Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 54

Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ1985 UNGLINGAKNATTSPYRNAN 5. flokkur — B-riöill: Þýðingarmikill leikur hjá Selfossi og FH FH-ingar sigruöu Selfott. 23. júlf. í GÆR, 22. júlí, fór fram leikur Selfoss og FH í íslandsmóti 5. flokks í knattspyrnu. Leikurinn var nokkuð þýðingarmikill báðum liöum, Selfoss þurfti að vinna til að eiga möguleika á að komast í úrslit og FH-ingar líka til aö gulltryggja sig í úrslitin. Bæöi liöin léku vel framan af og var þá nokkuð jafnræöi með þeim og staöan í hálfleik 0—0 var sanngjörn. í stöari hálfleik tóku FH-ingar frumkvæöiö og sóttu meira. Fljótlega í síöari hálfleik geröu FH-ingar fyrsta markiö og var þar aö verki Auðunn Helgason. Nokkru seinna skoraöi Ólafur Ólafsson annaö mark FH og Krist- inn Kristinsson þriöja markiö. Öll mörkin þrjú uröu til eftir skemmti- legan leik FH-inga og virtust strák- arnir hafa gott auga fyrir samleik og knattmeöferö þeirra var á köfl- um mjög góö. Selfossliöiö átti góö sóknar- tækifæri og sköpuóu oft hættu viö mark FH. Þaö geröist þegar þann- ig tókst til aö framherjarnir fengu góöa bolta sem gerðist of sjaldan. Meö örlítið meiri samleik Selfoss- liösins heföi staöan getaö oröið önnur í lokin. Nokkrir áhorfendur fylgdust meö leiknum og áttu FH-ingar sór góöan stuöningsmenn utan vallar sem fylgdu þeim á leikinn. Hvöttu þeir liö sitt óspart og hrósuóu fyrir frammistööuna. Þetta varö til þess aö stuöningsmenn Selfoss gerðu slíkt hiö sama og uröu ýmsar oröa- hnippingar utan vallar, þó allt í gamni, en einn þýóingarmikill þátt- ur í unglingaknattspyrnunni er aö foreldrar fylgi sínum mönnum á leiki og hvetji þá til dáöa. Sig. Jóns. • Ægir Már Þórisson, fyrirliði Selfyssinga. Við áttum góð tækifæri i Salfosti. 23. júlí. „VIÐ áttum góð tækifæri í þess- um leik, en þau nýttust okkur bara ekki,“ sagði Ægir Már Þór- isson, fyrirliöi Selfoss, eftir leik- inn við FH. „Ég veit ekki hvers vegna okkur tókst ekki að skora, þaö vantaöi herslumuninn." Ægir sagöi aö þaö væri góóur áhugi í lióinu, en þaö vantaöi aö fleiri strákar kæmu á æfingar. Sig.Jóna. Sigurlaun FH-inga voru Tívolíferð • Róbert FH. Magnússon, fyrirliði Soltoui, 23. júli, 19*5. „MÉR fannst þessi leikur ág»t- ur,“ sagöi Róbert Magnússon, fyrirliöí FH-liðsins, eftir leikinn við Selfoss. Róbert var aö vonum ánægöur með sigurinn og sagðí að þeir hefðu aöeins tapaö einum leik, sem var fyrsti leikurinn í fs- landsmótinu á móti Tý. FH-liðið er efst í B-riöli meö 14 stig eftir leikinn viö Selfoss og ör- uggt í úrslitin. Róbert sagöi aó þaö æfðu svona 25—30 strákar og þaö væri góö stemmning í liöinu. Hann sagöi aö þaö heföi hvatt þá mikiö að fyrir leikinn var þeim lofuö tívolíferö ef þeir ynnu og þaö tókst. Sig.Jóns. „Mjög skemmtilegt“ — segir Jóhann Torfason í knattspyrnuskóla ÍBÍ Morgunblaöið/Valur • Tvíburabræðurnir Gísli og Kristján Þór Kristjánssynir, 8 ára. Kristján Þór Kristjánsson: Knattspyrnuskóli knatt- spyrnuráös ísafjarðar er starf- ræktur nú í annað sinn og þá einnig undir stjórn Jóhanns Torfasonar. Skólinn er einkum ætlaöur fyrir krakka 6—10 ára og hefur þessi nýbreytni veriö mjög vinsæl meðal þeirra yngstu. 