Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 51

Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985 51 Sigmar Björnsson, setjari. Myndin er líklega tekin í þriðja áratugi þessarar aldar. hafanna eru skrifuð þar, en hluthafarnir eru: frú Borghildur Björnsson, August Flygenring, kaup- maður í Hafnarfirði, Gunnar Egilson, skipamiðlari í Reykjavík, Jón Hermannsson, lögreglustjóri, Ólafur Johnson, kaupmaður, Pétur J. Thorsteins- son, kaupmaður, og Sveinn Björnsson, yfirdóms- lögmaður. ísafoldarprentsmiðja fjárfesti nýlega í nýrri fimmlita prentvél og hér stendur Leó E. Löve við hana. Guðmundur Gíslason, verkstjóri bókbandsdeildarinnar, stendur hér hjá skurðarhníf sem er meira en aldargamall. Guðmundur hefur unnið alla sína starfsævi hjá ísafold og verkstjóri á undan honum var faðir hans, Gísli Guðraundsson. þeir hafa efni á. Við höfum tekið þann kostinn að leggja áherslu á að bæta þjónustuna og gæði prent- verksins og er nýja prentvélin liður í þeirri viðleitni." Hvað með bókaverslun fsafold- ar? „Bókaverslunin er dótturfyrir- tæki prentsmiðjunnar, ég hef lítið komið nálægt rekstri hennar. Þar stjórnar fólk með áratuga reynslu í hóka- og ritfangasölu. Verslunin er miklu minna fyrirtæki og ég hef ákveðið að einbeita mér að Prentsmiðjunni og útgáfunni og það er meira en nóg.“ Nú verða bráðum liðin 100 ár síð- an Björn Jónsson reisti ísafoldar- húsið í Austurstræti og síðan hefur prentsmiðjan aðeins flutt sig um set einu sinni, en það var árið 1943 þegar hún flutti hingað í Þing- holtsstrætið. — Finnst þér nokkuð vera kominn tími til að flytja aft- ur? „Jú það er kominn tími til að flytja. Við höfum sótt um lóð í nýja miðbænum ásamt Nýja kökuhús- inu og hefur borgarstjórinn gefið okkur fyrirheit um úthlutun. Þar er ætlunin að reisa húsnæði fyrir alla starfsemina á einu gólfi, en það er mjög óhagstætt að starfa á fimm hæðum eins og hér.“ Hrakspár í upphafi Þegar þú lítur til baka, hafa þessi þrjú ár ekki oft verið erfið? „Svo sannarlega hefur róðurinn oft verið þungur og tekið meira á mann en æskilegt er. En svona eru viðskipti oft á tíðum, maður verður að leggja mjög hart að sér, en ef allt gengur vel er líka von á ríku- legri uppskeru. Ég hef fengið mjög góðan stuðning, til dæmis frá Landsbankanum. Það sem skiptir hins vegar höfuðmáli er að hér er traust og gott starfsfólk." Var það ekki ókostur fyrir þig í byrjun að þekkja ekki betur til prentstarfsemi? „Að sumu leyti finnst mér kostur að koma úr mjög ólíkri grein vegna þess að ég hef dugandi samstarfs- fólk og mínir hæfileikar og mennt- un nýtast þá á þeim sviðum sem það sinnir ekki. Kannski var það vegna þessa sem ég varð var við hrakspár utanaðkomandi manna í upphafi, nema það hafi verið hinn algengi mórall að vonast til að illa gangi hjá öðrum." Ertu bjartsýnn á framtíðina? „Ég er bjartsýnn og trúi því að okkur hafi tekist að snúa blaðinu við og reksturinn skili hagnaði. Síðasta ár var okkur til dæmis mjög hagstætt. Ef við getum sýnt hagnað getum við einnig veitt starfsfólki okkar betri aðstöðu og hærri laun — fyrirtæki verða að fá að hagnast. Ég held að það hafi létt okkur róðurinn að þetta er svo gró- ið fyrirtæki og með góðu sam- starfsfólki tekst þetta vonandi, því auðvitað geri ég ekki neitt einn.