Morgunblaðið - 28.07.1985, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 28.07.1985, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLf 1985 33 Miklir — en ekki ímyndaðir hagsmunir Suðurnesjamanna — að afgreiðsla skipa fari fram á Suðurnesjum MORGUNBLAÐINU hefur borist eft- irfarandi frá Jóni Norðfjörð, fram- kvsmdastjóra Skipaafgreiðslu Suður- nesja, Halldóri Ibsen, formanni stjórn- ar Landshafnar Keflavíkur-Njarðvíkur, Karli Steinari Guðnasyni, formanni Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur og nágrennis, og Guðlaugi Guð- jónssyni, formanni stjórnar Vörubfl- stjórafélags Suðurnesja. „í tilefni af fréttaflutningi og um- maelum sem átt hafa sér stað að undanförnu í blöðum og útvarpi, vegna greinar um „Rainbow-málið“ í Víkurfréttum hinn 18. júlí sl., viljum við undirritaðir koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum og upp- lýsingum. 1. Haft var eftir Herði Sigurgests- syni, forstjóra Eimskipafélagsins í útvarpsfréttum hinn 21. júlí sl., að Rainbow Navigation væri nú að kanna hvort afferming gæti ekki farið fram í Reykjavík og hefði spurst fyrir um hvort Eimskip vildi ekki sjá um affermingu fyrir félagið. í Morgunblaðinu hinn 23. júlí sl., kemur fram í viðtali við Hörð, að umboðsmenn Rainbow Navigation hafi komið til Eimskips og þreifað fyrir sér um hvort þeir væru reiðu- búnir til aö losa þetta skip í Reykja- vík. Upplýsingar þær sem hér um ræð- ir, komu okkur hér á Suðurnesjum mjög á óvart þar sem aldrei hafði verið á þetta minnst af umboðs- manni Rainbow Navigation við okkur og aldrei hefur komið fram kvörtun eða óánægja vegna af- greiðslu skipsins í Njarðvíkum. Um- mæli Harðar voru borin undir Magnús Ármann framkvæmdastjóra hjá Skipamiðlun Gunnars Guðjóns- sonar sf., sem er með umboð fyrir Rainbow Navigation og staðfesti Magnús, að engin beiðni hafi verið send Eimskip um þetta mál eða nokkrar þreifingar átt sér stað frá því að siglingar Rainbow Hope hóf- ust. 2. í viðtalinu við Hörð Sigurgestsson í útvarpinu hinn 21. júlí sl., segir hann að flutningar fyrir Varnarliðið milli Reykjavíkur og Keflavikur hafi að verulegu leyti verið í höndum Suðurnesjamanna. Hið rétta í þessu máli er, að áður en siglingar Rainbow Hope hófust, voru u.þ.b. 40% af þessum flutning- um í höndum Suðurnesjamanna, en eftir tilkomu Rainbow, eru um 98% flutninganna í höndum Suðurnesja- manna. 3. 1 Morgunblaðinu hinn 23. júlí sl., segir Hörður Sigurgestsson orðrétt: „Mig grunar að þessi skrif í Víkur- fréttum séu tilkomin til að vernda imyndaða hagsmuni Suðurnesja- manna vegna lestunar og losunar á þessari vöru á Suðurnesjum." Við teljum næsta víst, að hvorki Hörður Sigurgestsson né aðrir, haldi að hagsmunir íslensku skipafélag- anna varðandi það að fá þessa flutn- inga aftur í sínar hendur, séu ímynd- aðir hagsmunir. Vegna þessa getum við upplýst og tekið undir orð Emils Páls Jónsson- ar, ritstjóra Víkurfrétta, sem fram komu í útvarpsviðtali hinn 21. júlí sl. að það eru miklir en ekki ímyndaðir hagsmunir fyrir okkur Suðurnesja- menn, að afgreiðsla skipa með flutn- ing fyrir varnarliðið, fari fram í höfnum hér á Suðurnesjum. Þetta á ekki síður við um þær sjávarafurðir sem framleiddar eru hér á Suður- nesjum, en í dag er mjög stórum hluta sjávarafurða ekið til Reykja- víkur, þar sem lestun á þeim fer fram. í þessu sambandi teljum við rétt að taka undir orð Harðar Sigur- gestssonar þar sem hann hefur sagt að þaö eigi að losa og lesta skip þar sem hagkvæmast er. Þar á hann vafalaust við hag- kvæmni fyrir fleiri en Eimskip. Við lítum svo á að það sé hagkvæmast að afgreiða skip sem næst þeim stað sem vörurnar eru notaðar eða fram- leiddar. Hagsmunir Suðurnesja- manna í þessu sambandi eru fyrst og fremst fólgnir í þeirri atvinnu og þeim tekjum sem þessir flutningar skapa hér á svæðinu. Það vita allir sem fylgst hafa með málum, að at- vinnuástand hér á