Morgunblaðið - 28.07.1985, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985
55
Urslitaleikirnir í Norðurlandsriðli 4. og 5. flokks í vikunni
• Þórir Áskelsson, Þóraari, hefur hór skallad aó marki í leiknum vió KA. Þórir er númer 10.
Kristinn skoraði
þrjú fyrir KA
— KA sigraði 3:1 og fer í úrslitakeppnina
ÞÓR nœgði einníg jafntefli í 4.
flokki gegn KA til aó fara í úrslita-
keppnina. En KA sigraði í leikn-
Um, 3:1, og KA-strákarnir leika
því í keppninni, sem annaðhvort
veröur á Akureyri eöa í Kópavogi.
Þórsarar sóttu meira fyrri hluta
leiksins og um miöjan fyrri hálfleik
fengu þeir vítaspyrnu er markvörö-
ur KA braut á Sverri Ragnarssyni.
Þórir Áskelsson skoraöi örugglega
!úr vítaspyrnunni. Staöan oröin 1:0
fyrir Þór. Leikurinn jafnaöist mikiö
eftir markiö en eina hættulega
færiö fram aö leikhléi fékk Þórsar-
inn Sverrir Ragnarsson, en hann
skaut naumlega framhjá.
KA-menn voru mun ákveönari í
síðari hálfleiknum. Þórsarar fóru
þá aö „kýla“ boltann fram úr vörn-
inni, lítiö var um spil. Þaö var eins
og þeir ætluöu bara aö halda for-
skoti sínu.
Um miðjan seinni hálfleikinn
skoraöi Kristinn Magnússon fyrsta
mark KA, en hann skoraði öll þrjú
mörk liðsins í leiknum. Fyrsta
markiö geröi hann meö skoti af
stuttu færi eftir þvögu.
Kristinn skoraöi annaö mark sitt
stuttu síöar. KA átti þá skot í
þverslá, boltinn skoppaöi til baka
og þá kastaöi Kristinn sér fram og
skallaöi glæsilega í netiö. Mjög vel
gert hjá þesum unga leikmanni.
Þriöja og síöasta mark KA og
Kristins kom tíu mínútu fyrir leiks-
lok. Hann fékk knöttinn til hliðar
viö markiö og renndi honum fram-
hjá markveröinum.
Þórsararnir sóttu meira síöustu
minúturnar. Áttu þá skot í þverslá
og annaö i stöng en þeim tókst
ekki aö skora.
KA-liöiö var mjög jafnt, en mest
áberandi var auövitaö Kristinn
Magnússon í síöari hálfleiknum.
Hjá Þór var meðalmennskan rikj-
andi.
ÚRSLIT ALEIKIRNIR í Noróur-
landsriölum 4. og 5. flokks í
knattspyrnu fóru fram á Þórsvelli
á Akureyri á fimmtudagskvöldið.
Þór og KA áttust þar viö. Þórsarar
sigruöu, 3:2, í ö.flokki og komust
þvi í úrslit — og KA sigraöi, 3:1,1
4. flokki og fer því í úrslitakeppn-
ina í þeim aldursflokki. Tíöinda-
maður Morgunblaösina var viö-
staddur leikina á Þórsvellinum á
fimmtudagskvöldið og er frásögn
hans af því sem þar geröist hér á
síöunni.
Kristinn Magnússon:
„Ágætur
leikur“
„NEI, ég átti ekki von á að vinna
þennan leik, en eftir að við jöfn-
uðum byrjuðum við á fullu og þá
kom þetta allt saman,“ sagöi
Kristinn Magnússon, hetja 4.
ftokks KA, eftir sigurinn á Þór.
„Þórsarar voru betri fyrri hluta
leiksins en viö unnum sanngjarnan
sigur. Þetta var ágætur leikur og
þetta er búiö aö ganga vel hjá
okkur í sumar, en viö erum ekki
búnir aö spila nógu mikiö á móti
sterkum liöum."
Hvaö heldurðu um úrslita-
keppnina?
„Þjálfari okkar, Þorvaldur Þor-
valdsson, sem þjálfaö hefur liö í
yngri flokkunum fyrir sunnan, segir
aö KA og Þór séu meö sterk liö
miðaö viö liöin fyrir sunnan og aö
viö eigum góöa möguleika á aö
standa okkur vel i úrslitunum."
• Kristinn Magnússon
• Þórir Askelsson
Þórir Áskelsson:
„Nýttum
ekki
færin“
„ÞAD var agalega slakt aö vinna
þetta ekki. Aö missa þetta svona
niöur,“ sagöi Þórir Áskelsson,
Þórsari, eftir tapiö gegn KA í 4.
flokki.