“ Síðbúin kveðja: Asgrímur Ásgeirsson Andlát vinar míns og frænda, Ásgríms Ásgeirssonar, kom mér eins og fleirum á óvart. Hann lagði ungur frá landi að leita land- anna miklu og út í hið stóra stríð, sem kallast mannlíf og kom heill í höfn að lokum. Hann var virkur og styrkur í starfi fyrir íslenska sjómenn allt frá unglingsárum til hinsta dags. Hann vann sig af einu skipinu á annað yfir á Esju og Heklu og til starfa í Landhelgis- gæslunni, þar sem hann vann sig til mannaforráða. Hann var sonur hinna gagnmerku hjóna Ásu Jóns- dóttur og Ásgeirs Sigurðssonar skipstjóra, sem gat sér m.a. frægð fyrir siglingu sína á Esjunni til Petsjamo í upphafi síðari heims- styrjaldarinnar. Móðir mín og Ásgeir skipstjóri voru systkina- börn. Kallaði ég móður Ásgeirs jafnan Afabjörgu, en hún hét Ingibjörg. Ásgrími kynntist ég ár- ið 1946, en þá var hann á strand- ferðaskipinu Súðinnni. Kallaði hann mig frænda sinn og vissi ég ekki þá neitt um frændsemi við hinn vasklega sjómann, en frænd- seminnar naut ég þá strax og æ síðan, m.a. í vinalegu viðmóti hans. Ástvinum Ásgríms bið ég Guðs blessunar á svo örlagaríkum tíma- mótum. Þorkeli Valdimarsson Kveðjuorð: Guðmundur B. Jóns- son Hafnarfirði Fæddur 3. janúar 1967 Iláinn 21. júlí 1985 Það er vor 1984. Sumarfólkið er að hefja störf hjá Hafnarfjarð- arbæ. Við byrjuðum sama daginn. Höfðum aldrei hist. Þetta var upp- hafið að kynnum okkar við Guð- mund Björn, eða'Gumma eins og við kölluðum hann. Núna er Gummi búinn að yfirgefa okkur og skarð fyrir skildi. Kunningsskapurinn byrjaði svo sem ekki merkilega, en átti eftir að leiða til kynna sem ekki gleym- ast. Við áttum nánast ekkert sam- eiginlegt, tíu ára aldursmunur og ólík viðfangsefni. Þegar fólki hins vegar geðjast að öðru fólki„skiptir aldurinn litlu máli. Kunnings- skapurinn byggði á því, enda þró- aðist hann fljótt í trausta vináttu. Gummi kom oft að heimsækja okkur á Sléttahraunið. Þá átti hann það til að búa til kaffi, gefa Jóni Steinari, syni okkar, að borða, eða klæða hann ef til stóð að fara út. Allt upp á sitt ein- dæmi. Fólk sem heimsækir mann gerir yfirleitt ekki svona nokkuð nema því finnist það vera eins og heima hjá sér. Þannig vonum við altént að Gumma hafi liðið hjá okkur. Sumarið sem við kynntumst fórum við oft að veiða saman á kvöldin. Veiddum stundum, stund- um ekkert. Það skipti í rauninni litlu, það er félagsskapurinn sem máli skiptir, enda leið okkur vel. Þegar vetur gekk í garð og veiði- tíminn var úti héldum við áfram að hittast. Við töluðum um veiði- ferðir næsta sumars, eða leystum vandamál heimsins og mannanna. Gerðum það oft. Það er sjaldgæft að kynnast 17 ára unglingi sem hefur jafn mikinn tilfinninga- þroska og innsæi á tilfinningar annarra og Gummi hafði. Það er heldur ekki á hverjum degi sem maður hittir jafn barngóða menn, enda hændist Jón Steinar ekki meira að öðrum utan fjölskyld- unnar. Auk þess að vera fram- úrskarandi góður drengur, þá bjuggu í Gumma hæfileikar sem ekki eru öllum gefnir. Hann átti það til dæmis til að mála og skera í tré. Það er á stundum sem þessari sem maður gælir við hugmyndir um framhald eftir vistina hér. í trausti þess að svo sé, þá trúum við því, að hann haldi áfram að hugsa um leiðir til að bæta mann- lífið. Við höldum áfram hérna megin, enn um sinn. Guðmundur Rúnar og Ingibjörg Hann Gummi er dáinn og farinn síná leið. Leiðina sem enginn veit hvar endar. Leiðina til Guðs. En hann Gummi mun lifa í hjörtum svo margra hér jörðu og þar mun hann vafalaust verða langlífur, þótt að ekki hafi hann verið það í lifanda lífi. Ég þekkti Gumma i stuttan tíma. I rétt rúmt ár, en það var nóg til þess að kynnast því hve yndisleg persóna hann Gummi var. Svona hlýr og góður. Og þó að ég hafi þekkt hann Gumma í svona stuttan tíma þá á ég eftir að sakna hans. Og það mun alltaf verða ákveðið tómarúm í hjarta mínu, það pláss sem Gummi átti og mun eiga það sem eftir er. Ég bið góðan Guð að blessa alla ættingja og vini hans Gumma og styrkja þá í hinni miklu sorg. Élsku Gumma, honum þakka ég fyrir samveruna hérna á jörðinni en mín heitasta ósk er sú að nú líði honum vel, því að þá verður auð- veldara að sætta sig við orðinn hlut. Guðný ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.