður óþekkt skjöl sem varða ísland. Skjalasafnið hefur aldrei verið kannað sérstaklega með ísland í huga. Við höfum gert út leitarmenn frá þessari stofnun á opinber söfn í Evrópu- Iöndum og ég tel ekki síður ástæðu til að leita í söfnum Páfa- garðs. Ég held að þarna hljóti að leynast einhver skjöl eða bréf varðandi ísland sem ekki hafa komið fram. En að lokum má nefna, að síð- asta daginn sem ég var í safninu fann ég í gamalli skrá getið um Írjú eða fjögur bréf, sem vörðuðu sland. Þessum bréfum var óljóst lýst en eitt þeirra var dagsett 1389 og varðaði biskupa á íslandi. Ekkert páfabréf er til prentað frá því ári. Mér gafst ekki tími til að leita að sjálfum bréfunum, en fól séra Bullivant að athuga þau nánar. Ég hef ekki enn fengið svar frá honum. Ef ekki er villa í skránni er hér líklega um eitt- hvað að ræða sem ekki hefur birst áður. Ég vona vissulega að ég hafi fundið þarna eitthvað bitastætt, og ef svo er gæti það orðið hvati til frekari rannsókna okkar Islendinga í Páfagarði." Sv.G.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.