Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 26

Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 26
26 MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLl 1985 Frú Stefanía Guðmundsdóttir í Kamelíufrúnni 1906 „Ætternið er mér aðhald“ „Nei, það er nú öðru nær. Ég ætlaði mér aldrei að verða leikari. Ég hafði bara alls engan áhuga á leiklist. Að vísu fór ég oft í leikhús þegar ég var barn og unglingur. Oftast fór ég með föðursystrum mínum, Emilíu og Þóru Borg, sem báðar lifðu og hrærðust í leikhús- inu. En það hvarflaði ekki að mér á þeim árum að ég ætti sjálf eftir að standa á leiksviði. Þegar ég var innan við tvítugt fluttist móðir mín til Akureyrar og ég fylgdi í kjölfarið. Ég fór að vinna þar í banka og þar var ég þegar formað- ur Leikfélags Akureyrar kom að máli við mig og spurði hvort ég gæti ekki hugsað mér að taka að mér hlutverk í Swedenhjelms- fjölskyldunni. Það fannst mér al- veg upplagt. Ég held að ég hafi varla hugsað mig um. Mér leizt svo á að þetta væri ágæt tilbreyt- ing frá vinnunni í bankanum. Ég þessum árum lágu viðfangsefnin ekki á lausu og auðvitað voru það vonbrigði að fá lítið að gera. Þó kom það ekkert sérlega illa við mig. Það voru önnur áhugamál sem kölluðu, en um þessar mundir gifti ég mig og eignaðist dóttur. En ég vildi halda áfram í leiklist- inni og þegar hlutverkin létu á sér standa sneri ég mér að leikstjórn og setti upp sjö sýningar víðsvegar um landið. Það var skemmtilegt og ákaflega lærdómsríkt, en það breytti ekki því að ég var leikkona, og það sem ég vildi gera var að leika." — Og hvernig tókstu því á þess- um árum að fá ekki tækifæri til að leika? „Ég skal segja þér að margir leikarar verða bitrir af því að þeir fá ekki hlutverk en einhverra hluta vegna varð ég aldrei bitur. Kannski var það af því að ég vissi Ungir leikarar halda nefnilega að þeir fljúgi inn á samning og þegar í ljós kemur að svo er ekki verða þeir bitrir og leiðir og láta í mörg- um tilvikum hugfallast. Það ættu þeir ekki að gera, ekki ef þeir vita hvað þeir vilja og hafa einlægan áhuga á að ná árangri í list sinni. Margir sjá leiklistina í einhverj- um rómantískum hillingum og halda að framundan sé dans á rós- um. Það er blekking. Árangur í leiklist er fyrst og fremst kominn undir vinnu og sú vinna er ekki sízt fólgin í því að aga sjálfan sig.“ — Hefurðu notið þess að vera barnabarn Stefaníu Guðmundsdótt- ur og bróðurdóttir Önnu Borg, Þóru og Emilíu? „Ekki á þann hátt að ég hafi verið tekin fram yfir aðra leikara. Ég hef notið þess þannig að ætt- ernið hefur verið mér aðhald. Oft hef ég hugsað sem svo að ég hafi ekki leyfi til að standa mig illa, geti ekki leyft mér að verða ætt- leri. En ég hef oft verið látin Sunna Borg leikkona Sunna Borg leikkona „Leiklistin er ekki númer eitt, tvö og þrjú í mínu lífi. Ég væri ekki reiðubúin að fórna öllu í hennar þágu og hef aldrei verið svo altekin af henni að hún væri mér eitt og allt. Og þó er hún það starf sem ég vil helzt sinna og veit- ir mér óendanlega mikið. Eðli leiklistar er með þeim hætti að þegar maður er að leika þá verður mað- ur að gefa allt sem maður á til. Það þýðir ekki að ætla sér að blekkja áhorfendur með einhverjum brögðum. En leiksviðið er eitt og lífið sjálft er annað.“ Þetta segir Sunna Borg leikkona sem nú er komin suður yfir heiðar ásamt félögum sínum í Leikfélagi Akureyrar þeirra erinda að sýna Reykvíkingum söngleikinn „Piar‘ á vegum Hins leikhússins í Gamla bíói. Leikurinn hlaut frábærar viðtökur á fjölunum fyrir norðan og var sýndur yfír fjörutíu sinnum áður en ákveðið var að fara með hann suður. Edda Þórarinsdóttir fer með titilhlutverkið, leikur og syngur hlutverk Edith Piaf, en Sunna er í hlutverki aldavinkonu „spörfugls- ins“, gleðikonunnar Toine. Og Sunna heldur áfram: „Það skiptir mig miklu máli að vera innan um fólk og kannski er það einmitt nálægðin við aðrar manneskjur sem ég met mest og hef mesta þörf fyrir. f leiklistinni fæ ég útrás fyrir þessa þörf. Það fer ekki hjá því að samstarfið á sviðinu verði mjög náið. Maður svo að segja kemst að kviku mannlífsins. Ekki einungis með því að starfa með hinum leikurun- um, leikstjóranum og því fólki sem starfar að þeirri sýningu sem er verið að koma upp hverju sinni, heldur með því að túlka þá per- sónu sem maður er að leika. Það sem e.t.v. er mest heillandi við leiklistina er það aö túlka mann- eskju sem er ekki maður sjálfur. Þannig gefst tækifæri til að upp- lifa persónuleika sem oft á tíðum eru í mótsögn við mann