Suðurnesjum hef- ur farið versnandi á umliðnum ár- um. Því teljum við það skyldu okkar Suðurnesjamanna að standa vörð um þau atvinnutækifæri sem svæðið getur boðið upp á. 4. Það er augljóst að tilkoma Rain- bow Navigation-skipafélagsins hefur veitt okkur ómetanlega reynslu og tækifæri til aö sýna fram á það, að afgreiösla gámaskipa er mjög vel framkvæmanleg hér á Suðurnesjum. Það er von okkar að í framtíöinni virði skipafélögin hagsmuni okkar og að gott samstarf geti tekist um losun og lestun gámaskipa hér á Suöurnesjum, ekki síst með tilliti til þess, að Hafskip og Eimskip hafa í samvinnu við Suðurnesjaménn kom- ið á fót vöruafgreiðslum, til mikilla hagsbóta fyrir viðskiptaaðila sína. Þrátt fyrir þessar vöruafgreiðslur hafa þessi skipafélög ekki séð ástæðu til að losa hér úr skipum sin- um almennar vörur enn sem komið er a.m.k. þó að hér sé um að ræða vörumagn sem skiptir þúsundum tonna á ári hverju. 5. Að lokum þetta. Greinaskrif í Víkurfréttum um Rainbow málið hafa óneitanlega vakið mikla athygli og komið á stað umræðum manna á meðal og í fjöl- miðlum. Við teljum það ekki á okkar færi, að taka efnislega afstöðu til þess sem í greininni kemur fram enda þekking okkar á innviðum þessa máls ekki nægilega mikil. Umræðurnar hafa þó opnaö augu manna fyrir því að í þessu máli eru fleiri hagsmunaaðilar á íslandi held- ur en skipafélögin. Það skal þó fús- lega viðurkennt, að hagsmunir skipafélaganna eru stórir I þessu máli. Við lýsum fyllsta stuðningi við það sjónarmið að íslensku skipafé- lögin hafi a.m.k. jafnan rétt til þess- ara flutninga á við bandarísk félög, eins og þau hafa farið fram á, en ítrekum jafnframt þá skoðun okkar, að afgreiösla þeirra skipa sem flytja vörur fyrir Varnarliðið, eigi að fara fram hér á Suðurnesjum." Við hjá Flugleiðum vildum gjarnan bjóða þeim Hans og Grétu í átthagana í Winterberg. Á meðan við reynum að hafa uppá þeim systkinum gerum við okkur að góðu að bjóða þér og fjölskyldu þinni í sannkallaða ævintýraferð á slóðir Grimmsbræðra. Nútíma þægindi, í rótgrónu umhverfi. Þið fljúgið til Frankfurt eða Luxemborgar, og akið með rútu eða bílaleigubíl til Dorint-sumarhúsaþorpsins. Þar getum við boðið ykkur glæsilega smáíbúð, smekklega fjölskylduíbúð eða sumarhús fyrir allt að 6 manna fjölskyldu. Það þarf að sjálfsögðu ekki að taka það fram að íbúðunum og sumarhúsunum fylgja öll þægindi, eldhús, sími, litasjónvarp, að ógleymdri veröndinni eða svölunum sem alltaf eru sólarmegin í tilverunni. Ekki sakar að umhverfi þessa sígilda en nýja sumarhúsaþorps eru skógi vaxnar hlíðar. Fararstjóri fram í fingurgóma. En „leyndarmálið" okkar geymum við samt þar til síðast. Það er Rudi Knapp, fararstjórinn okkar. Sértu í einhverjum vafa um hvort þú eigir að fara í úti- eða innisundlaugina, hvernig þú komist á golfvöllinn, í keiluspilshúsið eða á krána - leysir Rudi úr því. Við ætlum að láta Rudi það eftir að leiða ykkur í allan sannleika um skemmtigarðinn (með bátum, leiktækjum og rússíbönum), eða safarí-garðinn (með fílunum, nashyrningunum, Ijónunum og tígris- dýrunum), því hann hefur bara gaman af því. Við lofum þér ævintýraferð, og stöndum líka við það. En ef ævintýrin væru eins og lífið í Dorint - sumarhúsaþorpinu í Winterberg - er eins víst að sagan um Hans og Grétu hefði aldrei gerst. Hvernig er líka hægt að villast þegar Rudi Knapp er annars vegar? Dæmi um verð: Heildarverð fyrir 4 manna fjölskyldu í 2 vikur er kr. 71.496.- (flug, íbúð, börn á aldrinum 2-11 ára), þá á eftir að draga frá afslátt vegna barnanna kr. 13.400.- Verðið samtals er 58.096.- eða kr. 14.524.- á mann. Flugvallarskattur er ekki innifalinn. Frekari upplyslngar um Dorlnt- sumarhusaþorpld f Wlnterberg velts sðluskrltstotur Fluglelfta. umboðsmenn og terfteskrltstoturnsr ^^^^^Mallt sm MliHjHj UL UILIU VANTADI VAR GODUR FARARSTJORim

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.