Morgunblaðið - 28.07.1985, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1985
þú stígur gæf uspor á
Hugmyndin að HEUGA gólfteppum
í formi 50 x 50 cm flísa hefur marga kosti:
ir ENDINGIN MARGFÖLDUÐ, slitblettir óþarfir, flísarnar fluttar til innbyrðis.
ir Laghentir leggja þær sjálfir og færa húsgögnin til eftir hendinni.
ir Engar áhyggjur af blettum: flísin er tekin upp, færð til eða endurnýjuð.
ir Auðvelt að breyta og/eða bæta. ★ Fastlíming er óþörf.
T.d. þessir völdu HEUGA: I.B.M., SKÝRR, Gjaldheimtan, Husgagnahöllin.
HEUGA hentar þér, eins og milljónum annarra um víða veröld.
MorglinbMM/Úiru Ágúntwon
Frú Molliné fri París og Guðrún Vigfúsdóttir i fsafirði rsða um handvefn-
að. Túlkurinn Katrín Jónsdóttir, sem nú stundar nim í lögfreði í París og er
nibýliskona frú Molliné, þurfti lítið að túlka þegar stollurnar ræddu hand-
brögðin og uppsetningu vefsins.
Frú Molliné frá Parfs:
Kynnir sér hand-
vefnað á ísafirði
af í Frakklandi. Hún er nú nýbyrj-
uð á vef sem vinna á að öllu leyti
með gömlu aðferðunum og verða
eingöngu sauðalitir notaðir. Þá
byrjar hún á að spinna hvern lit
úr reifinu sem síðan fer beint í
vefinn.
Myndefnið er skógarvegur að
vetri unnið úr sauðalitunum,
frönskum og íslenskum. Myndin
verður svo á kynningarsýningu við
opnun verslunar með afurðir
handiðnaðarfólksins í París.
Þegar fréttaritari Morgunblaðs-
ins hitti frú Molliné að máli á ís-
afirði í dag var hún ásamt túlki
sínum, Katrínu Jónsdóttur, að
skoða myndir hjá Guðrúnu Vig-
fúsdóttur af ýmsum verkefnum
Guðrúnar.
Frú Molliné var afar hrifin af
framleiðslu Guðrúnar, enda er tal-
ið að Guðrún og stöllur hennar á
ísafirði séu jafnvel komnar lengra
í handvefnaði en nokkrir aðrir að-
ilar á Norðurlöndum. Hún sagði
að |>ótt vefnaðurinn sem slíkur
væri svipaður í öllum löndum væri
sú tækni við framleiðsluna sem
Guðrún Vigfúsdóttir beitti langt
um fremri en hjá þeim í Frakk-
landi. Meðal annars hefur Guðrún
á að skipa hönnuðum og sauma-
konum ásamt verslun, sem gerir
það að verkum að hún heldur öll-
um þráðum í eigin hendi, en í
Frakklandi eru vefnaðarkonur
vanalegar einar á báti.
Hugmyndir frú Molliné eru m.a.
þær að sameina bestu handverks-
konur í Frakklandi til sameigin-
legra átaka.
Þess má geta að lokum að Guð-
rún Vigfúsdóttir hefur kennt vefn-
að hér á ísafirði um 40 ára skeið
af miklum krafti og ennþá hlakk-
ar hún alltaf til næsta dags með
nýjum og spennandi verkefnum.
Salan á framleiðsluvörum henn-
ar gengur mjög vel og hefst ekki
undan núna að afgreiða pantanir
auk þess sem mikið hefur verið að
gera í verslun hennar hér á ísa-
firði. ÍJIfar
Kína opnað
fyrir út-
flytjendum
Peking. AP.
KÍNASTJÓRN befur ákveóið að
auðvelda Kínverjum búsettum utan
Kína, sem eru um 20 milljónir tals-
ins, að heimsækja föðurland sitt
með því að afnema kvöð um vega-
bréfsáritun.
Kvöðin fellur úr gildi 1. ágúst og
á við ferðamenn þá sem koma í
viðskiptaerindum og til þess að
heimsækja ættingja og vini.
Aðeins þeir Kínverjar sem
hyggjast setjast að í landinu
munu þurfa á vegabréfsárítun að
halda.
ísmfirti, 24. júlf.
ÞESSA dagana gistir ísland frönsk
handiðnaðarkona, frú Molliné frá
París. Erindi hennar er að kynna sér
garnframleiðslu úr íslenskri ull og
leita lausnar á vanda sem hún býr
við vegna slita í uppistöðuþráðum
vefnaðar þegar eingirni er notað.
Frúin hefur skoðað ullarverk-
smiðjuna Álafoss í Mosfellssveit, en
þegar hún leitaði upplýsinga um við
hvern hún ætti að ræða vegna
vandans í vefnaðinum var henni ein-
dregið ráðlagt að ráðfæra sig við
Guðrúnu Vigfúsdóttur á ísafirði,
sem mun vera meðal fremstu hand-
vefnaðarkvenna á Norðurlöndum.
Frú Molliné hefur unnið úr ull
frá því í síðari heimsstyrjöldinni,
að hún byrjaði að spinna á rokk úr
ólituðu ullarbandi til nota í vefstól
sinn. Fyrst var einungis um auka-
vinnu að ræða, en 1970 fór hún á
eftirlaun. Þá einbeitti hún sér að
því að koma á fót fyrirtæki til að
þróa og kenna gamlar hannyrðir.
Hún hefur nú yfir að ráða 15
heimasmíðuðum vefstólum, 4
listvefnaðarstólum (gobelin), auk
rokka og áhalda til knipplinga-
gerðar og bókbands. Nýlega hefur
hún gert samning við Parísarborg
um þróunarverkefni í handiðnaði.
Næsta árið munu starfa hjá henni
fjórar vefnaðarkonur auk hönnuð-
ar og á að reyna að þróa handverk
fyrir atvinnulausa, sem mikið er
Kynnist stórkostlegri náttúrufegurð og fjölskrúðugri
menningu í Grænlandsferð Faranda 12.-19. ágúst
Farandi kynnir fyrirhugaða ævintýraferð til
Grænlands dagana 12.-19. ágúst. Flogið verður
með Flugleiðum til Narssarssuaq og síðan
farið með báti þaðan til Narssaq, þar sem gist verður
á vönduðu hóteli. Innifalið í verði er fullt fæði,
íslensk fararstjórn, ferð á Kvanefjellet og
stórskemmtilegt þjóðlagakvöld. I boði eru dagsferðir
í Bröttuhlíð, Garða, Julianeháb og til Hvalseyjar.
Verð: kr. 27.300.-
Ifarandi
Vfeslurgötu 5. simi 17445