Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 1
Frídagur verslunarmanna PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST1985 BLAÐ en það þarf alltaf að hjálpa Guði eitthvað til Gísli á Melhól í Meðallandi sóttur heim Hugað að gömlu íhöldunum hjá dýralækninum. Ghli i Melbóli rið bluta af bókasafni sínu. Hugað að gömlu áhöldunum hji dýralækninum. Inga iír Ejjum skoðar forlita sósukönnu. sem bún festi kaup i bji Gísla i liðíega 100 kr. Gísli á Melhól Tómasson, kaupmaður og bóndi í Leirvallasveit í Meðallandi í Vest- ur-Skaftafellssýslu, er einn af elstu og reyndustu kramvörukaupmönnum landsins og líklega einn sá síðasti núlifandi af gamla skólanum. Gísli á Melhól hefur unn- ið mikið um œvina, byggt og bœtt. Hann var þrekmenni lengst af œvinni, er nœr 88 ára gamall, eldhress en það sem háir honum er lúi í fótum. Hann hefur löngum séð meira en gengur og gerist í hversdagslífinu og œtt- arbogi hans er með því skrautlegra sem einn maður getur ætlast til. Já, ég er kominn af Göngu-Hrólfi," sagði Gísli, „þetta er allt rakið til Noregskonunga, Svíakonunga og Dana, í minni ætt eru menn eins og Ragnar Loðbrók, Sigurður Fáfnisbani og fjöldi feiri konunga sem ég kann nú ekki að nefna, það var svo mikið af fylkiskonungum þá, nú og svo má nefna fyrsta biskup ís- lands, Gissur í Skálholti, Sæmund fróða, Magnús prúða og Loft ríka á Möðruvöll- um, þetta eru allt frœndur mínir. “ ísli á Melhól er þjóðsagna- persóna. Hann er að mörgu leyti næmari en aðrir menn. Hann hefur lent í ýmsu og má nefna að á sínum tíma þegar hann reri á ára- skipi þá fyllti eitt sinn áraskipið og töldu allir skipverjar að nú væri lífinu lokið, en Gisli á Melhól var ekki á sama máli. Hann þreif stórt trog sem var stærra en svo að væri með góðu á eins manns færi að svipta til og frá, en með þessum stóra bala jós Gísli á Melhól bátinn og barg lífi sinu og félaga sinna að þeirra sögn. Gísli sagðist hins veg- ar aðeins hafa aðstoðað Ólaf Ormsson. Það má nefna, að Gfsli á Melhól var eitt sinn sem oftar að sinna skyldustörfum. Hann var að bera kol í hús og kvaðst vera orðinn ansi leiður á því undir lokin að þurfa hvort tveggja i senn að bera pok- ana og ryðja stöðugt draugum frá sér, en þar kvað hann á ferð 12 menn sem höfðu farist með stórri jullu sem var á hlaðinu í Sandaseli. Við heimsóttum Gfsla á Melhól og röbbuðum við hann um kramvöru- búðina, lífið og tilveruna. Fólk hefur gaman af gömlum kompum „Ég held að ég muni ekki al- mennilega hvenær ég byrjaði versl- un, líklega í kringum 1947—1948, sagði hann. Fyrst var ég með útibú fyrir kaupfélagið. Svo setti kaupfé- lagið upp útibú á Efri-Ey og þá fór ég að versla sjálfur hér uppi á loft- inu. Fólk á ferð, fólk í hreppnum og í næstu sveitum verslaði við mig. Það er að skemmta sér, fara hring- inn hér í sveitinni og koma við. Fólk hefur gaman af að koma I svona smá gamiar kompur. Nú orð- ið kaupi ég aðallega inn hjá Is- lensk-erlenda, Tóbakinu og svo Kaaber en áður hjá Sambandinu. Ég hef gaman af að versla. Það er skemmtilegra en að gera ekkert. Ég hef verið að vinna við ýmislegt annað, en þegar ég hætti búskap 1965 og synir mínir tóku við, Ragn- ar og Tómas, þá fór ég að rækta Leiðvelli. Þar er ég með mitt fé. Leiðvellir fóru í eyði 1944 af sandi, sást hvergi í gras, en sandurinn fauk smátt og smátt af og þetta lagaðist. Áður, þegar búið var þar, gaf túnið 80 hesta af sér, en nú gefur það af sér 5000 bagga vél- bundna eða um 1000 hesta. Ég hef verið að rækta þetta upp í ellinni mér til gamans en á nú aðeins fáar kindur eftir, 13 ær, þó húsin sem ég var búinn að byggja upp séu fyrir 300 kindur. Ég held að kvóti minn sé 99 ær.“ Konurnar hafa gaman af að fitla í ströngunum „Jú, jú, það er opið hjá mér allan sólarhringinn. Þegar einhver kem- ur og langar að versla, þá opna ég. Fólk úr Reykjavík kemur oft hingað til mín. Hér geta konurnar fitlað í ströngunum og hafa gaman af því. Það er alltaf einhver sala, jöfn. Veltan er um 200 þús. kr. á ári undanfarin ár. Ég geri upp einu sinni á ári. Margt hef ég unnið um ævina. Ég var dýralæknir hér þar til læknir kom að Klaustri, frá 16 ára aldri. Aðallega hef ég sinnt hestavönun. Hana lærði ég hjá dýralækni úti í Mýrdal. Svo hef ég verið á RangárvöIIunum og í Land- eyjunum. Það feilaði aldrei hjá mér aðgerð og varð aldrei neitt að nein- um hesti og þó eru það mörg hundruð hestar, sem ég er búinn að taka úr. Það hefur líka margt drif- ið á dagana hér í sambýlinu við ströndina. Ég tók t.d. einu sinni að mér fyrir Gæsluna að koma einum togara út. Við höfðum að koma honum út. Þeir höfðu verið með troll úti að reyna að ná silung, tel ég víst, en skipið margfyllti af sjó. Við dældum öllu úr og hjuggum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.