Morgunblaðið - 28.07.1985, Side 50

Morgunblaðið - 28.07.1985, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1985 Viðtal við Leó E. Lövef sem vinnur að því að koma Isafoldarprentsmiðju til þeirrar virðingar sem hún naut á árum áður Blaðamaður hitti Leó til að ræða við hann um ísafold og forvitnast um hvernig hefði gengið að rífa fyrirtækið upp úr þeirri lægð sem það var í. „Kallaðu þetta frekar aðstöðu en skrifstofu," segir Leó þar sem hann tekur á móti blm. Hann segist áður hafa unnið á bæjarfógetaskrifstofunni í Kópavogi og blm. ályktar að aðset- ur hans sé ólíkt skrifstofunum sem hann hafi vanist hjá hinu opinbera í Kópavogi. Aðstaðan er á efstu hæð undir súð í Þingholtsstræti 5. Á löngum vegg er bókaskápur með verkum öndvegisskálda íslendinga sem ísafold hefur gefið út á sínum langa ferli og í horninu er forláta gamalt skrifborð, sem blm. gefur sérstakan gaum. „Skrifborðið er líklega búið að vera hér lengst af,“ segir Leó, „ég mat það mjög mikils að þegar ég kom inn í þetta fyrir- tæki fyrir 3 árum þá höfðu eldri hluthafarnir skilið eftir gömlu munina sem hafa tilheyrt fyrir- tækinu frá upphafi. Skrifborðið finnst mér alveg sérstakur gripur." Á rætur að rekja til Hólaprentsmiðju Það hlýtur að vera ólikt að starfa sem embættismaður eða sjá um rekstur stórrar prentsmiðju og bókaútgáfu — þig hefur kannski alltaf dreymt um að stjórna slíku fyrirtæki? „Það er óhætt að segja að hugur minn hafi alltaf hneigst til fram- kvæmda, þar á meðal viðkipta. Þau störf sem mig langaði til að sinna innan embættiskerfisins sá ég fram á að ég fengi ekki fyrr en eftir mörg ár. Ég hafði ekki þolinmæði til að vinna lengi innan rikisgeir- ans án þess ég fengi notið mín. Mig langaði ekki út i hvað sem var á sviði framkvæmda eða viðskipta, það varð einnig að vera verkefni sem ég teldi verðugt. Og það er sannarlega verðugt verkefni að freista þess að koma ísafoldar- prentsmiðju til þeirrar virðingar sem hún naut áður fyrr. ísafoldar- prentsmiðja er orðin gamalt fyrir- tæki. Hún á auk þess rætur að rekja til Hólaprentsmiðju því að stofnandi hennar, Björn Jónsson, keypti Landsprentsmiðju árið 1886, en sú prentsmiðja hafði flakkað um landið frá upphafi prentlistar hér á landi, að Hó!um.“ Er það kannski hrein hugsjón að taka við t.d. bókaútgáfunni? „Að sumu leyti já, faðir minn var með smávægilega útgáfu og mér hefur alla tíð fundist öll útgáfa mjög spennandi, þar með talin blaðaútgáfa." Lausafjárstaða mjög slæm Hvernig var að taka við fyrir- tækinu? „Fyrirtækið átti miklar eignir þegar ég kom hingað, en lausa- fjárstaðan var mjög slæm. Ég byrj- aði á því að panta pappír til að geta prentað orðabækurnar sem alltaf seljast jafnt og þétt, þær voru þá alveg gengnar til þurrðar. Það var líka þörf á að endurnýja tæki og vélar sem voru að verða úreltar. Við keyptum því búnað til tölvu- setningar og síðast fimmlita prent- vél, en við vorum með einslita vél áður, sem var alltof afkastalítil. Litaprentvélin er sú fullkomnasta á landinu. Næst ætlum við að endurnýja tækjakost í bókbandinu en hann er kominn nokkuð til ára sinna." Nú heyrir maður mikið um endurnýjanir í prentiðnaðinum, stærri og betri vélar og sífellt auk- in afköst, er ekki orðin mikil offjárfesting á þessu sviði? „Ég held að það hljóti að vera töluverð offjárfesting en svo er samt ekki hjá okkur, nema ef vera skyldi í setningardeildinni, en við fjárfestum í tölvum sérstaklega með eitt verkefni í huga, íslensk- þýsk.a orðabók, sem lengi hafði ver- ið í vinnslu á kostnað ísafoldar. Höfundarnir riftu hins vegar þeim samningi og fóru með bókina til Arnar og Örlygs.