„Viö nýttum ekki færin okkar og
leikir vinnast ekki ef færin eru ekki
nýtt. Þaö var lélegt aö fá þessi
mörk á okkur. Viö hættum aö spila
er viö skoruöum markið og slök-
uöum allt of mikiö á. Viö vorum
betri í þessum leik, fannst mér,
vorum harðari og á undan í bolt-
ann. Viö höfum oft spilaö mikiö
betur í sumar en þaö er eins og
óheppnin elti okkur alltaf þegar viö
spilum á móti KA.“
Þór vann 32 í
skemmtilegum
leik og fer í úrslitin
• Höskuldur Þórhallsson
Höskuidur Þórhallsson:
„Góður
leikur“
„ÞETTA var góður leikur og bar-
áttan var góö hjá báðum liöum,“
sagöi Höskuldur Þórhallsson,
leikmaöur 5. flokks KA, í samtali
viö Morgunblaöiö eftir leikinn viö
Þór.
„Viö áttum alveg eins aö geta
unniö. Mér fannst fyrsta mark Þórs
ekki vera mark, ég held aö boltinn
hafi ekki fariö einn fyrir línuna. Ég
er ánægöur með árangur okkar í
sumar en viö töpuöum fyrir KS og
vorum mjög slakir þá.“
• Guömundur Benediktsson
Guðmundur Benediktsson:
„Ætluðum
í úrslitin“
“VIÐ ætluðum okkur í úrslitin og
vorum ákveönir í aö berjast fyrir
því allir sem einn,“ sagöi Guó-
mundur Benediktsson, leikmaöur
5. flokks Þórs, eftir sigurinn á KA,
en hann skoraði fyrsta mark liös
síns og fiskaði vítaspyrnuna sem
sigurmarkið var gert úr.
„Mér fannst viö vera miklu betri,
sérstaklega í fyrri hálfleik og átti
von á aö viö myndum vinna þenn-
an leik. Okkur hefur gengiö vel en
gerðum jafntefli á móti Tindastól
og vorum lélegir í þeim leik.“
— Hvernig lýst þér á úrslita-
keppnina á Akranesi?
„Viö ætlum okkur ekki minna en
þriöja sætiö þar.“
ÞÓRSURUM nægói jafntefli í 5.
flokki til aö komast í úrslita-
keppnina. Fyrir leikinn á fímmtu-
dag, sem var sá síðasti í riölinum,
höföu Þórsarar tapað einu stigi
(gert jafntefli viö Tindastól), en
KA tapaöi tveimur (tapaöi fyrir
KS). Þórsarar sigruöu 3:2 og
komust því í úrslitakeppnina,
sem veröur á Akranesi.
Ekkert var skoraö i fyrri hálfleik,
en Þórsarar sóttu meira. Einu sinni
björguöu KA-strákarnir á línu og
Þór átti einnig skot í þverslá.
Strax í byrjun siöari hálfleiks
skoruðu Þórsarar, Guömundur
Benediktsson skoraöi þá beint úr
hornspyrnu. KA sótti síðan meira
eftir markiö og skömmu síöar jafn-
aöi Hilmar Ólafsson fyrir KA af
stuttu færi. Staöan oröin jöfn, 1:1.
Leikurinn var jafn þaö sem eftir
var. Er tíu mínútur voru eftir skor-
aöi Þór sitt annaö mark og þá
skoraöi Steindór Gíslason beint úr
aukaspyrnu meö góöu skoti utan
af velli til hliöar. Á sömu minútu
jafnaöi KA aftur og þá skoraöi Ivar
Bjarklind meö skalla. Þessi stór-
skemmtilegi leikmaöur skaliaöi þá
í netiö af stuttu færi eftir þvögu í
teignum.
Þegar tvær minútur voru eftir
var dæmd vitaspyrna á markvörö
KA sem braut á Guömundi Bene-
diktssyni innan teigs. Ur vítaspyrn-
unni skoraöi Steindór Gíslason ör-
ugglega og var sigur Þórs þvi i
höfn.
Leikur liöanna var góöur og
skemmtilegur í báöum liðum eru
margir efnilegir leikmenn sem ör-
ugglega eiga eftir aö láta mikiö aö
sér kveöa í framtíöinni. Hjá KA var
ivar Bjarklind bestur, en hjá Þór
var Steindór Gislason bestur.
• Þessi mynd var tekin ( leik Hvatar og Völsungs í 4. flokki ís-
landsmótsins á Blönduósi fyrir stuttu. Völsungar sækja aö marki
heimamanna.