Morgunblaðið - 28.07.1985, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 28.07.1985, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985 49 „Foringjar geta alltaf átt von á að verða fluttir fyrirvaralaust" — segir Daníel Óskarsson, yfírmaður Hjálpræðishersins hér sem skipaður hefur verið æskulýðsleiðtogi í Noregi Daníel Oskarsson, kapteinn í Hjálpræðishernum, sem yfirumsjón hef- ur haft með starfi hersins hér á landi svo og í Færeyjum undanfarin 5 ár, er nú á förum til Noregs, þar sem hann mun gegna embætti æskulýðsleið- toga í Oslo og nágrenni. „Ég fékk skipun frá leiðtogum umdæmisins, ekki alls fyrir löngu, um að flytja til Noregs og taka að mér umsjón unglinga- starfsins í einni deild hersins þar í landi," sagði Daníel er hann var inntur nánar eftir að- draganda flutningsins. Aðspurð- ur kvað hann foringja hersins alltaf geta átt von á skipun sem þessari og því væri erfitt að gera einhverjar áætlanir varðandi framtíðina. „Hjálpræðisherinn reynir þó að taka tillit til þeirra foringja, sem enn eru með ung börn á framfæri sínu, svo ekki verði of mikill þeytingur á fjöl- skyldunni milli landa, menning- arsvæða og tungumála," upplýsti hann. Þó tel ég að flutningar, sem þessir, reynist börnum ekki eins erfiðir og margir halda," sagði Daníel. „Til að mvnda eru for- eldrar mínir, þau Oskar Jónsson og Ingibjörg Jónsdóttir, bæði foringjar innan hersins, svo sjálfur ólst ég upp við ferðalög og flutninga án þess að verða meint af. Það voru einna helst tungumálin, sem vildu vefjast aðeins fyrir manni framan af, en það fór fljótt af,“ bætti hann við. „Við hjónin eigum 3 börn, 2 stelpur, sem nú eru 11 og 12 ára og einn þriggja ára gutta. Báðar stelpurnar búa enn að þeirri norsku, sem þær lærðu á þeim rúmu tveimur árum, sem við dvöldum þar í landi, áður en við héldum hingað til íslands. Af stráknum hef ég heldur engar áhyggjur. Hann verður eflaust fljótur að ná tökum á málinu er út kemur. Eins og fyrr segir eru foreldr- ar mínir foringjar innan hjálp- ræðishersins, svo það má eigin- lega segja að ég hafi fæðst inn í þessa hreyfingu," sagði Daníel, er hann var spurður út í ástæð- urnar að baki starfsvali hans. „Ekki var ég þó alla tíð ákveðinn í að leggja þetta fyrir mig. Það var eiginlega ekki fyrr en á menntaskólaárunum, sem ég fékk þessa köllun og gerði mér ljóst að mér var ætlað hlutverk á þessum vettvangi — ábyrgð, sem ég gat ekki skorast undan," bætti hann við. „Viðfangsefnin eru líka mý- mörg, herinn starfar nú í 86 löndum heimsins, rekur trúboð, sjúkrahús og skóla um víða ver- öld og þá gjarnan í samvinnu við Alþjóðlega Rauða krossinn. T.d. starfar systir mín nú, að eigin ósk, sem trúboði í Panama, en þar sem og í Indlandi og Afríku er þörfin einna brýnust," upp- lýsti Daníel. „Auðvitað gerir dálítill tregi vart við sig, þegar maður yfir- gefur ættlandið," sagði Daníel, er hann var inntur eftir því hvaða tilfinningar gerðu vart við sig, nú þegar dvölin hérlendis væri á enda. „Barnanna vegna er þó bæði betra og auðveldara að flytja fyrr en seinna. Svo er líka mikill léttir að vita að arftakar mínir eru fyrirmyndarfólk, þau Ernst Olsson og Dóra Jónasdótt- ir Olsson.sem eflaust munu leggja rækt við starfið, sem hér er unnið," bætti hann við. Sagð- ist Daníel að lokum vilja nota tækifærið og þakka allan þann velvilja, sem þeim hjónum hefur verið sýndur í gegnum árin. Kveðjuhóf hafa verið haldin um allt land að undanförnu fyrir Daníel Óskarsson og konu hans Anne Gurine, sem einnig er for- ingi innan hjálpræðishersins. Síðasta kveðjusamsætið verður haldið nk. þriðjudagskvöld kl. 20:30 í samkomusal Hjálpræð- ishersins í Reykjavík. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Skúrarnir viÖ Gullfoss. Þarflausir skúrar við Gullfoss Sclfossi 24. júlí. Hreinlætisaðstaða fyrir ferða- menn við Gullfoss er fengin eins og stendur. Skammt frá fossinum, við veginn, standa skúrar sem bera merki þcss að hýsa salerni eða hreinlætisaðstöðu, a.m.k. eru alþjóð- leg merki þar um negld á skúrana. Sú aðstaða stendur hins vegar eng- um til boða vegna þess að þegar bet- ur er að gáð eru dyr á þeim negldar aftur. Skúrar þessir eru til hinnar mestu óprýði þar sem þeir standa og þjóna engum tilgangi. Leið- sögumenn sem fara með ferða- mannahópa í rútubílum að Gull- fossi segjast haga ferð sinni þann- ig að viðdvöl sé höfð á Geysi, þar sem er mjög góð hreinlætisað- staða, annaðhvort áður en komið er að Gullfossi eða strax eftir dvöl þar. Fullvíst má telja að umsagnar- aðilar s.s. Ferðamálaráð, Náttúru- verndarráð og Landvernd myndu ekki mæla með uppsetningu skúra sem þessara við Gullfoss á frið- lýstum svæðum eða við náttúru- perlur landsins enda hæpin kynn- ing á uppbyggingu ferðamanna- þjónustu. Sig. Jóns. Höfðar til .fólksíöllum starfsgreinum! 1. Veðdeild Iðnaðarbanka islands hf. býður út verðtryggð skuldabréf, 2. flokk 1985, kr. 25.000.000,00. Verðgildi hvers bréfs er kr. 50.000,00 og eru bréfin 500 talsins. 2. Bréfin verða fyrst og fremst afhent: a) Byggingaverktökum íbúðarhúsnæðis og framleiðendum einingahúsa, í skiptum fyrir verðtryggð skuldabréf á hendur kaupendum fasteigna. b) Fyrirtækjum, sem vilja selja skuldabréf á verðbréfamarkaði með milligöngu banka. 3. Viðskiptamenn selja bréfin á verðbréfamarkaði og ræðst sölugengi bréfanna því af ávöxtunarkröfu markaðarins. 4. Bréfin verða gefin út á nafn og bera 2% fasta vexti p.a. Afborganir höfuðstóls og vextir eru verðtryggðir samkvæmt lánskjaravísitölu. Bréfin eru til 5 ára, með jöfnum árlegum afborgunum. Gjalddagar eru 10. júlí ár hvert, í fyrsta sinn 10. júlí 1986. 5. Greiðslustaðir afborgana eru afgreiðslustaðir Iðnaðarbanka íslands hf. og getur kröfuhafi vitjað greiðslu gegn framvísun bréfs. Sé þess óskað, mun bankinn sjá um innheimtu bréfsins og ráðstafa afborgunum samkvæmt ákvörðun eiganda, honum að kostnaðarlausu. Einnig má fela öðrum bönkum eða sþarisjóðum bréf til innheimtu. Verði afborgunar ekki vitjað á réttum gjalddaga, mun Veðdeildin greiða kröfuhafa dagvexti frá gjalddaga bréfsins til greiðsludags, og eru vextirnir hinir sömu og á almennum sparisjóðsreikningum, eins og þeir eru á hverjum tíma. 6. Til tryggingar bréfunum eru eignir og tekjur Veðdeildar Iðnaðarbanka íslands hf., auk ábyrgðar bankans sbr. 36. gr. reglugerðar fyrir bankann nr. 62/1982. 7. Skattaleg meðferð bréfanna fer að gildandi reglum um skattalega meðferð skuldabréfa. Bréfin eru stimpilfrjáls. 8. Útibú bankans taka við umsóknum og veita nánari upplýsingar. Reykjavík, 24. júlí 1985, Iðnaðaitankinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.