“ Og þið fóruð í mál? „Átti von á hærri bótum“ Leó E. Löve á skrifstofu sinni í Þingholtsstræti 5. „Hefur stundum tekið meira á mann „Við fórum í mál vegna þess að við höfðum þegar lagt út í mikinn kostnað við verkið. Málið var tví- þætt, annars vegar fórum við fram á skaðabætur sem þeir höfðu neit- að að borga okkur, en hins vegar sökuðu þeir okkur um seinagang og kröfðust bóta. Dómur var kveðinn upp nýlega og unnum við málið.“ Og þú ert væntanlega ánægður með þann dóm? „Ég hafði satt að segja vonað að okkur yrðu dæmdar hærri bætur. Dómurinn hljóðaði upp á 1.300 þús- und en við höfðum farið fram á 7,5 milljónir. Sú upphæð sem við fáum er lítið meira en prentsmiöjan hef- ur þegar lagt til þessa verkefnis og er þá ekki meðtalið allt vaxtatap. Engar bætur fást heldur vegna aukafjárfestingar, fyrir verkefna- missi prentsmiðjunnar, svo ég tali nú ekki um að hugsanlegur hagn- eður af útgáfunni var þar með úr sögunni." Það er semsagt hart barist um stærstu bitana í bókaútgáfunni? „Það er mjög mikil samkeppni, enda eru útgáfurnar margar. Það sem gerir þessi viðskipti svo áhættusöm sem raun ber vitni er að mikið fjármagn er lagt undir fyrir aðeins eina vertíð — fyrir jól- in. Samkeppnin þá er geysileg við að koma bókunum á framfæri og kynna á þessum eina árstima. Það er mjög mikill kostur að vera með bæði bókaútgáfu og prentsmiðju, þær styrkja hvor aðra. Bókaútgáfan tryggir prentsmiðjunni vinnu ef minna er um utanaðkomandi verkefni og þannig eru meiri möguleikar á að halda hámarksnýtingu á vélunum. Við stefnum ekki að því að auka bókaútgáfuna að neinu marki, höldum okkur við ca. 5—10 titla á ári. Bókaverð hefur lækkað og ég vona að við getum haldið verðinu niðri því bækur verða að vera á viðráðanlegu verði fyrir almenn- ing.“ Hvernig velur þú bækur til út- gáfu? „Endanlega ákvörðun tek ég sjálfur, en við leitum til sérfróðra manna. Ég hef haft það að leiðar- ljósi að taka ekki aðrar bækur til útgáfu en þær sem ég hef sjálfur trú á. Því hvernig sem fer þá getur maður ekki skellt skuldinni á ein- hvern annan. Það hefur komið fyr- ir að ég hef gefið út bækur sem ég hef vitað fyrirfram að ekki skiluðu hagnaði, en þá hefur mig hins veg- ar langað mikið til þess eða fundist þörf á að gefa viðkomandi bók út.“ „Mikið um undirboð í prentiðnaði Hvað með prentiðnaðinn, er ekki samkeppnin gífurleg þar? „Þar er ekki síður mikil sam- keppni og markaðurinn er mjög erfiður. Það skýtur dálítiö skökku við, því að prentsmiðjur hafa flest- ar meira en nóg að gera en þrátt fyrir það er mjög mikið um undir- boð, menn bjóða hreinlega lægra en ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA er án efa eitt elsta starfandi iðn- fyrirtœki hér á landi. Prentsmiðjuna stofnaði Björn Jónsson árið 1877 og eins og nafnið gefur til kynna var prentsmiðjan keypt hingað til lands til þess að prenta vikublaðið ísafold. ísafold var ein öflugasta prentsmiðja og bókaútgáfa landsins framan af þess- ari öld og átti hún þá sannarlega sitt blómaskeið. En halla tók undan fœti hjá prentsmiðjunni og árið 1982 seldu flestir eldri hlutfhafarnir sinn hlut og við fyrirtœkinu tók ungur lögfrœðingur, Leó E. Löve. Björn Jónsson stofnaði ísafoldar- prentsmiðju árið 1877, en þá hafði hann gefið út ísafold um þriggja ára skeið. Hann hætti störfum hjá prent- smiðjunni eftir að hann varð ráð- herra 1909. ísafoldarhúsið byggði Bjöm Jóns- son árið 1886 og var prentsmiðjan þar staðsett til ársins 1943. ísafold prentaði Morgunblaðið lengi fram- an af og var afgreisla blaðsins í litlu húsi við hlið prentsmiðjunnar. en æskilegt er“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.