sjálfan. Það veitir mér innsýn í þætti í mannlegu eðli sem ég myndi ekki kynnast ella. Og það er einmitt það sem ég sækist fyrst og fremst eftir í þessu starfi. En leikara- starfið hefur ýmsar aðrar hliðar, sem eru ekki svo alvöruþrungnar heldur beinlínis skemmtilegar. Það er alltaf gaman að vinna í leikhúsi. Starfið er mjög fjöl- breytt, ekki sízt í litlu leikhúsi eins og því sem starfrækt er á Ak- ureyri. Aðstæðurnar þar krefjast þess að fáar hendur vinni mikið verk og oft á tíðum er nauðsynlegt að leikarinn sinni ýmsu sem lýtur ekki beinlínis að því hlutverki sem hann á að túlka á sviðinu. Þá skiptir miklu máli að góður fá- lagsandi sé rikjandi og hann er svo sannarlega fyrir hendi hjá Leikfélagi Akureyrar." — Þú ert af helztu leikaraætt landsins. Varð það til þess að þú fórst út í leiklist? hafði ekkert sérstakt við að vera utan vinnutíma, hafði svo sem engu að sinna nema sjálfri mér. Á þessum tíma var þetta áhuga- mannaleikhús og mér fannst ég vel geta reynt þetta eins og hver annar, en ég setti það alls ekki í samband við alvörustarf. Eftir að sýningum á Swedenhjelms-fjöl- skyldunni lauk voru mér fengin hlutverk i tveimur öðrum leikrit- um ogbar með var áhuginn vakn- aður. Ég fór suður og hóf nám í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og lauk þaðan prófi 1970. Að svo búnu lék ég Ragnheiði Brynjólfs- dóttur í Skálholti Kambans í sjón- varpinu. Síðan fékk ég Rotary- styrk og fór til Ameríku, þar sem ég stundaði nám við leiklistardeild háskólans f Georgíu i eitt ár. Þeg- ar ég kom heim lék ég í kvikmynd- inni Lénharði fógeta og fékk siðan nokkur minni háttar hlutverk. Á alltaf að það ætti eftir að koma að mér. Ég hef alltaf þakkað guði fyrir að hafa ekki þjáðst af þessari heiftarlegu afbrýðisemi sem háir svo mörgum listamönnum og þá ekki sízt leikurum. Ég er bara svo lánsöm að þekkja ekki þessa til- finningu hjá sjálfri mér. Stundum hef ég hugsað sem svo að ég hljóti að vera eitthvað skrýtin, en ég hef alltaf getað samglaðst kollegum mínum þegar þeim vegnar vel. Hins vegar hef ég oft orðið vör við öfund í minn garð og það hefur farið illa í mig.“ — Þú segist alltaf hafa vitað að það ætti eftir að koma að þér. „Já. Ég skal segja þér að ég á vinkonu sem hér á árum áður var alltaf hjá spákonum. Ég hafði engan sérstakan áhuga á þessu spákonuvafstri, en samt fór ég nú yfirleitt með henni. Og auðvitað hlustaði ég á það sem spákonurn- ar höfðu að segja. Svo var það einu sinni að hún fór með mig til Amy Engilberts. Þá held ég að ég hafi verið 25 ára. Amy sagði að það yrði ekki fyrr en eftir 10 ár að mér færi að ganga vel í leiklistinni. Það fannst mér nú einum of langt gengið, en þarna komst ég nú að því að ég lagði trúnað á það sem spákonur sögðu því að ég varð öskuvond. „Eftir 10 ár! Ertu vit- laus! Ég kem sko aldrei aftur til þín,“ æpti ég á hana. En ég trúði þessu enda kom í ljós að þetta var rétt hjá henni. Því segi ég líka oft við nýútskrifaða leikara að þeir skuli ekki halda að hlutverkin komi á silfurfati. Þetta taki allt sinn tíma, a.m.k. í flestu tilfellum. gjalda þess að vera Borg. Mig hef- ur stundum sviðið undan því að þegar mér vegnar vel er kannski sagt: „Já, þú ert nú líka Borg.“ Þá er verið að gefa í skyn að vel- gengnin sé því að þakka en ekki því sem ég legg sjálf af mörkum. Á tímabili kvað svo rammt að þessu að ég var í alvöru að hugsa um að hætta að skrifa mig Borg og kenna mig við Geir föður minn. Nú er ég fegin að hafa ekki látið flæma mig út I það. Ég er hreykin af því að vera Borg og ég er sú eina í fjölskyldunni núna sem er leikari." — Þú fékkst nýlega leiklistar styrk úr sjóði sem stofnaður var í minningu ömmu þinnar. Er hugsan- legt að ætternið hafi ráðið einhverju í sambandi við þá styrkveitingu? „Nei, það er a< og frá. Á liðnum árum hafa ótalmargir leikarar fengið styrk úr þessum sjóði, en í stjórn hans hefur aldrei verið neinn úr fjölskyldunni. Ég er full- komlega sátt við það að hafa feng- ið styrk úr þessum sjóði, en það væri ég ekki ef mér hefði ekki hlotnast hann vegna minna eigin verðleika heldur vegna þessara fjölskyldutengsla. Nýlega fékk ég líka listamannalaun og þótti vænt um þau. í leiklistarstyrk og lista- mannalaunum felst ákveðin viður- kenning og ég sé enga ástæðu til að láta sem slíkt skipti mig ekki máli. Mér þykir ósköp vænt um að fá viðurkenningu. Ég er áreiðan- lega ekki ein um það að líta svo á. Það er mannlegt að kunna að meta viðurkenningar. Þær eru líka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.