Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 a DRornNS.i>ra Umsjón: Séra Auóur Eir Vilhjálmsdóttir Ásdís Emilsdóttir Svavar A. Jónsson Stúdentamótið í Reykjavík 1985 Þeir Jóhannes Tómasson og Gunnar H. Ingimundarson hafa tekið saman efni fyrir síðuna í dag sem fjallar um nor- ræn kristileg stúdentamót. Þau eru haldin til skiptis árlega á Norðurlönd- unum. Samkvæmt því ætti mótið að vera haldið á íslandi 5. hvert ár, en vegna sérstöðu landsins m.t.t. fjar- lægðar og kostnaðar eru 10 ár síðan það var haldið hér síðast. Það hefur tæpast farið fram hjá nokkrum manni, að mikið stendur til í Reykjavík dagana 5. til 11. ágúst næstkomandi. Þá daga stendur yfir Norrænt kristilegt stúdentamót í Nes- kirkju. Undir yfirskriftinni Kristur og vandi okkar, munu um 150 erlendir stúdentar og um 70 Islendingar hlýöa á fyrir- lestra og taka þátt í umræðu- hópum er kryfja málefnið til mergjar. Ef til vill mun ýmsum finnast umræðuefni mótsins heldur dapurlegt, svona fyrst í stað. En þegar betur er að gáð, er málefnið ekki svo fjarri lagi. Upp á skandinavísku ber mótið heitið „Kristen í krisetider“ og varpar það væntanlega skýrara ljósi á innihald umræðunnar. Það þarf ekki að fara langt til að sjá fyrir augum sér kvöl og pínu, einskonar krepputima, þar sem fátækt, óréttur, ofbeldi og hvers kyns neyð steðjar að samfélög- um og einstaklingum. Ef til vill þekkjum við sjálf fólk sem geng- ur sinn veg án sýnilegs tilgangs i einsemd og kviða fyrir framtið- inni. Sum okkar hafa gengið gegnum efnahags- og sálarlega „krepputíma" i námi og starfi. Jafnvel í kristnilifinu koma upp erfiðleikatímabil. Á Norræna kristilega stúd- entamótinu verður einmitt fja.ll- að um þessi málefni, ásamt ýms- um öðrum. Það þýðir ekki að láta sem ekkert sé, við verðum að horfast í augu við vandann, þótt okkur kunni stundum að finnast framtíðin dökk og lífið jafnvel tilgangslitið. Mótsgestir ætla þó ekki að velta sér upp úr því sem veldur vandanum, heldur hvernig koma megi auga á kristnidóm á slíkum vandamálastundum. Á Norræna kristilega stúdentamótinu verð- ur reynt að benda á hvernig ein- staklingurinn finnur Guð og hverju hann svarar þegar til hans er leitað. Á mótinu verður væntanlega að finna svör við ýmsum spurn- ingum og vangaveltum og þar má spyrja enn frekar. Sérfróðir menn um málefni kirkju og kristni verða mótsgestum til halds og trausts. Og hvernig fer svona mót fram? Að morgni dags verður biblíu- KRISTEN I KRISETIDER Nordiskt studentmöte Reykjavík, ísland 5-11 augusti 1985. lestur, þar sem farið er í samein- ingu yfir ákveðna kafla Biblí- unnar og þeir brotnir til mergj- ar, til að kanna innihaldið. Umræðuhópar, sem starfa seinni hluta dags tvo mótsdag- ana, fá sitt hvert málefnið til umfjöllunar eftir fyrirlestur „sérfræðings í faginu". Hóparnir verða takmarkaðir að stærð, svo hver og einn einstaklingur fái notið sin, lagt sitt af mörkum tii umræðnanna, sjálfum sér og öðrum til uppbyggingar f trúnni. Frístundir hér og þar og öðru hvoru i dagskránni verða vel nýttar til að efla samfélag nor- rænna manna. Það sem helst snýr að okkur, sem ekki erum skráðir þátttakendur Norræna kristilega stúdentamótsins eru opnu kvöldsamkomurnar í Nes- kirkju. Þær hefjast kl. 20.30 alla mótsdagana. Auk hugvekju, sem mætir pre- dikarar skiptast á um að flytja, verður mikill almennur söngur. Mótsstjórnin vonast til að sem flestir hafi tök á að koma til þeirra samverustunda, enda verður yfirskrift mótsins, sem erindi á til allra, þar f hávegum höfð. Mótinu mun svo ljúka með útvarpsguðsþjónustu kl.13.30 sunnudaginn 11. ágúst. Dagskrá Norræna kristilega stúdentamótsins lítur þannig út: Mánudagur 5. ágúst: 17.15 Opnunarsamvera 20.30 „Med Jesus í uppgörelsen" Jóh. 3:1—16. Þriðjudagur 6. ágúst: . 9.45 Biblíulestur „Fyrir hásæti himins" 17.45 Þjóðhátíðarkvöld 20.30 Aðalfyrirlestur, „Bibeltro- het í kristid". 