50 drengir og 12 stúlkur tóku þátt í skólanum aö þessu sinni, hann stendur í þrjár vikur, eöa alls 15 kennslustundir. Skólinn hefur veriö starfræktur á gras- vellinum viö Torfnes þar sem er aö skapast góö aöstaða. Jóhann hefur veriö aö hug- leiöa aö koma á fót ööru nám- skeiði um mánaóamótin júlí/ág- úst fyrir sama aldur. Jóhann hefur sjálfur veriö í meistaraflokksliði ÍBl sem leikur í 2. deild og þjálfaö 1. deildar liö kvenna svo þaö má segja aö hann dvelji á knattspyrnuvellin- um nú öllum stundum. „Þaö hefur veriö mjög skemmtilegt aö vera meö þess- um ungu krökkum, áhuginn skin úr hverju andliti og leikgleöin leynir sér ekki,“ sagöi Jóhann og bætti viö „það veröur aö hlúa vel aö þeim yngstu ef árangur á aö nást og þaö eru mörg efni sem maður getur séö hér á vellinum og oft ótrúlegt aö sjá framfarir þessa unga fólks". Aöstoöarmaöur Jóhanns er bróöir hans, Gunnar. 5! Ég skoraði t vö“ Morgunblaöiö/Valur • Torfi Jóhannsson „Pabbi bestur“ segir Torfi Jóhannsson „ÉG SKORA sæmilega af mörk- um á æfingum," sagði Torfi Jó- hannsson, einn af þeim sem eru í knattspyrnuskóla KRÍ á ísa- firði. „Ég byrjaöi aö æfa fyrir þrem- ur árum og ætla aö halda áfram og vera betri en pabbi (sonur Jó- hanns Torfasonar) þó hann sé nú ágætur. Uppáhaldsliöið er ÍBÍ en ég held aö þeir komist ekki upp í 1. deild núna. Asgeir Sigurvins er uppáhaldsleikmaöurinn en af ís- lenskum er pabbi bestur," sagöi Torfi Jóhannsson sem ætlar svo sannarlega aö feta í fótspor föö- ur síns í knattspyrnunni. TVÍBURARNIR Gísli og Kristján Þór Kristjánssynir, 8 ára, voru mjög áhugasamir viö æfingarn- ar og gáfu sér varla tíma til að ræða við blaöamann. „Viö byrj- uðum að æfa fótbolta fyrir tveimur árum,“ sagði Kristján sem haföi orð fyrir þeim félög- um. „Þaö er mjög gaman á nám- skeiðinu og viö ætlum aö halda áfram að æfa fótbolta næstu árin og komast í ísafjaröarliöiö. Viö æfum mest á malarvellinum nýja sem kominn er í Hnífsdal þar sem viö eigum heima,“ sagöi Kristján Þór. „Ég skoraði tvö mörk áöan er viö lékum á móti þessum í rauöu skyrtunum," sagöi Kristján. „Ég skoraöi ekki núna en ég hef oft skoraö í leikjunum, þegar viö skiptum i lið,“ sagöi Gísli. Þeir bræöur sögóust halda mest upp á ÍBÍ og væri Jói Torfa bestur, af erlendum leikmönnum héldu þeir mest uþp á Jesper Olsen sem leikur meö Manchest- er United. Síöan voru þeir roknir og komnir á fulla ferö. Morgunblaóiö/Valur • Hluti nemanda skólans sem voru á æfingu er blaðamann Morgunblaðsins bar að garði: Efri röð frá vinstri: Torfi Jóhannsson, Gísji Kristjánsson, Pétur Magnússon, Jón Smári Jóhannsson, Magnús Einarsson, Eyjólfur Þráinsson, Ármann Múli Karlsson, Haukur Davíösson og Gunnar Torfason, aöstoð- arþjálfari. Neðri röð frá vinstri: Jón Hálfdán Pétursson, fsak Kristjánsson, Einar Jóhannsson, Ómar Freyr Ómarsson, Shiron Þórisson, Atli Rúnarsson, Friörik B. Guðmundsson, Kristján Þór Kristjánsson og Aöalbjörn Tryggvason. Fyrir aftan stendur Jóhann Torfason, þjálfari. Jón Hálfdán Pétursson: „Ég skora ekki alltaf ‘ „ÉG byrjaði að æfa í fyrra,“ sagði Jón Hálfdán Pétursson, sem sagöist ætla að halda áfram og jafnvel komast í ÍBÍ. „Ég skoraöi ekki núna, en á síöustu æfingu geröi ég tvö, maöur skorar ekki alltaf bara stundum. Everton er mitt uppá- haldsliö af erlendum, en ÍBÍ aö sjálisögóu hér á landi, og ég von- ast til aö þeir komist upp í 1. deild. Uppáhaldsleikmaóur ís- lenskur er Ragnar Margeirsson, hann er ofsagóöur, annars er Ásgeir Sigurvinsson sá besti er- lendis. Skemmtilegasta sem ég geri er aö vera í fótbolta og þá sérstaklega á grasinu," sagöi Jón Hálfdán aö lokum. Morgunblaöiö/Valur • Jón Hálfdán Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.