20.30 „Med Jesus in i förlátels- en“ Jóh. 8:10-12. Fimmtudagur 8. ágúst: 9.15 Dagsferð um Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Skál- holt. 20.30 Söngsamvera, „Hvers- dagsganga með Jesú“, Post: 16:25-34. Föstudagur 9. ágúst: 9.45 Bibliulestur, „Vem kan bestá?" 16.30 Umræðuhópar. 20.30 „Med Jesus i sorgen", Jóh. 11:17-29. Laugardagur 10. ágúst: 9.45 Biblíulestur, „Ur det stora lidandet". 16.30 Umræðuhópar. 20.30 „Med Jesus i den ytersta krisen", Lúkas 16:19—31. Sunnudagur 11. ágúst: 9.00 Þjóðháttastund. 9.45 Bænahópar. 13.30 Útvarpsguðsþjónusta, „Med Jesus ut í várlden". 15.30 Mótsslit. Eins og fram hefur komið er öllum velkomið að skrá sig á mótið eða mæta á opnu kvöld- samkomurnar f Neskirkju sem hefjast öll kvöld kl. 20.30. Kvöldin 5.—10. ágúst verða opnar samkomur f Neskirkju sem hefjast kl. 20.30. Reykjavík 1975: Fámenna félagið með fjölmenna mótið Norrænt, kristilegt stúdenta- mót, sem haldið var í Reykjavík árið 1975, var heilmikill hand- leggur fyrir fámennt félag. Einu til tveimur árum áður en mótið skyldi haldið urðu menn varir við mikinn áhuga frænda frá Norðurlöndunum og var ljóst að þeir myndu fjölmenna. Enda flykktust hingað liðlega 1100 norrænir gestir á ýmsum aldri, námsmenn og fyrrum náms- menn, sem allir vildu sjá hvernig stúdentamót á sögueynni færi fram. Kristilegt stúdentafélag sá um allan undirbúning. Segja má að nær allir félagsmenn hafi þar verið virkir. Settar voru á lagg- irnar hinar ýmsu nefndir, dag- skrárnefnd, húsnæðisnefnd, tækninefnd, velferðarnefnd, fjáröflunarnefnd og hvað þær nú allar hétu. Þinguðu nefndar- menn í heilt ár og reyndu að sjá fyrir allt er þyrfti að undirbúa fyrir slíkt ót. Upphaflega var ráðgert að mótið færi fram í Menntaskólanum við Hamra- hlíð, en þegar ljóst var hvílíkur fjöldi þátttakenda myndi verða var ákveðið að flytja allt móts- haldið í Laugardalshöllina. Svo vel stóð á þar, að ekkert var um að vera þessa ágústdaga, en menn urðu að vera röskir við til- tektir að loknu móti svo að Höll- in gæti hýst árlega vörusýningu. Undirbúningurinn fólst nátt- úrulega í því að kanna ferða- möguleika, matarþjónustu og allt það, semja um þessa hluti og síðan var mikið starf unnið við fjáröflun. Þessi norrænu mót njóta jafnan einhvers styrks frá hinum norræna menningar- málasjóði, en þar að auki var reynt að nýta vinnu sjálfboða- liða til hins ýtrasta. Þeir lágu ekki á liði sínu og voru fram- leiddar lopapeysur í tuga- og hundraðatali og aðrir munir seldir minjagripaþyrstum út- lendingum. Með þessu tókst að tryggja að fámennt félag lenti ekki í neinum halla, enda varð raunin sú að nokkur hagnaður varð að loknu uppgjöri. Óhætt er að halda fram að mótið hafi farið fram samkvæmt áætlun. Þarna voru margir málflytjendur, kennimenn lærð- ir og leikir frá ðllum Norður- löndunum. Nokkuð var um mótið fjallað í blöðum enda kannski ekki oft sem 1000 til 1500 manns safnast saman á kristilegu móti á íslandi, en kvöldsamkomur mótsins voru opnar almenningi. Að mótinu loknu tóku um 400 manns þátt í ferðum um landið sem KSF skipulagði einnig. Það sem reyndar vakti kannski mesta athygli síðasta dag móts- ins var svæsin matareitrun. Kjúklingakássa var borðuð upp til agna næstsíðasta kvöldið og hafði þær afleiðingar, að mikil örtröð varð á salernum. Urðu sumir illa veikir og varð hálfgert neyðarástand á spítölum borgar- innar. Allt fór þetta þó vel og úr því að kássan var etin upp til agna var ekki hægt að finna neinn sökudólg. Þátttaka KSF í þessum mót- um hefur verið misjöfn gegnum árin og var slíkt mót hér fyrst haldið 1950. Félagsmönnum er það mikils virði að hafa sam- band við systurfélög á hinum Norðurlöndunum, en öll eiga þessi félög það sameiginlega markmið að koma kristnum boðskap á framfæri meðal námsmanna. Slíkt er m.a. gert með þessum mótum og verður svo einnig nú, en auk þess hafa félögin fjölbreytta dagskrá sumar og vetur. Þrátt fyrir að mótið að þessu sinni verði ekki svo fjölmennt sem fyrir 10 árum binda menn vonir við góðar stundir og að þeir sem sæki bibl- íulestra og samkomur fari þaðan ríkari en þeir komu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.